Morgunblaðið - 28.05.1999, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
HEY,CHUCK,YOU
U)ANNA PLAY
ON MY TEAM
THI5 YEAK?
U)ELL, I NEED 50MEONE
WMO'D LET MIM5ELF 6ET
HIT ONTME HEAPWITH
THE EALL..YOUKNOW,
TO 6ET ON BA5E..
NO? U)ELL,
OKAY.. I
1/N0EK5TANP..
Hæ, Kalli, Nú, ég þarf einhvem sem Nei?
viltu leika með Lætur boltann hitta sig í Jæja, allt
liðinu mínu hausinn..þú veist, til að í lagi..
á þessu ári? komast í höfn.. ég skil.
Hvað um það, gangi þér vel í ár
með þetta svokallaða lið þitt...
Þurftirðu að segja þetta, herra?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sorgleg örlög
svanaunga
Frá Þórgunni Jónsdóttur:
MÖRGUM er enn í fersku minni er
Morgunblaðið greindi frá því í fyrra
(föstudag 27. nóv. 1998), þegar
Kristín og Sigurjón á Sjónarhóli,
Stokkseyri, fundu svanaunga út við
Knarrarós, sem þau fóstruðu og
kölluðu Dolla. Mánudaginn 17. maí,
þegar ég var að undirbúa afmæli
sonar míns og fyrstu gestimir voru
mættir, heyrðum við skothvelli -
fyrst einn og svo fylgdu nokkrir á
eftir. Rétt niður við jaðarinn á lóð-
inni okkar, á svæði sem myndar
vinkil við leikskólalóðina, stóð lög-
reglumaður með dauðan hálfstálp-
aðan svan við fætur sér. Hvers
vegna þurfti þetta fallega ævintýri
um björgun svanaungans og upp-
eldi hans að fá svo skelfilegan endi?
Ekki hafði Dolli skaðað nokkurt
bam. Hann var farinn að hafa gam-
an af að elta bíla og eitthvað var far-
ið að kvarta undan honum. Sigurjón
og Kristín höfðu reynt að fara með
hann til annarra svana en hann
hafði ætíð flogið til baka, því þá
varð hann fyrir aðkasti frá eldri
svönum. Áður en afmælið hófst,
hafði ég tvívegis farið niður að
svæðinu á milli leikskólalóðarinnar
og okkar lóðar. I fyrra skiptið var
svanurinn að heilsa upp á leikskóla-
bömin. Hann stóð og blakaði
vængjum og kvakaði fyrir utan
rammgert vímet og virtust bömin
hafa gaman af, því böm elska svani.
Eg kallaði til einnar fóstrannar
og spurði hvort svanurinn kæmi oft
í heimsókn.
Hún sagði að þetta væri í annað
skiptið sem hann kæmi. Svo kom
hún með kústskaft og otaði því ótt
og títt í áttina að Dolla, til að stugga
honum frá. Mér þóttu þetta undar-
legar aðfarir. Svo ég fór aftur niður-
eftir með fyrsta afmælisgestinum.
Við náðum strax athygli Dolla, sem
virtist svolítið hissa er við heilsuð-
um honum að svanasið. Að vísu vor-
um við ekki með vængi , en gátum
blakað höndum. Hann heilsaði okk-
ur á móti; kvakaði og blakaði
vængjum og fór svo með okkur nið-
ur í lágina. Þvínæst gekk hann hæg-
um skrefum að pollinum sem hafði
verið skautasvell í vetur og spymti
sér til sunds, sveigði svanahálsinn
og fékk sér sopa. Sólin gægðist
fram og sló ljóma á fannhvítar
fjaðrimar. Við heilluðumst alveg af
fegurð hans. Það var engu líkara en
að Muggur hefði málað hann. Hann
virtist vera kominn í ömggt skjól.
Það kom okkur því alveg í opna
skjöldu hvemig fór. Ekki hafði
svanurinn gert sig líklegan til að
ráðast á okkur eða bíta. Eftir því
sem ég best veit, hafði Dolli ekki
valdið neinum skaða. Þessvegna
spyr ég; hvers vegna var hann álit-
inn svo hættulegur að það þyrfti að
drepa hann? Eru svanir ekki lengur
friðaðir? Þótt yfivöld hefðu flokkað
hann sem gæludýr, hvaða rétt höfðu
þau til að senda lögreglumann til að
skjóta hann og það í návist margra
barna? Ekki em hundar skotnir
nema þeir hafi valdið skaða. Sigur-
jón hafði farið fram á að fá að finna
úrræði fyrir Dolla. Því var synjað.
Hafði hann engan rétt? Honum var
bara tilkynnt um aftökuna rétt áður
en hún var framin.
Ekki hefur foreldrum þótt
ástæða til að óttast um böm sín inn-
an um alla svanina á Tjörninni í
Reykjavík og skrýtið að fóstmr
skuli ekki treysta sér til að gæta
bama fyrir einum mannelskum
svani.
Við sem urðum vitni að því sem
fram fór emm harmi slegin yfir
þessum atburði og finnst okkur að
eigendum svansins hafi verið gróf-
lega misboðið. Bömin eiga eftir að
muna hann lengi. Leikskólabömun-
um hafði að vísu verið smalað sam-
an inn í skólann, en þau heyrðu
skothvellina og hljóta að vita hvað
var á seyði. Þau vissu líklega að það
var leikskólastjórinn sem hringdi á
lögregluna og vera kann að þau taki
síðar óbeint á sig sökina, því það var
jú verið að verja þau fyrir óvætt-
inni. Hugsanlega hafa því bömin
borið skaða af atferli mannanna, en
ekki því er svanurinn aðhafðist.
ÞÓRGUNNUR JÓNSDÓTTIR,
ljóðskáld á Stokkseyri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.