Morgunblaðið - 19.05.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999
I
i
Eitt bréf til Balk-
an-Islendinga
ÁGÆTU Serbar og
Kosovo-Albanar og
aðrir Balkanar sem
hér búið.
Um leið og ég leyfi
mér að bjóða ykkur
hjartanlega velkomna
til þessa lands sem hef-
ur fóstrað okkur ís-
lendinga um aldir vona
ég að landar mínir
flestir ef ekki allir taki
vel á móti ykkur svo að
kuldinn og menningar-
áfallið verði ykkur ekki
um megn.
Við Islendingar er-
um nokkuð friðsöm
þjóð og lítt vön hemaði
og varla vopnaburði en tökum okk-
ur stundum sumir haglabyssur í
hönd og röltum til rjúpna og aðrir
eru fræknir fiskimenn sem sigla á
fjarlæg mið til að hrella og herja á
frændur okkar og vini Norðmenn.
Okkur er þannig lýst að við erum
álútir og ábúðarfullir á göngu en
stöldrum við og störum eins og naut
á nývirki er við mætum ókunnug-
um. Þess á milli tökum við til hend-
inni einbeittir og gaddfreðnir, hæfir
lítt að þéna undir öðmm en erum
jafnframt ákaflega fróðleiksfúsir
um náungann. Bækur eru hér gefn-
ar út margar og sumar lesnar. Best-
ar þykja ævisögui- og sérdeilis þær
er krydda mergjað. Að öðru leyti
látum við hvurjum degi nægja sína
þjáning, gjöldum keisaranum það
sem keisarans er (nema þeir sem
vinna á svörtu), erum flestir kristnir
og sækjum meira að segja kirkjur
einstaka sinnum á ævinni ef vel
viðrar og alltaf er við deyjum. Þá
sækir aragrúi miðilsfundi og spyr
almæltra tíðinda af astralplaninu.
Við höfum sumsé hjarað hér í rúm-
lega 1000 ár og varla
drepið nokkurn að
heitið getur síðan á St-
urlungaöld en þá geis-
aði hér borgarastyrjöld
þar sem Halldórar og
Davíðar þeirra tíma
börðu hveijir á öðrum
með deigum skálmum
og söxum. Þið ættuð
eins fljótt og auðið er
að hefja lestur á Sturl-
ungu til að kynnast
þeirra tíma vopnaskaki
en þá hófu menn gjarn-
an orrahríðar að
morgni og létu grjótið
dynja á andskotum
fram eftir degi vegna
skorts á góðum sverðum og öðrum
þungavápnum, bitu svo í skjaldar-
rendur og gengu um eiskrandi. (Það
gera þeir sumir enn en sjást nú
helst á krám hvar þeir svolgra mjöð
í stórum stfl og vaða síðan um
froðufellandi.) í þann tíma gilti að
drepa andstæðinginn mikið með því
að reka hann rækilega í gegn hér og
þar og afbragð þóttu dráp ef fyrst
tókst að aflima í einu höggi. Þegar
borgarastyrjöldinni lauk kom í ljós
að allir höfðu tapað og við glötuðum
sjálfstæði okkar í hendur téðra
Norðmanna enda ekki búið að
stofna SjálfstæðisflokMnn og ný
framsókn ekki hafin, hvað þá að
nokkur kjaftur væri farinn að íylkja
sér saman. En við urðum smám
saman friðsamari og fátækari,
þraukuðum ómældar náttúruham-
farir og sumir forfeður og -mæður
þreyðu svartadauðaj Dani og aðrar
drepsóttir og lásu Islendingasögur
sér til óbóta á vökum og reyndu
þess á milli af veikum mætti að búa
til fleiri íslendinga. Sumir sigldu
eins og það heitir til þess að kynna
Balkanskagastríðið
Ég harma reyndar alla
villimennsku hvort sem
er af völdum Serba eða
annarra, segir Hannes
__----------------------
Orn Blandon, eða jafn-
vel Tyrkja, félaga okk-
ar í NATO, sem hafa
verið að kvelja Kúrda
áratugum og öldum
saman.
sér siðu og háttu annarra þjóða og
einhverjir rýndu í mannkynssög-
una. Til að gera langa sögu stutta
skulum við þeysa fram í tuttugustu
öldina. Þar segir sagan að fyrr á
öldinni var austurrískur prins skot-
inn í plássi einu er Sarajevó heitir í
Bosníu. Þetta var svo lukkað skot
að fyrr en varði var farið að skjóta í
allar áttir og úr varð vel heppnað
stríð að því leyti að skyndilega lágu
nokkrar milljónir í valnum sem end-
aði auðvitað með því að allir töpuðu.
Góð heimild um þessa styrjöld er í
„Góða dátanum Svejk“ sem landar
mínir lesa margir oft og það ættu
verðandi Balkan-íslendingar að
gera einnig. Nú héldu sumir að búið
væri að striða nóg og stofnuðu
bandalög gegn stríðum: En eins og
fjandinn úr sauðarieggnum birtist á
sjónarsviðinu Adolf nokkur
Schicklgruber úr Austurríki og fór
að stríða. Það var enn betra en hið
íyrra sem var hreinasti bófahasar í
samanburði. Nú voru nefnilega
Hannes Öm
Blandon
Hraustir starfsmenn á
heilsusamlegum vinnustað
GÓÐ heilsa er
hverjum manni dýr-
mæt. Hún er ein mik-
ilvægasta forsendan
fyrir þróun jákvæðra
afla eins og áhuga,
sköpunargáfu, vilja til
að læra og leggja sig
fram. Velgengni fyrir-
tækja í framtíðinni
byggist á að þau hafi
vel þjálfað, menntað,
áhugasamt og heil-
brigt starfsfólk. Þetta
er staðreynd sem
stjómendur fyrir-
tækja eru í auknum
mæli famir að átta sig
á. Innan Evrópska
samstarfsnetsins um heilsueflingu
á vinnustað, sem kynnt var í Morg-
unblaðinu í gær, er lögð áhersla á
vinnustaðinn sem ákjósanlegan
vettvang heilsueflingar.
Hvernig er heilsusamlegur
vinnustaður?
Flest höfum við trúlega upplifað
að vinnustaður getur haft jákvæð
og góð áhrif á okkur en einnig hið
gagnstæða. Hvað einkennir góða
vinnustaði? Að mörgu er að
hyggja.
Leiðum fyrst hugann að því
áþreifanlega í vinnuumhverfinu.
Mikilvægt er að húsnæðið henti
starfseminni og nóg rými sé fyrir
innréttingar, búnað, vélar, tæki og
verkfæri sem nota þarf við vinn-
una. Huga þarf að starfsmönnum
og vinnuaðstæðum þeirra. Vinnu-
aðstöðu á að vera hægt að laga að
þörfum starfsmanna þannig að
þeir geti unnið í þægi-
legum vinnustelling-
um með heppilegum
vinnuhreyfingum. St-
arfsmenn sem vinna
fjölbreytt störf, þar
sem álag er hæfilegt
og breytilegt, fá síður
álagseinkenni en þeir
sem vinna einhæf
störf. Þetta er mikil-
vægt að hafa í huga
þegar innihald starfa
er ákveðið. Dagsbirta,
lýsing, litaval, inniloft,
áhrif efna, hávaði og
slysahætta hafa
einnig mikil áhrif á
líðan starfsmanna og
nauðsynlegt er að huga að þessum
þáttum við mótun vinnuumhverf-
isins.
Það óáþreifanlega í vinnuum-
hverfinu er ekki síður mikilvægt.
Rannsóknir sýna að góð samskipti
og upplýsingaflæði á vinnustað
stuðla að vellíðan. Möguleikar
starfsmanna til að hafa áhrif á eig-
ið starf og skipulagningu þess eru
einnig taldir skipta miklu. Ábyrgð
og hlutverk starfsmanna þurfa
einnig að vera skýr. Mikilvægt er
að samsvörun sé milli þeirra
krafna, sem gerðar eru til starfs-
manna, og færni þeirra og þekk-
ingar. Því er nýliðafræðsla og
starfsþjálfun nauðsynlegur þáttur í
daglegu starfi fyrirtækja. Áð hafa
tækifæri til að læra nýja hluti, að
fá stuðning og möguleika til þróast
í starfi eru einnig veigamikil atriði
sem stuðla að góðri heilsu og fram-
þróun fyrirtækisins.
Heilsuefling
Rannsóknir sýna að
góð samskipti og upp-
lýsingaflæði á vinnu-
stað, segir Þórunn
Sveinsdóttir, stuðla að
vellíðan.
Áhrif lifsstíls á heilsu
Ljóst er að áhrif lífsstfls á heils-
una vega einnig þungt. Má þar
nefna hreyfingu, mataræði, reyk-
ingar, óhóflega neyslu áfengis og
streitu. Mikilvægt er að við sem
einstaklingar gerum okkur grein
fyrir eigin ábyrgð á heilsunni. Það
er mjög svo af hinu góða að fyrir-
tæki hvetji og styðji starfsmenn
sína til að lifa heilbrigðu lífí til
ágóða bæði fyrir einstaklinginn og
vinnustaðinn.
Stefna fyrirtækja
Til að skapa heilsusamlegan
vinnustað er mikilvægt að sam-
þætta heilsueflingu á vinnustað
stefnu fyrirtækisins. Fjallað verð-
ur nánar um það og fleira í blaðinu
á morgun.
Höfundur er sjúkraþjálfari hjá
Vinnueftjrliti ríkisins og starfsmað-
ur Evrópska samstarfsnetsins um
heilsueflingu á Islandi.
Þórunn
Sveinsdóttir
komin til til sögunnar sýnu stór-
kostlegri tól fyrir hershöfðingjana
til að leika sér að og hægt að murka
lífið úr þúsundum í einu vetvangi.
Er ekki að orðlengja að nefndur
Schicklgruber valtaði yfir flestar
þjóðir Evrópu þótt aldrei tækist
honum að svínbeygja Serba. Þess-
um hildarleik lauk með því að nú
lágu enn fleiri milljónir í valnum og
allir töpuðu nema íslendingar sem
græddu á tá og fingri. Aftur voru
stofnuð bandalög mót stríðum og
hinir moldríku íslendingar voru
með. Við höldum að vísu ekki her og
engin eigum við morðtólin en við er-
um með. Eg er með. Eg er með
þegar þessar líka flottu og rándýru
Stealth-vélar frá varnarbandalaginu
svífa yfir Serbíu og sprengja allt í
tætlur. Ég var líka með þegar ein
svona vél sem kostar meira en tutt-
ugu sjúkrahús með læknum og
græjum og öllu tilheyrandi (þar
með talið eitt stykki heilbrigðis-
málaráðherra í ódýrari kantinum)
réðst til atlögu við flóttamenn og
felldi nokkra tugi. Og ég fylgdist
með þegar talsmaður NATO birtist
á skjánum og talaði um pínulítið
óhapp í því sambandi en skítt með
það, sagði hann upp í opið geðið á
mér, við sprengjum áfram. Eg varð
að kyngja því. Ég verð að kyngja
því að skattpeningar mínir sumir
fari í að sprengja fólk. Vitið þið það,
verðandi landar mínir, að mig lang-
ar bara ekkert til þess. Ég harma
það mjög að ég get lítið annað en
mótmælt. Ég harma það að kirkjan
mín skuli ekkert geta aðhafst frekar
en kirkjur ykkar og moskur þarna
suðurfrá. Ég harma það að við
mannskepnumar skulum vera
komnar svona ktið áleiðis á þroska-
brautinni hafandi staðnaemst á and-
legu steinaldarstigi. Ég harma
reyndar alla vilkmennsku hvort sem
er af völdum Serba eða annarra eð^
jafnvel Tyrkja, félaga okkar í
NATO, sem hafa verið að kvelja
Kúrda áratugum og öldum saman.
Ég harma einnig að vera svona
ófróður um sögu ykkar og þjóðir.
Ég veit að vísu að þið eruð af ólíku
kyni, tungum, hefðum og trú. En
eruð þið ekki af holdi og blóði? Eruð
þið ekki með svipaða hormóna,
krómósóma, DNA og gen, svipaðar
lifrar lungu og nýra? Blunda ekki
með ykkur svipaðar óskir og þrár?
Elskist þið ekki ósköp líkt? En skítt
með það, eins og maðurinn sagði.
Við skulum fara og tala við Kár^.
Hann Kári ætlar nefnilega að fara
að skoða genin í íslendingum. Það
eru einhverjir með múður en ég
ætla bráðum að svara bréfinu sem
hann sendi mér og bjóða honum að
skoða öll mín gen ef geðveilur mín-
ar allar ásamt með tilheyrandi
sjúkrasögum komi einhverjum að
gagni í framtíðinni. Við skulum
biðja hann um að athuga NATO-
genið og láta hann fjarlægja
sprengjugenið en meir um það síð-
ar. Það laukst upp fyrir mér skiln-
ingur er ég horfði á hana Siv okkar
Friðleifs stara á hann Ögmund um
daginn og fallegu bláu augun skutu
gneistum er hún varði aðgerðir
þeirra er nú framsækja í Serbíu. SíSk
mín baðaðist skyndilega ljósi og ég
bókstaflega lýstist upp. Þarna blasti
þá við mér hin dæmigerða kyn-
bomba. Ólíkt eru það yndislegri
bombur.
Höfundur er sóknarprestur á Syðra-
Laugalandi.
30 ára reynsla
Hljóðeinangrunargler
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
* 487 5888 • Fax 487 5907
Queen size m/dýnu
verðfrá kr. 99.800stgr "
Kingsizem/dýnu
verófrá kr. 119.800^