Morgunblaðið - 20.04.1999, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJONUSTA/FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 73
Samspil manns og
náttúru í Perlunni
FRÁ vistmenningarnámskeiði á Sólheimum síðastliðið sumar.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14-17.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is_________________________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud. ________________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓIAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekið á móti
gestum skv. samkomulagi. Upplýsingar í síma 653-2906.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Slmi 663-2530.______
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard.
milli kl, 13 og 17.___________________________
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opiö alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.__________________
MINJASAFN RAFMAGNSVTIITU Reykja\i'kur v/rafstöð-
ina v/Elliöaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eða eftir sam-
komulagi. S. 567-9009._____________________
MINJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúö við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum
timum í síma 422-7253._______________________
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aðalstræti 58 er lokað í
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfa: 461-2562.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis
á sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahóp-
ar og bekKjardeildir skóla haft samband við safnvörð í
sfma 462-3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara
umtali._______________________________________
MÝNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi.___________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630._
NATTÚRUGRIPASAFNID, sýningarsalir HvertUgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13,30-16.____________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opið samkvæmt samkomulagi.____________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu II, Hafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Sími 555-
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16.______________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólancma og aðra hópa. S: 565-4242,
bréfs. 565-4251.___________________
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súöarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl.
13-17. S. 581-4677.___________________________
SJÓMINJASAFNIÐ A EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.ls: 483-1105,483-1443.___________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR: Handritasýping opin
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14-16 til
14. maí.______________________________________
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Slmi 431-5566.______
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags íslands,
Garðinum: Opið um helgar frá kl. 13-16._______
ÞJÓÐMINJASAFN (SLANDS: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.___________________________
ÁMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu-
dagakl. 10-10, Laugard. 10-15.________________
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRl: Opið alla daga frá kl.
14— 18. Lokað m&nudaga.___________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI: Lokað í vetur
nema eftlr samkomulagi. Sími 462-2983.________
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
arfrákl. 11-17._____________________________
ORÐ DAGSINS
Reykjatík simi 551-0000. _______________
Akureyri s. 462-1840. _______________________
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR I REYKJAVlK: Sundhöllln cr opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið I bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. ki. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar ki. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, heigar kl.
8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og flmmt. ki. 11-16.
Þri., mið. og föstud. kl. 17-21.______________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-föst. 7-21. Laugd. og
sud. 8-18. Sölu hætt hálftima fyrir lokun.__
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnarijarðar: Mád,-
föst. 7-21, Laugd. 8-12. Sud. 9-12.___________
VARMÁRLAUG f MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.30- 7.45 ofi kl. 16-21. Um helgar ki. 9-18._
SUNDLAUGIN f GRINDAVfKrOpið alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Slmi 426-7555._____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.______________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVfKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.___
SUNDLAUGIN f GARÐI: Opin mán.-föst. ki. 7-9 og 16.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. ki. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Simi 461-2532._________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl, 8-17.30.____
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-íöst. 7-
21, laugd. og sud, 9-18. S: 431-2643._______
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVISTARSVÆDI_______________________________
FJÓLSKYLDU- OG HUSDYRAGARÐURINN er opinn alla
daga kl. 10-17, lokaö á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á
sama tíma. Sfmi 5757-800.__________________
SORPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar á
stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og Sæv-
arhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-2205.
---------------------------
Kynningarfund-
ur Ljósbrots
LJÓSBROT,.nýlega stofnaður klúbb-
ur áhugaljósmyndai’a, verður með
kynningarfund í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi, í B-sal, laugardaginn
24. apríl og hefst hann kl. 14.
Fyrirhuguð stai’fsemi klúbbsins
kynnt og skráning nýrra félaga. Allir
þeir sem áhuga hafa á ljósmyndun,
jafnt byrjendur og þeir sem lengi’a
eru komnir eru boðnir velkomnir á
þennan fund.
ÖNNUR sýningin sem haldin er
undir þemanu Samspil manns og
náttúru verður opnuð í Perlunni
sumardaginn fyrsta kl. 13.30.
„Tilgangur hennar er að kynna
vörur og þjónustu sem leiða til vist-
og umhverfisvænna samspils manns
við náttúruna og sjálfan sig. Fjöldi
fyrirtækja tekur þátt í sýningunni
og kynnir allt frá umhverfisvænum
bílum, gólfefnum og málningu, yfir í
hreinlætisvörur, hljómlist, bækur,
bætiefni, matvæli og ótal margt
fleira,“ segir í fréttatilkynningu frá
Leiðarljósi ehf.
Opnunardagur sýningarinnar er
sumardagurinn fyrsti sem einnig er
alþjóðlegur Dagur jarðar, þann 23.
apríl er Dagur bókarinnar og á
sunnudag er Dagur umhverfisins.
Við opnuna 22. apríl flytja Stein-
gi’ímur Hermannsson, formaður
Umhverfisverndarsamtaka íslands,
og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti, ávörp, 3. sýningardag
verða fluttir fyi’irlestrar um vist- og
umhverfismálefni.
Eftirtaldir aðilar eru á sýning-
unni: Málning ehf., Brauðhúsið,
Gróðrarstöðin Lambhagi, Gróður
fyrir fólk í Landnámi Ingólfs, SG
Hús, Lofthreinsikerfi, íshestar,
Tónaflóð, Stjörnukort/Ágúst Pét-
ursson, Dreifing, KareMor, Bóka-
forlagið Bifröst/Bókaklúbbur Birt-
ings, Fiskafurðir/Lýsisfélag/íslensk
fjallagrös, Magnús Kjaran ehf., Ak-
ur, Olís, Heilsuhornið, Náttúru-
vernd ríkisins, Lífsorka/Immunocal,
Nature’s Own, Æskulind, Yggdras-
TVEIR styrkir verða í ár veittir úr
Minningai-sjóði prófessors dr. phil.
húsameistara Guðjóns Samúels-
sonar, sem var stofnaður 24. nóv-
ember 1990 í samræmi við erfða-
skrá Guðjóns dags. 8.12. 1948.
Þetta er í þriðja sinn sem veittir
era styrkir úr sjóðnum, það var
gert í fyrsta sinn sumardaginn
fyrsta 1995.
Auglýst var eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum í þriðja sinn nú í
vor. Alls bárast níu umsóknir og
ákvað stjórnin á fundi 8. apríl að
veita að þessu sinni 2 styrki úr
sjóðnum, að því er segir í fréttatil-
kynningu. Til ráðstöfunar voru alls
400.000 kr.
Arkitektafélag íslands hlýtur
styi-k að upphæð 200.000 kr. til að
gefa út leiðsögurit um íslenska
byggingarlist í tilefni af útnefningu
Reykjavíkurborgar sem einnar af
níu menningarborgum Evrópu árið
2000. Rit þetta verður hið fyrsta
sinnar tegundar á Islandi og verður
gefið út á íslensku og ensku. Ritið
verður nokkurs konar sýningar-
ski-á að íslenskri byggingarlist í
Reykjavík og á landsbyggðinni.
Byggingarlistardeildin við Lista-
safn Reykjavíkur að Kjarvalsstöð-
um hlýtur styrk að upphæð 200.000
kr. til skráningar- og rannsóknar-
verkefna í tengslum við varðveislu á
verkum látinna íslenskra arkitekta.
Byggingarlistardeildin hefur
undir stjórn Péturs H. Ármanns-
sonar unnið ómetanlegt starf við
rannsóknir, sýningar og útgáfu á
verkum genginna íslenskra arki-
tekta, auk þess að vera traustur
fræðilegur grandvöllur við ýmsai’
kynningar og útbreiðslu á þekk-
ingu um íslenska byggingarlist.
Stjórn sjóðsins vill með styrk-
veitingunni þakka þau störf og
hvetja til framhalds þeirra og
vekja athygli yfirstjórnar menn-
ingarmála í borginni á því mikil-
væga starfi sem fer fram á bygg-
ingariistardeildinni, segir í tilkynn-
ingunni.
ill, Heilsuhúsið, Clean Trend ehf.,
Vottunarstofan Tún, Síon/KBM,
Heilsubúðin, Tóbaksvarnarnefnd,
Leiðarljós, Umhverfíssamtök ís-
lands, Teppaland og Fiat umboðið.
Fyrirlesarar eru: Stefán Gíslason,
verkefnastjóri Staðardagskrár 21,
Án dropa er ekkert haf, Ingvi Þor-
steinsson, náttúrafræðingur, Lífræn
uppgræðsla í Landnámi Ingólfs,
Thomas Möller, markaðsstjóri Olís,
Umhverfisstefna stóríyrirtælqa,
Ingiveig Gunnarsdóttir, forstjóri
Landnámu, Hvað er umhverfisvæn
ferðamennska, Guðlaugur Berg-
mann, verkefnastjóri, Einnota efna-
hagskerfi, Jóhanna B. Magnúsdótt-
ir, umhverfisfræðingur, Gildi uni-
hverfissamtaka, dr. Gunnar Á.
Gunnarsson, Vottun lífrænna mat-
væla, dr. Árni Bragason, forstjóri
Náttúravemdar ríkisins, Þjóðgarð-
ar og friðlýs svæði, Stefán Bene-
diktsson, þjóðgarðsvörður, Hvers
vegna náttúruvemd, og dr. Ása L.
Aradóttir, sviðsstjóri rannsókna og
þróunarsviðs Landgræðslu ríkisins,
Hnignun og uppbygging vistkerfa.
Einn fyrirlesari verður til viðbótar
og verður hann kynntur síðar.
Erla Stefánsdóttir, tónlistarkenn-
ari og sjáandi mun leiða fólk um
huliðsheima í Öskjuhlíð á laugardag
og sunnudag.
Opnunartímar: Fimmtudagur 22.
apríl kl. 14-18, föstudagur 23. aprfl
kl. 14-18, laugardagur 24. apríl kl.
13-18, sunnudagur 25. apríl kl.
13-18. Það er ókeypis inn á sýningu,
fyririestra og í gönguferðir Erlu.
Styrkveitingar úr sjóðnum eru
að þessu sinni til útgáfu fræðslu-
efnis um byggingararfinn, söguna
og og þá sem á sinn hátt hafa skrif-
að hana, enda þótt þeir komi ekki
til starfa fyrr en á þessari síðustu
öld. Stjórn sjóðsins gerir sér full-
Ijóst að styrkveitingar þessar einar
sér gera varla gæfumun en vonar
þó að styi’kirnir ásamt með öðru
geti stuðlað að framgangi þessara
verkefna, segir í tilkynningunni.
Ætlunin er að styrkveiting verði
áfram annað hvert ár og fari fram í
tengslum við afmælisdag Guðjóns
Samúelssonar, en á þessu vori eru
liðin 112 ár frá fæðingu hans. Von
og óskir stjórnar sjóðsins beinast
að því að geta eflt sjóðinn svo út-
hluta megi hærri styrkjum og
fylgja þannig eftir verkefnum af
meira afli en nú er.
Fáir íslenskir arkitektar hafa
verið jafn mikilvirkir í íslenskri
húsagerðarlist á starfsferli sínum
og Guðjón Samúelsson. Verka hans
sér víða stað, þau mynda ramma
um líf og starf okkar um allt land
og nægir að nefna þar Þjóðleikhús-
ið, Háskólann, kirkjur, skóla og
embættisbústaði víða um land.
Minningarsjóðurinn var stofnaður í
samræmi við erfðaskrá Guðjóns,
eins og fyrr sagði. I arfleiðslu-
skránni er svo fyrir mælt að
ákveðnum hluta eigna hans skuli
varið til sjóðsmyndunar í nafni
hans. Þar segir ennfremur að
fyrstu tíu árin eftir andlát hans
skuli sjóðurinn varðveittur í þáv.
kennslumálaráðuneyti en eftir það
renna til Húsameistarafélags ís-
lands eða, ef það félag yrði lagt
niður, í það félag sem stofnað yrði
á sama grandvelli og meirihluti fé-
lagsmanna væri íslenskir húsa-
meistarar. Tilgangur sjóðsins er að
útbreiða þekkingu á húsagerðarlist
í íslenskum anda.
Til þess þarf að finna sjóðnum
nýja tekjustofna eða veita til hans
gjöfum og áheitum eftir því sem
unnt er og aðstæður leyfa.
Námskeið í
vistmenningu
á Solheimum
FYRSTA námskeið á íslandi um
vistmenningu (Permaculture Design
Course) var haldið á Sólheimum á
síðasta ári, segir í fréttatilkynningu
frá Sólheimum. Nú í sumar er fyrir-
hugað annað námskeið 10.-20. júní.
Námskeiðið er alþjóðlega viðurkennt
og er samtals 72 klst. Námskeiðið fer
að mestu fram á ensku, en íslenskir
sérfræðingar kenna einnig á nám-
skeiðinu auk þess sem íslenskir aðta-
oðarmenn hjálpa til við skilning og
tjáskipti. Aðalkennari verður Gra-
ham Bell, sem er höfundur bókanna
„Permaculture garden“ og „The
Permaculture way“. Fræðslumiðstöð
Sólheima stendur fyrir námskeiðinu
og verður byggðarhveifið á Sólheim-
um vettvangur námskeiðsins og
verklegra verkefna. Þátttakendur
dvelja á Gistiheimilinu Brekkukoti,
bamapössun er á staðnum.
„Sólheimar gengu í alþjóðahreyf-
inguna Global Eco village Network
árið 1997 sem fulltrúar íslands. Vist-
væn samfélög „Eco Villages" eiga
það flest sammerkt að starfrækja
fræðslumiðstöðvar um vistmenningu
og nýta sér hugmyndafræðina í átt
til frekari sjálfbærni. Starfræktar
eru yfir 60 fræðslumiðstöðvar um
vistmenningu í nær öllum heimsálf-
um. í Evrópu einni eru nú 57 vist-
væn byggðahverfi (eco-villages) í 22
þjóðlöndum sem hafa samstarf sín á
milli. Hugmyndafræði vistmenning-
ar og sjálfbær þróun er snar þáttur í
allri starfsemi og skipulagi vist-
vænna byggða.
Hugmyndafræði vistmenningar
eða Peraiaculture mótaði ástralski
vistfræðingurinn Bill Mollison árið
1978 og dró það af hugtökunum
permanent agriculture og
permanent culture sem vísa til
hringrásar náttúrunnar í ræktun og
samfélagsháttum,“ segir ennfremur.
----------------
Viðhorf og
reynsla af fjöl-
skyldumið-
aðri hjukrun
ELÍN Margrét Hallgrímsdóttir,
sérfræðingur við Rannsóknarstofn-
un Háskólans á Akureyri flytur fyr-
irlesturinn „Viðhorf og reynsla
slysa- og bráðahjúkranarfræðinga
af fjölskyldumiðaðri hjúkrun"
mánudaginn 26. apríl kl. 12.15 í
stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríks-
götu 34.
I fréttatilkynningu segir m.a.:
„Tilgangur rannsóknarinnar var að
kanna reynslu og viðhorf hjúki-unar-
fræðinga á bráðamóttökum til
hjúkrunar fjölskyldna alvarlega
veikra eða slasaðra sjúklinga og
skyndiiega látinna sjúklinga. Rann-
sóknir á sjónarmiðum og reynslu
slysa- og bráðahjúkrunarfræðinga í
tengslum við hjúkrun fjölskyldna
eru mjög takmarkaðar.“
----------------
■ ITC-deildin Korpa heldur kynn-
ingarfund þriðjudaginn 20. aprfl kl.
20 í safnaðarheimili Lágafellssókn-
ar, Þverholti 3, 3. hæð. Á dagskrá
er m.a. kynning á ITC og ferðasög-
ur. Allir velkomnir.
Námskeið
um uppruna
Islendinga
NÁMSKEIÐ verður haldið hjá
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands mánudaginn 26. apríl um
upprana íslendinga. Umsjón með
námskeiðinu hefur dr. Kári Stefáns-
son, læknir og forstjóri Islenskrar
erfðagreiningar.
I fréttatilkynningu segir: „Spurn-
ingin um upprana okkar er áleitin,
ekki bara vegna þess að svarið við
henni felur í sér þekkingu sem er
mikilvæg í sjálfri sér heldur líka -
vegna þess að ef við vitum hvaðan
við komum og hvar við eram má
draga milli þessara tveggja staða
beina línu sem hægt er að fram-
lengja og á þann hátt fá sterka vís-
bendingu um það hvar við verðum í
framtíðinni.“
Á námskeiðinu fjallar Kári Stef-
ánsson um leitina að „öðralandinu“
með notkun nútíma erfðatækni.
Agnar Helgason, mannfræðingur
hjá Oxford-háskóla, skýrir hvernig
mannfræðingar nota erfðaefni til að
rýna í sögu mannhópa. Gísli Sig-'
urðsson íslenskufræðingur, sérfræð-
ingur á Stofnun Árna Magnússonar,
segir frá rituðum heimildum um
uppruna íslendinga og frsk áhrif á
íslenska menningu að fornu. Hákon
Guðbjartsson, tölvuverkfræðingur
hjá Islenskri erfðagi’einingu, ræðir
um ættfræði og erfðarannsóknir.
Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur
hjá Þjóðminjasafni íslands, fjallar
um ættfræðiáráttu íslendinga. Orri
Vésteinsson, fornlejfafræðingur hjá
Fornleifastofnun Islands, kannar
vitnisburð fornleifafræðinnar um
uppruna íslendinga og að lokum
fjallar Örnólfur Thorsson, íslensku-
fræðingur og ritstjóri, um Paradís-
armissi. ,
-------♦-♦-♦-----
LEIÐRÉTT
Göbbelshjónin fyrirfóru
sér og börnum sínum sex
í upptalningu Söru Bartels
Bailey, í viðtalinu Undir heilla-
stjörnu sl. sunnudag, á helstu valda-
mönnum þriðja ríkisis sem réttað
var yfir í Numberg 1946 til 1947,
slæddist óvart með nafn Göbbels.
Hið rétta er að Göbbels lét lífláta sig
sjálfur áður en til réttarhaldanna
kom. Hann lét eitra fyrir börn sín
sex þann 1. maí 1945. Klukkan 8.30
sama kvöld fékk hann SS. hermenn „
til þess að skjóta sig og konu sína í
hnakkann í neðanjarðarbyrgi
Hitlers og fylgismanna og lauk
þannig ferli sínum. Dr. Joseph
Göbbels kom því aldrei fyrir her-
réttinn í Nurnberg. Frá endalokum
Göbbels er m.a. sagt í bókinni The
Rise and Fall of the Third Reich eft-
ir William L. Shirer. Þess má og
geta að Elísabet Elín móðir Söru
Bailey var Arnórsdóttir Árnasonar
prests í Hvammi í Laxárdal.
Vortónleikar Kvenna-
kórs Suðurnesja
I frétt í blaðinu á laugardag var
seinni tónleikadagur Kvennakórs
Suðurnesja rangur. Rétt er að tón-
leikarnir verða í Hafnarborg, Menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar, sunnudaginn 25. apríl kl. 20.30.
Beðist er velvirðingar á rang-
færslunni.
Minningarsjóður Guðjóns Samúelssonar
Tveir styrkir veittir til
útgáfu fræðsluefnis