Morgunblaðið - 19.05.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikill verðmunur er á
ávöxtum milli verslana
Mikill munur reyndist á verði ávaxta milli
verslana á höfuðborgarsvæðinu þegar
Morgunblaðið gerði verðkönnun í sex
verslunum í gær. Þannig reyndist kílóið
af appelsínum kosta 75 krónur þar sem
þær voru ódýrastar en 198 krónur í þeim
tveimur verslunum, þar sem appelsínur
voru dýrastar. Er verðmunurinn 164%.
APPELSÍNURNAR voru ódýrast-
ar hjá Bónusi í Hafnarfirði, 75 kr.
kílóið, 81 krónur kostuðu þær hjá
Nettó í Mjódd, 85 krónur hjá Hag-
kaupi í Smáranum og 86 krónur hjá
Fjarðarkaupum. Langdýrastar
voru appelsínurnar hjá Nýkaupi í
Garðabæ og Nóatúni við Hring-
braut og kostuðu 198 kr. kg.
Rauð epli kostuðu frá 70 krónum
upp í 198 og bananar frá 85 krón-
um upp í 194 krónur. Sem fyrr voru
Hagkaup og Nóatún dýrustu búð-
irnar. Minni verðmunur var á
papriku. Meðfylgjandi tafla sýnir
verðdæmi frá í gær en meira en
hugsanlegt er að verðið sé orðið
annað í dag enda breytast verðin
stundum oft á dag.
Hærra verð á pökk-
uðum ávöxtum
Þá var verð ávaxta hærra þar
sem þeir voru boðnir pakkaðir, t.d.
kostuðu lausar appelsínur 85 krón-
ur í Hagkaupi en voru komnar í 189
kr. kg. þegar þær voru komnar
nokkrar saman í pakka. Var ekki
tilgreint að tegundirnar væru ólík-
ar. Verðlækkun á ákveðnum vör-
um í einum stórmarkaði kallar oft á
iækkun í þeim næsta og þannig koll
af kolli. Þetta var uppi á teningnum
á dögunum þegar Fjarðarkaup í
Hafnarfírði buðu ávexti og græn-
meti á lækkuðu verði
Bónus í Hafnarfírði tók strax við
sér þegar Fjarðarkaup lækkuðu
verðið og síðan nokkrar aðrar
verslanir. Forráðamenn Fjarðar-
kaupa segja unnt að bjóða tíma-
bundna verðlækkun á ákveðnum
vöruflokkum en síðan fjari hún út
þar til kannski næsta verslun kem-
ur með tilboð á öðrum vöruflokkum
- og þá elta hinar.
Fjarðarkaup riðu á vaðið að
þessu sinni og ákváðu forráðamenn
verslunarinnar að efna til suð-
rænna daga eða hitabeltisdaga
dagana fyrir kosningar og átti tii-
boðið fyrst að standa fram á þá
helgi. Var komið fyrir trjám,
kókoshnetum og ananas og fugla-
söngur látinn óma í ávaxtadeildinni
auk þess sem verðið var lækkað á
einum 10 til 12 vörum. Þessu
ávaxta- og grænmetistilboði var
strax svarað af Bónusi í Hafnarfirði
sem kynnti lægra verð en Fjarðar-
kaup. En hvernig getur stórmark-
aður boðið svo mikla verðlækkun
sem er í sumum tilvikum niður fyr-
ir heildsöluverð?
„Við gerum þetta í stuttan tíma
og síðan fjara tilboð sem þessi
alltaf út þar til okkur dettur eitt-
hvað annað í hug,“ segir Sigurberg-
ur Sveinsson, framkvæmdastjóri
Fjarðakaupa, er rætt var við hann
og Svein Sigurbergsson verslunar-
stjóra. „Þetta er hægt meðan við
höfum nokkra heildsala úr að velja
til að skipta við. Þannig er ástandið
í kjötinu og það er líka nokkuð gott
í mjólkurvörunum, þar hafa versl-
unarkeðjurnar ekki náð öllum tök-
um,“ segir Sigurbegur en Fjarðar-
kaup er svo til eini stórmarkaður-
inn á höfuðborgarsvæðinu sem
ekki er í samstarfi við aðra eða í
verslunarkeðju.
Heil búgrein í hættu
vegna tilboðsdaga?
„Það er hins vegar þrýst á okkur
núna að hækka verðið aftur eftir að
tilboðið hefur staðið í nokkra daga.
Það er eins og að stóru samkeppn-
isaðilamir með margar búðir geti
ekki unnt okkur þess að keyra einir
niður verð á tómötum og agúrkum.
Það kostar þá sem eru með 5-6
verslanir mun meira en okkur að
setja fram svona tilboð. Grænmetið
er líka stór vöruflokkur, kringum
10% af heildarveltunni í matvörun-
um,“ segir Sveinn. „Við getum leyft
okkur þetta í stuttan tíma en keðj-
umar síður og þess vegna geta
heildsalarnir lent svolítið milli
steins og sleggju."
Sveinn og Sigurbergur segja að
þeir hafí fengið margar hringingar
þar sem þeim hafi verið bent á að
standi tilboð Fjarðarkaupa um lágt
Morgunblaðið/Kristinn
FJARÐARKAUP hafa að undanförnu verið með tilboð á ávöxtum og
grænmeti og hér er Sigurbergur Sveinsson við ávaxtaborðið.
BÓNUS í Hafnarfirði svaraði tilboði Fjarðarkaupa strax og segir Ró-
bert Skúlason verslunarstjóri það stefnu fyrirtækisins að svara jafnan
strax tilboðum annarra stórmarkaða með því að bjóða enn lægra verð.
Verð á nokkrum tegundum ávaxta í nokkrum stórmörkuðum
síðdegis í gær, 18. maí 'g'e S-s Bónus Hafnarfirði Hýkaup Bardabæ Hagkaup Smáratorgi Hettó Nijóðú Hóatún Hringbraut
Appelsínur 86 75 198 85 81 198
Bananar 95 85 194 95 91 194
Rauð epli 84 75 198 86 70 198
ísl. paprika græn 695 595 698 695 686 785
fyj Paprika rauð/gul 585 499 598 585 575 598
verð á íslenskum tómötum og gúrk-
um áfram geti það sett búgreinina í
uppnám. Stóm verslunarkeðjumar
myndu knýja fram verðlækkun hjá
heildsölum í krafti umfangsmikillá
viðskipta sinna og verð til bændá
því lækka. Með því yrði ógnað at-
vinnuöryggi fjölda manna. Mætti
því segja að litla þúfan Fjarðar-
kaup gæti velt þungu hlassi þar
sem heil búgrein er annars vegar.
Bónus tók fyrst verslana við sér
og bauð viðskiptavinum sínum
einnar krónu lægra verð á vörun-
um sem vom á tUboði í Fjarðar-
kaupi. „Stefna okkar er sú að bjóða
alltaf betur þegar tilboð hjá sam-
keppnisaðilum em í gangi,“ sagði
Róbert Skúlason verslunarstjóri
þegar rætt var við hann í gær.
Fylgjast með
hver hjá öðrum
Svar Fjarðarkaupa var frekari
lækkun, tvær til þrjár krónur og þá
seig verðið hjá Bónusi enn um
krónu og í framhaldinu var það
einnig tekið upp í öðmm verslunum
fyrirtækisins enda stefnan að hafa
sama verð í öllum Bónusbúðunum
þótt í upphafi hefði aðeins átt að
svara tilboðsdögunum í Fjarðar-
kaupum í Bónusi í Hafnarfirði.
Fulltrúar stórmarkaðanna fylgj-
ast vel með hverjir hjá öðram og
þannig em starfsmenn Bónuss til
dæmis búnir að þreifa á stöðunni
fyrir hádegi til að geta aðlagað verð
sitt þegar Bónusverslanirnar eru
opnaðar klukkan 12. En ræður
verðmunur upp á fáar krónur á
nokkram vömflokkum því hvort
neytandinn leitar í Fjarðarkaup
eða Bónus?
„Neytendur fylgjast vel með,“
segir Róbert í Bónusi, „og við verð-
um vör við að þeir færa sig á milli
og versla þar sem álitleg tilboð eru
í gangi og grænmetið skiptir tals-
vert miklu máli í innkaupakörf-
unni.“
Þeir Fjarðarkaupamenn segja
tilboð skipta máli en að þau ríði
kannski ekki baggamuninn. „Hins
vegar veit viðskiptavinurinn nokk-
uð vel hvert verðlagið er í þessari
versluninni eða hinni þegar litið er
til langs tíma og það ræður miklu
um trúnað hans við sína verslun."
Jóhann Ólason, verslunarstjóri í
Nóatúni við Hringbraut, segir Nóa-
túnsbúðimar í stómm dráttum
með svipað verðlag og er hjá versl-
unum Nýkaups. „Það er eðlilegri
viðmiðun en t.d. Bónus þar sem við
emm með opið lengur, höfum kjöt-
borð og fleira starfsfólk og erum
því ekki síður að leggja áherslu á
að bjóða neytendum okkar góða
þjónustu." Jóhann segir að yfirleitt
sé ekki verið að elta einstök tilboð í
öðmm stórmörkuðum en Nóatún
setji fram eigin tilboð og þannig sé
reynt að gefa viðskiptavinum svip-
uð tækifæri þótt það geti verið i
öðmm vömflokkum. Hann segh"
daglega fylgst með verði hjá öðrum
og breytt í samræmi við það þegar
nauðsyn krefji.
Finnur þú ódýrari
fargjold i sumar?
London
Kaupmannah
Madrid
Gautaborg
Berlín
ln»ln"
«69 io1°
Verö frá
19.880 kr.
til London
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verði fyrir þigl
Dreifibréf um Framsóknarflokkinn
+ -----------------------—.
Islandspóstur neitar að
upplýsa um höfundinn
ÍSLANDSPÓSTUR hf. hefur með
vísan til lagaákvæða um póstleynd
hafnað beiðni Framsóknarflokks-
ins um að gefið verði upp hver hafi
komið með til póstdreifingar fyrir
alþingiskosningamar bækling þar
sem fjallað er um forystumenn
flokksins með niðrandi hætti. Talið
er að 100-120 eintök af bæklingn-
um hafi verið borin út á Selfossi áð-
ur en íslandspóstur ákvað að
stöðva dreifinguna vegna innihalds
hans.
I bréfi Andra Ámasonar, lög-
manns íslandspósts, til Jóns
Sveinssonar, lögmanns Framsókn-
arflokksins, kemur fram að sam-
kvæmt póstlögum megi einungis
„veita upplýsingar um póstsend-
ingar og notkun póstþjónustu að
undangengnum dómsúrskurði eða
samkvæmt heimild í öðmm lög-
um.“
Jón segir að niðurstaða Islands-
pósts hafi í sjálfu sér ekki komið á
óvart en að málið verði kannað
nánar í nokkra daga áður en
ákvörðun verður tekin um fram-
haldið. Hann segir að töluvert hafi
borist af vísbendingum, um það
hver hafi látið dreifa bæklingnum,
eftir að Framsóknarflokkurinn
vakti athygli á málinu, en ekki sé
víst að þær dugi til að fá vissu fyrir
því hver hafi verið að verki.
Þrjár leiðir koma
til greina
„Við getum valið um þrjár leiðh'
nú,“ segir Jón Sveinsson. „í fyrstá
lagi getum við látið málið kyrrt
liggja, í öðm lagi lagt málið fyrir
lögreglu og óskað eftir opinbern
rannsókn og í þriðja lagi leitað til
dómstóla til að fá úrskurð þess efn-
is að Islandspóstur láti uppi hver
hafi látið dreifa bæklingnum.“