Morgunblaðið - 20.04.1999, Síða 60
'60 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Nátttröll
ÉG VEIT ekki hvað-
an þeir koma þessir
blessaðir prestar úr
Borgarfirðinum eða
hvar þeir hafa lært
sinn kristindóm.
Greinar eftir þá sr.
Þorbjörn Hlyn Árna-
son og sr. Geir Waage
birtast næstum á sömu
síðu í Morgunblaðinu
14. apríl og fjalla um
stríðið á Balkanskaga
- og er Nató átalið fyrir
loftárásir á Serbíu.
Mikill er þó munurinn
á þessum greinum. Sr.
Þorbjörn Hlynur ræðir
um málin af skynsemi
og sanngimi, viðurkennir yfirgang
Serba yfir óvopnuðum almenningi í
Kosovo. Hann iýkur grein sinni
með þessum orðum: „Lofthernaður
Nató er nýjasta dæmið af mörgum
um hugarfar eða afstöðu, sem segir
að hernaður sé áhrifamesta aðferð-
in til að leysa vandamál milli þjóða.
Sagan kennir að ofbeldi stöðvar
ekki ofbeldi. Meira púður er ávísan
á frekari skelfingu og dauða hinna
saklausu.“ Ég leyfi mér að efast um
* að þessi röksemdafærsla sé alls
kostar rétt og kem að því síðar.
Grein sr. Geirs Waage er furðu-
leg ritsmíð. Þar er hvergi minnst á
Kosovo-Albana, nema sem banda-
menn Serba, og að engu getið um
þær þjóðernishreinsanir og morð
sem Serbar vinna í Kosovo og er
kveikjan að árás Nató, eftir margít-
rekaðai' samningatilraunir, sem
ekki báru árangur vegna þrjósku
Serba. Hér er því einnig haldið
fram að Nató hafi brotið gegn eigin
- sáttmála og hafið styrjöld án sam-
þykkis Sameinuðu
þjóðanna, en þeirra
samþykki þurfi ætíð til
þess að svo sé gert. En
hvað gerðu Sameinuðu
þjóðirnar í Bosníu-
stríðinu? Réðust ekki
Serbar inn á yfirlýst
verndarsvæði þeirra í
Sebrenitska og tóku
þar höndum um tíu
þúsund múslimska
karlmenn, tóku þá alla
af lífí og grófu í fjölda-
gröf. Veit sr. Geir
Waage ekki um þetta
ódæði, eða er þetta
Nató-lygi?
Nei, sannleikurinn
er sá, að Sameinuðu þjóðunum er
vart að treysta, enda hver höndin
upp á móti annarri þar, og þegar
þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð,
sem nú fer fram í Kosovo, er um að
ræða, þarf að taka strax til höndum
og koma höggi á árásarmanninn, og
það var gert hér, þökk sé Nató fyrir
það.
Og svo skrifar presturinn: „Árás-
in á Serbíu er siðlaus ofbeldisað-
gerð gegn fullvalda ríki. Atökin eru
persónugerð og logið látlaust um þá
hluti sem hentar Vesturveldunum.“
En það er ekki siðlaus ofbeldisað-
gerð að reka heila þjóð úr átthögum
sínum, brenna heimili, nauðga kon-
um og taka af lífi þúsundir eða tug-
þúsundir manna! Þessi grein „guðs-
mannsins" er eins og skrifuð af
hrokafullum Serba sem ekkert á í
huga sér annað en þjóðarrembing
og fyrirlitningu á náunga sínum af
því að hann er annarrar trúar og
þjóðernis. Já, slík nátttröll eru til
meðal vor.
Ragnar Fjalar
Lárusson
HTVil 3 k1 ■! 1111 11111XS S..T.R.Æ.I.1. ..2 9 a,
23. apríl kl. 16:00
Ljóðalestur: Einar Ólafsson, Bragi Ólafsson, Kristín Björk
Kristjánsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir og Andri Snær
Magnason lesa ásamt þátttakendum úr Ljóðum unga fólksins-
Ijóðasamkeppni atmenningsbókasafna og Máls og menningar.
Félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni kveða og rapparar
rappa.
Kl. 17:30, atriði úr „Hótel Hekla : Ijóðleikur".
IÉli’lftVfil JCBi SÓLHElMU M 27
23. aprfl kl. 16:00
Félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni kveða og rapparar
rappa. Þátttakendur úr Ljóðum unga fólksins- Ijóðasamkeppni
almenningsbókasafna og Máls og menningar lesa Ijóð.
Þorgrímur Þráinsson les úr verkum sínum.
LV/FJÖRGYN.
20. apríl kl. 15:00
Leikhúsið Tíu fingur sýnir „Englaspil".
GERÐUBERGI
21. apríl kl. 15:00
Leikhúsið Tíu fingur sýnir „Englaspil".
23. aprfl kl. 15:00
Guðrún Helgadóttir rithöfundur les.
Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálína flytja lög af geisladiskinum
„Berrössuð á tánurn".
glÍf.’i'itl'lltf.-ftUM V/BÚSTAÐAVEG
Vika bókarinnar 20. tll 26. apríl verður haldin hátíðleg með
sýningu sem kallast „Maturinn hennar mömmu". Dregið verður
fram fjölbreytt úrvat matreiðslubóka og safnið skreytt með
mataráhöldum, mataruppskriftum og hollum húsráðum frá fyrri
tíð. Sýningin stendur í eina
viku en Degi bókarinnar
23. aprtl fagna starfsmenn
á þjóðtegan hátt og bjóða
gestum og gangandi upp á
kaffi og pönnukökur.
B0
BORGARBOKASAFN
REYKJAVÍKUR
Kirkjunnar mönnum, prestum og
öðrum sem þykjast tala í nafni
kristindómsins hættir of oft til að
vilja kaupa friðinn hvað sem það
kostar. Samkvæmt því hefðu þjóð-
irnar átt að sitja hjá og horfa á þeg-
ar nasistar réðust inn í Pólland. En
þá var loks Bretum og Frökkum
nóg boðið og þeir sögðu Þýskalandi
stríð á hendur og úr því varð heims-
styrjöld sem stóð í tæp sex ár með
öllum sínum hörmungum og fórn-
um, en hin illu öfl voru lögð að velli.
Hefðu kannski þjóðirnar átt að
halda að sér höndum og horfa upp á
það að nasistar legðu undir sig Evr-
ópu og gerðu sínai- þjóðernishreins-
anir, þá hefðu fleiri en sex milljónir
gyðinga lent í gasklefunum. Hefði
slíkt verið í anda kristindómsins?
Það væri gott að borgfirsku prest-
arnir svöruðu því. Til er danskt orð-
tæki sem hljóðar svo „at gá pá
akkord með sletheden“, þ.e.a.s. að
láta undan illskunni og leyfa henni
Balkanskagastríðið
Kirkjunnar mönnum,
prestum og öðrum sem
þykjast tala í nafni
kristindómsins, segir
Ragnar Fjalar Lárus-
son, hættir of oft til að
vilja kaupa friðinn hvað
sem það kostar.
að fara sínu fram. Er það ef til vill
hinn sanni kristindómur?
Ég ætla að lokum að vitna til pré-
dikunar eftir danska prestinn og
skáldið Kaj Munk, sem hann nefndi
Kristur og Danmörk, og fyrir þessa
ræðu og aðrar prédikanir sínar
þurfti hann að láta lífið fyrir böðlum
nasista.
Hann segii1: „Treystið ekki prest-
unum of vel. Þeir eru aldir upp í
manngæðum. Þeir hafa gleymt því
eða aldrei lært það, hvað kristin-
dómur er. Þeir hafa sogið kærleika
inn með barnstúttunni. I hörðum
heimi tala þeir oft máli linkunnar.
Þeir prédika frið hvað sem það
kostar, til uppbyggingar djöflinum,
sem hefur síður en svo á móti því,
að hið illa njóti friðar til þess að
breiðast út. Treystu ekki prestun-
um um of fyrr en þeir vakna og
minnast þess, að þeir eru þjónar
fagnaðarerindisins í heild, þjónar
friðai’höfðingjans, sem ekki kom til
að flytja frið, heldur sverð, hans
sem er hógvær og af hjarta lítillátur
en hafði þó djörfung til að reka út
musterisdólgana."
Væri ekki best sæmandi fyrir
okkur íslendinga að styðja a.m.k. í
orði þau öfl sem vinna að því að
dólgarnir sem nú ráða í Kosovo
verði reknir þaðan út, en að íbúarn-
ir, Kosovo-Albanar, fengju að snúa
aftur til heimkynna sinna. Eg vil að
lokum þakka ríkisstjóm Islands
hve samhent hún hefir verið í þessu
máli, ekki síst utanríkisráðherra,
Halldóri Asgrímssyni, hve vel og
dyggilega hann vill hjálpa þessum
minnstu bræðrum vorum og systr-
um sem liðið hafa hörmungar í
Kosovo.
Höfundur er fr. prófastur.
Milli fjalls og fjöru
- Skógarsjóðurinn
„BLIKAR í lofti
birki þrasta sveimur,
skógar glymja,
skreyttir reynitrjám".
Þannig lýsir Jónas
Hallgrímsson, í ljóðinu
Gunnarshólma, Islandi
til forna er það var viði
vaxið milli fjalls og
fjöru. Asýnd landsins
hefur þannig verið all
frábrugðin því sem er í
dag. Sögulegar heim-
ildir, skógarleifar og
jarðfræðileg gögn
sýna að landið hefur
almennt verið skógi
vaxið.
Þrátt fyrir gríðarlegt
átak síðustu ára í skógræktarmál-
um, þá er Island enn í dag að stór-
um hluta eyðimörk. Jarðrof og jarð-
eyðing er gríðarleg. Uppgræðsla
lands, heftun sandfoks og gróður-
setning trjáa sækist seint. Hér er
ekki verið að reifa ný sannindi.
Skógarsjóðurinn
Það er skoðun undirritaðs að
meginverkefni á sviði skógræktar á
komandi árum verði að afla aukins
fjár til skógræktar og jarðnæðis til
plöntunar trjáa. í því augnamiði
hefur verið stofnuð sjálfseignar-
stofnunin Skógarsjóðurinn. Meg-
intilgangur sjóðsins er að stuðla að
skógrækt á Islandi, m.a. með því að
styrkja einstaklinga og fyrirtæki til
plöntukaupa. Allir Islendingar sem
uppfylla lágmarkskröfur geta sótt
um styrk í sjóðinn, eða eins og seg-
ir í stofnskrá sjóðsins:
„Markmið sjóðsins er að stuðla
að skógrækt á Islandi. Sjóðurinn
styður hvers konar átak til að auka
landgæði með ræktun trjágróðurs á
Islandi. Sjóðurinn styrkir einstak-
linga og félög til skógræktar með
afhendingu trjáplantna. Sjóðurinn
kaupir og leigir lönd á völdum
skógræktarsvæðum á
Islandi til úthlutunar
til einstaklinga og fé-
laga, sem vilja stunda
skógrækt. Sjóðurinn
stundar skógrækt í
eigin nafni. Sjóðurinn
styrkir óvenjuleg, sér-
stök eða sérhæfð rann-
sóknarverkefni á sviði
skógræktar. Sjóðurinn
styrkir gerð skógrækt-
arskipulags einstak-
linga og félaga.“
Rekstur sjóðsins
mun að mestu byggja
á öflugu fjáröflunar-
starfi, en jafnframt sé
ég fyrir mér að hann
verði farvegur fyrir fjárframlög
einstaklinga og fyrirtækja til skóg-
ræktar.
Allir þeir er starfa að sjóðnum
gefa vinnu sína og er ekki gert ráð
Skógrækt
Markmið sjóðsins,
segir Þórður Þórðar-
son, er að stuðla að
7
skógrækt á Islandi.
fyrir að af rekstri hans hljótist út-
gjöld. Þannig verður tryggt að allt
það fé er aflað verður til hans renni
til plöntunar trjáa.
Stjórnskipulag sjóðsins
Þrír menn skipa stjóm sjóðsins á
hverjum tíma og eru þeir tilnefndir
af stjórn Skógræktarfélags Reykja-
víkur. Núverandi stjóm skipa
Þórður Þórðarson hdl., Ólafur Sig-
urðsson, arkitekt, formaður Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur og Þor-
valdur S. Þorvaldsson, forstöðu-
maður borgarskipulags og stjórn-
Þórður
Þórðarson
Helgi Hálfdanarson
Vegna „Péturs Gauts“
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson verkfræðingur ritar í Lesbók
Morgunblaðsins 17. þ.m. grein um leikritið Pétur Gaut eftir Henrik
Ibsen og birtir þar mjög snjalla hugleiðingu um þetta merkilega
skáldverk.
Mig langar til að hafa orð á því, að tveimur ljóðlínum, sem hann
vitnar til í þýðingu minni, hef ég breytt nokkuð frá því sem er í út-
gáfutexta. Þar sem segir á frummáli í 911. og 912. línu:
Derude, under det skinnende hvælv,
mellem mænd det heder: Mand vær dig selv!
læt ég koma:
í heimi ljóssins um lönd og álfur
er lögmálið: Maður, vertu þú sjálfur!
Má ég geta þess í leiðinni, að lokalínur þýðingarinnar hafa brengl-
azt í prentun. Þær áttu að vera:
Sólveig (syngur hærra í bjarma dagsins):
Eg skal gæta þín; ég skal vaka; -
sofðu í draumi, sveinninn minn!
Aðrar leiðréttingar skipta, að ég held, minna máli.
Ekkert af þessu varðar sjálft efnið í grein Guðmundar G. Þórarins-
sonar. En honum flyt ég beztu þakkir fyrir afbragðsgóð tök á þessu
vandasama viðfangsefni.