Morgunblaðið - 20.04.1999, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LANDSfRÆGT ÚRVAl
ÚHVAI 11» Á IM HIIASÍDÚ fl»KHA-K,
WWW.IHKI-A.li’
Tvöföldun
Reykjanesbrautar
Aætlun
nær til
ársins
2010
Á VEGAÁÆTLUN til næstu
fjögurra ára er gert ráð fyrir
228 milljónum vegna fram-
kvæmda við tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Samkvæmt lang-
tímaáætlun er gert ráð fyrir
að mest verði veitt til fram-
kvæmdanna á árunum 2007 til
2010 eða 1,467 milljónum.
Haft var eftir Davíð Odds-
syni, forsætisráðherra og for-
manni Sjálfstæðisfiokksins, að
hann styddi baráttumál fram-
bjóðenda flokksins um að tvö-
fóldun Reykjanesbrautar yrði
flýtt og henni lokið á næsta
kjörtímabili.
Mest fé veitt 2007 til 2010
Að sögn Jóns Birgis Jóns-
sonar, ráðuneytisstjóra í sam-
gönguráðuneytinu, er á vegaá-
ætlun til næstu fjögurra ára
gert ráð fyrir 228 milljónum
til framkvæmdanna en áætl-
aður heildarkostnaður er um
2,5 milljarðar. Samkvæmt
vegaáætlun er gert ráð fyrir
21 millj. á þessu ári og sömu
upphæð árið 2000, en 62 millj.
árið 2001 og 124 millj. árið
2002. Að sögn Jóns er í lang-
tímaáætlun um vegafram-
kvæmdir gert ráð fyrir að
veita 780 millj. á tímabilinu frá
árinu 2003 til ársins 2007 og
1.467 millj. á tímabili sem nær
frá árinu 2007 til 2010.
„Þannig að mest er veitt til
þessara framkvæmda á árun-
um 2007 til 2010,“ sagði Jón
Birgir. „Það er auðvitað hægt
að skipta framkvæmdinni í
áfanga, til dæmis suður fyrir
álverið og síðan ofan við
Keflavík. Þetta verður allt
unnið í einhverjum áföngum."
Sagði hann að ef flýta ætti
framkvæmdum myndi það
koma fram við endurskoðun á
vegaáætlun, sem hæfist í
haust en miðað við núverandi
áætlun væri ekki gert ráð fyr-
ir að þeim yrði hraðað.
Undirbúningur áætlunar
að heíjast
Eymundur Runólfsson, for-
stöðumaður áætlunardeildar
hjá Vegagerðinni, segir að
undirbúningur að hönnun
brautarinnar sé að hefjast.
„Að okkar mati er þetta ekki
alveg hinum megin við horn-
ið,“ sagði hann. „Aðalfjái-veit-
ingin samkvæmt gildandi
áætlun verður á áranum 2007
til 2010“
Morgunblaðið/Kristinn
unblaðshúsinu í gær og er ekki
annað að sjá en að hann hafí verið
sáttur við farartækið.
Samkomulag milli Astra-Zeneca og rannsóknarhóps Þorsteins Loftssonar
Leita leiða í baráttu við
sjúkdóma í miðtaugakerfí
LYFJARISINN Astra-Zeneca
hefur hafið samstarf við Þorstein
Loftsson, prófessor í lyfjafræði, og
rannsóknarhóp hans hjá Háskóla
íslands og var samkomulag þar að
lútandi handsalað í seinasta mán-
uði. Tilgangur samstarfsins er að
leita að nýjum aðferðum í barátt-
unni við ýmsa sjúkdóma í mið-
taugakerfinu, þar á meðal MS-
sjúkdóminn og alzheimer, með
notkun svokallaðra sýklódextrína.
Þorsteinn Loftsson segir að
sýklódextrín séu náttúraleg efna-
sambönd sem hann hafi rannsakað
með tilliti til notkunar í lyfjafræði í
allmörg ár, eða síðan 1986.
Fjárhagslegur og faglegur
ávinningur
„Ég hef unnið að þróun ýmissa
lyfja sem tengjast þessum rann-
sóknum, þar á meðal með Einari
Stefánssyni, prófessor í augnlækn-
ingum, og hafa þær notið stuðnings
til dæmis Rannsóknarráðs Islands,
bæði tæknisjóðs og vísindasjóðs.
Við höfum aflað okkur ákveðinnar
þekkingar og færni sem þetta
lyfjafyrirtæki er að sækjast eftir.
Fulltrúar fyrirtækisins komu í nóv-
ember á seinasta ári og buðu mér
út í kjölfarið, sem leiddi til að við
rannsökuðum tvö lyf fyrir það.
Ætlunin er að annað þeirra verði
alzheimer-Iyf og hitt á að nota
gegn MS-sjúkdómnum. Þetta starf
gekk mjög vel og fyrir vikið komu
hingað til lands tveir menn í sein-
asta mánuði og bundu þetta sam-
starf fastmælum,“ segir Þorsteinn.
Hann segir um viðurkenningu á
starfi rannsóknarhópsins að ræða
og sýni samkomulagið að hægt sé
að vinna rannsóknarstarf hérlendis
sem sé á heimsmælikvarða. Þá sé
um fjárhagslegan ávinning að ræða
enda styrki Astra-Zeneca rann-
sóknir hópsins með fjárveitingum
og með því að veita honum aðgang
að sérhæfðum og fullkomnum
tækjabúnaði í höfuðstöðvum fyrir-
tækisins í Svíþjóð.
,,Einn maður á rannsóknarstofu
HI kostar aldrei undir þremur
milljónum króna á einu ári, þar af
um tvær milljónir í laun fyrir unga
menn, nýtútskrifaða úr námi.
Þannig að um stórar fjárhæðir er
að ræða, þótt ekki sé ljóst hversu
mikið. Þá greiða þeir hugsanlega
einkaleyfistöku á ákveðinni þekk-
ingu sem er mjög kostnaðarsöm.
Ekki er óalgengt að umsókn um
eitt slíkt leyfi kosti á milli 15 og 20
milljónir króna,“ segir Þorsteinn.
„Eins og vítamín-
sprauta"
Hann kveðst telja um ánægju-
lega viðurkenningu að ræða.
„Þetta eflir mann á allan hátt og
virkar eins og vítamínsprauta."
Lyfjafyrirtækið Astra-Zeneca er
í hópi tíu stærstu lyfjafyrirtækja
Evi'ópu að sögn Þorsteins, afleið-
ing sameiningar sænska fýrirtæk-
isins Astra og enska fyrirtækisins
Zeneca, sem á sér stað um þessar
mundir. Samkvæmt upplýsingum
frá Astra íslandi, umboðsaðila fyr-
irtækisins hérlendis, segir dr. Ola
Camber, framkvæmdastjóri lyfja-
þróunarsviðs Astra, að rannsóknir
Þorsteins séu einstakar í heimin-
um. Komið hafi forsvarsmönnum
fyrirtækisins þægilega á óvart að
uppgötva að íslenskir rannsóknar-
aðilar væra svo framarlega á þessu
sviði.
„Ekki hefur tekist að þróa nægj-
anlega góða aðferð til að koma lyfj-
um á tilraunastigi á réttan stað í
líkamanum. Sýklódextrín gætu
hugsanlega verið farartækið sem
mætti nota til að koma framtíðar-
lyfjum á hárréttan stað í líkaman-
um á hagkvæman og ódýran hátt,
til dæmis í töfluformi. Við vonum
að Þorsteinn geti hjálpað okkur að
bæta aðgengi lyfjanna, þannig að
frásogið frá meltingai-vegi út í
blóðið batni, auk þess sem unnt
verði að sprauta þessum lyfjum í
vatnslausn inn í líkamann," segir
Camber.
Sótt um
einkaleyfi
Alls era um sjö manns í rann-
sóknarhópnum sem Þorsteinn fer
fyrir ásamt Má Mássyni dósent og
kveðst Þorsteinn telja hópinn mjög
virkan, þar á meðal í birtingu
gi-eina um rannsóknir sínar í al-
þjóðlegum vísindaritum. „Þá höf-
um við tekið þónokkuð mörg einka-
leyfi og eram að vinna að öðram,
t.d. með Einari Stefánssyni að
nefúða. Við höfum nýlega sótt um
leyfi fyrir honum í Bandai-íkjunum,
Evrópu og víðar, og eram bjart-
sýnir á framhaldið," segir Þor-
steinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Vorhugur kominn í endurnar
„NÚ gerast vorkvöldin græn og
hlý“ segir í einni snilldarþýðingu
Magnúsar Ásgeirssonar og sann-
arlega er kominn vorhugur í
endurnar sem vetrarlangt hafa
unað sér undir vegg Ráðhússins
eins og ljósmyndari Morgun-
blaðsins festi á filmu nýverið.
Léttari og
hljóðlátari
blaðakerrur
VERIÐ er að taka í notkun nýjar
kerrur fyrir biaðbera Morgun-
blaðsins sem gera þeim starfið
auðveldara og tryggja ótruflaðan
nætursvefn áskrifenda því þær
eru léttari og hljóðlátari en þær
gömlu.
Verið er að dreifa kerrunum til
blaðbera þessa dagana en þær eru
ætlaðar þeim sem bera út meira
en þrjátíu blöð.
Um sjö hundruð blaðberar bera
út Morgunblaðið á höfuðborgar-
svæðinu en samtals koma um þús-
und manns nálægt dreifingu þess
á hverjum útgáfudegi.
Ungur maður tók að sér að
prufukeyra eina kerruna í Morg-
Til sölu MMC Gatant 2000, ekinn 39.000 km, sjálfskiptur,
rafmagnsrúöur, spoiler, álfelgur. Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu í símum 569 5500 og 569 5660.
opnunartimi:
rnanud.- föstud. kl. 9-18,
laugardagar kl. 12-16.
BILAÞINGREKLU
N O T A Ð I R Jlfei B f L A R
LAUGAVEGI 174 * SÍMI 569 5660 • FAX 569 5662
.
Unglingar
viður-
kenna árás
TVEIR unglingspiltar, 14 og
15 ára, hafa viðurkennt að
hafa ráðist á konu um áttrætt
í Bökkunum í Breiðholti í síð-
ustu viku og rænt hana. Við
árásina tóku sig upp gömul
meiðsl konunnar og þurfti
hún að leggjast á sjúkrahús í
kjölfarið.
Piltamir höfðu komið auga
á konuna í verslun og séð að
hún hafði handbært reiðufé.
Þeir eltu hana frá verslun-
inni, felldu hana og hrifsuðu
af henni veskið. Höfðu þeir
2.300 krónur upp úr krafsinu.
Grunur féll á ákveðna aðila
og við yfirheyrslur hjá lög-
reglunni í Reykjavík viður-
kenndu piltarnir að hafa veist
að konunni með fyrrgreind-
um hætti.