Morgunblaðið - 20.04.1999, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 20.04.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ AGUSTA KRISTIN BASS + Ágústa Kristín Bass fæddist á Akranesi 21. maí 1945. Hún Iést á heimili sínu 7. apríl siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ 17. aprfl. Nú er dag tekur að lengja og gróður fer að vakna úr vetrardvala, ber skyndilega skugga á tOvem okkar. Enn á ný erum við minnt á dauðann. Stína vinkona er kölluð burt svo fljótt sem örskot. Við sitj- um eftir sem lömuð. Stína var náttúmbarn, fædd í maí, og var vorið hennar tími. Hún fæddist á Akranesi og ól allan sinn aldur á Brekku hjá fósturforeldram sínum, meðan þeirra naut við, við ást og hamingju, sem hún deildi síðan til ástvina og kunningja. Hún var félagslynd manneskja, kát og hress - svolítið stríðin. Stína vann við afgreiðslu í Ferstikluskála yflr 30 ár og svo vel unni hún starfi sínu að betri starfskraftur er vandfund- inn. I vinnunni eignaðist hún marga og góða kunningja sem sakna henn- ar sárt. Stína bjó á Brekku með honum Ella sínum, þar sem þau ráku fjár- bú. Föðursystir hennar, Jórunn, bjó hjá þeim og reyndist Stína henni sem besta dóttir. Stína var daglegur gestur eða heimamann- eskja á heimili okkar, allan okkar búskap og munum við sakna henn- ar sárt. Margt var rætt og skrafað við eldhúsborðið. Samgangur var mikill á milli bæjanna og áhugamál- in svipuð. Fjöraferðir á vorin, berjaferðir á haustin og svo allt í kringum kindurnar. Stína unni garðrækt og hannyrðir vora henni kærar. Oft kom hún með eitthvað nýtt sem búið var að búa til. Vöggu- settin era orðin mörg sem yngstu vinirnir hennar eiga, eða teppi sem hún saumaði. Stínu varð ekki barna auðið, en fáir áttu fleiri börn en Stína. Þar á meðal eru synir okkar sem nutu vináttu og kærleika Stínu. Elsku Stína, ég veit að þú verður með okkur áfram, en frá öðra sjón- arhorni. Öllum þeim sem unnu og elskuðu Stínu, sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Elsku Elli, Jóa, Helga, Magga og fjölskyldur, missir ykkar er mikill. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Þitt bros og blíðlyndi lifir og bjarma á sporin slær, það vermir kvöldgöngu veginn þú varst okkur stjarna skær. Við þökkum þá ástúð alla, sem okkur þú njóta lést, í sorgum og sólarleysi það sást jafnan allra best. Þín milda og fagra minning sem morgunbjart sólskin er, þá kallið til okkar kemur við komum á eftir þér. (F.A.) Við kveðjum kæra vinkonu. Blessuð sé minning Stínu á Brekku. Kolbrún og Sigurjón, Bjarteyjarsandi. Hún Stína er dáin. Þessar fréttir virtust svo ótrúlegar og óraunveru- legar þegar þær bárast okkur systkinunum daginn sem hún dó. Að þessi lífsglaða kona, sem maður sá svo auðveldlega fyrir sér bros- andi og með gamanyrði á vör, hefði verið kölluð burt svo skyndilega. Ósjálfrátt verður okkur hugsað til baka til þess tíma, þegar við vorum að hefja þátttöku okkar á vinnu- markaðnum og urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að njóta hand- leiðslu Stínu fyrstu skrefin. Við systkinin hófum bæði þátttöku okkar í atvinnulífinu með því að fara á unglingsaldri til vinnu í Ferstiklu- skála í Hvalfirði. Þeg- ar unglingar era að feta sín fyrstu skref á meðal vinnandi fólks getur gengið á ýmsu á meðan verið er að að- lagast þessum heimi fullorðinna. Þá er mik- ilvægt að hafa einhver haldreipi að grípa í, einhverja fasta punkta í tilveranni sem hægt er að treysta á að séu sannir og heilir, sama hvað á gengur. Fyrii' okkur var það Stína á Brekku sem frá upphafi var þetta haldreipi, vinnufélaginn sem alltaf var hægt að leita ráða hjá og leggja traust sitt á. Henni virtist alltaf ljúft að kenna nýliðunum allt sem þeir þurftu að læra, og aldrei nokkurn tíma kom fyrir að hún missti þolin- mæðina eða góða skapið þótt tilefn- in hafi verið ærin. Maður hefði ekki getað fengið betri starfsfélaga og kennara, því að hún varð strax miklu meira en eingöngu vinnufélagi, hún varð góð vinkona. Og sá vinskapur hélst alltaf upp frá því. Þrátt fyrir að leiðir skildu síðar meir, þegar við systkinin fóram að leita okkar far- vega í lífinu, þá gleymdum við aldrei Stínu og hún aldrei okkur. Eftir að hafa einu sinni orðið svo náinn Stínu sem við urðum, þá rofnuðu þau tengsl aldrei. Svona vinskap myndaði hún við alla sem hún vann með og þeir vora ekki fá- ir. Það sem öðra fremur gerði Stínu að einstökum vinnufélaga og vini var að hún var alltaf heil. Ef henni mislíkaði eitthvað, þá gat maður alltaf treyst henni til að segja það hreint út, vafningalaust, en þó á þann hátt að maður gat ekki með nokkra móti orðið henni reiður. Maður vissi að ef Stína sagði eitt- hvað, þá hlaut að vera eitthvað til í því, og þá var það líka sagt á þann hátt að maður þurfti ekki að taka það nærri sér. Hún sagði meiningu sína, og ekkert meira en það. Þeir viðskiptavinir Ferstiklu- skála sem þangað hafa komið oftar en einu sinni muna öragglega flest- ir eftir henni. Hún var alltaf svo vingjarnleg og eðlileg í samskiptum sínum við fólk, og ef hún sá sömu andlitin oftar en einu sinni þá heils- aði hún þeim eins og gömlum kunn- ingjum og fór að spjalla við þá um daginn og veginn. Hún var búin að vinna í „Skálanum" nánast frá upp- hafi Islandsbyggðar að manni fannst. Hún var sálin í Ferstiklu- skálanum. Stína er öllum ógleym- anleg sem fengu að kynnast henni, hversu mikil eða lítil þau kynni voru. Elsku Stína. Við systkinin þökk- um fyrir að hafa fengið að kynnast þér og þinni óbilandi bjartsýni og lífsgleði, sama hvað á gekk. Við þökkum þér fyrir að hafa leitt okk- ur og stutt á mikilvægum stundum og við þökkum þér fyrir það sem þú lagðir af mörkum til að reyna að gera okkur að betri manneskj- um. Vonandi berum við gæfu til þess að fara eftir öllum þínum góðu ráðum, héðan af sem hingað til. Rósa og Valgarður á Miðfelli. Kveðja frá skólasystrunum á Varmalandi Þú áttir líf, áttir augnablik. Þú áttir kjark, þú sýndir aldrei hik. Þú áttir styrk, þú hafðir hreina sál. Þú áttir ljós, þú áttir barnsins mál. Þinn tími leið, þú kvaddir lífið skjótt. Það komu él, það dimmdi eina nótt. Þú barðist vel, þú lagðir lífi lið. Þú loksins fannst hjá Guði einum frið. (Höf.ók.) ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 49 MINNINGAR í dag kveðjum við kæra vinkonu og skólasystur, Agústu Kristínu Bass. Stína, eins og hún var kölluð, var ein í hópi fjöratíu og tveggja ungra stúlkna víðsvegar að af land- inu, sem komu til náms í Hús- mæðraskólanum á Varmalandi í Borgarfirði veturinn 1962 - 63 og er önnur úr þessum hópi sem kveður þetta jarðneska líf. Hennar er sárt saknað af okkur hinum sem eftir lifum. Við skólasysturnar komum úr ólíku umhverfi og aðstæður okkar vora mismunandi en við voram ungar, framtíðin brosti við okkur og við ætluðum okkur stóra hluti í lífinu. Það einstaka samfélag sem aðeins getur myndast í heimavist- arskóla er engu öðra líkt og við hefðum flestar ekki viljað missa af því að upplifa það. Þennan vetur bundumst við traustum vináttu- böndum og nú höfum við haldið hópinn í 36 ár. Þess er skemmst að minnast að við eyddum saman ógleymanlegii helgi á Varmalandi síðastliðið vor á 35 ára skólaafmæli okkar. Sungum, hlógum og dönsuðum saman eins og forðum daga. Þessi helgi er nú ennþá dýnnætari fyrir það að þetta voru síðustu samverastundir okkar með Stínu, en hún átti stór- an þátt í undirbúningi og skipulagi helgarinnar ásamt öðrum Borgfirð- ingum. Hún Stína okkar var vinsæl, frjálsleg í fasi og glaðvær. Hún var músíkölsk og hafði góða söngrödd. Oft spilaði hún á gítar og söng þeg- ar við skemmtum okkur saman, bæði á kvöldvökum í skólanum og þegar við seinna hittumst á nem- endamótum. Hún var náttúrubarn sem unni sveitinni sinni. Þar vildi hún lifa og starfa og þar átti hún heima alla ævi. Hún hafði alist upp við mikið ástríki og kærleika hjá fósturforeldram sínum, þeim Guð- mundu og Gísla á Brekku, og það duldist engum sem kom á það heimili að þar var samhent fjöl- skylda sem bar hlýjar tilfinningar hvert til annars. Þangað var gott að koma. Sagt er að lengi búi að fyrstu gerð og það var aðdáunarvert hve vel hún hugsaði um fósturforeldra sína er þau tóku að eldast. Og í skjóli hennar dvöldu þau á Brekku til dauðadags og launaði hún þeim sannarlega vel fóstrið. Hún var einnig sérlega notaleg við allt ann- að eldra fólk sem hún átti sam- skipti við og spurði ævinlega um líðan þess og heilsu og vora gamlir sveitungar henni ávallt ofarlega í huga þótt brottfluttir væra. Einnig höfum við heyrt að þeir mörgu unglingar sem unnu með henni í Söluskálanum á Ferstiklu, en þar starfaði hún í mörg ár, tali um hve notaleg og hjálpsöm hún hafi verið við þá og er þeim afar hlýtt til hennar. Að leiðarlokum viljum við þakka þér, elsku Stína, af öllu hjarta fyrir það sem þú vart okkur og allar okk- ar samverustundir. Það er okkar íTkidæmi að hafa átt vináttu þína öll þessi ár og við munum ávallt minnast þín með virðingu og þökk. Hópurinn okkar verður ekki samur án þín. Við sendum Ella, Jórunni og öll- um öðram aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að vera með ykkur í sorginni. F.h. skólasystranna á Varma- landi, Sóley Sveinsdóttir. Snert hörpu mína himinborna dís svo hlusti englar guós í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína himinboma dís og hlustið englar guðs í Paradís. (Davíð Stef.) Elsku Stína vinkona okkar er dá- in. Söknuður okkar er mikill. Að fá ekki að njóta vináttu og elsku þinn- ar lengur er okkur óskiljanlegt. Þú sem varst okkur alltaf svo góð. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Góði guð, styrk þú Ella, Jóu og aðra aðstandendur í þeirra sorg. Missir ykkar er mestur. Minning þín lýsir hjörtu okkar í sorginni. Þínir vinir, Signrður Víðir, Samson Bjarni og Dofri. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Með örfáum orðum langar mig að minnast og kveðja Stínu frænku á Brekku. Mér fannst alltaf sem hún Stína væri líka frænka mín, eins og mannsins míns, vegna tengsla hennar og móðurafa míns. En blóðtengd var hún hvoragu okk- ar. Stína átti alveg sértakan sess í hjörtum okkar. Ef við höfðum ekki hist lengi átt hún það til að hringja til að spyrja frétta af dætrunum og frænda sfnum, heilsufarinu á bæn- um og hvað væri á döfinni, hún vildi fá fréttirnar frá fyrstu hendi. Henni var annt um sitt fólk og lét sig varða hvað það var að fást við. Hún hvatti okkur óspart þegar illa gekk og samgladdist þegar vel gekk. Andlát Stínu * var okkur öllum sem reiðarslag. Svo óvænt, snöggt og óréttlátt. I raun trúum við því ekki enn að hún sé farin. Það var fyrir aðeins fáeinum dögum að við Gústi, stelpurnar okkar, Brynja, Valdi og Stína sátum saman í eld- húsinu á Kalastöðum. Við hlustuð- um á Stínu segja gamansögu úr sveitinni, hláturinn glumdi, kvöldið leið hratt og alltof fljótt var komið að kveðjustund. Þá faðmaði Stína og kyssti alla fjölskyldumeðlimi vel og innilega, en því miður í síðasta sinn. A heimleið var haft á orði hve Stína væri alltaf hress og skemmti- leg og hversu vel hún hefði náð sér eftir mikil veikindi sem hún átti í fyrir nokkrum árum. Og ekki var ánægja og hrifning stelpnanna á þessari frænku sinni minni þar sem hún hafði sýnt þeim fullan skilning á þvi að þær yrðu að fá hvolp, hundur væri nánast ómissandi á hverju heimili. Og þær vinkonurnar Brynja og Stína eyðilögðu margra mánaða varnarbaráttu foreldranna með að lýsa því yfir að þær gætu ekki hugsað sér lífið án hunds. Þessi kvöldstund verður okkur öllum ógleymanleg og við þökkum Guði fyrir að hafa fengið að eiga þessa yndislegu stund með henni. Elsku Elli, Jóa og aðrir aðstand- endur, almáttugur Guð blessi ykk- ur og styrki. Elsku Stína, að lokum vil ég þakka þér íýrir það sem þú varst okkur í gegnum árin og kveðja þig með einu uppáhaldsljóði mínu eftir Jóhannes úr Kötlum: Blessi þig blómjörð, blessi þig útsær, blessi þig heiður himinn! Elski þig alheimur, eilífð þig geymi, signi þig sjálfur Guð. Úrsula. í dag kveðjum við Kristínu Bass frá Brekku. Það var eins og reiðar- slag þegar okkur barst það til eyrna að hún Stína okkar væri öll. Hvers vegna Stína? Hvers vegna tekur skaparinn hana frá okkur svona fljótt? Við sem áttum eftir að gera svo margt skemmtilegt saman bæði í leik og starfi. Stína var mér meira en bai'a vinnufélagi, hún var okkur í fjölskyldunni tryggur og góður vinur sem studdi okkur í gegnum súrt og sætt. Þegar ég lít um öxl koma margar góðar sam- verastundir upp í hugann. Smala- mennskur á Brekku, saumaskapur, berjaferðir eða bara setið yfir kaffi- bolla, ýmist á Brekku eða heima hjá okkur. Þær vora oft skemmtilegar morgunvaktirnar okkar á Fer- stiklu, þá var spjallað og skrafað um hvað væri að gerast í sveitinni. En nú verður hún ekki með okkur oftar og það er sárt að þurfa að sætta sig við að það komi engin Stína á vaktina. En ég veit að hún verður ekki langt undan og á ef- laust eftir að vera með okkur á vaktinni þótt við sjáum hana ekki. Elsku Stína, við munum alltaf minnast þín, þú varst okkur góð. En þótt söknuðurinn sé mikill vilj- um við þakka þér allar stundirnar sem við áttum saman, þær munum við geyma um ókomna framtíð. Elsku Elli, Jóa og aðrir aðstand- endur, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Sárterrinaraðsakna sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjai'ta, lýsir upp myrkrið svarta vinur þó faí frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf.ók.) Þórdís og fjölskylda. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mblis) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgi'eina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka smiðjumó. í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á iæk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil böm. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.