Morgunblaðið - 28.05.1999, Page 9

Morgunblaðið - 28.05.1999, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999 9 FRETTIR Fólk Baldvin Jónsson Doktor í læknisfræði • BALDVIN Júnsson, læknii', lauk hinn. 4 desember sl. doktorsprófi frá læknadeild Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Ritgerð Bald- vins nefnist „Chronic lung disease of pre- maturity: a study of selected causati- ve factors and preventivé mea- sures“ og sam- anstendur af yfir- litssamantekt og sex sjálfstæðum vísindagreinum. Af greinunum hafa fjórar þegar verið birtar í vísindarit- um tengdum barnasjúkdómum en tvær bíða birtingar. í stuttu máli fjallar ritgerðin um krónískan lungnaskaða hjá miklum fyrirburum, faraldsfræði, orsakaþætti og fyrir- byggjandi ráðstafanir til að minnka eða koma í veg fyrir skaðann. Hinir ýmsu hlutar rannsóknarinnar eru gerðir með þátttöku yfir 1000 ný- bura með fæðingarþyngd undir 1500 grömmum, fæddra á Stokkhólms- svæðinu á árunum 1988-1998. Leiðbeinendur voru Hugo La- gercrantz, prófessor í nýburalækn- ingum við Karolinska Institutet og Gerd Faxelius, dósent í nýburalækn- ingum við sama háskóla. Andmæl- andi var Eduardo Bancalari, pró- fessor í nýburalækningum við Uni- versity of Miami, School of Medicine. I dómnefnd voru m.a. Gunnar Sedin, prófessor í nýburalækningum við Uppsalaháskóla og Bengt Robert- son, dósent við Enheten för ex- perimentell perinatal patologi við Karolinska Institutet. Baldvin er fæddur í Reykjavík 17. nóvember 1953. Hann lauk stúdents- prófi fi-á Menntaskólanum í Reykja- vík 1974 og prófi frá læknadeild Há- skóla íslands vorið 1980. Eftir kandi- datsnám og störf á bamadeildum í Reykjavík hóf hann nám í bamalækn- ingum við Georgetown University Childrens Medical Center í Washing- ton D.C. Að prófum loknum 1987 fluttist hann til Stokkhólms til starfa við barnadeild Danderyds sjúkrahúss þar í borg. Á ámnum 1990 til 1993 stundaði hann sérnám í nýburalækn- ingum við nýburadeild Karolinska sjúkrahússins. Baldvin hóf doktors- nám við Karolinska Institutet 1993 samhliða starfi sem sérfræðingur í nýburalækningum við Karolinska sjúkrahúsið. Hann starfar nú sem einn af yfirlæknum nýburagjörgæslu- deildar Astrid Lindgren barnasjúkra- hússins sem staðsett er við Kai-ol- inska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Foreldrar Baldvins eru Jún El- berg Baldvinsson verslunarmaður og Júrunn Magnúsdúttir húsmóðir. Eiginkona Baldvins er Kolbrún Benediktsdúttir, röntgenlæknir við Landspítalann, og á hann fimm böm. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Kúpavogskirkja Fjallað verður um arf kynslóðanna í Kópavogskirkju Elsta fólkið á visku áranna Þjóðminjasafnið Flutning- um gæti lokið innan fárra vikna VINNA er nýhafin við að skipta um einangrun í þaki byggingar í Vesturvör 2 í Kópavogi, þar sem safnmunum af Þjóðminjasafni íslands hef- ur verið valið framtíðar- geymsluhúsnæði. Húsið verður einangrað með óbrennanlegri steinullareinangnm að kröfu Eldvarnareftirlitsins og er við- búið að þeirri vinnu verði lokið á fáum dögum að sögn Þórs Magnússonar, sem fylgst hefur með framvindu mála. „Þá held ég að húsplássið verði tilbúið og þá verði hægt að fara flytja hluti, sem vom í sýningarsölum og ýmsum geymslum. Okkur er mjög í mun að það verði hægt að ganga sem fyrst í að ljúka flutningum," sagði Þór. Hann sagði að gengið yrði mjög skipulega í að ljúka flutn- ingunum um leið og nýja hús- næðið yrði tilbúið. Nú þegar er búið að pakka mörgum safn- munum svo ekki ætti að taka langan tíma að ljúka flutning- unum. Vonaðist Þór til þess að á næstu vikum ætti flutningun- um að verða lokið að fullu svo ganga mætti af fullum krafti í vinnu við endurbætur á húsi Þjóðminjasafnsins við Suður- götu 41, sem þegar eru hafnar. VTNAFÉLAG Kópavogskirkju og sóknarnefnd Kársnessóknar gang- ast fyrir samveru í Kópavogskirkju undir yfirskriftinni „Arfur kynslóð- anna“ á morgun kl. 11. Á samverunni munu fyrirlesarar fjalla um arf kynslóðanna frá ólík- um sjónarhornum, ljóð verða flutt og á milli erinda verður almennur söngur. „í tilefni af ári aldraðra vilj- um við leggja áherslu á það sem eldri kynslóðir hafa veitt okkur í arf,“ sagði séra Ægir Fr. Sigur- geirsson í samtali við Morgunblaðið. „Elsta fólkið okkar hefur miklu að miðla til okkar sem yngri erum og til samtíðarinnar, það á visku áranna og býi’ yfir mikilli lífsreynslu. Það hefur lifað tímana tvenna og nú á tímum mikils hraða og örra breytinga er okkur afar mikilvægt að glata ekki þeim verðmætum, þeim gildum og þeirri mótun til hollra hátta sem hér hafa verið mikilvæg og mótað sam- skipti fólks, hugsun og framgöngu gegnum tíðina," sagði Ægir. Ægir segh’ mikilvægt að við glöt- um ekki menningar- og trúararfi okkar og verðum viðskila við þau gildi sem löngum hafa verið talin háleitust og best meðal þjóðarinnar. „Stundum er talað um að samtími okkar einkennist um of af dýrkun á æskunni og þáttum sem eru hverf- ulir, við slíkar aðstæður er hætta á því að við glötum mikilvægum gild- um og að verðmætamat okkar skekkist. Það er mikilvægt fyrir þjóð okkar að vera opin fyrir nýjum straumum, nýrri þekkingu og tækni en það er ekki síður mikilvægt að missa ekki sambandið við eldri tíma og þau gildi og og menningarverð- mæti sem felast í arfi kynslóðanna." Ásgeir Jóhannesson, safnaðar- fulltrúi Kársnessóknar, stjómar samverunni í Kópavogskirkju en er- indi flytja Pálína Jónsdóttir, fyrr- verandi kennari og endunnenntun- arstjóri, Gísli J. Astþórsson, fyrr- verandi blaðamaður og ritstjóri, og séra Ragnar Fjalar Lárusson, fyrr- verandi prófastur. Sigurbjörg Þórð- ardóttir kennari og Valdimar Lár- usson leikari flytja ljóð. Samveran hefst kl. 11 en að henni lokinni verður boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarhéímilinu Borgum. Gallasmekkbuxur Stærðir 98—146. Verð 2.900. POLARN O. PYRET Kringlunni 8—12, sími 5681822 Aðsendar greinar á Netinu vfj) mbl.is -/\LLTAf= eiTTH\SAÐ AÍÝTT LAURA ASHLEY TILBOÐ Islenskt bókasafn stofnað í Seattle LAGÐUR hefur verið grunnur að íslensku bókasafni í Seattle í Bandaríkjunum og eru um 200 bæk- ur í safninu sem fær til umráða her- bergi í Safni norrænnar arfleifðar í borginni, Nordic Heritage Museum. I fréttabréfi Islendingafélagsins sem þjónar Seattle og nágrenni, New Geysir, kemur fram að þetta sé mikið fagnaðarefni, enda í fyrsta skipti um áratugaskeið sem félags- mönnum bjóðist aðgangur að ís- lensku bókasafni. Árið 1900 var sett á stofn í Seattle Islendingafélagið „Vestri Icelandic Club“ og starfaði það til ársins 1966, þegar „Icelandic Club of Greater Seattle" leysti það af hólmi. Eitt af meginhlutverkum Vestra var að starfrækja safn ís- lenskra bóka og hafði það aðsetur á heimili Jóns Magnússonar og konu hans, Guðrúnar Magnússon. Þegar safnið þraut örendi voru bækur þess gefnar til bókasafns Washing- ton-háskóla og Borgarbókasafnsins í Seattle, og hafa Islendingar í borg- inni ekki haft almennan aðgang að íslenskum bókakosti síðan þá. Óska eftir fleiri bókum I fréttabréfl félagsins kemur fram að á meðal bókanna 200 eru margar nýjar og nýlegar og má þar nefna skáldsögur og ævisögur, auk þess sem bókagjöfum verður tekið fagnandi. Frumkvæði að safninu kemur frá Sigurði Má Helgasyni í Reykjavík, sem safnaði bókunum saman með fulltingi Rótarý-klúbbs- ins í Breiðholti og fékk bækur að gjöf frá Þjóðsögu hf., Nesútgáfunni, Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, bókaútgáfunni Skjaldborg, Vöku- Helgafelli og Henson-íþróttavöru- fyrirtækinu. Cargolux flutti bæk- umar síðan til Seattle hlutaðeigend- um að kostnaðarlausu. Meðlimir Islendingafélagsins í Seattle eða Safni norrænnar arf- leifðar geta nálgast íslensku bæk- umar á þriðjudögum frá klukkan 9.30 til hádegis. Bókasafnið er með aðsetur í herbergi við íslenska her- bergið í Safni norrænnar arfleifðar og hefur fengið nafnið „New Vestri Library". 15% afsláttur af drögtum til 1. júní %istan V/ Laugavegi 99, sími 551 6646 Falleg föt í stórum stærðum á konur á öllum aldri í So bin Ich fatalistanum. Eigum alltaf eitthvað til í búðinni líka. 0H8§ v^Ármúla 17a « S: 588-1980

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.