Morgunblaðið - 28.05.1999, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristinn
NYJA vegabréfið er með plastsíðu með persónuupplýsingum og mynd
auk tölvurandar með sömu upplýsingum sem lesin er vélrænt.
Ny lög um vegabréf taka gildi á þriðjudag
Ný og örugg-
ari vegabréf
MEÐ nýjum lögum um vegabréf
sem taka gildi 1. júní er lagður
grunnur að útgáfu nýrra vega-
bréfa. Hún var orðin aðkallandi til
að fullnægja alþjóðlegum kröfum
sem gerðar eru til þeirra, svo sem
um tölvulesanlega rönd, öryggis-
prentun og fleira sem ekki hefur
verið í íslenskum vegabréfum til
þessa.
Hönnuðir eru Kristín Þorkels-
dóttir og Hörður Daníelsson en
kanadíska fyrirtækið Canadian
Bank Note Company annast
prentun vegabréfanna samkvæmt
kröfum um hátæknilega öryggis-
prentun. Ríkislögreglustjóri ann-
ast útgáfu vegabréfa en frá 1.
október næstkomandi tekur Ut-
lendingaeftirlitið við útgáfunni er
það tekur til starfa sem sérstök
stofnun. Lögreglustjórar og sýslu-
menn taka eftir sem áður við um-
sóknum um vegabréf og er biðtími
allt að 10 virkir dagar. Þurfí menn
vegabréf með skemmri fyrirvara
er hægt að sækja um slíkt á út-
gáfustað vegabréfanna í Borgar-
túni 30 í Reykjavík. Venjulegt
gjald fyrir nýtt vegabréf er 4.600
krónur, 1.700 kr. fyrir börn en
þurfí menn hraðafgreiðslu er
gjaldið tvöfalt.
Engar tvær blaðsíður í nýja
vegabréfinu eru eins en í því gamla
var einungis skjaldarmerkið á
hverri síðu. í því nýja er í hverri
opnu teikning af efri hluta jarðar-
innar þar sem sést hvemig Island
liggur miðja vegu milli tveggja
heimsálfa. Segir Kristín Þorkels-
dóttir að út frá þeim gmnni sé leik-
ið með þá strauma sem um landið
fara með táknum og myndum um
hafstrauma, siglingar, náttúru og
flug. A blaðamannafundi þar sem
fulltrúar dómsmálaráðuneytisins
og i'íkislögreglustjóra kynntu nýja
vegabréfið kom fram að kanadíska
fyrirtækið hefði lýst mikilli ánægju
með hönnun Kristínar og hefði ósk-
að þess að fá að nota íslenska vega-
bréfið til kynningar á starfsemi
sinni.
Erfiðara að falsa
nýju vegabréfln
I nýja vegabréfinu er sérstök
síða í plasti með áprentuðum per-
sónuupplýsingum og mynd og aft-
an á þeirri síðu er segulrönd
vegna vélræns aflestrar. Þá eru
ákveðin tákn sem þeir, sem annast
vegabréfaskoðun, geta leitað eftir
með sérstakri lýsingu til að full-
vissa sig enn frekar um að allt sé
með felldu. Sögðu fulltrúar ráðu-
neytisins að með þessum frágangi
væri fölsun nánast útilokuð og nú
gerðu flest lönd kröfu um að vega-
bréf hefðu yfir þessum öryggis-
þáttum að ráða sem tryggja áreið-
anleika þeirra.
I nýju lögunum um vegabréf eru
helst ný ákvæði er snerta sjálfa út-
gáfuna. I öftustu opnu vegabréfs-
ins stendur m.a.: „Vegabréf þetta
telst eign íslenska íTkisins. Hand-
hafi vegabréfs skal varðveita vega-
bréf sitt þannig að ekki sé hætta á
að það glatist.“ Eldri vegabréf
gilda þar til gildistími þeirra renn-
ur út. Vakin var athygli á því á
fundinum að ekki er lengur heimilt
að skrá börn í vegabréf foreldra og
ekki útilokað að það geti leitt til
óhagræðis og tafa við vegabréfs-
skoðun erlendis. Er mönnum því
bent á að sækja um sérstök vega-
bréf fyrir börn til að forðast slíka
erfiðleika.
Einnig vai- minnt á að þótt
Schengen-samstarfið geri ráð fyrir
að menn geti ferðast án vegabréfa
milli ákveðinna landa sé rétt að
hafa í huga að menn hafi engu að
síður vegabréf sitt meðferðis til út-
landa sem persónuskilríki sín.
Tónlistarskólinn á Akureyri
Gamanóperan
BrÚðkaUp FÍgarÓS eftir W.A. Mozart
í Samkomuhúsinu á Akureyri
Aukasýningar:
Fimmtudagur 27. maí, uppselt,
föstudagur 28. maí kl. 20.00
sunnudagur 30. maí kl. 20.00
Miðasala í Samkomuhúsinu. S. 462 1400.
Beið ekki eftir að komast á fæðingardeildina
Fæddist í lyftunni
á leiðinni upp
Morgunblaðið/Kristján
LITLA stúlkan þeirra Katrínar Jóhannesdóttur og Sigurðar H. Sig-
urðssonar beið ekki eftir að komast á fæðingardeildina í fyrrinótt,
hún fæddist í lyftunni á leiðinni upp á deildina. Sjúkraflutninga- og
slökkviliðsmennirnir sem tóku á móti barninu heilsuðu upp á þau á
FSA í gær, frá vinstri Sigurður L. Sigurðsson, Finnur Sigurðsson,
Sigurður, Katrín og Gunnar Olafsson með þá litlu.
HÚN var ekkert að bíða eftir
því að komast á fæðingardeild-
ina, litla stúlkan þeirra Katrín-
ar Jóhannesdóttur og Sigurðar
H. Sigurðssonar á Akureyri, en
hún fæddist í lyftunni á leið upp
á deildina í fyrrinótt. Vaskir
starfsmenn Slökkviliðs Akur-
eyrar, sem sjá um sjúkraflutn-
inga, tóku á móti stúlkunni, sem
var 15 merkur og 52 sentímetr-
ar.
Sú litla átti að koma í heiminn
síðasta laugardag, 22. maí, en lét
þá bíða eftir sér, en þegar hún
taldi sig tilbúna var hún ekkert
að tvínóna við hlutina. „Þetta
gerðist frekar skyndilega," sagði
Katrín, sem skömmu eftir mið-
nætti í fyrrakvöld fann að nú
væri að koma að stóru stundinni.
Sigurður eiginmaður hennar var
í vinnunni og hringdi hún í hann
í snarhasti, hann brá skjótt við
og var kominn heim kl. 20 mínút-
ur yfir 12 á miðnætti. „Þetta bar
allt brátt að en það var greinilegt
að barnið var að fæðast," sagði
Sigurður, en þau byrjuðu á að
hringja í móður Katrínar,
Dagnýju Sigurgeirsdóttur, sem
kom til að gæta drengjanna
þeirra tveggja, Viktors Dags, 6
ára, og Axels Orra, 2 ára. Hún er
hjúkrunarfræðingur og sá strax
að Katrín þyrfti að komast á fæð-
ingardeildina og hringdi því eftir
sjúkrabíl.
Virkilega góð tilfinning
„Mér brá rosalega þegar ég sá
í kojlinn á barninu," sagði Gunn-
ar Ólafsson sjúkraflutningamað-
ur, en það gerðist á meðan beðið
var eftir lyftunni. Fæðingardeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri er á þriðju hæð sjúkrahúss-
byggingarinnar og á Ieiðinni upp
fæddist stúlkan. Auk Gunnars
voru Skjöldur Tómasson og Finn-
ur Sigurðsson með í för, en Sig-
urður L. Sigurðsson var á vakt-
inni á slökkvistöðinni. Bæði
Gunnar og Finnur hafa starfað í
einn mánuð hjá slökkviliðinu.
Gunnar hefur starfsreynslu úr
Hafnarfirði og hefur lokið
sjúkraflutningsprófi, en Finnur
verður við sumarafleysingar hjá
liðinu. Þeir hafa ekki lent áður í
svipaðri lífsreynslu, en Gunnar
kvaðst hafa lært hvernig bregð-
ast ætti við þessum aðstæðum á
námskeiðum. „Þetta gekk mjög
vel, fæðingin gekk eðlilega fyrir
sig,“ sagði hann. „Það var virki-
lega góð tilfinning að heyra
barnið gráta þegar við vorum
komnir upp.“
Gefur starfinu gildi
„Þetta gefur starfínu gildi,“
sagði Sigurður. „Bætir upp sorg-
legri hliðar starfsins, aðkomu að
slysum og eldsvoðum. Svona at-
burður skilur mikið eftir.“
Katrín sagðist hafa verið alveg
róleg þótt hún hefði séð að hveiju
stefndi og hrósaði fylgdarmönn-
um sínum á sjúkrahúsið, þeir
hefðu tekið örugglega á málum.
Sigurður maður hennar sagðist
hafa verið svolítið stressaður, „en
ekkert smeykur", sagði hann,
enda fullviss um að allt færi vel.
Bæjarráð Akureyrar um kjaradóm
Hafí ekki áhrif á
launagroiðslui-
Morgunblaðið/Kristján
Ummerki vetr-
arins afmáð
AÐALKALLARNIR hjá Akureyr-
arbæ, að eigin mati, þeir Jóhannes
Ásbjarnarson og Pétur Ásgeirs-
son, fóru viða í gærdag en þeir
höfðu með höndum það starf að
hreinsa götuvita og akstursstefnu-
merki bæjarins og afmá þar með
þau ummerki sem harður vetur
setti á allt umhverfið.
-------------
Dalvíkingar
leika heimaleik
á Akureyri
HEIMALEIKUR Dalvíkur við
Fylki í 1. deild karla í íslandsmótinu
í knattspyrnu verður leikinn á mal-
arvelli KA á Akureyri í kvöld, föstu-
dagskvöldið 28. maí kl. 20. Völlurinn
á Dalvík er ekki kominn í leikhæft
ástand. Knattspyrnudeild Dalvíkur
sótti um frestun á umræddum leik til
mótanefndar KSI eins og nýleg for-
dæmi eru fyrir, en mótanefnd hafn-
aði þeirri beiðni.
BÆJARRÁÐ Akureyrar lagði á
fundi sínum í gær til við bæjar-
stjóm að nýgenginn kjaradómur
hefði ekki áhrif á launagreiðslur
Akureyrarbæj ar.
Með vísan til úrskurðarins og
þess að greiðslur til bæjaríúlltrúa
og nefndarmenna hjá Akureyrar-
bæ em tengdar þingfararkaupi
leggur bæjarráð til að nýgenginn
kjaradómur hafi ekki áhrif á
greiðslur fyrir þessi störf hjá bæn-
um. Lagði bæjarráð einnig til við
bæjarstjóm að reglur um kaup og
kjör bæjarfulltrúa og nefndar-
KJARAMÁL kennara Tónlistar-
skólans á Akureyri vora til umfjöll-
unar á fundi bæjarráðs Akureyrar í
gær, en lagðar vora fram 13 upp-
sagnir frá kennuram sem bárast í
fyrradag auk þess sem 8 kennarar
höfðu áður sagt upp og 4 hafa óskað
eftir launalausu leyfi næsta skólaár.
Þórarinn B. Jónsson formaður
kjaranefndar gerði bæjarráði grein
fyrir þeim viðræðum sem fram
hafa farið milli nefndarmanna og
manna á vegum Akureyrarbæjar
yrðu endurskoðaðar.
Var bæjarstjóra á fundinum falið
að afla upplýsinga um þessi mál
hjá öðram sveitarfélögum og
leggja upplýsingar þar að lútandi
fyrir bæjarráð.
Ennfremur kom fram á fundin-
um að bæjarstjóri hefur hafnað
þeirri launabreytingu sem fólst í
kjaradómi varðandi laun hans og
óskaði hann eftir viðræðum um
aðra tengingu. Formanni bæjar-
ráðs var falið að ganga frá sam-
komulagi við bæjarstjóra þar um.
fulltrúa kennara við skólann og
þeim hugmyndum sem fram hafa
komið til lausnar.
Bæjarráð lýsti yfir vilja sínum til
að vinna að farsælli lausn varðandi
þá stöðu sem upp er komin varð-
andi starfsemi Tónlistarskólans á
Akureyri. Samþykkt var að fela
Þórarni ásamt þeim Jakobi Björns-
syni og Oktavíu Jóhannesdóttur að
taka upp viðræður við kennara
skólans um stöðu mála.
Bæjarráð um kjaramál tónlistarskdlakennara
Vilji til að leita
farsælla lausna