Morgunblaðið - 11.04.1999, Síða 10

Morgunblaðið - 11.04.1999, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ á heimili SÁLFRÆÐINGARNIR Maia Sigurðardóttir, til vinstri, og Ágústa Gunnarsdóttir höfðu frumkvæði að því að könnun á réttindum barna eins og þau birtast í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna var gerð hér á landi landi og Kína. Þetta bendir til þess að íslenskum nemendum fmnst ekki nægjanlegt tillit tekið til þeirra í skóla. Pleiri skýringar koma til greina eins og að foreldrar heimafyr- ir séu eftii-gefanlegri en skólinn. Það er með þessa niðurstöðu eins og fleiri sem koma fram í könnuninni að æskilegt væri að athuga betur hvað liggur að baki þeim.“ Þær segja að þegar íslensku börn- in hafí verið spurð að því hvaða fímm atriði væru mikilvægust voru þau að einu atriði undanteknu þau sömu og voru talin mikilvægust í alþjóðlegu könnuninni. „Bendir þetta til þess að íslensk börn séu nokkuð dæmigerð, það er að segja þau líkjast „meðal- barni“ í alþjóðlegu könnuninni," segja þær. „Þau þrjú atriði á heimili sem þau voru sammála um að væru mikilvægust voru, „að hafa fæði, klæði og húsaskjól", „vera með fólki sem þykir vænt um þig og er annt um þig“ og „fá skjóta hjálp þegar eitthvað hræðilegt gerist“. Islensku niðurstöðurnar eru þó frábrugðnar hinum alþjóðlegu að nokkru leyti því íslensku ungmennin setja atriðið, „að hafa tækifæri til að eiga góðan vin sem er annt um þig“, í fjórða sæti en það er ekki í einu af tíu efstu sætunum hjá hinum þátt- tökulöndunum. Afhverju þau telja þetta atriði svona mikilvægt getur stafað af því að vegna vinnuálags foreldra þarfnist íslensku börnin vin- anna meira en böm í öðrum löndum. Leggjum Iftið upp úr siðrænum málefnum I 24. grein Bamasáttmála Samein- uðu þjóðanna er kveðið á um að böm eigi rétt á því að fá heilsugæslu og hjúkrun. Þetta atriði, þ.e. „að fá læknishjálp þegar þú ert veik(ur)“ lenti í fjórða sæti í alþjóðlegu könn- uninni yfíi- mikilvæg atriði sem börn- unum fannst þurfa að vera fyrir hendi en er ekki meðal þeirra sem íslensku börnin telja mikilvægust. Islensku börnin töldu tuttugu og fimm atriði mikilvægari en þetta. Vera má að gott aðgengi íslenski'a barna að heil- brigðisþjónustu geri það að verkum að þau velti minna fyrir sér mikilvægi hennar en börn í öðmm löndum. Fjögur af þeim atriðum sem ís- lenskum börnum þóttu mikilvægust í skóla vom á lista yfír tíu mikilvæg- ustu atriðin í alþjóðlegu könnuninni. Islensk böm rétt eins og „meðalbarn- ið“ í alþjóðlegu könnuninni telja það mikilvægast að fá skjóta hjálp í neyð. Hér á landi eru helstu hætturnar bundnar við náttúrahamfarir eins og jarðskjálfta og eldgos en mun síður við þætti eins og stríð og hung- ursneyð eins og kom fram hjá nokkr- um af erlendu þátttökulöndunum. Þeim finnst einnig að réttur þeirra til skólagöngu sé mikilvægui' og var það atriði í þriðja sæti á eftir „tækifærinu til að eiga góðan vin. Það sem er ólíkt með íslensku og erlendu börnunum þegar þau era spurð hvað sé mikil- vægt að hafa í skólanum er að ís- lensku bömin leggja lítið upp úr því „að hafa tækifæri til að læra hvað er rétt og rangt til þess að verða góð manneskja“. Töldu þau þrettán atriði vera mikilvægari en þetta. „Hugsan- leg skýring á þessu er að ekki sé nógu mikil umræða um siðferðileg málefni hér á landi,“ segir Ágústa og Maia bætir við: „í Asíulöndum er bömum kennt frá unga aldri bæði á heimilum og í skólum að taka tillit til annarra og líta á sjálfa sig sem hluta af þjóðfé- lagsheildinni. Það hefur verið sagt um okkur íslendinga að við séum miklir einstaklingshyggjumenn og ef til vill endurspegla svör barnanna þetta.“ Vel hlúð að væntumþykjunni á íslenskum heímilum Hvað segja bömin þegar þau eru iurð um réttindin sem þau telja vera rir hendi á heimilinu og í skólanum? Alþjóðlega skólasálfræðingafélagið, The International School Psychology Association, ISPA, hefur staðið fyrir könn- un í yfir tuttugu löndum á því hvernig börn meta réttindi sín á heimili og í skóla eins og þau birtast í Alþjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. Island er eitt þeirra landa sem tók þátt í könnuninni sem var lögð fyrir ungmenni í áttunda og níunda bekk grunnskóla víðsveg- ar um landið. Hildur Einarsdóttir kynnti sér niðurstöðurnar. Islensk börn en í skóla ÞAÐ VAR á ráðstefnu Al- þjóðlega skólasálfræð- ingafélagsins í Banska- Bystrica í Slóvakíu árið 1993 að við heyrðum fyrst um rannsóknina,“ segja þær Ágústa Gunnarsdóttir og Maia Sigurðai'- dóttir, sem eiga frumkvæðið að því að könnunin var gerð hér á landi en þær hafa báðar starfað sem sálfræð- ingar í skólum. „Það vakti hjá okkur áhuga að fá að heyra hvað íslenskum bömum fínnst um réttindi sín eins og þau birtast í Barnasáttmálanum. I honum er kveðið á um að öll börn eigi sama rétt til að lifa og alast upp í friði og öryggi og virðingu fyrir hugsunum sínum og skoðunum og að velferð barnanna eigi alltaf að sitja í fyrirrúmi. Því miður hafa börn á ís- landi lítið verið frædd um mannrétt- indi sín en kennsla um þau í skólum hefur verið tilviljunarkennd. Til er ágætis kennsluefni sem gefið var út á vegum dóms- og kirlqumálaráðu- neytisins fyrir nokkrum árum. Þetta eru þrjú aldursskipt hefti þar sem börnum er kynntur sáttmálinn. Áður hafði Barnaheill gefið út kynningar- bækling um þetta efni.“ Ágústa og Maia útskýra hvernig könnunin er uppbyggð og hvernig framkvæmd hennar var háttað en börnin voru beðin um að meta rétt- indi sín á tvennan hátt. „I fyrsta lagi mátu þau mikilvægi tiltekinna rétt- inda fyrir böm á þeirra aldri á heim- ili og í skóla. í öðru lagi voru þau spurð að því að hve miklu leyti þau teldu að tiltekin réttindi væru fyrir hendi hjá börnum á þeirra aldri á heimili og í skóla? Spumingalistinn sem lagður var fyrir ungmennin samanstóð af fjöru- tíu spurningum er varða mannrétt- indi bama eins og þau birtast í Bamasáttmálanum. Var hann sam- inn af yfirumsjónarmönnum rann- sóknarinnar, þeim Stuart N. Hart og Moshe Zeider, og þýddur á íslensku. Spurningunum var ætlað að ná yfir fjögur svið mannréttinda eins og þau birtast í sáttmálanum, þau era vemd (protection), virkni (participation) sjálfræði (self-determination) og að- búð (nurture). Spurningalistinn var lagður fyrir tæp sjö hundrað börn í skólum víðs- vegar um landið. Ymist lögðum við hann sjálfar fyrir eða við fengum fólk til að aðstoða okkur. Gagnasöfn- un lauk í desember árið 1994.“ Vinirnir mikilvægir Maia og Ágústa segja að þegar litið sé á niðurstöður könnunarinnar komi í ljós að nemendur töldu almennt að réttindi þeirra væru bæði mikilvæg og fyrir hendi. Það komi þó fram að bömin töldu sig njóta meiri réttinda á heimili heldur en í skólanum og þau gerðu ennfremur meiri kröfur til heimilisins. „Þetta er eðlilegt því heimilið er mikilvægasti staður barnsins og nauðsynlegt að réttindi þeirra séu þar virt og þeim líði vel. Þetta gefur einnig vísbendingu um að þeim finnist að skólinn sinni ekki rétt- indum þeirra sem skyldi," segja þær Ágústa og Maia þegar þær eru beðn- ar að túlka niðurstöðurnar. „Það kemur líka fram að íslensk ungmenni gera meiri kröfur um rétt- indi en börn í öllum hinum þátttöku- löndunum sem sýnir að íslensk börn era góðu vön. Þau meta til dæmis réttindi sín heimafyrir í meira mæli og telja þessum réttindum betur full- nægt en annarra þjóða börn. Þegar kemur að mati á tilvist réttinda í skóla er íslenska meðaltalið hins vegar í fjórða sæti á eftir íran, Pól- telj a sig nj óta meiri réttinda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.