Morgunblaðið - 28.05.1999, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Vestur-íslendingar færa Skautafélagi Akureyrar góða gjöf
Granítsteinar og áhöld til
að stunda íþróttina krullu
VESTUR-íslendingamir Carl J. Thorsteinsson og
Herb Olson heimsóttu Akureyri nýlega og komu
færandi hendi, en þeir gáfu Skautafélagi Akureyrar
32 granítsteina, áhöld og annað sem til þarf til að
leika krullu (curling), sem er steinaleikur á svelli.
Verðmæti gjafarinnar er um ein milljón króna.
Carl á mikið af ættingjum hér á landi, en það
hefur reynst erfiðara að hafa uppi á ættingjum
Herbs. Faðir hans, Ole Olson, er fæddur í Kanada,
en afar hans og ömmur í móður- og föðurætt eru
öll fædd á Islandi. Það kann að hafa flækt leitina
að ekki er vitað hvort eftimafn hans, er dregið af
Ólafsson eða jafnvel Eyjólfsson.
Herb Olson hefur helgað líf sitt íþróttinni, fetaði
í fótspor föður síns sem vann frumkvöðlastarf á
þessu sviði og fann upp ýmislegt er hana varðar.
Hann hefur ferðast um Kanada þvert og endilangt
margsinnis, en hans aðalstarf er að slípa steinana
sem notaðir em og þá er hann einnig flinkur ís-
gerðarmaður og því eftirsóttur hjá skautafélögum.
Ómetanleg gjöf
Auk ýmissa áhalda til að halda brautinni við
færðu þeir skautafélaginu einnig 32 granítsteina,
en segja má að með því gefi Herb hluta af ævi-
starfi sínu. Þetta em steinar sem hann hefur safn-
Morgunblaðið/Kristján
VESTUR-íslendingamir Herb Olson og Carl
J. Thorsteinsson færðu Skautafélagi Akur-
eyrar áhöld og steina til að stunda krullu
(curling).
að að sér frá því hann hóf að slípa slíka steina árið
1949, allt úrvalssteinar. Vinátta hefur verið með
þeim Herb og Carl í um 40 ára skeið, en það var
Carl sem gerði þeim félögum mögulegt að ferðast
til Islands nú og hann mun einnig standa straum
af kostnaði við sendingu þeirra þegar hausta fer.
Marjo Kristinsson hjá Skautafélagi Akureyi’ar
sagði gjöfina ómetanlega og mikla lyftistöng fyrir
íþróttagreinina, en hér á landi er hún einungis
stunduð á Akureyri. Upphafið má rekja til þess að
fyrir fáum ámm vom hjónin og Vestur-íslending-
arnir Sofie og Tom Wallace á ferð hér á landi og
gáfu þá 32 steina sem skipt var milli Akureyringa og
Reykvfldnga. Þeir síðamefndu hafa ekki fengið tíma
á skautasvellinu til að stunda íþróttina þannig að
steinamir voru sendir norður. Arið 1995 buðu hjón-
in fjómm Islendingum, m.a. Gísla Kristinssyni og
Marjo á Akureyri, út tfl Kanada að kynna sér krullu
og þau hafa síðan kennt Akureyringum íþróttina.
Um 20 manns hafa stundað hana að jafnaði, en í
kjölfar þess að tælqaeign eykst um helming vonast
Maijo til að þátttakendahópurinn stækki. Aðstaða
til að stunda íþróttina batnar einnig mikið í haust
þegar þak verður komið yfir skautasvellið.
Tvö lið taka þátt í leiknum og eru fjórir í hvoru.
Liðin hafa hvort um sig 8 granítsteina sem era um
10 kfló að þyngd, en á þeim era sérstök handfóng.
Steinunum er rennt eftir ákveðinni braut á ísnum
að marki fyrir enda hennar, en einn hðsmanna
hleypur á undan og sópar brautina. Markmiðið er
að koma sínum steinum í höfn og jafnframt að ýta
steinum mótherjanna burtu.
VÖRU- OG ÞJÓNUSTUSÝNING
í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI Á AKUREYRI 28.-29. MAÍ
Sýning fyrir tæknimenn, lagnamenn, iðnaðarmenn, iðnfyrirtæki
og áhugamenn um þróun og nýjungar á þessum sviðum.
Meðal sýnenda eru:
FJARHITUNhf
VERKFRÆÐIS TOFA
jt/r
JOHAN
RÖNNING HF
m Tæknival
SMITH &
NORLAND
Rafhönnim
&
Um
4,
V
s
Tl
RST
(sameyA)
SAMORKA
VSO RAÐGJOF
A K U R E Y R I ehf
KAUPANGI SÍMI: 460 4404 FAX: 460 44U«
= HÉÐINN =
Poulsen
RAFTEIKNING HF
RÁÐOJAFARVERKFRÆÐINGAR
BORGARTÚN117 Sfmi 562 8144
5T
Alls 24 sýnendur
Sýningin er haldin í tengslum við vorfund Samorku, samtök raforku-, hita-
og vatnsveituna.
Sýningin er opin í dag, föstudag, frá kl. 15.00—18.00, og á morgun,
laugardag, frá kl. 10.00—17.00.
Fræðsludagur Sels
og Kristnesspítala
Sjúkling-
ar með
heilabilun !
FRÆÐSLUDAGUR á vegum
fræðslunefnda Sels og Kiist-
nesspítala verður haldinn á
morgun, laugardaginn 29. maí,
í Oddfellowhúsinu við Sjafn-
arstíg á Akureyri. Hann hefst
kl. 10 og lýkur um kl. 14.
A fundinum verða fræði-
menn fengnir til að ræða um
truflanir sem oft verða hjá
sjúklingum með heilabilun og
verður reynt að svara þeirri
spumingu sem hvílir á hjúkr-
unarfólki, um hvort fjötra
megi fólk sem ekki getur gætt
að sjálfu sér.
Jón Snædal öldrunarlæknir
ræðir um geðrænar og atferl-
islegar truflanir hjá sjúkling-
um með heilabilun, orsakir og
meðferð, Guðmundur Heiðar
Frímannsson heimspekingur
ræðir um frelsi, heftingu og
hömlur, Anna Margrét Guð-
mundsdóttir, hjúkmnarfræð-
ingur á Hellu, segir frá því
hvemig tókst að losna við
fjötra á því hjúkrunarheimili
sem hún vinnur á og Baldur
Dýrfjörð, bæjarlögmaður á
Akureyri, skoðar réttarstöðu
þeirra sem vinna við umönn-
un.
Starfsmenn FSA þurfa ekki
að greiða gjald en fyrir aðra
þátttakendur er aðgangseyrir
1.500 krónur.
Karlakór Dalvíkur
Vortón-
leikar
KARLAKÓR Dalvíkur heldur
árlega vortónleika sína í Dal-
víkurkirkju á morgun, laugar-
daginn 29. maí, kl. 15.
Einsöngvari verður Signý
Sæmundsdóttir, sópran, og
syngur hún bæði ein og með
kórnum. Fjórir einsöngvarar
úr hópi kórfélaga koma einnig
fram, þeir Helgi Indriðason,
Óli Þór Jóhannsson, Elvar Þór
Antonsson og Jóhann Daníels-
son. Helga Bryndís Magnús-
dóttir leikur á píanó og Magn-
ús G. Gunnarsson á harmon-
iku. Stjórnandi er Jóhann
Ólafsson.
A efnisskránni, sem er viða-
mikil, em íslensk og erlend
lög. Meðal annars verða flutt
tvö lög eftir einn kórfélagann,
Heimi Kristinsson, annars
vegar lagið Vetur sem Karla-
kór Dalvíkur hefur flutt einu
sinni áður og þá verður frum-
flutt lagið Vorvísur úr barna-
bók. Kaffisala er í hléi.
Heilsu-
eflingar-
dagur
Norðausturlandsdeild Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga
efnir til samvem og heilsuefl-
ingardags fyrir félagsmenn
næstkomandi laugardag, 29.
maí í Miðhvammi á Húsavík.
Markmið dagsins er að
hjúkrunarfræðingar hugi að
eigin líðan og heilsu um leið og
þeir eiga saman ánægjulega
samverastund. Dagskráin er
fjölbreytt og em þátttakendur
beðnir að hafa með sér göngu-
skó.