Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 82
*82 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM FARRELLY-bræðurnir í uppstillingu sem gæti verið tekin beint úr einni af myndum þeirra. Bob er sá með snuðið og Peter með hringluna. MENNIRNIR bak við myndina Það er eitt- hvað við Mary eru bræðurnir Peter og Bob Farrelly sem eru báðir nýskriðnir yfir fertugt og búa í litlum bæ í Nýja-Englandi. Mynd þeirra um Mary sem þeir bæði skrifuðu handritið að og leik- stýrðu er að fara yfir 340 milljóna dollara markið sem er besta gengi myndar frá bræðrunum, en aðrar myndir á lista þeirra ei-u Heimskur heimskari og keilumyndin Kingpin. Þrátt fyrir þessar gífurlegu vin- sældir eru bræðurnir með báða fætur á jörðinni svo fremi að það sé ekki jörðin í Hollywood. „Við kunn- um betur við vini okkar heima. Við getum slappað af með þeim.“ Þó fylgir starfinu að heimsækja Hollywood reglulega og víst hafa ferðir þeirra þangað borið árangur. Viku eftir að „Mary“ var frumsýnd í Los Angeles bauð framleiðandinn þeim til veislu. Bill Mechanic og Tom Sherac frá Fox-kvikmynda- verinu mættu í veisluna og afhentu hvorum bróður ávísun upp á eina milljón dala sem fyrirframgreiðslu fyrir væntanlega sölu myndarinnar. „Svona atvik hleypa vissulega fjöri í matarboð," segir Peter. Carrey og Allen væru góðir tvíburar Síðasta heimsókn bræðranna til Hollywood var tii að kynna nýjustu mynd þeirra, „Stuck on You“, sem fjallar um síamstvíbura sem deila sömu lifur en eru að öðru leyti afar ólíkir. Draumaleikararnir í hugum bræðranna fyrir hlutverkin eru þeir Jim Carrey og Woody Allen, en þeir gera sér þó grein fyrir að erfitt gæti verið að ná því pari sam- an. Þeir treysta framleiðendunum til að kanna möguleikana á því sam- starfí og einbeita sér að öðru. Þegar málin hafa verið afgreidd í Hollywood flýta bræðurnir sér heim í litla bæinn til að hitta fjöl- rmrLT.iriii;iTro mn rrr nnr i jju VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN A ISLANDI n - VIKAN Nr. var | vikur Mynd Úlgefandi ; Tegund 1. 1. i 2 There's Something About Mory Skífan 1 Gamon 2. NÝ ; 1 Snake Eyes Sam myndbönd ; Spenna 3. 2. ; 3 Rush Hour Myndform i Goman 4. 3. ; 5 Out of Sight CIC myndbönd i Gaman 5. 4. : 2 Knock Off Myndform i Spenna 6. 5. i 6 Dr. Dolittle Skífon i Gaman 7. 7. j 4 The Horse Whisperer Som myndbönd i Drama 8. 11.; 2 Savior Bergvík ; Spenna 9. NÝ; 1 Apt Pupil Skífon ! Spenna 10. 6. i 4 Halloween: H20 Skífan : Spenna 11. 9. ; 8 Mask of Zorro Skífan : Spenna 12. 12.: 9 Perfect Murder Warner myndir i Spenna 13. 10 j 3 Wishmaster Sam myndbönd i Spenna 14. 8. i 7 Blade Myndform i Spenna 15. ný ; í Eve's Bayou Som myndbönd i Drama 16. 13. i 3 Dance With Me Skífon i Gaman 17. NÝ 1 Dansinn Hóskólobíó ! Drama 18. NÝ i 1 Chairman of The Board Stjörnubíó ; Gamon 19. 14. i 7 Smali Soldiers CIC myndbönd i Gaman 20. 20.1 3 General Skífon : Spenna OIIIIII i miii ririii i líi í i miiiiui i skyldur sínar og vini. Bob, sem er eldri bróðirinn, virkar íhaldssamari og auðvelt væri að ruglast á honum og opinberum starfsmanni lítils bæjarfélags. Peter er hippalegri í útliti í síðum íþróttabol og galla- buxum. Ef ekki væri fyrir stríðnis- legt blik í augum myndi enginn halda að bræðurnir skæru sig á nokkum hátt úr í sínu bæjarfélagi. „Við höfum gaman af þvi að ganga eins langt og við getum án þess að þurfa að skammast okkar,“ segja bræðurnir. „Fólkið sem við vinnum með er eins og hluti af fjöl- skyldunni og við reynum að taka allt upp íjaiTÍ glaumnum í Hollywood.“ Bræðurnir vilja einnig forsýna myndir sínar nærri heima- högunum til að sjá hvaða brandar- ar virka og hverjir ekki. „Það er hægt að komast að miklu meiru þegar maður er ekki með allt kvik- myndaverið yfir sér og áhorfendur hérna segja okkur mun meira um myndirnar, en áhorfendur í Hollywood." Sjálfstæði skilar fjölbreytni Bræðurnir láta frægðina ekki hafa of mikil áhrif á sig. Peter er nýgiftur og á von á sínu fyrsta barni, en Bob hefur verið giftur lengi og á tvö börn. Peter er að hugsa um að byggja hús á eyjunni Martha’s Vineyard, en að öðm leyti hefur hann engar sérstakar hug- myndir um hvernig nýfenginn auð- ur mun hafa áhrif á lífsstíl hans. „Það var sú tíð að ég hugsaði um sjálfan mig sem frumkvöðul," segir Bob. „Eg fann upp og setti á mark- að hringlaga strandhandklæði svo fólk þyrfti ekki að standa upp þeg- ar sólin færðist á himninum. Af ein- hverjum ástæðum seldist þessi vara treglega." Kvikmyndirnar hafa sýnt sig að vera betri vettvangur fyrir bræð- urna en handklæðagerð svo fremi að þeir fái að gera myndirnar eftir sínu höfði. Sem þýðir að þeir geti tekið upp myndir sínar fjarri glaumi Hollywood og þar sem við „getum verið í kringum alvöru fólk“. Arangur bræðranna styður skoð- un margra kvikmyndagerðarmanna að sjálfstæði leikstjóra og minni af- skipti kvikmyndafyrirtækjanna geti skilað sér í frumlegri handrit- um og fjölbreyttari myndum. Víst er að sú er raunin með Farrelly- bræðurna. CAMERON Diaz sem leikur hina eftirsóttu Mary. Myndbandaiistinn Ekkert lát á vin- sældum Mary FÁAR kvikmyndir hafa notið jafn gífurlegra vin- sælda undanfarið og gam- anmyndin Það er eitthvað við Maríu með Cameron Di- az, Ben Stiller og Matt Dillon í aðalhlutverkum. Fádæma aðsókn var á myndina þegar hún var sýnd í kvikmyndahúsum og ekkert lát virðist á vinsæld- unum eftir að hún var gef- in út á myndbandi. Heldur myndin enda toppsætinu aðra vikuna á lista. Nýjasta mynd leikstjórans Brians de Palma, Snáka- augu með Nicolas Cage í að- alhlutverki, kemur ný inn á listann og fer beint í annað sætið. Spennumyndin Námfús nemandi sem byggð er á sögu Stephens Kings fór í níunda sæti listans. Þrjár aðrar nýjar myndir eru á listanum þessa vikuna og má þar nefna suðurríkja- myndina Eve’s Bayou sem sýnd var hér á listahátíð, en hún er fyrsta mynd leik- stjórans Kasi Lennnons og skrifar liún einnig handrit- ið. Með helstu hlutverk fara Samuel L. Jackson og Lynn Whitman og hefur myndin hlotið góða dóma gagn- jlnenda. Dansinn hans gústs Guðmundssonar kemur einnig ný inn á lista vikunnar og fór í 17. sætið, en hún hefur hlotið lofsam- lega dóma gagnrýnenda bæði hér heima og erlendis. Gamanmyndin Fremstur á brettinu með rauðhausinn Scott Thompson í aðalhlut- verki fór í 18. sætið sína fyrstu viku á lista. rý: Ag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.