Morgunblaðið - 28.05.1999, Side 33
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999 33
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„HVILIKT lán að til skuli vera söngvarar sem hafa þau tök á list sinni
að maður getur ekkert gert á meðan þeir hafast að, nema bara verið,“
segir Bergþóra Jónsdóttir í dómi sínum um söng Gunnars Guðbjörns-
sonar. Myndin er tekin á æfingu.
Stemmning
á Sinfóníu-
tónleikum
TQ]\LIST
Háskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Gunnar Guðbjörnsson tenór og Sin-
fóníuhljómsveit íslands fluttu óperu-
tónlist; Keri Lynn Wilson stjórnaði.
Fimmtudagskvöld kl. 20.00.
HVÍLÍKT lán að til skuli vera
góðir listamenn. Hvílíkt lán að til
skuli vera söngvarar sem hafa þau
tök á list sinni að maður getur ekk-
ert gert á meðan þeir hafast að,
nema bara verið. Ekki vottur af
hugrenningum um daglegt víl, -
ekki einu sinni um yfirvofandi sum-
arfrí, - maður bara er, og nýtur
töfranna meðan andartakið lifir.
Gunnar Guðbjörnsson er svona
listamaður. Hann fór hikandi og
varfærnislega af stað á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar í gær-
kvöldi, hélt frekar aftur af sér í
fyrstu arfunni, - aríu Don Ottavios,
II mio tesoro úr Don Giovanni eftir
Verdi, - en eftir því sem á tónleik-
ana leið magnaðist stemmningin og
Gunnar var upp á sitt allra besta.
Allar tæknikúnstir hefur þessi góði
söngvari á valdi sínu. Veikasta og
blíðasta piano og kraftmikið forte í
öllum tónhæðum og á löngum sem
stuttum tónum, crescendo, diminu-
endo, kóloratúr og hvaðeina, - á
öllu þessu kann hann skil. En list
hans er þó langt yfir það hafin að
sýningaratriðin og tæknibrellurnar
séu atriði í sjálfu sér, - músíkin
sjálf er ævinlega aðalatriðið og
kjarninn 1 túlkun Gunnars. Þá er
heldur ekki ónýtt að hafa söngrödd
sem býr yfir þeirri fegurð og þokka
sem rödd Gunnars. Lýríska arían
Mappari úr Mörtu eftir Flotow var
gríðarvel sungin. Það sama var
uppi á teningnum í aríu hertogans
af Mantúu, Questa o quella, úr
Rigoletto eftir Verdi, sem er allt
öðru vísi aría en sú fyrmefnda, -
hröð og krefst meiri snerpu í túlk-
un. Besta atriði Gunnars fyrir hlé
var þó söngurinn E la solita storia
úr Stúlkunni frá Arles eftir Cilea, -
frábærlega flutt.
Nú er kannski einhver farinn að
halda að Gunnar Guðbjörnsson hafí
staðið einn á sviði Háskólabíós í
gærkvöldi. Öðru nær. Minna hefði
orðið úr mikilfengleik söngs hans ef
ekki hefði verið Sinfóníuhljómsveit
íslands, sem fór á kostum undir
stjórn þess frábæra hljómsveitar-
stjóra Keri Lynn Wilson. Forleikur-
inn að Töfraflautunni eftir Mozart,
fyrsta atriðið á tónleikunum, var
heiðríkur og léttur og afar fallega
spilaður. Forleikurinn að þriðja
þætti óperunnar La traviata eftir
Verdi er sjaldnar leikinn en forleik-
ur fyrsta þáttar; - báðir eru byggðir
á sama stefi að hluta til, en í forleik
þriðja þáttar er harmþmngin
hryggðarmynd hinnar dauðvona
travíötu dregin enn sterkari drátt-
um. Fiðlur hljómsveitarinnar voru í
aðalhlutverki og léku gríðarlega vel
undir músíkalskri stjórn Wilson.
Langrismesta atriði hljómsveitar-
innar í gærkvöldi var annar forleik-
ur eftir Verdi, - sá að óperunni
Valdi örlaganna. Keri Lynn hafði
feiknagóð tök á hljómsveitinni.
Hraði, öryggi og mjög mikil
dýnamík einkenndu leik hljómsveit-
arinnar í forleiknum, - gegn ógn-
vekjandi undirtóninum í upphafs-
stefinu var teflt unaðslega lýrískum
leik í milliþáttum forleiksins. Þetta
var virkilega fallega gert.
Gunnar söng með hljómsveitinni
eftir hlé litla aríettu eftir Bellini í
fínni hljómsveitarútsetningu Rík-
arðar Arnar Pálssonar, - verk sem
gaman var að heyra, Musica proi-
bita eftir Gastaldon, og loks
Napólísöngvana Torna a Surriento
eftir Emesto de Curtis og morgun-
sönginn Mattinata eftir Le-
oneavallo. Þessi vinsælu og marg-
sungnu lög þola illa að þeim séu
gerð minni en fullkomin skil. Gunn-
ar söng þau ofboð fallega; - hljóm-
sveitin lék jafn fallega með honum,
og tónleikagestir þökkuðu fyrir frá-
bæran flutning með löngu og þéttu
lófataki.
Granada eftir Lara var fyrsta
aukalag, og á eftir kom Questa o
quella, enn flottar en íyrr. Þetta
voru fínir tónleikar, - mikil
stemmning sem má þakka söngvar-
anum Gunnari Guðbjörnssyni sem
heillaði gesti með söng sínum, -
Sinfóníuhljómsveit Islands sem hef-
ur náð því að vera ekki bara stund-
um, heldur að jafnaði, mjög góð
hljómsveit, en síðast en ekki síst
hljómsveitarstjóranum frábæra,
Keri Lynn Wilson, sem gjarnan
mætti vera hér miklu oftar á stjórn-
andapallinum.
Bergþóra Jónsdóttir
Landsbanki og Visa
styrkja Menningarnótt
ÞRIGGJA ára samningur um stvrk
Landsbanka Islands og Visa Islands
við Menningarnótt í miðborginni var
undirritaður í gær við athöfn í af-
greiðslusal Landsbanka Islands í
Austurstræti. Það gerðu Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri,
Halldór J. Kristjánsson bankastjóri
Landsbankans og_ Einar S. Einars-
son forstjóri Visa Islands.
Menningarnótt í miðborginni
verður haldin í fjórða sinn 21. ágúst
næstkomandi og hafa Landsbank-
inn og Visa Island frá upphafi verið
aðalstyrktaraðilar hennar.
Markmiðið með Menningarnótt í
miðborginni er að beina kastljósinu
að því sem borgin hefur upp á að
bjóða og að kveikja áhuga á menn-
ingarviðburðum hjá fólki á öllum
aldri, jafnt borgarbúum sem gest-
um þeirra.
Við sama tækifæri var kynnt
verðlaunatillaga að veggspjaldi
Menningarnætur en efnt var til
samkeppni meðal nemenda í graf-
ískri hönnun við Myndlistar- og
handíðaskóla íslands. Höfundur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HALLDÓR J. Kristjánsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Einar S.
Einarsson undirrita samninginn.
verðlaunatillögunnar er María fimmtíu þúsund krónur.
Krista Hreiðarsdóttir, nemandi á Verkefnisstjóri Menningarnætur
öðra ári, og hlaut hún að launum er Hrefna Haraldsdóttir.
Nýjar bækur
Kynning á Ro-
bertson Davies
KYNNING á kanadiska rithöfund-
inum Robertson Davies verður
haldin í Odda, stofu 101, laugar-
daginn 29. maí kl. 14.
Jóhann G. Thorarensen, M.A. í
ensku, kynnir kanadíska rithöf-
undinn Robertson Davies í fyrir-
lestri sem haldinn er á vegurn
enskuskorar Háskóla Islands og
íslandsdeildar norræna félagsins
um kanadísk fræði. Davies er einn
þekktasti rithöfundur Kanada-
manna á þessari öld, en vinsælast-
ar eru skáldsögur hans, þar sem
fremstar fara trílógíurnar þrjár
sem kenndar eru við Salterton,
Deptford og Cornish. Auk þess að
kynna ævi og störf þessa mikil-
hæfa höfundar mun Jóhann ræða
þá gagnrýnu siðvitund sem liggur
að baki ævintýra- og goðsagna-
kenndum sagnaheimi Davies, seg-
ir í fréttatilkynningu.
• HAFIÐ er eftir Unnstein Stef-
ánsson.
í fréttatilkynningu segir að bók
þessi skýri á aðgengilegan hátt
nýjustu þekkingu okkar á eðli og
eiginleikum sjávar og heimshaf-
anna. Fjallað er
um hafsvæðin
umhverfis Is-
land og þá um-
hverfisþætti
sem einkum
hafa áhrif á frjó-
semi miðanna
og viðgang fiski-
stofna.
Meðal um-
fjöllunarefna má nefna: Sjávarhita,
seltu, ástand sjávar, djúpsjávar-
myndun, straumakerfi, áhrif veð-
urfarsbreytinga, hafís, efni sjávar,
lífsskilyrði í sjónum, kort sem sýna
meðalhita sjávar við Island, frjó-
semi íslenskra hafsvæða, dreifingu
geislavirkra efna, sjávarföll og
bylgjur.
Höfundur er fyrrverandi pró-
fessor í haffræði við Háskóla Is-
lands.
Utgefandi er HáskóSaú tgáfun.
Bókin er 480 bls., innbundin og er
ríkulega myndskreytt. Verð: 4.900
krónur.
Siírefmsvörur
Karin Herzog
Kynning
í dag frá kl. 14—18 í
Hagkaupi, Smáratorgi og
Laugarnes Apóteki — Kirkjuteigi.
- Kynningarafsláttur -
Unnsteinn
Stefánsson
Auglýsing um starfsleyfistillögur
Dagana 28. maí til 23. júlí nk. munu starfsleyfistillögur neðangreindra fyrirtækja í
Reykjavík, skv. gr. 70 í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994, með síðari
breytingum liggja frammi hjá Upplýsingaþjónustunni í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fyrirtæki/gildistími starfsleyfis í árum Heimilisfang
Dýralæknastofa Helgu Finnsdóttur, dýralæknastofa/5
Efnalaugin Björg, efnalaug/5
Emla ehf., þvottahús/3
Fatapressan Úðafoss, efnalaug/5
Grýta-Hraðhreinsun ehf., þvottahús/2
Hjá GuðjónÓ ehf., prentiðnaður/8
Hraði ehf., efnalaug/5
Katla, efnalaug/5
Réttingatækni ehf., bifreiðaréttingar- og sprautun/5
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
Skipasund 15, 104 Rvík.
Álfabakki 12, 109 Rvík.
Barónstígur 3, 101 Rvík.
Vitastígur 13, 101 Rvík.
Keilugrandi 1, 107 Rvík.
Þverholt 13, 105 Rvík.
Ægissíða 115, 107 Rvík.
Hvassaleiti 30, 103 Rvík.
Hamarshöfði 9, 112 Rvík,
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða
nálægrar starfsemi.
2. Ibúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Oþinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir, skulu vera skriflegar og sendast
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur,
Drápuhlíð 14, 105 Reykjavík, fyrir 23. júlí nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur