Morgunblaðið - 22.04.1999, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Atján ára nemendur gera mannskæða árás í bandarískum framhaldsskóla
Leitað að
sprengjum
í skólanum
Tilræðismennirnir tveir
sagðir nýnasistar
Littleton. Reuters, AP.
BANDARÍSKIR sprengjusérfræð-
ingar leituðu í gær að sprengjum,
sem tveir framhaldsskólanemar í
Colorado höfðu falið í skóla
sínum áður en þeir hófu
blóðuga árás á skólasystkini
sín í fyrradag. Lögreglan
sagði í gærmorgun að a.m.k.
fimmtán hefðu látið lífið, að
tilræðismönnunum meðtöld-
um. Talið var þó að tala lát-
inna kynni að hækka þar
sem ekki var hægt að leita í
allri skólabyggingunni
vegna hættu á sprengigildr-
um. Að minnsta kosti 23
særðust í árásinni, þar af
níu alvarlega.
Aður hafði lögi'eglan sagt
að 20-25 manns hefðu beðið
bana, að tilræðismönnunum
tveimur meðtöldum. Tilræð-
ismennimir, sem voru báðir
átján ára, sviptu sig lífi á
bókasafni skólans. Aður höfðu þeir
falið á annan tug sprengna í bygg-
ingunni og á skólalóðinni.
Þetta er mannskæðasta árás sem
gerð hefur verið í bandarískum skóla
og ein af blóðugustu skotárásunum í
Bandaríkjunum á öldinni.
Níu særðust alvarlega
Að minnsta kosti 23 voru fluttir á
sjúkrahús eftir árásina og flestir
þeirra með skotsár. A meðal þeirra
var stúlka með níu sár eftir málm-
flísar úr sprengju. Að minnsta kosti
níu særðust alvarlega og þar af var
einn í gjörgæslu.
Skólinn er í Littleton, einu af út-
hverfum Denver í Colorado. Nem-
endur skólans eru um 1.800 og voru
ýmist að mæta í tíma eða á leið í há-
degismat þegar árásin hófst.
Tímastillt sprengja sprakk í skól-
anum níu klukkustundum eftir að
árásinni lauk og lögreglan sagði það
sýna að áhyggjur hennar af sprengj-
unum væru ekki ástæðulausar. Eng-
inn særðist í sprengingunni.
Tilræðismennirnir voru vopnaðir
skammbyssum og sprengj-
urnar, sem þeir fóldu, voru
allar heimagerðar, m.a.
hættulegai- rörsprengjur,
própansprengjur sem dreifa
málmflísum og plasthylki
fyllt bensíni og sápu.
Nokkrar fundust nálægt hk-
um tilræðismannanna og
hinar á öðrum stöðum í
byggingunni og í tveimur
bifreiðum á bílastæði skól-
ans.
Voru hugfangnir af
Hitler og vopnum
Margir nemendur við
skólann, foreldrar þeirra og
aðrir íbúai- Littleton voru
viðstaddir kirkjulega athöfn
til að minnast þeirra sem
létu lífið. Skólayfirvöld skipulögðu
einnig áfallahjálp fyrir nemendur
skólans.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
ekki væri vitað hvað lægi að baki
árásinni en kvaðst hafa heyrt vanga-
veltur um að hún kynni að tengjast
afmælisdegi Adolfs Hitlers, sem var
í fyrradag.
Tilræðismennirnir voru í svokall-
aðri „rykfrakkamafíu", hópi nem-
enda sem klæðast yfirleitt svörtum
og síðum rykfrökkum með haka-
kross á bakinu, að sögn dagblaðsins
Denver Post. Um tólf nemendur
voru í hópnum og var þeim lýst sem
utangarðsmönnum í skólanum. Þeir
voru sagðir hugfangnir af heims-
styrjöldinni síðari og þýskum nasist-
um.
„Þeir töluðu mikið um Hitler,“
sagði einn nemenda skólans. „Þeir
voru mjög stoltir af honum. Það var
hrollvekjandi."
Nemendur skólans sögðu að til-
Dylan Kebold
og Eric Harris.
Reuters
NEMENDUR í framhaldsskólanum í Colorado sjást hér hlaupa út úr byggingunni eftir að tilræðismennirnir
hófu skothríð á nemendur og kennara.
Mannskæð árás
í bandarískum skóla
h
Árás unglinganna tveggja á
nemendur framhaldsskóla í
Colorado í fyrradag er sú
mannskæðasta sem gerð hefur
verið í bandarískum skóla,
Km
m
Þinghús
ATBURÐARASIN:
Efri
hæð
Lakewood
DENVER
Englewood #
• r
Aurora
í
V
t Littletori**,
Framhaldsskóli
m
D Tilræðismennirnir
hófu skothríð á bíla-
stæðinu kl. 11.15 að
staðartíma.
B Þeir fóru inn í mötu-
neytið og skutu á
nemendur, einkum
þeldökka unglinga og
vinsæla íþróttamenn.
Þeir fóru síöan upp
stiga og inn í bóka-
safn skóians
□ Þar hófu þeir skothríö
á nemendur.
Lögreglan fann
^ ■ tilræöismennina tvo
látna á bókasafninu.
Árásin stóð í um
fjórar klukkustundir.
Inngangur nemenda
ræðismennimir, Dylan Klebold og
Eric Harris, hefðu verið óvinsælir og
oft talað um byssur og vopn. Einn
þeirra sagði að Harris hefði „breyst
nýlega" og orðið „grimmur". Klebold
hefði hins vegar verið „öðruvísi".
Nokkrir nemendanna sögðu að
annar tilræðismannanna hefði átt
margar byssur og komið sér upp
„hatursfullri vefsíðu“. Tilræðismenn-
imir voru einnig sagðir hafa gert
mynd um byssur sínar á námskeiði
um myndbandstækni.
Margir sjónarvottanna sögðu að
tilræðismennirnir hefðu einkum
skotið á þeldökka nemendur og vin-
sæla íþróttamenn en aðrir sögðu að
þeir hefðu skotið á alla sem urðu á
vegi þeirra. Stúlka, sem var ötuð
blóði úr skólafélögum sínum, kvaðst
hafa verið nálægt öðrum árás-
armannanna. „Hann skaut á fólkið
rétt fyrh- framan mig. Hann skaut á
þeldökkt fólk og íþróttafólk. Hann
otaði byssunni framan í mig og fór
að hlæja.“
Önnur stúlka kvaðst hafa setið á
bókasafninu þegar annar tilræðis-
mannanna hefði hafið skothríð.
„Hann sagðist ætla að drepa alla
sem hefðu verið vondir við sig og vini
sína síðasta árið.“
Skutu einkum á þeldökka
nemendur og íþróttamenn
Að sögn sjónarvottanna skutu til-
ræðismennirnir aftur á þá sem grétu
eða kveinkuðu sér vegna skotsára.
Stúlka, sem grátbað þá að þyrma
sér, var skotin til bana.
Flestir nemendanna hlupu skelf-
ingu lostnir út úr skólanum þegar
skothríðin hófst en tugir þeirra fóldu
sig í byggingunni. Nokkrir fóldu sig
undir skrifborðum, aðrir læstu sig
inni í herbergjum eða smeygðu sér
jafnvel inn í loftræstihólf byggingar-
innar. Nokkrir unglinganna hringdu
í foreldra sína í farsíma til að segja
þeim að þeir væru á lífi.
Nokkrir unglingar, sem voru álitn-
ir vinir tilræðismannanna, voru
handteknir og færðir í handjárnum í
lögreglustöð til yfirheyrslu. Tals-
maður lögreglunnar sagði þó að ekki
væri talið að þeir væru viðriðnir
árásina.
Kröfur um strangari byssulög
NEMENDUR við framhaldsskólann í
Colorado kijúpa í hring eftir blóðsúthelling-
amar í fyrradag.
BLÓÐSÚTHELLINGARNAR í
framhaldsskólanum í Littleton í
Colorado hefur vakið mikinn óhug
meðal Bandaríkjamanna og kynt
undir kröfum um að sett verði strang-
ari lög um byssueign landsmanna.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði á fyrsta blaðamannafundi sín-
um eftir árásina að Bandaríkjamenn
þyrftu að leggja meiri áherslu á að
kenna bömum sínum „að tjá reiði
sína með orðum en ekki vopnum“.
Athygli vakti að forsetinn sagði ekk-
ert um hvort takmarka þyrfti byssu-
eign landsmanna og ólíklegt þykir að
hann leggi til að byssulögunum verði
breytt verulega.
Umræðan um byssulögin hefur
staðið í þrjá áratugi en samtök
bandarískra byssueigenda eru mjög
áhrifamikil og hafa barist gegn því
að lögunum verði breytt.
Taldir eiga 200
milljónir skotvopna
Bandaríkjamenn eiga fleiri byssur
en nokkur önnur þjóð í heiminum og
talið er að um 200 milljónir skot-
vopna séu í eigu einstaklinga í
Bandaríkjunum.
Samtök bandarískra byssueig-
enda hafa ítrekað bent á að réttur
almennings til að eiga byssur sé
tryggður í bandarísku stjómar-
skránni. Þeir sem vilja
að lögunum verði
breytt til að takmarka
þennan rétt benda hins
vegar á að bandaríska
þjóðfélagið hafi gjör-
breyst frá því stjórnar-
skráin var sámin.
Bandaríkjamenn þurfi
ekki lengur byssur til
að verja sig fyrir
indíánum eða veiða villt
dýr.
Stuðningsmenn
strangari laga um
byssukaup segja að
ekki verði hægt að
stemma stigu við morð-
um og ofbeldisglæpum í
landinu nema byssu-
eignin verði takmörkuð
verulega.
Clinton knúði fram
þá breytingu á byssu-
lögunum á fyrra kjör-
tímabili sínu að kanna
þyrfti feril allra þeirra
sem kejrptu byssur.
Ennfremur var bannað
að selja og flytja inn ákveðnar teg-
undir sjálfvirkra skotvopna. Tillög-
ur um frekari breytingar á lögunum
hafa hins vegar ekki náð fram að
ganga síðan repúblikanar náðu
meirihluta á þinginu. Clinton náði
þó samkomulagi við byssuframleið-
endur í október 1997 um að settir
yrðu lásar á skammbyssur til að
koma í veg fyrir að börn gætu
hleypt af þeim fyrir slysni. Árið
1994 höfðu hartnær 200 börn dáið af
völdum voðaskota.
Ofbeldisglæpir algengir
Fyrir árásina í fyrradag höfðu 14
manns beðið bana og rúmlega 40
særst í skotárásum í bandarískum
skólum á einu og hálfu ári. I langflest-
um tilvikum voru tilræðismennimir
og fórnarlömbin böm eða unglingar.
15 ára drengur myrti t.a.m. tvo
skólabræður sína og síðan foreldra
sína í Springfield í Oregon í maí
1988. Tveimur mánuðum áður höfðu
tveir drengir, 11 og 13 ára, myrt
fjórar stúlkur og kennara í Jones-
boro í Arkansas. Níu aðrar stúlkur
og kennari særðust í árásinni.
Skotárásin í Jonesboro vakti mikla
umræðu meðal Bandaríkjamanna
um hvers vegna börn og unglingar
grípi til vopna og fremji morð og
hvaða ráðstafanir hægt væri að gera
til að stemma stigu við drápunum.
Bandaríska menntamálaráðuneyt-
ið birti í mars rannsóknarskýrslu
þar sem fram kom að alvarlegir of-
beldisglæpir hefðu verið framdir í
allt að 10% skóla landsins á skólaár-
inu 1996-97. 11.000 vopnaðar árásir
hefðu verið gerðar í skólunum á
þessum tíma, auk 4.000 nauðgana og
kynferðislegra árása.
„Hrein
síátruna
„BORGARBÚAR og þjóðin öll er í
sjokki yfir voðaverkunum. Little-
ton er mjög friðsamlegt hveril og
þetta er mjög góður skóli þar sem
morðin voru framin. Enginn á orð
til að lýsa þessu voðaverki og á
forsíðum blaða er því lýst í tveim-
ur orðum; hrein slátrun," sagði
Guðmundur Jónsson, sem býr
skammt frá Littleton í Denver, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Guðmundur sagði andrúmsloftið í
Denver „gífurlega þungt“ og hefði
ölium skólum verið lokað í borg-
inni vegna atburðauna og hræðslu
við að eitthvað svipað endurtæki
sig í öðrum skólum.
Að sögn Guðmundar var leik
hornaboltaliðsins Rockies, sem átti
að vera á þriðjudagskvöldið aflýst
og sömu sögu er að segja um leik
Nuggets, körfuboltaliðs Denvers.
Guðmundur sagði drengina sem
frömdu ódæðið hafa verið góða
námsmenn sem fannst „umhverfíð
hafa afneitað sér“.
„Þeir höfðu óbeit á þeim sem
stunduðu íþróttir og voru lang-
skólagengnir og höfðu komið sér
upp eigin heimasíðu þar sem þeir
voru með yfirlýsingar um að þessi
og hinn skyldi deyja,“ sagði
Guðmundur.