Morgunblaðið - 22.04.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999 79
Sýning á
handverki
opnuð í dag
SÝNINGIN Handverk & ferða-
þjónusta verður opnuð í Laugar-
dalshöll í dag, sumardaginn fyrsta,
kl. 11.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, opnar
sýninguna. Strengjakvartett Tón-
listarskólans í Reykjavík leikur og
tískusýning verður á íslenskri fata-
hönnun.
Um 150 innlendir aðilar sýna og
selja list- og handverk og smáiðnað
og kynna ferðaþjónustu. Auk þess
koma erlendir gestir á sýninguna
frá Danmörku, Finnlandi, Færeyj-
um og Grænlandi.
Sýningin er opin kl. 10-19 sum-
ardaginn fyrsta, kl. 13-19 á föstu-
dag og kl. 10-19 á laugardag og
sunnudag.
--------------
Hátíð á
Seltjarnarnesi
HÁTÍÐARHÖLD verða á Sel-
tjarnarnesi í tilefni af sumardegin-
um fyrsta. Dagskráin hefst kl. 13
með skrúðgöngu frá Sundlaug Sel-
tjarnarness ásamt Lúðrasveit Sel-
tjamamess.
Eftir stutta skiúðgöngu verður
farið inn í íþróttasal og fylgst með
3. flokki í knattspyrnu etja kappi
við bæjarstjórn. Magnús Scheving
hitar upp. Eftir leikinn er hægt að
fara í ýmsar þrautir í gamla
íþróttasalnum eða á hestbak við
malai-völlinn, þar sem verður
teymt undir krökkunum. Dag-
skrárlok eru kl. 15.
Frá kl. 14.30-16.30 verður Kven-
félagið Seltjörn með kaffíveitingar.
Kaffísalan er í safnaðarheimili Sel-
tjarnarneskirkju.
--------------
Klúbbakeppni
Hellis
KLÚBBAKEPPNI Hellis verður
nú haldin í þriðja sinn föstudaginn
23. apríl klukkan 20. Keppt verður
í fjögurra manna sveitum. Tefldar
verða 9 umferðir með 7 mínútna
umhugsunartíma.
í fréttatilkynningu segir:
i.Klúbbakeppnin var haldin í fyrsta
sinn fyrir tveimur árum og fór
' þátttakan þá fram úr björtustu
vonum, en 23 klúbbar með yfir 100
manns innanborðs tóku þátt í
keppninni en fjöldinn allur af
óformlegum skákklúbbum er starf-
ræktur. Þátttakan í fyiTa var
einnig mjög góð í fyrra en þá tóku
þátt 21 sveit.“
Þátttökugjald er 1.000 kr. fyrir
j hverja sveit.
------•-♦-♦---
Opið hús í
leikskólum í
Hlíðahverfí
OPIÐ hús verður í 5 leikskólum í
Hlíðahverfí laugardaginn 24. apríl
frákl. 11.30-13.
Leikskólamir í Efrihlíð, Hlíða-
borg, Hamraborg, Sólhlíð og Sól-
I borg munu þá kynna starfsemi sína
i máli og myndum. Öllum gefst nú
kostur á að skoða leikskólana og
kynna sér hvernig búið er að
yngstu kynslóðinni.
------•-♦-♦---
Opið hús
j Nýrrar dögunar
OPIÐ hús Nýn-ar dögunar, sam-
frka um sorg og sorgarviðbrögð
fellur niður í kvöld, fimmtudaginn
22. apríl.
Úr dagbók lögreglunnar
Eftirlit með farand-
vinnuvélum og rétt-
indum sljórnenda þeirra
LÖGREGLULIÐ á Suðvestur-
landi munu á tímabilinu frá 20.
aprfl til 27. apríl nk. standa fyrir
sameiginlegu átaki í umferðar-
málum í samstarfi við Vinnueftir-
lit ríkisins. Að þessu sinni verður
sérstök áhersla lögð á að skoða
ástand og búnað vinnuvéla og
þeirra ökutækja sem flytja hættu-
legan farm. Einnig verða athuguð
réttindi stjórnenda þeirra, hvort
þeir hafa fullnægjandi réttindi til
að stjóma viðkomandi tæki.
Enginn má aka vinnuvél eða
vinna með henni nema að hann
hafi gild réttindi til að stjóma vél-
inni.
í reglum nr. 198/1983 um rétt-
indi til að stjórna vinnuvélum eru
sett þau skilyrði að stjómandinn
hafi ökuréttindi á bifreið og hafi
lokið tilskildu námi og þjálfun.
Námskeið sem veita réttindi til að
stjóma vinnuvélum era mismun-
andi en sem dæmi má nefna að
frumnámskeið veitir réttindi til að
stjóma lyfturam með allt að 10
tonna lyftigetu, dráttarvélum og
vinnuvélum sem era minna en 4
tonn að eigin þyngd, völturum og
körfukrönum.
Að loknu prófi fá menn skírteini
og skulu hafa það við hendina
þegar þeir stjórna því tæki sem
skírteinið varðar.
í reglum nr. 388/1989 eru
ákvæði um skoðun farandvinnu-
véla og vinnuvéla en þær á að
skoða með reglulegu millibili og
eftir breytingar á vélunum. Hægt
er að innsigla og/eða banna notk-
un véla sem ekki fullnægja örygg-
iskröfum. Auk þess að athuga
ástand ökutækjanna sem flytja
hættulegan farm verður athugað
hvort ökumaðurinn hafi réttindi
til flutnings á slíkum förmum.
Lögreglan skal hafa eftirlit með
því að stjórnandi ökutækis sem
flytur hættulegan farm hafi með-
ferðis vottorð um starfsþjálfun.
Starfsþjálfun þarf t.d. til að flytja
meira magn en 1000 kg af dísilolíu
eða 333 kg af bensírii auk fjöl-
margra annarra efna, bæði loft-
tegunda og efna í föstu formi.