Morgunblaðið - 20.04.1999, Page 37

Morgunblaðið - 20.04.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 37 LISTIR MICHAEL Young; sófi. JASPER Morrisson; eimreið. HONNUNA ALÞJÓÐAVÍSU M¥M)LIST Kjarvalsstaðir HÖNNUN JASPER MORRISSON, MARC NEWSON, MICHAEL YOUNG Opið alla daga frá 10-18. Til 24. maí. Aðgangur 400 krónur í allt húsið. MÓTUN og hönnun hluta, far- tækja, bygginga og umhverfis er það sem hvert metnaðargjamt nútíma- þjóðfélag leggur ómælda áherslu á nú um stundir og hefur farið stigmagn- andi alla öldina. Aður voru það að stórum hluta til foiTéttindi aðalsins og borgarastéttarinnar, en í neyzlu- og múgfélagi nútímans varðar hönnun alla, háa sem lága. Þess sér stað í samanlagðri manngerðri verkmennt allt um ki-ing, jafnt hinum smæstu einingum notagildis sem skýjakljúf- um, og allt þar á milli. í sumum tilvik- um getur sami maðurinn staðið að baki iðnhönnun, listhönnun og arki- tektúr, líkt og tilfellið er um Phillippe Starck í Frans, en verka hans sér áþreifanlega stað í París, New York og Tokyo. Hér á landi hefur skilningui'inn á hönnun lengstum verið bágborin, ein- skorðast við afmarkað svið húsagerð- ar og skipulags og þar hafa menn oft- ar en ekld látið hinn lífræna þátt mót- unarinnar sitja á hakanum, gleymt sálinni í líkamanum. Reglustikan og köld verkfræðin ráðið ferðinni, sem er tvímælalaust höfuðorsök ótal slysa á vettvanginum bæði hér heima og er- lendis. Þá hefur hönnun í sinni altæk- ustu mynd mætt afgangi í kennslu- kerfinu og lengstum ekki verið við- urkend sem gilt fag til námslána. Hafa menn rétt verið að taka við sér á undanfömum árum, sem er helst því að þakka að dugmiklir einstaklingar hafa sannað sig rækilega allt frá mót- un húsgagna til hugbúnaðar og áhugi ungu kynslóðarinnar mikill og brenn- andi. Ekki var lengur hægt að loka augunum fyiir þessari veigamiklu hlið sjón- og skynræns þroska og nytsemi hennar fyrir þjóðarbúið, jafnvel ekki í verstöðva og tonnalandinu. Hefur skrifari í áratugi vísað til þess að ís- land eitt Norðurlanda er nær tekju- laust vai’ðandi útflutning listiðnaðai’ sem er þai’ stór búgrein, ekki síst í Danmörku og Finnlandi. Enginn skal halda því fram, að okkur skorti hér hæfileikafólk né hugvit, séum meira hálfir en heilir á skapandi sviðum. Frekar að menntakerfið og hið opin- bera hafi ekki verið á upplýstari og skilningsríkari nótunum um þá mikil- vægu þætti menntunar sem að augun- um og skynfærunum snýr og sjón- menntir nefnast. Vonandi er það svo angi vakningar sem boðar nýja tíma með blóm í haga, að Vestursalur Kjar- valsstaða hýsir um þessar mundir sýningu þriggja hönnuða af yngri kynslóð frá London, þeii'ra Jasper Morrisson, Mai'c Newson og Michael Young. Allir eru þeir hámenntaðir fulltrúar núviðhorfa, sem eru þó kannski ekki alveg spánný frekar öðru undir sólinni, sem listilega kvíslast frá frumformunum, skara þó ótvírætt tímana sem við lifum á sem telst veigurinn og inntakið. Þesslags sýningar hvaðanæva að úr heiminum eru sjálfsagður hlutur hvarvetna þai’ sem forvitnir um heimslistina leggja helst leið sína, eru með því áhuga- verðasta og lærdómsríkasta sem rekur á fjörur þeirra sem vilja vilja vera meðvitaðir um hjartaslátt dags- ins. Ekki síst hinar stærri sem'settar eru upp í sögulegt samhengi, hins vegar getur gesturinn étið yfir sig af nýjungum á hinum stóru fram- kvæmdum núviðhorfa líkt og Þríær- ingnum í Mflanó, jafnvel í þá veru að hann er lengi að ná áttum eftfr and- legar meltingartruflanirnar við skoð- un þeirra. Upp í hugann kemur einnig sýn- ing á hönnun í Brooklyn safninu 1988, ameríska draumnum, sem var nýopnuð er mig bar að garði. Láðist mér að kaupa hina viðamiklu sýning- arskrá sem var í hraukum hvar- vetna, en svo er ég hugðist panta hana er leið á sýningartímabilið vegna greinar sem ég vai’ beðinn um að skrifa, var hún uppseld og ófáan- leg, sem má vera til vitnis um áhuga almennings vestra á þessari hlið°sjónmennta. Það er ekki aðeins að hlutirnir á sýningunni að Kjarvalsstöðum séu áhugaverðir heldur er uppsetningin á þann veg að sérstaka athygli vekur en hún stigmagnast og kórónast í innsta hólfi sem er jafnframt gætt mestri hlýju og nálgun. An þessarar hnitmiðuðu stigmögnunar og sveigj- anleika, flexibilitet, hefðu áhrifin orðið allt önnm’ og og er hér um nokkurn lærdóm að ræða fyrir mör- landann. Ekki svo að skilja að þetta sé fyrsta sýning nútímahönnunar sem rekst hingað, og vel er ég með á nót- unum um það sem vel hefur verið gert varðandi kynningu á samtíma- hönnun á landi hér. Það er sitthvað, en margt á sýningunni vekur athygli fyrir nýstárleika auk þess að and- rúmið kringum framkvæmdina er mjög sértækt. Ekki hyggst ég fara út í samanburð né faglegar vanga- veltur í þessu skrifi, hér skyldi öðru fi’emur vakin athygli á framkvæmd framsækinna hönnuða af hárri gráðu. Verk þeirra hliðstæða þess nútímalegasta sem gert er um þess- ar mundir í heimi hér, hvað varðar form, efni, fegurð og hagnýti. Líkast til mun einhverjum þykja sum verk- anna full köld og vélræn, eru þó í anda samtímans, en mönnum hættir til að taka ekki jafn vel eftir þeim úti í daglega lífinu og í slíkri hnitmiðaðri samantekt. Öðru fremur er um að ræða samræðu, dialogu, á vettvangi formrænnar mótunai’ sem að falla að hagnýtri nýtingu, sem sér stað um heim allan og í hverjum einasta lis- tíðaskóla sem stendur undfr nafni. Löngu er kominn tími til að taka skipulega á þessum málum á landi hér, því bæði reisn þjóðarinnar sem ómældir fjármunir eru í húfi. Gefin hefur verið út lítil, handhæg og upplýsandi sýningarskrá, sem er einnig lofsverð hönnun útaf fyrir sig um uppsetningu og niðurröðun efnis. í hana ritar Guðmundur Oddur Magnússon stutta hugleiðingu um hugmyndafræðilegan bakgi-unn hönnunar, þjóðleg og alþjóðleg ein- kenni, og Marcus Field tekur fyrir hönnuðina sjálfa, þróun þeirra, vinnuferli og innbyrðis skyldleika. Komast þeir báðir vel frá sínu hver á sinn hátt og afar mikilvægt að gestir nálgist lesmálið, kynni sér hvað inn- vígðir leggja til málanna. Bragi Ásgeirsson MARC Newson; arm- bandsúr. ,,Eger anœgður meðUfið‘ Og Apollo hárið HAIR rAPOLLO.- SYSTEMS Erlendur sérfræðingur veitir allar upplýsingar, ífullum trúnaði dagana 20.-25 apríl. ApoUo hárstúdíÖ Náncui upplýsingai'og túnajxintanir ísíma 5522099. astmaij! Öndunarmælingar á staðnum Sérfræðingar veita upplýsingar um astma og notkun allra helstu astmalyfja I dag í Lyfju Setbergi Hafnarfirði frá kl 13-18. Kjörið tækifæri til að fræðast betur um astma, astmalyf og rétta notkun lyfjaformanna. GlaxoWellcome cQl LYFJA U - Lyf á lágmarksverði Lyfja Setbergi, sími 555 2306

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.