Morgunblaðið - 28.05.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.05.1999, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Staða lands- byggðarinn- ar áhyggju- efni hjá RARIK MEÐ hliðsjón af þeim breyt- ingum sem framundan eru á raforkumarkaði þar sem stefnt er að markaðsumhverfi þar sem komið verður á samkeppni í orkuvinnslu og sölu er staða landsbyggðarinnar nokkuð áhyggjuefni hjá RARIK. Þetta kom fram á ársfundi fyrirtækis- ins hinn 21. maí sl. þar sem meðal umræðuefna voru hug- myndir um nýjar virkjanir og framtíðarsýn í Ijósi aukinnar samkeppni. í fréttatilkynningu RARIK um fundinn segir m.a. að nú þegar hafi stærstu veitufyrir- tækin á suðvesturhorni lands- ins ýmist sameinast eða tekið upp náið samstarf. Á sama tíma heyrist raddir úr einstök- um byggðarlögum um að stofna litlar héraðsveitur. Er það skoðun RARIK að til þess að tryggja hag landsbyggðar- innar í þeirri samkeppni sem framundan er, sé nauðsynlegt að koma á öflugu orkufyrírtæki landsbyggðarinnar sem veitt geti sambærilega þjónustu og orkuverð og býðst á höfuð- borgarsvæðinu. Rekstrartekjur RARIK á síðasta ári námu rúmum 4,7 milljörðum króna, en að auki nam innheimtur virðisauka- skattur 833 milljónum króna. Tekjur af orkusölu námu rúm- um 4,3 milljörðum króna, en þar af nam smásala raforku tæpum 3,4 milijörðum króna. Segir gengið framhjá Verkamanna- sambandinu FRAMKVÆMDASTJÓRN Verkamannasambands íslands segir að stöðugt sé gengið framhjá VMSÍ þegar boðað sé til funda hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi og um fiskvinnslu- stefnu. Segir stjórnin að ítrek- að hafi verið vakin athygli á þessu án þess að breyting hafi orðið á. „Það er staðreynd og veru- legt áhyggjuefni að þessi mis- munun hefur aukist í tíð síð- ustu ríkisstjómar. Engar aug- ljósar skýringar eru á þessu og því verður vart trúað að þetta beri vott um sérstaka óvirðingu við þær þúsundir starfsmanna innan VMSI, sem við atvinnu- greinina starfa. Það vekur sér- staka athygli, að ekki virðist alltaf liggja ljóst fyrir hvaða ráðuneyti fer með málefni fisk- vinnslunnar hverju sinni,“ segir einnig í ályktuninni og eru stjómvöld hvött til að endur- skoða starfshætti sína. Veittust að manni ÞRÍR menn um tvítugt vom handteknir síðdegis í gær eftir að þeir höfðu veist að manni á Rauðarárstíg. Maðurinn hlaut áverka í andliti og þurfti að flytja hann á slysadeild til að- hlynningar. Árásarmennirnir fóra af vettvangi á bifreið en vora stöðvaðir skömmu síðar af lögreglumönnum. Þeir verða krafðir skýringa á gerðum sín- um, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni, en árásin er nú til rannsóknar. FRÉTTIR Ráðstefna um umhverfísáhrif bflaumferðar í Reykjavík Margir verða ekki fyrir óþægindum af hávaða Hávaði frá umferð og mengun, afstaða borg- aranna og aðgerðir Reykj avíkurborgar var meðal þess sem fjallað var um á ráð- stefnu um áhrif frá bílaumferð. Johannes Tómasson nam þar meðal annars þann fróðleik að taka þurfí mið af titringi og loftmengun ekki síður en hávaða við aðgerðir vegna áhrifa umferðarinnar. Morgunblaðið/Arni Sæberg ÁHRIF frá bflaumferð geta verið margvísleg, svo sem loftmengun og hávaði og verður að grípa til ráða til að sporna við þeim neikvæðu áhrifum. MEIRIHLUTI Reykvíkinga telur sig hvorki finna fyrir loftmengun né óþægindum af hávaða frá umferð á heimilum sínum samkvæmt niður- stöðum könnunar á viðhorfum til umhverfismála. Hjalti Guðmunds- son, verkefnisstjóri umhverfis- stefnu Reykjavíkur kynnti nokkrar niðurstöður úr könnuninni á ráð- stefnu um betra loft og minni há- vaða sem haldin var í Reykjavík í fyrradag. Könnunin fór fram í lok mars, náði til 800 manna úrtaks og var nettó svöran rúm 73%. Spurt var meðal annars um forgangsröð verk- efna á sviði umhverfismála og telja um 80% svarenda sig ekki verða íyrir loftmengun af völdum umferð- ar á heimilum sínum. Rúm 16% telja sig verða íyrir miklum eða frekar miklum óþægindum. Þá telur yfir helmingur svarenda sig ekki verða íyrir ónotum vegna hávaða frá umferð en milli 15 og 20% telja Ríkið styrki al- menningssam- göngur FÁTT bendir til annars en að bíllinn verður um alla nánustu framtíð snar þáttur í borgarlífinu en hann á að vera þjónn okkar en við ekki þrælar hans, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir meðal annars í ávarpi sínu. Hún sagði að gæfust aðrir og hentugri ferðamát- ar en einkabíllinn segði það sig sjálft að ekki stæði á fólki að nota þá. Borgarstjóri sagði borgaryfirvöld hafa reynt að spoma á margvíslegan hátt við neikvæðum áhrifum síaukinn- ar umferðar. Hún sagði borgina greiða um 500 milijónir króna á ári með rekstri Strætisvagna Reykjavík- ur og hún vakti athygli á þeirri stað- reynd að í mörgum nágrannalöndum greiddi ríkið hlut í kostnaði við al- menningssamgöngur sveitarfélaga. Hér léti ríkið sig ekki muna um að hafa góðar tekjur af almenningssam- göngum, SVR greiddi um 150 til 200 milljónir króna til ríkisins í gjöld. Rík- ið verði ekki krónu til að styrkja al- menningssamgöngur á sama tíma og það verði milljörðum á hveiju ári til framkvæmda við stofnbrautir. Kvaðst borgarstjóri vonast til að nýr um- hverfísráðherra sæi þá mótsögn sem í þessu fælist og myndi leggjast á ár- amar með sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu með það að markmiði að styrkja almenningssamgöngur. Ingibjörg Sólrún sagði að góðar al- menningssamgöngur gætu verið val- kostur á móti öðram bíl heimilisins. sig hins vegar verða fyrir miklum eða frekar miklum óþægindum. Hjalti sagði niðurstöður könnun- arinnar benda til þess að taka yrði á þessum málum, þótt meirihluti borgarbúa virtist ekki verða fyrir óþægindum af völdum mengunar eða hávaða væri sá hópur það stór sem yrði fyrir slíkum óþægindum að taka yrði á málunum eins og reyndar væri þegar byrjað. Þær verða kynntar borgaryfirvöldum næstu daga en könnunin var hluti af verkefninu Staðardagskrá 21 og gerð í þeim tilgangi að fá fram við- horf og vilja almennings til viðmið- unar vegna ákvarðanatöku í verk- efnum á sviði umhverfismála. Þá kom fram í máli Helga Guð- bergssonar, yfirlæknis á atvinnu- sjúkdómadeOd Heilsuvemdarstöðv- ar Reykjavíkur, að loftmengun getur haft áhrif á augu, húð, öndunarveg, lungu og önnur líffærakerfi, svo sem taugakerfi. Þar er m.a. um að ræða KRINGUM 2.200 íbúðir í Reykja- vík eru þannig í sveit settar að hávaði við þær af völdum um- ferðar er á bilinu 65 til 75 desíbel og eru þar með styrkhæfar vegna aðgerða til að draga úr óþægindum af völdum hans. Um tveir þriðju þessara íbúða eru við þjóðvegi í þéttbýlinu. Reylgavíkurborg hefur síðustu þrjú árin varið um 20 milljónum króna árlega til slíkra aðgerða og snúa þær bæði að íbúðunum sjálfum og aðgerðum í nágrenni við þær, svo sem að reisa hljóð- manir eða koma upp öðrum hljóðtálmunum. Verkfræðingarn- ir Baldur Grétarsson og Ólafur Björnsson greindu frá því hvar þessar ibúðir eru einkum og til hvaða aðgerða grípa má til að draga úr hávaða. Reiknaður hef- ur verið út hávaði af völdum um- ferðar og segir Baldur óþægindi af hennar völdum ekki koma fyr- ir í Árbæjar-, Breiðholts- eða Grafarvogshverfi. Mest sé um íbúðir með þetta vandamál við Hringbraut, Miklubraut, Sæbraut koltvísýring, brennisteinsdíoxíð og köfnunarefhistvíildi. Vitnaði hann til erlendra rannsókna, m.a. einnar sem sýndi að lungnakvef og lungnabólga væri tíðari meðal breskra bréfbera á svæðum með rneiri mengun en með- al póstmanna sem unnu innan dyra á sömu svæðum. Einnig segir Helgi að hávaði valdi lífeðlisfræðilegri örvun og valdi mælanlegri truflun á svefni, erfið- ara sé að sofna og ásýnd svefnsins breytist. Einnig segir hann rann- sóknir hafa sýnt að fylgi titringur hávaða truflist svefninn enn meira. Benti hann á að rúmdýna geti magnað titring frá umhverfinu og því verði að taka mið af honum líka við ákvarðanir um aðgerðir gegn áhrifum frá umferð. Helgi sagði í lokin að mjög væri einstaklings- bundið hvemig fólk þyldi hávaða og kvartanir vegna hávaða væra óhlut- lægar sem gerði vandann hvorki léttari né auðleystari. og Kleppsveg. Baldur segir fátt hægt að gera þar sem hús Iiggja nálægt umferðargötum nema koma fyrir hljóðeinangrandi gleri í gluggum. Þar sem rými er meira er hægt að koma fyrir hljóðtálmunum en Baldur sagði stundum þann vanda uppi að þær skyggðu á útsýni. Þessi vandi væri hins vegar ekki fyrir hendi þegar ný hverfi væru skipulögð. Ólafur Bjarnason sagði borg- ina styrkja eigendur íbúða um 40 til 60% kostnaðar vegna aðgerða til að draga úr hávaða sem fælust helst í því að koma fyrir hljóðein- angrandi gleri og voru ýmsir möguleikar í því kynntir. í heild hafaþó aðeins 117 íbúðareigend- ur notað sér þessar styrkveiting- ar borgarinnar að upphæð sam- tals um 27,7 mil^jónir króna. Borgarstjóri nefndi í ávarpi sínu á ráðstefnunni að á Norðurlönd- um hefði rfldsvaldið komið til móts við íbúðareigendur og sveitarfélög í þessum efnum og greitt um þriðjung kostnaðar við aðgerðir sem þessar. Nýjar að- ferðir nauð- synlegar við skipulag „VILJINN til að ráða þessum málum til verulega betri vegar þarf að vera til og hann þarf að koma bæði frá almenningi og stjómmálamönnum," sagði Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, er hann ræddi um umhverfisálag vegna samgangna í framtíðinni sem hann sagði að fara myndu hrað- vaxandi. Hann sagði æskilegt að taka upp nýjar aðferðir við skipulag vegna umferðar og umhverfismála. Reiknaður hefur verið út af OECD margs konar kostnaður vegna umferðar og heimfærði Gestur þær tölur uppá Island en þær era reiknaðar út frá þjóðar- framleiðslu. í mörgum Evrópu- löndum era umferðartafir talinn hár kostnaðarliður og sagði Gestur þær nema um 2% af þjóðarframleiðslu. Gera mætti því ráð íyrir að þær kostuðu hér- lendis kringum 12 milljarða út frá þessum forsendum, umferð- arslys 6 til 12 milljarða, kostnað- ur vegna hávaðamengunar væri kringum 2 milljarðar og 2,5 milljarðar vegna loftmengunar í þéttbýli. Kostnaður vegna henn- ar annars staðar væri á bilinu 6 til 60 milljarðar. Gestur sagði að hugsunarhátt- ur manna yrði að breytast og breyta yrði stefnu í grundvallar- atriðum til að draga úr umferð og neikvæðum áhrifum hennar. Miða yrði skipulag borga við það að draga úr ferðum einkabíla og auka notkun almenningsfarai'- tækja og nauðsynlegt væri einnig að gera þéttbýlið þannig úr garði að menn þyrftu ekki að ferðast eins mikið milli borgar- hverfa og áður. Slíkt væri mögu- legt með margs konar breyting- um sem orðið hefðu í vinnu og lífsstíl manna. Þá sagði Gestur nauðsynlegt að ná yrði pólitískri samstöðu milli sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu til að farið yrði út í raunhæfar aðgerðir í skipulags- málum er snertu umferð og um- hveifí og taldi hann að gera yrði ráð fyrir að sú þróun gæti tekið tvo tÚ þrjá áratugi. Hljóðmanir og hljóðeinangr- andi gler
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.