Morgunblaðið - 20.04.1999, Síða 76
76 PRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Bolir 2 fyrir 1
Sumarglaðningur 20. og 21. apríl
Þú borgar fyrir dýrari bolinn.
< (t/'S'fa/'oe/'i,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
S P V- *>. I POLLINI a fslóttardaaai •
Eldri skór með 50% afslætti Nyir skór með 20% afslætti Töskur og smóvara j 20-60% afslóttur iTl ll Ptj| WHB smmeMí■ Mikið Úrval Kringlunni, 1. hæð, sími 568 9345
Hários
Alopecia Androgenetica er algengasta ástæðan fyrir hármissi.
Astæðan er karlhormón, testosteron. Þar sem konur hafa einnig örlítið
af þessum hormón, geta bæði kynin orðið fyrir hármissi af þessari
ástæðu.
Framað þessu hefur lítið verið hægt að gera fyrir þá sem verða fyrir
þessum hármissi, en nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós ástæðuna fyrir
vandamálinu og það ánægjulegasta er, að það fínnst efni sem leysir
vandamálið. Mörg lyfjapróf sem gerð hafa verið, hafa ekki eingöngu
sýnt frm á að hártap stoppar, heldur einnig að hárið sem virðist hafa
horfið, byijar að vaxa að nýju.
Fjölmiðlar hafa skrifað um PROPECIA OG MINXIDIL (Regaine)
j. undanfarið, og rætt um góðan árangur þeirra um minnkandi hárlos og
aukinn hárvöxt. Til viðbótar við þetta höfum við í Megaderm-seríunni
efni, sem heitir Coenzym, sem virkar á sama hátt og propecia. Þetta
efni, sem er borið beint í hársvörðinn, hefur engar aukaverkanir og
hefur sýnt athyglisverðan árangur við hárlosi og auknumhárvexti.
Erlendur sérfræðingur veitir allar upplýsingar og ráðgjöf dagana
20.-25. aprfl nk. Oskið þér eftir nánari upplýsingum, vinsamlegast
hringið í síma 552 2099.
ApoUohárstúdíó
Námríupplýsitigai'ogtímapcmtcmir ísíma 5522099.
VORFERÐ TIL
VÍNARBORGAR
Hinn 12. maí næstkomandi býður Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar stutta vorferð í beinu
leiguflugi til hinnar heillandi og fögru Vínarborgar.
Vínarborg er ein helsta menn-
ingarborg Evrópu og á hún sér
langa og litríka sögu. Þar var
framrás Tyrkja stöðvuð árið
1683, þar voru landamæri Evr-
ópu dregin á Vínarfundinum
1815 og þaðan eru upprunnin
Sacher-terta, vínarsnitsel og
vínarvalsar.
Farið verður til Vínar hinn 12.
maí og komið aftur að kvöldi
þess 15. maí.
Verð á mann er 47.900
krónur og er innifalið flug,
flugvallarskattar, akstur milli
flugvallar og hótels, gisting í
tveggja manna herbergi, morg-
unverður, skoðunarferð um
borgina og íslensk fararstjóm.
Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar
ráo skri fslofa
GUÐMUNDAR JóNASSONAR ehf.
Borgartúni 34, sími 511 1515
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Ábending'
ÉG vil benda öllum á,
sem láta sig mjólkur-
framleiðslu og naut-
griparækt varða, að
kynna sér gaumgæfilega
greinar þær sem Sigurð-
ur Sigurðarson dýra-
læknir hefur skiifað í til-
efni af hugsanlegri rækt-
un á norskum kúastofni
hér á landi.
Þar skrifar maður
sem hefur bæði menntun
og þekkingu til að ræða
þessi mál á hlutlausan og
ábyrgan hátt, með hags-
muni bænda og þjóðar-
innar allrar að leiðar-
ljósi.
I leiðinni vil ég senda
íslensku kúnni samúðar-
kveðjur.
Ásgeir J. Jóhannsson,
Lyngbarði 5, Hafnarf.
Ræður foringjanna
DAVÍÐ og Halldór hafa
talað. Þeir töluðu um
sjávarútvegsmál. Þeir
hafa skynjað einhverja
óánægju meðal þjóðar-
innar með kvótabraskk-
erfið. Hvort þeir hafa
fundið sjálfir íyrir óá-
nægjunni eða þeim hafi
verið sagt af henni er
óijóst, því hvorugum
virðist ljóst hvers vegna
fólk, sem ekki er sið-
blint, er óánægt með
þetta fiskveiðikerfi, þvi
þeir minnast hvorugur á
agnúann á kerfinu, sem
er framsalsheimildin og
þar af leiðir kvótabrask-
ið. Davíð flutti sína ræðu
á flokksþingi og Einar
Kristinn úr Víkinni sagði
„halelúja" en fyrir
hverju, því formaðurinn
sagði ekkert bitastætt
um breytingar á kvóta-
kerfinu, frekar en Hall-
dór á framsóknarfund-
unum, sem ég hefi haft
fregnir af. Þegar litið er
til baka og metin eru við-
brögð foringjanna við
hæstaréttardómi um
kvótalögin, sem talin
voru samkvæmt dómin-
um brot á stjórnarskrá.
Ráð Halldórs var að
henda reiður á þeim en
enn hefur ekki reynt á
það hvort sú breyting er
gerð var á kvótalögunum
stenst dóm. Því er ljóst
að ef foringjarnir tala
ekki ljósar um vanda-
málið og þeir verða
áfram saman um ríkis-
stjórn, þá verður LIU
áfram með yfirstjórn
allra mala sjávarútvegs-
ins á íslandi og veiði-
heimildirnar á fárra
höndum til frambúðar.
Jón Hannesson,
kt: 190921-3609.
Dýrahald
Páfagaukur týndist
LJÓSBLÁR páfagaukur
slapp út í vesturbænum.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í
síma 552 7897.
Páfagaukur fannst
LJÓSBLÁR páfagaukur
fannst í Hallarmúla sl.
fóstudag. Þeir sem kann-
ast við að eiga fughnn
hafi samband í síma
552 7897.
COSPER
SKAK
llmsjóii Margeir
l’étursxon
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Dos Hermanas á
Spáni sem lauk um helgina.
Rússinn Peter Svidler
(2.713) var með hvítt, en
ungverska stúlkan
Júdit Polgar
(2.677) hafði svart
og átti leik.
33. - f3! og hvítur
gafst upp, því 34.
Dxd7 er svarað
með 34. - Bg3+ 35.
Kxg3 - Dxel+ og
svartur vinnur.
Þessi sigur í síð-
ustu umferð dugði
þó ekki til að
bjarga Júdit frá
neðsta sætinu. Hún
hefur lítið teflt að SVARTUR leikur og vinnur
undanfornu, en sýndi samt
góða takta inn á milli. Eng-
lendingurinn Michael Ad-
ams vann góðan sigur á
mótinu með 6 vinninga af 9
mögulegum, 2. Ki-amnik 5V4
v., 3.-4. Topalov og Illescas
5 v., 5.-6. Gelfand og Kai-pov
4'/z v., 7. Kortsnoj 4 v. 8.-10.
Anand, Júdit Polgar og
Svidler 3V4 v.
Með morgunkaffinu
VISSIRÐU að
húsaleigan er að hækka
aftur?
fii..■
KÆRA frú, ekki lemja
mig. Bátasmiðurinn átti
hugmyndina.
GET ég sett hana sem
kostnað inn á
skattframtalið mitt?
KOMDU inn fyrir, hver
scm þú ert
Víkverji skrifar...
FLUTNINGAR geta tekið tíma
og reynt á þolrifin hjá fólki.
Kunningjar Víkverja hafa fundið
fyrir því undanfarna mánuði þar
sem þau hafa endurnýjað gamalt
hús nánast frá grunni. Ohætt er að
segja að verkið hafi tekist vel og er
fjölskyldan að koma sér fyrir í nýja
húsinu þessa dagana. En á ýmsu
hefur gengið meðan breytingarnar
stóðu yfir.
Húseigendumir voru að vonum
orðnir þreyttir á öllu umstanginu og
ákváðu að fá hreingerningarfyrir-
tæki til þess að þrífa fyrir sig áður
en flutt yrði inn. Fyrsta tilboðið
hljóðaði upp á 200 þúsund krónur.
Þrátt fyrir að húsið sé stórt þótti
eigendunum helst til of mikið að
greiða 200 þúsund fyrir að láta þrífa
tómt hús þannig að þau leituðu hag-
stæðari kjara og fengu. En ekki var
málinu lokið við það. I tvo daga voru
ungir menn að þrífa húsið og fengu
að starfa að mestu án afskipta eig-
enda þar sem þeir vildu ekki skipta
sér of mikið af störfum þeirra enda
skýrt tekið fram hvað ætti að gera.
Þegar húseigendurnir fóru að
skoða fráganginn að verki loknu
kom í ljós að heldur hafði verið
kastað til höndunum. Ryk í öllum
fataskápum og illa þrifin gólf. Þau
ákváðu að kvarta við fyrirtækið sem
sendi fulltrúa sinn til þess að skoða
verksummerki.
Eftir að kunningjar Víkverja
voru búnir að bera fram kvartanir
sínar var framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins heldur þurr á manninn og
sagði meðal annars að fólk þyrfti nú
yfirleitt að þrífa yfir sjálft eftir að
hafa fengið keypta hreingerningar-
þjónustu. Húseigendur voru ekki
sáttir við þau svör enda ekki að
kaupa hreingerningarþjónustu dýr-
um dómum til þess að þurfa þrífa
sjálf yfir. Eru kunningjar Víkverja
ákveðnir í að skipta aldrei við þetta
fyrirtæki og enginn af þeirra vinum
þar sem þau munu sjá til þess að
fleiri frétti af samskiptum sínum við
viðkomandi hreingerningarþjón-
ustu.
VÍKVERJI fór nýlega að sjá
ítölsku myndina „Lífið er dá-
samlegt“ í einu kvikmyndahúsi
borgarinnar. Óhætt er að segja að
myndin lætur engan ósnortinn og
sonur Víkverja, sem er ellefu ára, er
þar engin undantekning. Var hann
mjög þungt hugsi eftir sýningu
myndarinnar og sagðist hreinlega
ekki skilja í því hvers vegna hægt
væri að drepa fólk fyrir það eitt að
vera Gyðingar.
Sonur Víkverja hefur heldur
aldrei skilið tilganginn með þeim
stríðum heimsins sem hann hefur
haft vitneskju um og þá sér í lagi ef
ástæðan er trúarbrögð. I vetur fékk
hann það verkefni að skrifa sögu í
skólanum um hver hans helsta ósk
væri. Án þess að foreldrar hans
hefðu nokkur afskipti af skrifum
drengsins þá var hans helsta ósk að
aldrei framar yrði stríð í heiminum.
Það væri óskandi að ósk hans yrði
að veruleika.