Morgunblaðið - 19.03.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 39
kert börn gagnrýnd
Schröder lýkur skyndiferðalaffl milli höfuðborga ESB
Morgunblaðið/Golli
;ófer en á bak við þau sitja
5ning
'iiiál
fjölskyldur þeirra strax eftir að þau
greinist heyrnarskert eða heyrnar-
laus. Hún er þó ósammála Gylfa um
hvernig slíkri þjónustu sé best komið,
og bendir á mikilvægi táknmáls fyrir
heymarskerta og heyrnarlausa.
„Staða heyrnarskertra barna, bæði
á leikskóla- og grunnskólaaldri, er
mjög slæm. Þau búa víða við mjög
brotið málumhverfi og vegna heyma-
skerðingarinnar eiga þau mjög erfitt
með að tileinka sér talaða íslensku,“
segir Hafdís. Hún segir jafnframt að
þessir einstaklingar tali í flestum til-
vikum íslensku en þeir eígi erfitt með
að halda uppi samræðum vegna þess
að þeir skilji oft illa þau samskipti sem
eru á milli fólks. Segir hún að oftast
nær komi samskiptaörðugleikar
heyrnarskertra barna í ljós um 4-5
ára aldur þegar samskiptamynstur og
reglur í leikjum bama verði flóknari.
Þá komi oft fyrir að þau misskilji leik-
reglurnar og fái í kjölfarið neikvæða
svörun frá hópnum.
„Því eldri sem börnin verða því erf-
iðara er fyrir heyrnarskert barn að
fylgjast að með hinum með því að nota
heyrnartæki. Það krefst alveg gífur-
lega mikillar einbeitingar og þessi
börn eru mjög oft mjög þreytt og fá
gjarnan vöðvabólgu vegna þess hvað
það krefst mikillar orku fyrir þau að
fylgjast með.“
Raunhæft val grundvallaratriði
„Það er grundvallaratriði að for-
eldrum allra bairna sem gi-einast
heyrnai-skert og fá heyrnartæki bjóð-
ist fagleg ráðgjöf og leiðsögn um það
hvernig þeir geti hagað ytri aðstæðum
þannig að tækin nýtist sem best. Jafn-
framt eiga öll heyrnarskert böm rétt
á því að fá að læra tákn-
mál,“ segir Hafdís.
Hafdís segir að nauðsyn-
legt sé að ráðgefandi aðili
starfi á Heyrnar- og tal-
meinastöð íslands vísi for-
eldrum á þau úrræði sem séu fyrir
hendi þvi úrræðin séu í mörgum tilvik-
um til. „Það þarf að kynna fólki úr-
ræðin. Við höfum Sólborg og Vestur-
hlíðarskóla og Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra og heymarskertra og
það verður að gefa foreldrum kost á
að velja hvaða úrræði þau velji fyrir
börn sín. Eins og er er foreldrum ekki
gefið raunhæft val um hvort barnið
þeirra læri táknmál eða ekki. Það
verður að gefa börnum kost á því að
vera á leikskóla þar sem talað er tákn-
mál, þá tryggjum við að þau geti átt
samskipti við alla og síðan velja þau
sér sjálf hvort þau vilji í framtíðinni
nota rittúlk í skóla sem skrifar allt á
íslensku eða hvort þau vilja hafa tákn-
málstúlk. Öðravísi er þeim ekki gefið
raunhæft val, og þá er í raun veriji að
svipta þessi börn tækifæri til mennt-
unar og þroska,“ segir Hafdís.
Hafdís bendir á þær hættur sem
fylgja því að börn alist upp við brotið
málumhverfi: „Það er reynslan að þeir
einstaklingar sem ekki hafa fullan
skilning á móðm-máli sínu bíða skip-
brot einhvers staðar á lífsleiðinni.
Margh- einstaklingar sem hafa lent í
þessai’i að stöðu koma hingað á Félag
heyrnarlausra. Þá eru þeir jafnvel
komnir í óreglu og búnir að tapa í líf-
inu alla sína ævi og hvorki eiga né
geta átt samskipti við aðra. Ef þeir
hefðu fengið tækifæri til að læra tákn-
mál strax í upphafi þegar þeir voru
greindir heyrnarskertir hefðu þeir
haft raunhæft val um hvort þeir hefðu
viljað sækja skóla þar sem töluð er ís-
lenska eða skóla þar sem talað er
táknmál. Með því móti hefðu þeir geta
valið aðrai- leiðh- þegar þeir fóru að
finna fyrir því að erfitt var að lesa af
vörum og skilningurinn var ekki til
staðar," segh’ Hafdís.
Fordómar gagnvart táknmáli
Valgerður Stefánsdóttir, forstöðu-
maður Samskiptamiðstöðvar heyrnar-
lausra og heyrnarskertra, tekur í
sama streng og Hafdís og bendir á
mikilvægi þess að börn fái þjónustu
strax frá upphafi.
,Ástandið er slæmt. Það eru börn
úti í samfélaginu sem hafa það lélega
heyrn að þau eiga ekki óheftan aðgang
að móðurmáli. Barn verður að hafa
óheftan aðgang að samskiptamáli til
þess að geta þroskað hæfileika sína til
fullnustu og lagt grann að öllu öðra
námi. Forsenda þess að þau geti gert
það er að þau hafi óheftan aðgang að
máli og samskiptum við alla í um-
hverfinu á því máli. Eina málið sem
þau hafa óheftan aðgang að er tákn-
mál og táknmál getur borið jafn flókna
hugsun og öll önnur mál.“
Að sögn Valgerðar stendur Sam-
skiptamiðstöðin fyrir táknmálsnám-
skeiðum fyrir börn og fjölskyldur
þeirra eftir að þau hafa greinst heyrn-
arlaus eða heyrnarskert. Segir hún að
vandamálið varðandi slæma aðstöðu
barna sé ekki að þjónustan sé ekki til
staðar heldur sé hún af öðrum toga:
„Það vantar samhæfingu á þjónust-
unni og að fólk sé upplýst um hvaða
möguleikar era til. Það getui’ líka ver-
ið að fólk hafi fordóma gagnvart tákn-
máli eða þá að það hafi ekki trá á að
Vesturhlíðarskóli geti veitt þeim jafn
góða menntun og hinh- grannskólarn-
ir. En börnin þurfa þjónustu frá fæð-
ingu en ekki frá grannskólaaldri. Til
þess að Vesturhlíðarskóli geti veitt
þeim sambærilega menntun og aðrir
skólar verða börnin sem stunda þar
nám að hafa fengið aðgang að tákn-
máli frá því að þau fæddust, þannig að
þau hafi jafn góðan skólaþroska og
önnur börn.“
Valgerður segir að fólk viti ekki af
þeirri þjónustu sem Samskiptamið-
stöðin veitir. „Það er mikið hringt til
okkar utan af landi og spurt um hvað
sé hægt að gera í málum heyrnar-
skertra og heymarlausra einstak-
linga, sem þá hafa jafnvel verið án
þjónustu í einhvern tíma en ekki vitað
af þjónustunni. Það er því oft of seint
sem fólk hringir og það hefur eytt
miklum tíma í að leita úrræða,“ segir
Valgerður.
Þeir sem starfa við þjónustu fyrir
heyrnarlaus og heyrnarskert börn eru
sammála um að úrbóta sé þörf þrátt
fyrir að þeir séu ekki sammála um
hvernig þjónustunni skuli
háttað. Að öllum líkindum
stafar sá ágreiningur af
ólíkum skoðunum um hlut-
verk og nauðsyn táknmáls
fyrir heyrnai’lausa og
heyrnarskerta, eins og bent hefur ver-
ið á. Hvernig sem sá ágreiningur verð-
ur leystur er víst að nauðsynlegt er að
bregðast við hið fyrsta. I húfi er fram-
tíð fjölda ungmenna sem eiga mögu-
leika á bjartri framtíð með góðri
menntun og stuðningi. Ef ekkert verð-
ur að gert er hætt við að halli undan
fæti hjá þeim sem enga aðstoð fá, eins
og framkvæmdastjóri Félags heymar-
lausra bendir á.
Ósammála
um hvað beri
að gera
Leitin að arftaka
endar ekki í Berlín
Leiðtogar ESB leita nú logandi ljósi að lausn
á stjórnkerfiskreppunni sem afsögn fram-
kvæmdastjórnar sambandsins hefur valdið.
Þótt leitin að lausninni verði á dagskrá auka-
leiðtogafundar í Berlín í næstu viku er ekki
útlit fyrir að þar náist samkomulag um hana,
en að sögn Auðuns Arnórssonar verður
fyrsta skrefið að útnefna arftaka Jacques
Santers, forseta framkvæmdastjórnarinnar.
GERHARD Schröder, kanzl-
ari Þýzkalands og starfandi
formaður ráðherraráðs Evr-
ópusambandsins, sagðist í
gær vongóður um að takast myndi að
ganga frá samkomulagi um uppstokk-
un fjármála ESB á aukafundi leiðtoga
ESB-landanna í Berlín um miðja
næstu viku, en útlit væri fyrir að
lengri tíma tæki að komast að niður-
stöðu um hverjum skuli falið að taka
við sem forseti framkvæmdastjórnar
ESB.
Schröder lauk í gær skyndiferða-
lagi sínu milli höfuðborga ESB-land-
anna með viðkomu í Lissabon, Ma-
dríd, París og Lúxemborg, sem hann
lagði upp í með það fyrir augum að
reyna að tryggja að leiðtogafundurinn
í Berlín skili tilætluðum árangri. Eftir
tveggja tíma viðræður við Antonio
Guterres, forsætisráðherra Portúgals,
lagði Schröder áherzlu á að það lægi á
að finna nýja menn í hina 20 manna
framkvæmdastjórn. Hann sagði að
hvort tveggja endurskoðun fjármála
ESB og leitin að eftirmanni Jacques
Santers í forsæti framkvæmdastjórn-
arinnar yrði á dagskrá Berlínarfund-
arins.
„Við verðum snarlega að taka
ákvörðun [um framkvæmdastjórnina],
en ég get ekki lofað því að hún verði
tekin í Berlín,“ tjáði Schröder frétta-
mönnum í Lissabon.
Guterres er einn þeirra sem nefnd-
ir hafa verið sem mögulegir eftirmenn
Santers. Hann er jafnaðarmaður og
hyggst berjast fyrir endurkjöri ríkis-
stjórnar sinnar í þingkosningum í
október. Á blaðamannafundinum í
Lissabon í gær sagðist hann engan
áhuga hafa á að skipta um starfsvett-
vang.
Athyglin beinist að Prodi
Af þeim mönnum sem nefndir hafa
verið sem mögulegir arftakar Santers
virðist Romano Prodi, fyrrverandi
forsætisráðherra Italíu, vera með
einna sterkasta stöðu. Prodi, sem er
58 ára, er sjálfur upprunalega kristi-
legur demókrati en fór fyrir miðju-
vinstristjóminni sem féll í nóvember í
fyrra eftir 2Vz ár í embætti (sem er
met í eftirstríðssögu Italíu). Stjórn
Prodis vann það afrek að gera Ítalíu
hæfa til að uppfylla skilyrðin fyrir
stofnaðild að Efnahags- og mynt-
bandalaginu, EMU, en fyrir það afrek
ávann Prodi sér viðurkenningu um
alla álfuna.
ítalir gera sér nú sterkari vonii- en
nokkra sinni um að í fyrsta sinn í 26
ár veljist aftur Itali í forsæti fram-
kvæmdastjórnarinnar. Prodi er jafn-
framt sá eini hinna mögulegu arftaka
Santers sem sjálfur hefur ítrekað lýst
yfir áhuga sínum á að gegna stöðunni.
Emma Bonino og Mario Monti, full-
tráar Ítalíu í framkvæmdastjórn
Santers, era meðal þeirra meðlima
hennar sem ekki voru sakaðir um að
bera ábyrgð á neinu misjöfnu í
skýrslu óháðu sérfræðinganefndar-
innar sem orsakaði afsögnina.
Massimo D’Alema, forsætisráð-
herra Ítalíu, hefur beitt sér fyrir út-
nefningu Prodis í forsæti fram-
kvæmdastjórnarinnar og ítrekað lýst
yfir stuðningi sínum við Bonino og
Monti. Ítalía er að hans sögn fullkom-
Romano Prodi
lega óflekkuð af spillingarhneyksli
framkvæmdastjórnarinnar.
D’Alema beitir sér af
fremsta megni
Samkvæmt heimildum vefútgáfu
austurríska blaðsins Der Standard
lýsti D’Alema, í viðræðum sínum við
Schröder í fyrradag, sig reiðubúinn að
koma til móts við óskir Þjóðverja um
breytt fyrirkomulag fjármögnunar
sameiginlegra sjóða sambandsins í því
skyni að styðja enn frekar framboð
Prodis. Fjárlög ESB era eins og er
fjáimögnuð með blönduðu kerfi tekju-
stofna. Hvert aðildarland greiðir ann-
ars vegar visst hlutfall af vergi’i
landsframleiðslu og hins vegar af inn-
heimtum virðisaukaskatti. Þar sem
hlutfall skattsvika er sérstaklega hátt
á Ítalíu leiðir það til þess að greiðslur
ítala til ESB era hlutfallslega lægri
en önnur ESB-ríki greiða. Svo virðist
sem D’Alema sé nú tilbúinn að sam-
þykkja breytt fyrirkomulag sem
myndi leiða til talsverðrar hækkunar
þeiraar upphæðar sem Ítalía þyrfti að
greiða út frá vergri landsframleiðslu,
ef það má verða til að tryggja Prodi
stuðning hinna ESB-ríkjanna.
Úr trúverðugleika þessa mikla
áhuga sem D’Alema hefur á að Prodi
fari til Brussel dregur orðrómur um
að D’Alema sjái sér pólitískan hag í
því að Prodi yfirgefi ítölsk stjórnmál.
Prodi stofnaði ásamt Antonio Di
Pietro - fyrrverandi rannsóknardóm-
ara sem hlaut frægð fyrir að fletta of-
an af spilltum stjórnmála- og fjár-
málamönnum á Italíu - nýjan stjóm-
málaflokk í febráar, sem býður fram
til Evrópuþingkosninganna ________
sem fram fara 13. júní nk.
Samkvæmt skoðanakönn-
unum má ætla að þessi nýi
miðjuflokkur sæki fylgi
langt inn í raðir vinstri-
flokkanna, sem D’Alema er
fyrir.
Óskrifaðar reglur verði
látnar lönd og Ieið
Fréttaskýrendur benda á, að sú
staðreynd að Prodi á pólitískan upp-
runa sinn í röðum kristilegra
demókrata, gæti reynzt honum fjötur
um fót þar sem jafnaðarmenn fara nú
fyrir flestum ríkisstjórnum ESB-
forsvari
landanna, auk þess sem fram að þessu
hefur sú óskrifaða regla verið virt að
menn af sínum hvoram væng stjórn-
málanna séu skipaðir forsetar fram-
kvæmdastjórnarinnar til skiptis, og
Santer, sem áður var forsætisráð-
herra Lúxemborgar, er kristilegur
demókrati.
Ekki eru þó allir á því að þetta tak-
marki möguleika Prodis. Að áliti
Jacques Delors, sem var forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar 1985-1995, gæti
Prodi hlotið stuðning bæði evrópskra
íhaldsmanna - þar sem hann er kaþ-
ólikki og hefur sýnt ábyrga stefnu-
festu við stjórn ríkisfjármála - og
jafnaðarmanna, þar sem hann fór fyr-
ir fyrstu miðju-vinstristjórninni sem
mynduð hefur verið á Ítalíu. Enn-
fremur eru margir á því, að í ljósi
þess hve mikið liggur á að finna mann
sem getur tekið við af Santer krefjist
aðstæður þess að slíkar óskrifaðar
reglur verði látnar lönd og leið.
Að öllu jöfnu er val forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar ferli sem tekur
að minnsta kosti tvo mánuði og ein-
kennist af hrossakaupatogstreitu milli
ríkisstjórna aðildarríkjanna. Reyndar
flækir það líka málið, að reglum um
skipan framkvæmdastjórnarinnar var
breytt í Amsterdam-sáttmála ESB,
sem enn er ekki genginn í gildi. Deilt
er um hvort fara eigi eftir nýju regl-
unum eða þeim sem kveðið er á um í
Maastricht-sáttmálanum. Samkvæmt
nýju reglunum hefur sá sem hlýtur
útnefningu ríkisstjórnanna í forseta-
embættið rétt til að hafa áhrif á hverj-
ir veljast með honum í framkvæmda-
stjórnina.
Þegar einu sinni er búið að velja
forsetann og útnefna hina 19 liðsmenn
hans þurfa þeir hver og einn að ganga
í gegnum opinberar yfirheyrslur á
Evrópuþinginu, en það þarf bæði að
samþykkja forsetann og fram-
kvæmdastjórnina í heild. Þar sem það
kemur síðast saman fyrir kosningar
um miðjan maí og hið nýja þing sem
verður kosið 13. júni mun koma sam-
an í fyrsta lagi í júlí er tíminn naumur
ef nást á að ljúka skipunarferlinu fyr-
ir kosninarnar. Sumum, Spánverjum
þar á meðal, þykir reyndar eðlilegt að
hið nýkjörna þing fjalli um þá fram-
kvæmdastjórn sem á að sitja til ársins
2005 en ekki það sem lýkur kjörtíma-
bili sínu í vor.
Allt eins líklegt að
valið verði óvænt
Sem mögulegir keppinautar þeirra
Prodis og Guterres um hið mjög svo
vel launaða starf forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar hafa síðustu
daga heyrzt nefndir til sögunnar Ja-
viers Solana, framkvæmdastjóri
NATO, Felipe Gonzalez, fyi-rverandi
forsætisráðherra Spánar, og nú síðast
Wim Kok, forsætisráðherra Hollands.
Heldur hefur hljóðnað í kringum
Gonzalez í þessu sambandi vegna
þeirra innanríkispólitísku hneykslis-
og deilumála sem enn eru í gangi á
Spáni frá því ríkisstjórn hans vék fyr-
ir miðju-hægristjórn José-Maria Azn-
ars fyrir tveimur áram.
Það sem þykir mæla með Wim Kok
er að nú er gerð skýlaus krafa um að
næsti forseti framkvæmdastjórnar-
innar hafi fullkomlega hreinan skjöld í
siðferðilegu tilliti, auk þess að eiga að
baki árangursríkan feril sem leiðtogi
__________ ríkisstjórnar.
En fréttaskýrendur
benda á, að undir hinum
óvenjulegu kringumstæðum
sem nú ríkja sé allt eins lík-
legt að leiðtogar ESB-ríkj-
anna galdri fram einhvern allt annan
en hér hafa verið nefndir. Það væri
ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerðist.
Jacques Santer hreppti hnossið árið
1994 fyrst eftir að John Major, þáver-
andi forsætisráðherra Bretlands, hafði
hafnað Jean-Luc Dehaene, forsætis-
ráðheraa Belgíu, og Helmut Kohl, þá-
verandi kanzlari Þýzkalands, hafði
hafnað Ruud Lubbers, þáverandi for-
sætisráðhen-a Hollands.
Prodi einn um
að lýsa áhuga
á stöðunni