Morgunblaðið - 28.05.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999 13
FRÉTTIR
Ráðstefna um athyglisbrest með ofvirkni - misþroska
Meðferð bætir
verulega fram-
tíðarhorfur
Morgunblaðið/Þorkell
GISLI Baldursson læknir, Matthías Kristiansen, formaður Foreldra-
félags misþroska bama og formaður norrænu neftidarinnar um at-
hyglisbrest með ofvirkni - misþroska, Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir-
læknir baraa- og unglingageðdeildar Landsspítalans, og Páll Magn-
ússon sálfræðingur en þeir skipa ásamt Málfn'ði Lorange taugasál-
fræðingi undirbúningsnefnd norrænu ráðstefnunnar.
FIMMTA norræna ráðstefnan um
athyglisbrest með ofvirkni - mis-
þroska verður haldin hér á landi í
haust og munu helstu fræðimenn á
þessu sviði kynna niðurstöður
nýrra rannsókna sinna á ráðstefn-
unni. Að sögn Ólafs Ó. Guðmunds-
sonar yfirlæknis barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans hef-
ur meðal annars komið í Ijós að
með viðeigandi meðferð má bæta
verulega framtíðarhorfur barnanna
og draga úr vímuefnanotkun. Pað
er Norræna samstarfsnefndin um
ADHD/DAMP, athyglisbrest með
ofvirkni - misþroska, sem stendur
að ráðstefnunni í samvinnu við
Barna- og unglingageðdeild Lands-
spítalans og Foreldrafélag mis-
þroska bama.
Gert er ráð fyrir að um 300
manns sæki ráðstefnuna og sagði
Matthías Kristiansen, formaður
norrænu nefndarinnar, að ákveðið
hafi verið að einskorða ekki fyrir-
lesarana við Norðurlönd að þessu
sinni heldur leita til helstu fag-
manna á þessu sviði, m.a. í Banda-
ríkjunum, Kanada og Hollandi.
Einkenni fyrir sjö ára aldur
Athyglisbrestur með ofvirkni er
hegðunartruflun sem kemur fram
hjá börnum fyrir sjö ára aldur.
Rætt er um tvö hugtök ofvirkni og
misþroska en misþroski vísar til
frávika í þroska, oftast skerðingar
einhverra þátta mál- og/eða hreyfi-
þroska. Ofvirknihugtakið vísar til
of mikillar virkni í hegðun en oft
fer þetta tvennt saman. Mörg mis-
þroska börn eru ofvirk og ýmis
væg þroskafrávik eru algeng í hópi
ofvirkra barna. Ofvirknieinkenni
koma snemma fram og um 3-4 ára
aldur eru einkenni venjulega orðin
nokkuð skýr. Lengi var álitið að
ofvirkni eltist af börnum á ung-
lingsárum en rannsóknir hafa sýnt
að það sé langt frá því að vera
regla og teljast 70% sem greinst
hafa enn eiga að stríða við ofvirkni
á unglingsárum. Talið er að þegar
komið er fram á fullorðinsár hafi
dregið svo úr einkennum hjá
15-50% að einkennin valdi ekki
lengur vanda.
Rannsóknir benda til að á ung-
lingsárum eigi allt að 40% ofvirkra
við alvarleg hegðunarvandkvæði að
stríða. A fullorðinsárum er mikið
um andfélagslega hegðun og fíkni-
efnanotkun í þeim hópi ofvirkra
sem hafa þróað með sér alvarleg
hegðunarvandkvæði á unglingsár-
um. Þegar tilfinningalegir erfiðleik-
ar bætast við ofvirkni lýsa þeir sér
oftast í depurð og neikvæðri sjálfs-
mynd. Námserfiðleikar eru einnig
algengur fylgifiskur bæði þar sem
ofvirknieinkennin hamla námsá-
stundun og einnig vegna þess að
ýmis væg þroskafrávik eru algeng
meðal ofvirkra barna.
4-5% skólabarna ofvirk
Að sögn Ólafs Ó. Guðmundsson-
ar yfirlæknis, má gera ráð fyrir að
um 1.600 börn á skólaaldri hér á
landi séu ofvirk eða 4-5% og er það
sama hlutfall og í öðrum löndum
bæði vestan hafs og austan. Aðeins
hluti þess hóps kemur til greining-
ar og meðferðar og er það líklega
vegna þess að einkennin eru svo
væg að ekki er þörf á sérstakri að-
stoð. Til þessa hefur verið talið að
fleiri drengir séu ofvirkir en að
sögn Matthíasar Kristiansen,
benda nýjustu rannsóknir til að
stúlkur séu mun fleirl en talið hefur
verið til þessa.
„Meðferð sem beitt hefur verið á
Barna- og unglingageðdeildinni
hefur skilað góðum skammtimaár-
angri,“ sagði Ólafur. „Spurningin
er hvernig reiðir þeim af til lengri
framtíðar, en núna á næstunni
verða kynntar niðurstöður nýrra
rannsókna þar sem meðal annars
koma fram bættar horfur þeirra
sem fá rétta meðferð og verða þess-
ar rannsóknir kynntar á ráðstefn-
unni.“
Urskurðaður í
gæsluvarðhald
Grunaður
um innbrot
í ráðuneyti
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur úrskurðaði mann í gæslu-
varðhald á miðvikudag, vegna
gruns um að hann ætti þátt í
innbroti á skrifstofur félags-
málaráðuneytisins um síðast-
liðna helgi.
í innbrotinu var meðal ann-
ars stolið tveimur fistölvum,
vogum og fleiru. Lögreglan
hefur málið til rannsóknar og
bendir á í því sambandi að í
þremur innbrotum á skömmum
tíma hafa þjófarnir verið að
sækjast eftir fistölvum.
Lögreglan í Reykjavík hand-
tók í gærmorgun mann á fer-
tugsaldri um borð í bát í Slippn-
um. Vaktmaður hafði orðið var
við mannaferðir í bátnum og
hafði samband við lögreglu í
kjölfarið. Þegar að var komið
hafði maðurinn tekið saman
nokkurt magn af verkfærum,
auk þess sem hann hafði stungið
á sig nokkrum slíkum.
Þrír réðust á mann
Lögreglan í Reykjavík flutti
einn af hinum svo kölluðu góð-
kunningjum á slysadeild á mið-
vikudagskvöld, eftir hann hafði
reynt að komast undan laganna
vörðum. Hann hafði tekið reið-
hjól óftjálsri hendi og reyndi að
hjóla á þýfinu af vettvangi
glæpsins þegar til hans sást.
Þjófurinn féll af reiðhjólinu og
hlaut skurð á augabrún.
I róMP
Við erum í sumarskapi
og ætlum þess vegna að gefa 15% afslátt
af allri vefnaðarvöru!
Notaðu tækifærið, komdu og skoðaðu,
úrvalið hefur aldrei verið meira!
Athugaðu að þetta tilboð stendur aðeins
í nokkra daga.