Morgunblaðið - 11.04.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.04.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kostnaður við flugið tíl Makedóníu um 3 milljónir króna Koma 77 flóttamanna til viðbótar undirbúin UNDIRBÚNINGUR er hafinn að því á vegum utanríkisráðuneytisins og Rauða kross Islands að taka á móti 77 flóttamönnum frá Kosovo til viðbótar við þann 21 sem þegar er kominn til landsins, auk þess sem búist er við að mæðgumar sem skildar voru eftir á Korfii komi til landsins um helgina. Ekki er búið að reikna út kostnað vegna þessa verkefnis en fyrstu áætlanir vegna kostnaðar við flug vélar Landhelg- isgæslunnar gera ráð fyrir að hann nemi um þremur milljónum króna. Flóttamennimir verða fyrstu tvær vikur dvalar sinnar á Gisti- heimili Guðmundar Jónssonar í Borgartúni en síðan er gert ráð fyr- ir að leitað verði að íbúðum fyrir þá. Komi 77 flóttamenn til viðbótar geta þær áætlanir þó breyst, að sögn Sigríðar Guðmundsdóttur, deildarstjóra alþjóðadeildar RKI, enda vakni þá m.a. spumingar um hvort allir eigi að vera á sama stað og hvað þeir eigi að hafa fyrir stafni. Hún segir að flóttamennimir séu komnir hingað til lands tíma- bundið og margt hafi áhrif á hvaða aðstoð RKI veiti. Hins vegar sé með öllu óvíst hversu löng dvöl þeirra verði. Rauða krossinum hafa borist 3-4 tiiboð um störf fyrir karlmenn í hópnum og segir Sigríð- ur að þau verði skoðuð fljótlega, en þó sé ljóst að fólkið verði að hvíla sig í að minnsta kosti tvær vikur áður en það hefji vinnu. Óvenjulegt flug Gæsluvélar Hjálmar W. Hannesson, sendi- herra hjá utanríkisráðuneytinu, segir hugmyndir enn sem komið er laustengdar um hvernig tekið yrði á móti fleiri flóttamönnum frá Kosovo, en færi svo að tekið yrði á móti 77 í einu kæmi til greina að leigja þotu og sækja þá. Málið sé hins vegar enn ekki komið svo langt að hægt sé að fullyrða um framhaldið. Hann segir ekki ljóst hvemig það fólk yrði valið, en til greina kæmi að fá ættingja þeirra sem þegar em komnir. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að flug vélar Landhelgisgæslunnar til Ma- kedóníu og til baka sé að mörgu leyti óvenjulegt í sögu stofnunar- innar. Flugvél Landhelgisgæslunn- ar hefur ekki farið flug af þessu tagi áður, en meðal sérverkefna má nefna að hún fór eitt sinn með for- seta Islands vestur um haf. Hún hefur um tíu tíma flugþol en það fer eftir hversu mikið hlaðin hún er. Hann kveðst telja fagnaðarefni hvað ferðin tókst vel. „Þessi leiðangur gekk alveg ótrúlega vel. Við höfðum að leiðar- ljósi að leggja ekki í neina áhættu og öryggið var í fyrirrúmi á öilum áningarstöðum. Við vomm utan átakasvæða, enda hefðum við þá gert hluti sem við eigum ekki að gera, og þó svo að við þyrftum að leggja lykkju á leið okkar var gmndvallaratriði að allt gengi vel fyrir sig og enginn væri í hættu. Eg er mjög ánægður með árangur- inn og finnst leiðangurinn hafa orð- ið okkur öllum til sóma,“ segir Haf- steinn. Páskalömb á Bjargi í Miðfirði Hvammstanga. Morgtmblaðið. BÆNDUR hafa í auknum mæli breytt sauðburði á búum sinum, til að lengja sláturtíð og koma þannig til móts við óskir mark- aðarins. Stundum tekur þó nátt- úran völdin og svo var hjá Axel bónda á Bjargi í Miðfirði. A liðnu hausti gekk úti nokk- ur hópur kinda á heimatúninu og í hretinu í október völdu þær sér skjól í gömlu fjósi. Axel ákvað að láta þær ráða sér sjálf- ar og hefur hópurinn gengið úti í vetur, með næturdvöl í íjósinu og aðgang að heyrúllum. Hrútur Þær bornu eru að sjálfsögðu var í hópnum og um páska voru fluttar í fjárhúsin til skjóls um fimm ær úr hópnum bomar. sinn. LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA Ársfundur 1999 Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn mánudaginn 12. apríl 1999 kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Önnur mál. Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík 14. mars 1999 Stjóm Lífeyrissjóðs verzlunarmanna LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA Sími: 580 4000, Myndsendir: 580 4099 Netfang: skrifstofa@lifver.is SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.