Morgunblaðið - 19.03.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FOSTUDAGUR 19. MARZ 1999
sT
JÓN
ARASON
+ Jón Arason
fæddist í Hvíta-
nesi í Vestur-Land-
eyjum 11. febrúar
1918. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Eiri 15. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Guð-
björg Guðjónsdótt-
ir, f. 30.4. 1894, d.
13.1. 1973, og Guð-
finnur Ari Snjólfs-
son, f. 12.7. 1884, d.
9.4. 1966. Jón var
elstur átta systk-
ina.
Hinn 5. febrúar 1949 kvænt-
ist Jón eftirlifandi eiginkonu
sinni, Sigrúnu Magneu Magnús-
dóttur, f. 27. apríl 1924. Jón og
Sigrún hófu búskap á Hverfís-
götu 101, en lengst af bjuggu
þau á Ökrum við Nesveg á Sel-
tjarnarnesi. Börn þeirra eru:
Magnea Móberg, f.
1.11. 1949, maki
Jón Þór Aðalsteins-
son; Guðbjörg, f.
23.9. 1951, maki
Egill Sigurðsson;
Jón Sigmar, f. 17.7.
1961, maki Sólrún
Hvönn Indriðadótt-
ir. Jón og Sigrún
eiga ellefu barna-
börn og þrjú barna-
barnabörn.
Sem ungur mað-
ur vann Jón öll al-
menn sveitastörf
og var til sjós en
lengst af starfaði hann hjá
heildverslun Eggerts Krist-
jánssonar, síðar Gunnars Egg-
ertssonar, þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Utför Jóns fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
Elsku afí minn.
... afi á Ökrum sem hitaðir kak'ó
með miklum syki-i og ristaðir
franskbrauð með þykkum ostsneið-
um og sultu á sunnudagsmorgnum.
... afi sem komst í heimsókn með
ömmu og gafst okkur alltaf grænan
ópal.
... afi listakokkur sem eldaðir
lambalæri í hádeginu á sunnudög-
um með grænum baunum, rauðkáli,
kai-töflum og brúnni sósu og áttir
alltaf nóg af ís og ávöxtum í eftir-
mat.
... sköllótti afi sem sagðir að hárið
á þér hefði fokið út í veður og vind.
... afi sem sagðir mér hlæjandi að
fimm-ára-ég hefði staðið í dyra-
gættinni þegar þið amma komuð í
heimsókn og spurt hranalega:
„Hvað eruð þið að gera hér?“ síðan
hlaupið aftur inn til Petu að drekka
kaffi með kandís og lesa norsku
blöðin.
... afi klári sem burstaðir alla hina
í spurningakeppni gamla fólksins á
Eir.
... pínkulítið þjófótti afi sem
rændir harðfisk handa okkur af
trönunum í Suðurnesi þegar við
vorum í bíltúr á Gamla Grána.
... afi flotti í teinóttum jakkaföt-
um með hatt á tyllidögum.
Þú ert sá afi sem ég geymi í
hjartanu mínu alltaf og að eilífu.
Þín
Sigrún Erla.
Okkur setti hljóðai- þegar við
fréttum af andláti hans Jóns Ara-
sonar. Jón var einstakt góðmenni
SIGRÍÐUR ERLA
JÓNSDÓTTIR
+ Sigríður Erla
Jónsdóttir
fæddist í Reykjavík
12. mars 1933. Hún
andaðist á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
17. febrúar síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskirkju 25.
febrúar.
Þú komst og fórst með
ást til alls sem grætur,
á öllu kunnir nákvæm skil,
þín saga er Ijós í lífi einnar nætur,
eitt ljós, sem þráðir bara að vera til.
(Vilhjálmur frá Skáholti)
okkar, sem kynntust í
æsku og hafa verið
mjög nánar vinkonur
allt lífið, þær hafa tekið
þátt í sorg og gleði,
hver annarrar alla tíð
enda þótt vegalengdin
hafi verið mikil síðustu
árin, þar sem dóttir mín
settist að í Svíþjóð.
Adda hefur nánast á
hverju ári og jafnvel
tvisvar á ári heimsótt
sína æskuvinkonu og
tekið móður sína og
börn með sér. Elsku
litlu börnin hennar
Öddu missa mikið að missa ástkæra
ömmu Siggu, sem alltaf var tilbúin
að eiga með þeim góðar stundir, og
Ragna elsta dóttir Öddu fékk að
njóta samvistar hennar fram á síð-
ustu stundu en þær voru mjög nán-
ar.
Mig setti hljóða er ég fékk andláts-
fregn Sigríðar Erlu eða Siggu
mömmu hennar Öddu, eins og hún
var alltaf skilgreind innan minnar
fjölskyldu síðastliðin ár. En áður fyrr
var það hún Sigga hans Ragga. And-
lát Siggu bar brátt að og var ótíma-
bært, því hún Sigga var alltaf svo
hress. Hugsaninar fóru að streyma í
gegn um kollinn mér. Ég fór að líta til
okkai- yngri ára, þegar við bjuggum
hlið við hlið á Otrateignum, og vorum
báðar að ala upp bömin okkar, sem
voru á mjög svipuðum aldri, þá brosti
lífið og framtíðin við okkur og okkar
fjölskyldum.
En lífið er hverfult og ekki var svo
mjög langt í sorgina hjá Siggu, sem
missti svo syni sína á unga aldri og
eiginmanninn með stuttu millibili og
alla svo snögglega. A þeim tíma
skildi ég ekki, hversu mikið hugrekki
þessi kona hafði, hún bugaðist aldrei.
Það var eins og hvert áfallið gæfi
henni meiri og meiri styrk. Þó að
leiðir okkar skildu fékk ég alltaf að
fylgjast með henni í gegnum dætur
Dætur okkar Siggu, Adda og Ásta,
eða litlu meyjarnar okkar, eins og ég
kallaði þær oft, sökum þess að þær
em fæddar með átta daga millibili
sama ár og eru báðar í meyjarmerk-
inu, era að mörgu leyti mjög líkar í
eðli sínu, afskaplega trúar og tryggar
sínum ástvinum og fjölskyldu.
Eitt er víst að hún Sigga mín hefði
viljað fá að dvelja lengur hjá Öddu
sinni og barnabörnum, því svo bar
hún þau fyrir brjósti og unni þeim
heitt. Við sem þekkjum til erum að
reyna að hugga okkur við að nú er
Sigga í góðum höndum hjá Drottni,
eiginmanni og sonum.
Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma,
minning þín opnar gamla töfraheima,
Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu.
(D.S.)
Blessuð sé minning Sigríðar Erlu
Jónsdóttur.
Elsku Adda og fjölskylda. Drott-
inn gefi ykkur styi'k í sorg ykkar og
söknuði.
og er það heiður að hafa fengið að
kynnast honum óg eiga hann að
samferðamanni í þann tíma sem við
unnum saman. En við vorum sam-
starfsmenn í mörg ár hjá Gunnari
Eggertssyni hf. Jón vann mestan
hluta starfsævi sinnar við útkeyrslu
hjá Eggert Kristjánssyni hf. og síð-
an Gunnari Eggertsyni hf. frá 1974
þegar það var stofnað af Gunnari
Eggertssyni, syni Eggerts Krist-
jánssonar. Þegar við hófum störf
þar var Jón hættur á lagernum og
farinn að vinna á skrifstofunni við
innheimtu- og sendlastörf. Iðjusemi
hans var með ólíkindum, honum féll
aldrei verk úr hendi. Hann var án
efa Ijúfasti „rukkari" þessa lands,
afkastamikill með eindæmum þar
sem ógerlegt var að segja nei við
þennan elskulega mann sem bræddi
alla með hjartahlýju sinni og góð-
mennsku.
Það segir mikið um hvern mann
Jón Arason hafði að geyma að þeg-
ar hann varð sjötugur fékk hann
gríðarstóra blómakörfu frá starfs-
fólki Islandsbanka við Dalbraut en
þangað kom hann daglega á vegum
fyrirtækisins. Mörgum árum eftir
að hann hætti störfum sökum ald-
urs voru viðskiptavinirnir enn að
spyrja um hann og bera honum
kveðju sína, slíkur maður var Jón,
ógleymanlegur öllum sem kynntust
honum.
A góðri stundu var hann hrókur
alls fagnaðar, með frábæra kímni-
gáfu og fallega söngrödd. Á einni
slíkri stundu orti einn af starfs-
mönnum fyrirtækisins vísur um allt
starfsfólkið og var þá gjarnan kom-
ið við veika bletti en það var ekki
hægt þegar Jón átti í hlut og var
vísan um hann svona:
Sólin rennur upp á svið
sínum heilsar vini
Blíð að morgni brosir við
björtum Arasyni
Megi algóður Guð blessa þig.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur til
Sigrúnar, barna ykkar og barna-
bama.
Inga Jóna og Bryndís.
Sverrir Einarsson, Sverrir Oisen,
útfararstióri útfararstjóri
Utfararstofa Islands sér um:
Otfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar
í samráði við prest og aðstandendur.
- Fiytja hinn iátna af dánarstað i líkhús.
- Aöstoöa við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna í kístu og
snyrta ef með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
- Prest.
- Dánarvottorð.
- Stað og stund fyrir kistulagningu
og útfbr.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, elnsöngvara,
einleikara og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Bióm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á
sálmum.
- Ukbrennsluheimild.
- Duftker ef likbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju.
- Kross og skilti á leiði.
- Legsteín.
- Flutntng á kístu út á land eða utan af
landi.
- Flutning á kistu til landsins og frá
landinu.
Útfararstofa íslands - Suðurhlíð 35
- 105 Reykjavík. Sfmi 581 3300 -
allan sólarhringinn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN NIKULÁSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Framnesvegi 29,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánu-
daginn 22. mars kl. 10.30.
Guðrún K. Júlíusdóttir,
Sigriður Júlíusdóttir, Kristmundur E. Jónsson,
Hulda Þorsteinsdóttir,
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir,
Guðrún Björk Kristmundsdóttir, Júlía Hrafnhildur Kristmundsdóttir,
Lára K. Guðmundsdóttir, Guðrún Edda Guðmundsdóttir,
Emil Gunnar Guðmundsson, Þórunn Hulda Guðmundsdóttir,
Hulda Birna Guðmundsdóttir, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir,
barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRIR BJÖRNSSON
vélstjóri,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
16. nóvember.
Björn Þórisson, Sigrún Ingibjartsdóttir,
Jónas Þórir Þórisson, Ingibjörg Ingvarsdóttir,
Stefán Þórisson, Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Kristín Th. Þórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN FRANKLÍNSSON,
Seftjörn 5,
Selfossi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn
16. mars.
Sveinborg Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Systir mín og móðursystir,
ÍSAFOLD ÓLAFSDÓTTIR,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku-
daginn 17. mars.
Þóra Fannberg,
Ólafur Fannberg.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS M. SIGURÐSSONAR
fyrrverandi kaupfélagsstjóra,
Bjargartanga 10,
Mosfellsbæ.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda,
Lilja Sigurjónsdóttir.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
ÞÓRUNNAR ÓLAFAR JÓNSDÓTTUR,
Túngötu 38,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima á
Selfossi fyrir góða hjúkrun og hlýtt viðmót.
Fyrir hönd aðstandenda,
Torfi Nikulásson.
Edda Eyfeld.