Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 - _________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ ÁRÁSIR NATO Á JÚGÓSLAVÍU Stöðugur straumur flóttafólks frá Kosovo Fulltrúar Atlantshafsbandalagsins vilja Milosevic frá völdum Tirana, Lundúnum, Bonn, Skopje, Brussel, Washington. Reuters. Tlie Daily Telegi*aph. GIFURLEGUR straumur flótta- fólks var frá Kosovo um helgina sem þykir styðja þær staðhæfingar að þjóðemishreinsanir serbneskra her- sveita hafí aukist verulega sl. daga. Um 50.000 manns eru taldir hafa farið yfir landamærin til Albaníu og Makedómu um helgina. Hefur fólkið greint frá aftökum og nauðgunum hermanna á Kosovo-Albönum. Þá ræna Serbar, að sögn flóttafólksins, öllu steini léttara og brenna heimili þeirra og stærri eignir. Fulltrúar Atlantshafsbandalagsins (NATO) eru harðorðir í garð Slobodans Milosevics, forseta Júgóslavíu, og segja frið í héraðinu langsóttan verði Milosevic miklu lengur við völd. Um þúsund Kosovo-Albanar eru taldir hafa flúið héraðið á hverri klukkustund er hæst stóð um helg- ina og segja talsmenn hjálparstofn- ana og NATO að svo virðist sem Milosevic sé að takast ætlunarverk sitt; að „hreinsa“ héraðið af Kosovo-Albönum. Alls er talið að yfir 600.000 manns hafí flúið frá því að loftárás- ir NATO hófust 24. mars sl., en fjölmargir höfðu þegar yfirgefið Kosovo áður en árásirnar byrjuðu. Samkvæmt heimildum AP- Reuters ALBÖNSK kona staflar brauði í Elbasan í Albaníu. Brauðinu er komið með þyrlum og vörubflum til fldttamanna sem búa í tjöldum í Kukes. fréttastofunnar eru nú um 365.000 flóttamenn í Albaníu, 132.500 í Ma- kedóníu, 73.500 í Svartfjallalandi og 32.300 í Bosníu-Herzegóvínu. Um 32.000 flóttamenn hafa verið fluttir frá Makedóníu að beiðni yfirvalda þar til annarra landa víðsvegar, þ.á m. Islands. Starfsmenn hjálparstofnana í Al- baníu sögðu flóttafólkið sem kom um helgina hafa verið mun verr á sig komið en til þessa. Flóttamannabúðir að bresta undan álagi í Makedóníu er ástandið í flótta- mannabúðunum mjög slæmt, að sögn Rons Redmonds, talsmanns flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Redmond sagði búðirnar að verða yfirfullar og heilbrigðis- og hreinlætisaðstöðu vera að nálgast hættumörk. Hafa starfsmenn UNHCR óskað eftir því að aukið landsvæði verði veitt undir flóttamenn, en yfirvöld í Makedóníu hafa hafnað þeirri beiðni. Að sögn talsmanna Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og NATO er nú ver- ið að undirbúa flutning flóttamanna frá Makedóníu og Albaníu loftleiðis til annarra landa til að mæta þess- um vanda. Að sögn Kris Janowskis, tals- manns UNHCR, virtist sem straumur flóttafólks til nágranna- ríkjanna hefði tekið skjótan endi í lok helgarinnar en búist hafði ver- ið við nokkrum þúsundum til við- bótar. Ekki er vitað með vissu hvað veldur þar sem talið er að landa- mæri Júgóslavíu standi opin. Ja- nowski sagði grun leika á að serbneskar hersveitir hefðu bannað flóttafólkinu að fara yfir landamær- in og að sögn vitnis, hefðu serbneskar hersveitir skipað a.m.k. tveimur rútum og lest að snúa við. Jarðsprengja verður fimm manns að bana A sunnudag létu fimm Kosovo- Albanar lífið er þeir keyrðu yfir jarðsprengju við landamæri Alban- íu. Þrír þeirra létust samstundis en tveimur tókst naumlega að komast yfir landamærin til Albaníu þar sem þeir létust skömmu síðar. Fregnir herma að serbneskar hersveitir hafi verið að koma jarð- sprengjum fyrir við landamærin sl. vikur og að í sumum tilfellum hafi Kosovo-Albanar nauðugir verið látnir sinna starfinu. Að því er starfsmenn hjálpar- stofnana hafa eftir flóttafólki lágu lík á víð og dreif á leið þeirra að landamærunum og í sumum tilfell- um þurftu þeir að grafa lík barna sem örmögnuðust á leiðinni. Sögðu starfsmennirnir það hugsanlegt að sumum líkunum hefði verið komið fyrir á leiðinni til að hræða flótta- fólkið. www.velaverk.is Geislafæhi s. 568 3536 Aukin grimmdarverk serbneskra hersveita Stöðugar fregnir berast nú af grimmdarverkum og fjöldamorðum serbneskra hermanna í Kosovo og sagði fulltrúi Bandaríkjanna í mál- um stríðsglæpa að margt benti til að voðaverk Serba í Kosovo væru um- talsvert alvarlegri en talið hefði ver- ið til þessa. Doug Henderson, yfirmaður breskra hersveita í herliði NATO, sagði serbneskar hei’sveitir hafa brennt yfir 200 þorp og bæi til grunna og að nú notuðu þeir Kosovo-Albana til að „hreinsa til“ og afmá ummerki þeirra fjöldamorða sem framin hafa verið á samlöndum þeirra. Ovíst er um afdrif a.m.k. 100.000 karlmanna, en talið er að þeim hafi verið komið fyrir í fangabúðum sem margt bendir til að séu starfræktar víðsvegar í héraðinu. Einnig hafa fregnir borist af því að ungir dreng- ir og karlar séu í nauðungarvinnu í kolanámum í Pristina, héraðshöfuð- borg Kosovo. Fyrir skömmu lagði Guiseppe Marani, herforingi í heijum NATO, fram sönnunargögn um tilvist 43 fjöldagrafa í Kosovo sem talið er að íbúar héraðsins hafi verið látnir grafa. Fulltrúar NATO hafa síðustu daga mælt með hertum árásum á Júgóslavíu og ítrekað bent á að það sé Slobodan Milosevic sem eigi sök- ina á hörmungum stað í héraðinu. Jamie Shea, talsmaður NATO, sagði á blaðamannafundi á sunnudag að loftárásir NATO „væru ein af fáum raunverulegum mannúðarstyrjöld- um sem háðar hefðu verið á okkar tímum.“ Shea sagði lítið sem ekkert að marka þær fregnir sem bærust frá júgóslavneskum fjölmiðlum þar sem Milosevic stjómaði fréttaflutningi í Serbíu sem hefði þær afleiðingar að fréttir væm sniðnar að hugmyndum hans og áróðri gegn NATO. Shea sagði „hlutlausar staðreynd- ir“ ekki til í Serbíu og að fjölmiðlar Milosevics endurskrifuðu söguna eftir eigin hentisemi. Milosevic verði að stöðva Stuðningur NATO-ríkjanna við loftárásirnar hefur verið áréttaður og hefur Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, leitað eftir stuðn- ingi leiðtoga nágrannaríkja Jú- góslavíu, Albaníu, Ungverjalands, Rúmeníu og Búlgaríu. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hét hertum aðgerðum til að hrekja serbneskar hersveitir úr Kosovo og að skila héraðinu aftur í hendur „þeirra sem það tilheyrir". Ummæli hans eru af sumum talin bera þess merki að hvikað hafi ver- ið frá fyrri afstöðu NATO um að kröfur um sjálfstæði héraðsins frá Serbíu myndu ekki hljóta stuðning bandalagsins. A laugardag sagði Clinton Milos- evic vera „versta lýðskmmara í sögu Evrópu“ og „herskáan ein- ræðisherra“ sem yrði að stöðva. Blair undirstrikaði orð Banda- ríkjaforseta í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð á sunnudag. „A því leikur enginn vafí að svo lengi sem Milosevic er við völd stöndum við frammi fyrir verulegu vandamáli... Við verðum að finna úrræði til að tryggja að Milosevic geti ekki miklu lengur beitt fólk á þessu svæði kúgun,“ sagði Blair. riðnófdagkl. 17-19 ásamt efstu frambjóðendum Framsóknarflokksins f Reykjavfk Ný f ramsókn til nýrrar aldar .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.