Morgunblaðið - 22.04.1999, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sumar-
fagnaður
ÁRLEGUR sumarfagnaður
Kvenfélagsins Hlífar verður í
safnaðarsal Glerárkirkju í dag,
sumardaginn fyrsta, og hefst
hann kl. 15.
Tréleikföng frá Stubbi í
Eyjafjarðarsveit verða til sýn-
is. Blokkflautusveit Tónlistar-
skólans á Akureyri leikur, und-
ir stjórn Jacqueline F.
FitzGibbon. Veislukaffi og
happdætti. Allur ágóði rennur
til tækjakaupa fyrir bamadeild
Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og eru bæjarbúar
hvattir til að fjölmenna og
leggja góðu málefni lið. Verð er
800 krónur fyrir fullorðna og
300 fyrir börn 12 ára og yngi'i.
Kaffí-
hlaðborð
UNGLINGARÁÐ Körfuknatt-
leiksdeiidar Pórs efnir til kaffi-
hiaðborðs í Hamri við Skarðs-
hlíð í dag, sumardaginn fyrsta,
kl. 15 til 17.
Ágóði rennur að venju til
styrktar barna- og unglinga-
starfinu sem gengið hefur vel í
vetur með þátttöku 10 fiokka.
Flestir hafa tekið þátt í ís-
landsmótinu sem kostað hefur
ferðalög vítt og breitt um land-
ið. Þess er vænst að bæjarbúar
mæti á kaffihlaðborðið og
styðji þannig við bakið á ung-
lingastarfmu.
Myndlistaskólinn á
Akureyri auglýsir inn-
töku nýrra nemenda
fyrir skólaáriö
1999-2000
Fornámsdeild
Tilgangur fornámsdeildar er ad
veita nemendum alhliða undir-
búningsmenntun í myndlist. í
deildinni fer fram listrænn og
tæknilegur undirbúningur fyrir
nám í sérnámsdeildum.
Umsóknarfrestur um skóla-
vist er til 22. maí 1999.
Allar nánari upplýsinqar
eru veittar í síma
462 4958
Myndlistaskóllnn á Akureyrl
Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 602 Akureyri
Heimasíða: http://www.myndak.is
Netfang: info@myndak.is
Landsbankinn
vill byggja
LANDSBANKI íslands hefur ósk-
að eftir viðræðum við bæjaryfir-
völd á Akureyri vegna lóðai-innar
Strandgötu 1. Að sögn Sigurðar
Sigurgeirssonai- útibússtjóra er
stefnt að því að stækka húsnæði
bankans við Strandgötu 1, með við-
byggingu við austurgafl aðalbygg-
ingarinnar.
Landsbankinn er með starfsemi
á þremur hæðum í aðalbygging-
unni og sagði Sigurður stefnt að
því að færa alla starfsémina á jarð-
hæð og þá leigja eða selja efri
hæðirnar. Fyrirhuguð viðbygging
er rúmir 200 fermetrar að grunn-
fleti. Sigurður sagði þó að ekki
yrði ráðist í að byggja allar þrjár
hæðimar fyrr en ljóst væri hvort
hægt yrði að koma efri hæðunum í
verð eða koma þar fyrir annarri
starfsemi.
Þá mun Landsbankinn kaupa
14-16 bílastæði fyrir starfsmenn
sína í bílakjallara sem byggður
verður í tengslum við nýbyggingu
SS Byggis austan við húsnæði
bankans. Sigurður sagði að bíla-
kjallarinn kæmi undir götuna og
aðeins inn á lóð bankans og því yrði
tækifærið notað til að gera grunn
viðbyggingarinnar um leið.
Bæjarráð Akureyrar
Viðbótarfjárveit-
ing í sundlaugina
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt tæplega sjö milljóna
króna viðbótarfjárveitingu vegna
nýrra verkþátta í Sundlaug Akur-
eyrar.
Magnús Garðarsson eftirlits-
maður framkvæmda, sagði að
stærsti einstaki liðurinn, eða 2,5
milljónir króna, væri vegna fram-
kvæmda við aðkomu að anddyri
viðbyggingarinnar. Einnig er um
að ræða breytingar vegna tenging-
ar viðbyggingar og gamla húsnæð-
isins, kostnað vegna læsingakerfis
fyrir fataskápa í viðbyggingu, lása-
kerfi viðbyggingar, kaup á búnaði í
kaffiteríu og ýmislegt fleira.
Iðnaðarmenn vinna nú hörðum
höndum við að innrétta viðbygg-
ingu Sundlaugar Akureyi'ar. Bygg-
ingu nýrrar laugar er lokið og var
hún tekin í notkun í byrjun júlí á
síðasta ári og einnig nýr útipottur.
Magnús sagði að framkvæmdir
hefðu gengið alveg þokkalega og
að enn væri stefnt að því að taka
viðbygginguna í notkun í lok maí
nk.
HlFUJIFILM
FERMINGARTILBOÐ
FOTONEX 101ix APS
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraðl
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
FUJIFILM NEXIA filma fylgir
Verð aðeins kr. 9.990
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
Fislétt 03 mjúkt
► frá HAB
Sýnum og seljum
flísfatnað í
Laugardalshöllinni
22.-25. apríl
Fjölbreytt úrval
- Tilvaldar sumargjafir
Erum einnig með teppi og
hestaábreiður.
Flísfatnaðurinn fæst einnig í
Gallerí Grúsku og Nettó, Akureyri
svo og á saumastofunni.
Melbrún 2, Árskógsströnd,
621 Dalvík, s. 466 1052.
Tvö snjóflóð féllu úr hlíðinni ofan við
bæinn Birkihlíð 1 Hálshreppi
hreppi um helgina olli miklum skemmdum á trjágróðri en eins og sést
á myndinni féll það nokkuð frá íbúðar- og útihúsum. Tungan á flóðinu
í Króklækjargili stefndi hins vegar á bæinn.
Fjölskyldan
bregður búi
TVÖ snjóflóð hafa fallið úr hlíðinni
ofan við bæinn Birkihlíð í Háls-
hreppi í S-Þingeyjarsýslu síðustu
daga en eingöngu valdið skemmd;
um á trjágróðri að þessu sinni. I
janúar sl. varð milljónatjón er snjó-
flóð féll úr hlíðinni ofan við Birki-
hlíð. Ekki urðu slys á fólki en mikl-
ar skemmdir á búvélum, auk þess
sem skemma er varð fyrir snjóflóð-
inu eyðilagðist. Þá hafnaði jaðar
snjóflóðsins á íbúðarhúsinu en olli
ekki teljandi skemmdum.
Eftir hamfarirnar í janúar flutti
Friðrik Steingrímsson, bóndi í
Birkihlíð, og fjölskylda hans í burtu
og fékk inni í húsnæði sem Ljósa-
vatnshreppur á við Stórutjarna-
skóla. Búfénaðurinn, sauðfé og
kálfar, er hins vegar ennþá á jörð-
inni. „Við stöndum ekki í frekari
búskap hér og ég reikna með að
hætta í kringum sláturtíðina í
haust,“ sagði Friðrik í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagðist ekki
vita hvað tæki við hjá sér en átti
ekki von á því að halda áfram í bú-
skap. Friðrik hafði þó ekki áhyggj-
ur af því að standa frammi fyrir at-
vinnuleysi.
Einhver breyting
orðið
Friðrik sagði að það yrði að taka
því að þessi staður hentaði ekki
lengur fyrir búskap. „Það hefur
einhver breyting orðið sem verður
til þess að þetta er ekki nothæft
lengur.“ Hann sagði að fyrra flóðið
nú hefði fallið aðfaranótt sl. laugai'-
dags úr svokölluðu Merkigili en
seinna flóðið féll á mánudagsmorg-
un úr Króklækjargili. Flóðin féllu
nokkuð frá húsunum í Birkihlíð en
Friðrik sagði að tungan á flóðinu úr
Ki'óklækjargili hefði stefnt á bæinn
og því eins gott að það var ekki
stærra og kröftugra.
Hálshreppur hefur óskað eftii'
því að Ofanflóðasjóður styrki kaup
á jörðinni Birkihlíð og hefur verið
rætt um 10 milljónir króna í því
sambandi. Friðrik sagði ekki ljóst á
þessari stundu hvort af kaupunum
yrði en það myndi skýrast um
næstu mánaðamót.
r
Til sölu eða leigu
120 fermetra húsnæði
Tilvalið fyrir skrifstofu — læknastofur
— verslun — tannlækna.
Áhugasamir sendi nafn og síma ípósthólf447, 602 Akureyri. «
Háskólinn á Akureyri
Opinn fyrirlestur
HAFRÉTTUR 0G LANDHELGI
Fyrirlestrar um þróun alþjóöaréttar um fiskveiöar á höfunum,
bæöi í sögulegu samhengi og frá hagfræöilegu sjónarmiöi.
Hvert stefnir?
Fyrirlesarar: Jón Þ. Þór sagnfræðingur og
Rögnvaldur Hannesson fiskihagfræðingur
Tími: Föstudagur 23. apríl kl. 16.30.
Staður: Háskólinn á Akureyri, Þingvallastræti, stofa 14.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
hAskúunim
Á AKUREYBI
Póstsendum um allt land