Morgunblaðið - 28.05.1999, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
t PARKER
SONNET
VIÐSKIPTI
Almenn þekking er
okkar sérgrein
Þriggja daga ráðstefna um vöruþróun og
hönnun í framleiðsluiðnaði og rannsóknir á
þessu sviði hefst í Háskólabíói í dag og
verða þar íslenskir og erlendir fyrirlesar-
ar. Kristján Jónsson ræddi við einn gest-
anna, danska prófessorinn Per Boelskifte.
ÍSLENSKT hugvit og
nýting þess hefur verið
mjög til umræðu hér á
landi undanfarin ár og
rætt um að leita þurfí
nýrra sóknarfæra. Af
því tilefni gengst véla-
og iðnaðarverk-
íræðiskor Háskóla Is-
lands í samstarfi við
Nýsköpunarsjóð at-
vinnulífsins, Samtök
iðnaðarins og Iðn-
tæknistofnun fyrir
þriggja daga ráðstefnu
er nefnist Getting
Ahead og hefst hún í
Háskólabíói í dag. Gert
er ráð fyrir hátt í hundrað þátttak-
endum, þ.á m. allmörgum frá hin-
um Norðurlöndunum og víðar að.
Fyrirlesarar verða níu, þar af fimm
erlendir.
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, mun setja ráðstefnuna
sem haldin er í tengslum við nor-
rænt málþing sem styrkt er af
NORFA (Norrænu rannsóknaraka-
demíunni). Markmiðið með henni er
m.a. að kynna mikilvægi markvissr-
ar vöruþróunar og hönnunar í fram-
leiðsluiðnaði, auka tengsl iðnaðar,
rannsókna og fjármálaheimsins á
sviði nýsköpunar og þróunar og
skapa hugmyndir að nýjum rann-
sóknarverkefnum.
Meðal fyrirlesara er Daninn Per
Boelskifte, sem hefur
frá 1994 verið prófess-
or í tæknilegri iðn-
hönnun við Norska
tækniháskólann í
Þrándheimi, NTNU.
Staðan var stofnuð
með stuðningi norska
stórfyrirtækisins
Hydro Aluminium og
er markmiðið með
henni að stuðla að upp-
byggingu í vöruþróun
og framleiðsluiðnaði í
Noregi. Boelskifte á
sæti í norsku vísinda-
og tækniakademíunni,
er arkitekt og iðnhönn-
uður að mennt og handhafi margra
hönnunarverðlauna. Eitt verkefna
hans, „Bates Combisystem", hlaut
Evrópsku hönnunarverðlaunin
1997.
Listnám og
verkfræði
„Við Jóhannes Sigurjónsson pró-
fessor höfum undanfarin ár byggt
upp deild tæknilegrar iðnhönnunar
við NTNU og hún er sú fyrsta sinn-
ar tegundar á Norðurlöndum,“ seg-
ir Boelskifte.
„Algengt er að iðnhönnun sé
byggð á grunni listnáms eða hefð-
bundnu meistaranámi í iðnaði.
Tæknileg iðnhönnun byggist hins
vegar meira á raungreinum vísinda,
Per Boelskifte
er nám af verkfræðitoga og við not-
umst því meira við þekkingu á notk-
un efnis og eiginleikum þess, að-
ferðunum sem nota verður við að
nýta þau, einnig iðjufræði. Við höf-
um eiginlega haslað okkur völl mitt
á milli hefðbundna listnámsins og
verkfræði, leggjum áherslu á
stöðuga víxlverkun fræðanáms og
hagnýtingar."
Boelskifte segir að múramir sem
greindu að fóg og fræðigreinar séu
smám saman að molna, nútíma-
myndlistarverk séu oft svo innhverf
að hönnuðir hafi á vissan hátt lagt
undir sig drjúgan hluta af því sem
áður heyrði til myndlistinni. Því
finnist honum ekki undarlegt að
verkfræðin sé nú farin að teygja sig
inn á svið sem áður hafi verið á yfir-
ráðasvæði arkitekta, hönnuða og
myndlistarmanna.
En einnig er það tímanna tákn að
greinar eins og félagsfræði, hag-
fræði, markaðsfræði, sálfræði og
umhverfisfræði eru að verða stoð-
greinar þeirra sem leggja stund á
vöruþróun. Sumir sérfræðingar vita
mikið um efnin sem notuð eru, aðrir
um viðbrögð neytandans, enn aðrir
um áhrif á vistkerfið, segir hann.
„Oft er það svo að ákveðnir ein-
staklingar eru með mikla þekkingu
á sérhæfðu sviði en við segjum að
okkar sérgrein sé almenna þekking-
in! Við getum ekki vitað öll jafnmik-
ið um hvert svið en við reynum að
nálgast vöruþróun frá sem flestum
sjónarhomum, athugum sérþarfir
hvers faghóps og reynum að hafa
yfirsýn.
Það má líkja þessu við að stilla
saman strengina í stórri hljómsveit,
láta snillingana á fiðlur, selló,
trumbur og fleira vinna saman eins
og heild. Þá hljómar sinfónían eins
og hún á að gera, þetta er okkar
hlutverk."
En búa menn ekki víða til ágæta
söluvöru án þess að þurfa einhverja
sérfræðiaðstoð, dugar ekki oft að
beita heilbrigðri skynsemi og
reynslu?
„Eg get spurt á móti hvort um-
ræddur framleiðandi hagnist mikið
á því sem hann er að gera, hvort
varan sé á einhvem hátt öðmvísi
en það sem aðrir í sömu grein eru
að búa til. Ég býð framleiðandan-
um að ná enn betri árangri og arð-
semi en tek það fram að stjórnend-
ur fyrirtækisins verða að hafa
sjálfir áhuga á því að notfæra sér
tæknilega iðnhönnun. Það er lykil-
atriði að þeir álíti hana vera vopn
sem muni koma sér vel með lang-
tímamarkmið í huga, hvort sem þá
er verið að velta fyrir sér stöðu á
markaðnum eða vexti og viðgangi
fyrirtækisins. Með því að notfæra
sér sérþekkingu á þessu sviði er
verið að senda öllu starfsliðinu
ákveðin skilaboð."
„Stend ég mig
ekki nógu vel?“
„Það getur gerst að starfsmenn
líti á það sem ógnun að leitað sé
ráða hjá tæknilegum iðnhönnuði.
„Þetta er mitt starf, þetta hef ég
séð um,“ er þá sagt. „Stend ég mig
ekki nógu vel?“ En auðvitað er ekki
verið að niðurlægja góðan starfs-
mann heldur er verið að auka vægi
þess sem hann hefur verið að fást
við.
Og um leið er verið að gefa hon-
um færi á að gera enn betur með
því að fá faglega ráðgjöf um eðli
vörunnar og hvemig hún þarf að
vera. I sumum löndum eru sérstak-
ar miðstöðvar á sviði hönnunarráð-
gjafar og þá geta fyrirtæki fengið
nöfn nokkurra ráðgjafa til að velja
úr; búið er að velja þá úr stærri hóp
með tilliti til verkefnisins, atvinnu-
greinarinnar o.s.frv. Þá geta stjóm-
endur fengið þá sem þeir átta sig á
að muni fara rétt að hlutunum í
þeirra fyrirtæki. Það er ekki alltaf
nóg að fletta upp á gulu síðunum í
símaskránni!
Við fullyrðum að þegar við kom-
um við sögu í ferlinu gerist það
sama og þegar valin er rétt tegund
af efnahvata; allt gengur hraðar
fyrir sig, framleiðnin er meiri. Það
væri hættulegt ef við þættumst hafa
einkarétt á nýsköpun en við teljum
að við getum ýtt undir hana hjá
hópum og einstaklingum í fyrir-
tækjum.“
Boelskifte ræðir um frumkvæði,
hvemig virkja megi nýsköpunar-
hneigð og löngun starfsmanna tO að
fitja upp á nýjum aðferðum. Miklu
skipti að iðnhönnuðir eigi auðvelt
með að setja sig í spor annarra,
hvort sem það era starfsmenn í
framleiðslufyrirtækjum eða neyt-
endur, ella geti þeir ekki gefið ráð
um framleiðslu og nýsköpun. Fram-
leiðsluvaran er ekki lengur bara það
sem við snertum á heldur allt sem
fylgir notkun hennar, hugsanir og
tilfinningar sem við tengjum við
hana. Allt umhverfi vörannar er að
verða óaðskiljanlegur hluti hennar í
ríkari mæli en áður og þess vegna
þarf að beita margvíslegri þekkingu
við framleiðslu hennar ti! að verða
samkeppnisfær," segir Per Boel-
skifte.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
^mbl.is
\LLTAf= £/TTHVAB NYTT
£5,$.
LAWN-BOY
Garðsláttuvélar
Margreyndar við
íslenskar aðstæður,
nú með nýjum 4.5
HP tvígengismótor,
einfaldri og öruggri
hæðarstillingu, 48
cm sláttubreidd,
styrktum
hjólabúnaði, 60 I.
grassafnari fylgir
Reykjavlk: Ármúla 11 - Slmi 568-1500 - Akureyri: Lónsbakka - Slmi 461-1070
Voyager LX
kerra m/bakka
svuntu
OrvaUcí er
f\já okkur
kr. 14.900
44 .
íLfiAjX*. 4% oIXajxa,
SlMI 5 5 3 3366
G L Æ S I B Æ