Morgunblaðið - 20.04.1999, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNB LAÐIÐ
AKUREYRI
Góðar viðtökur félagsmanna við skipulagsbreytingum hjá KEA
Næstu skref að sameina
afurðastöðvar á Norðurlandi
NÆSTU skref varðandi þær skipu-
lagsbreytingar sem nú standa yfír
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga eru að
ljúka þeirri vinnu sem nú er í gangi
varðandi sameiningu afurðastöðva á
Norðurlandi. Þar á að leitast við að
mynda sem sterkust tengsl við
framleiðendur á svæðinu m.a. með
eignatengingu og er markmiðið það
að Norðlendingar verði í farar-
broddi í afurðavinnslu og markaðs-
setningu hér á landi.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfírð-
inga var haldinn á laugardag og þar
var þetta mál til umfjöllunar. Stjóm
félagsins fagnaði þeim góðu viðtök-
um sem skipulagsbreytingarnar
sem kynntar voru á síðasta ári hafa
fengið en nú er verið að hrinda þeim
í framkvæmd. Telur stjórnin viðtök-
umar ótvírætt vitni um að félagið sé
á réttri braut.
Auk þess sem megináhersla verð-
ur lögð á að ljúka viðræðum um
sameiningu afurðastöðva, er áhersla
lögð á að KEA haldi áfram öflugri
uppbyggingu á verslunum á dag-
vöi-umarkaði með Nettó í farar-
broddi.
Lækka þarf skuldir
móðurfélagsins
Til viðbótar við skuldalækkun
KEA samstæðunnar upp á tæpa tvo
milljarða, sem náðst hefur frá síð-
ustu áramótum þarf að lækka
skuldir móðurfélagsins um að
minnsta kosti einn milljarð og
hyggst stjórn félagsins ná þeim með
eignasölu.
Þá mun KEA kanna möguleika á
að færa hluta af höfuðstól sínum í
nýjar atvinnugreinar með hærra
framlegðarstigi en er að meðaltali
innan félagsins nú og bjóða þar
með aukna fjölbreytni atvinnu-
tækifæra. A næstunni verður
einnig farið í markvissa vinnu varð-
andi framtíðarfyrirkomulag sam-
vinnufélagsins KEA. Þar verður
horft til hinna margslungnu hags-
muna sem fléttast saman í félag-
inu, sem nú er að nokkru verið að
aðgreina hvað varðar rekstrar-
þætti í yfirstandandi skipulags-
breytingum.
Horfa þarf til nokkurra þátta
varðandi framtíðarskipulag sam-
vinnufélagsins, m.a. þess að félagið
skilgreini sig hér eftir sem hingað
til sem byggðafestufélag sem beiti
sér af afli til eflingar byggðar og
mannlífs á félagssvæði sínu. Skil-
greina þarf félagssvæði þess og
rétt til inngöngu. Huga þarf að
hagsmunum B-hluthafa, m.a. hvort
þeim er ekki best borgið með því
að bjóða þeim að flytja fjármuni
sína í rekstrarþætti samstæðunn-
ar.
Morgunblaðið/Kristján
EIRIKUR S. Jóhannsson kaupfélagsstjóri og Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, stjórnarformaður Kaupfélags Eyfirðinga, á aðalfundi KEA
á laugardag.
Fíkniefnaneysla fer
vaxandi á Akureyri
Níu hand-
teknir um
helgina
NIU manns voru handteknir
um síðustu helgi vegna fjög-
urra fíkniefnamála sem upp
komu á Akureyri. Um fjögur
aðskilin mál er að ræða.
Af þeim níu sem handteknir
voru viðurkenndu fímm aðild
sína að þeim, en fjórir báru af
sér alla sök. Rannsóknardeild
Lögreglunnar á Akureyri lagði
hald á rúmlega 10 grömm af
kannabisefnum í þremur til-
vikanna, en tæki og tól til fíkni-
efnaneyslu fundust í því fjórða.
Daníel Snorrason lögreglu-
fulltrúi í rannsóknardeild sagði
að frá áramótum hefðu komið
upp 18 fíkniefnamál á Akur-
eyri, en á sama tímabili í fyrra
höfðu þrjú mál komið upp. Alls
fékkst rannsóknardeildin við
tæplega 40 mál allt árið í fyrra.
„Það er engin spurning að
fíkniefnaneysla fer mjög vax-
andi hér í bænum eins og við
höfum verið að benda á,“ sagði
Daníel. Hann sagði aldur neyt-
enda því miður fara lækkandi
og lögregla hefði haft afskipti
af börnum niður í 14 ára aldur
vegna fíkniefnaneyslu. „Ég vil
hvetja foreldra til að fylgjast
virkilega vel með börnum sín-
um, það er fyllsta ástæða til
þess,“ sagði hann.
KEIXIIXISLUFRÆÐI TIL
KENIXISLURÉTTIIMDA
Nám í kennslufræði til kennsluréttinda fyrir starfandi leiðbeinendur hefst á
hausti komanda ef næg þátttaka fæst.
Námið miðast við kennslu á framhaldsskólastigi og í efri bekkjum grunn-
skólans. Til námsins er stofnað á grundvelli laga um lögverndun á starfs-
heiti og stafsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og
skólastjóra, nr. 86/1998.
Áskilinn er réttur til þess að takmarka fjölda innritaðra ef þörf krefur.
Umsóknarfrestur er til 1. júní nk. Sækja ber um námið á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum sem fást á aðalskrifstofu Háskólans að Sólborg,
kl. 8.00-16.00, sími 463 0900 og á deildarskrifstofum, Þingvallastræti 23,
sími 463 0930 og Glerárgötu 36, sími 463 0961/0940. Afgreiðslutími
deildarskrifstofa er frá kl. 8 00 til 12 10.
Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri námsins í síma 463 0923
eða 463 0900
Háskólinn á Akureyri.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Sporisjóðs Svarfdæla, Dalvík, verður haldinn í veitinga-
húsinu Brekku í Hrísey fimmtudaginn 29. apríl 1999 kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Hríseyjarferjan fer fró Árskógsandi kl. 19.30.
Dalvík, 19. apríl 1999.
Stjórnin
PENTAX
FERMINGARTILBOÐ
PENTAX PC-55 Date
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
3 STK. FUJIFILM SUPERIA filmur fylgja
Verð aðeins kr. 7.490
IJOSMYHDAVORUR
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
mAskóunim
Á AKUPEYRI
Morgunblaðið/Kristján
FJOLA Berglind Hjaltadóttir sem er í Giljaskóla, fékk eins og önnur
börn á Akureyri, Grenivík, Svalbarðseyri og Grímsey, sem fædd eru
1992, reiðhjólahjálm og veifu frá kiwanisfólki. Við borðið sitja frá
vinstri: Pétur Ólafsson, Kaldbak, Júlía Björnsddttir, Emblu, Sigríður
Sigurðardóttir, Emblu, og Þorgeir Jóhannesson, Kaldbak.
Kiwanisfólk gaf 7 ára
börnum reiðhjólahjálma
Kirkjustarf
L AUFÁSPRE STAKALL: Ferm-
ingarguðsþjónusta í Svalbarðs-
kirkju á sumardaginn fyrsta, 22.
apríl kl. 13.30. Þessi börn verða
fermd:
Hrönn Helgadóttir, Stapasíðu
lld, Akureyri.
Jón Ragnar Guðmundsson, Sval-
barði.
Kirkjuskóli verður í Svalbarðs-
kirkju á laugardag, 24. apríl kl. 11.
Þetta er síðasta samvera vetrarins í
kirkjuskólanum.
Kirkjuskóli í Grenivíkurkirkju á
laugardag, 24. apríl kl. 13.30. Þetta
er síðasta samvera vetrarins í
kirkjuskólanum. KyiTðarstund í
Grenivíkurkirkju kl. 21 á sunnu-
dagskvöld, 25. aprfl.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Hátíðarguðsþjónusta í Bægisár-
kirkju kl. 14 á fimmtudag, sumar-
daginn fyrsta. Kór kirkjunnar syng-
ur hátíðarsöngva Bjarna Þorsteins-
sonar. Organisti er Birgir Helga-
son. Ferming og altarisganga.
Fermdur verður Hjalti Þórhallsson,
Staðarbakka, Hörgárdal.
------fV*------
Eldur í potti
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kall-
að að fjölbýlishúsi við Tjarnarlund
sl. sunnudagsmorgun. Þar var
nokkur reykur í íbúð, frá potti á
eldavél.
Ekki var um mikinn eld að ræða
og lítil hætta á ferðum en
reykræsta þurfti íbúðina. Skemmd-
ir eru ekki taldar hafa verið miklar.
ÞAÐ var handagangur í öskjunni
í verslunarmiðstöðinni Sunnuhh'ð
um helgina, en þrátt fyrir kulda
og trekk stóðu þar yfir Vordag-
ar. Líkt og venja er til á Vordög-
um voru félagar í Kiwanisklúbb-
unura Kaldbak og Emblu mættir í
Sunnuhh'ðina og færðu þeir öll-
um sjö ára börnum á Akureyri og
nágrenni reiðhjólahjálma og veif-
ur en þetta er ni'unda árið í röð
sem Kaldbakur færir börnum
reiðhjólahjálma, en Embla hefur
verið með í þessu verkefni síð-
ustu þrjú ár. Þar sem veðrið var
ekki sérlega vorlegt var hætt við
að grilla úti við, en gestir og
gangandi fengu samt pylsur svo
sem boðað hafði verið, en þær
voru matreiddar innandyra. Þá
buðu klúbbarnir upp á rómaðan
Brynjuís og ávaxtadrykkinn
Frissa fríska.
Félögin afla fjár til verkefnisins
með styrkjum en þeir sem styrktu
verkefnið nú eru Akureyrarbær,
Safagerði KEA, KEA-Sunnuhlíð,
Utgerðarfélag Akureyringa,
Bautabúrið, Tryggingamiðstöðin,
Sjóvá-Almennar, Brynja, Krist-
jánsbakarí, Islandsbanki, Merki-
legt og Dekkjahöllin.
Kútter Johanna
Samstarfsaðilar um sumarsiglingar Kútter Johönnu
með ferðamenn óskast. Eitthvert fjárframlag og
reynsla í ferðamennsku æskileg.
Upplýsingar veita Nlels J. Erlingsson, sími 462 2843
og Erlingur Níelsson, sími 461 3418 eftir kl. 18.00.
Sigling-Níels J. Erlingsson.