Morgunblaðið - 28.05.1999, Síða 66
MORGUNBLAÐIÐ
f)6 FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
Grænar ólífur
MONT4NM
Hámarks gœði, einstakt hragð
Ómissandi í salat!
Dreifing Heilsa ehf • sími 533 3232
Æ
HLAUPASKÓR
Falcon 3
Nubuk
Cushion
Þægilegur
hlaupaskór fyrir
hlaupara með eðlilegt niðurstig.
Response
Cushion
Hlaupaskór fyrir
hlaupara með
eðlilegt niðurstig.
Radiant
Trail
Cushion
Frábær
Feet You Wear
torfæru hlaupaskór
fyrir hlaupara með
eðlilegt niðurstig.
Galaxy
Cushion
Alhliða
hlaupaskór
fyrir hlaupara
með eðlilegt
niðurstig.
Universal
Cushion
Þægilegur
hlaupaskór fyrir
hlaupara með
eðlilegt niðurstig en
óska eftir stýringu í niðurstigi
| Fyrir hlaupara
sem þurfa aukinn
innanverðan stuðning.
Light
Fyrir hlaupara
sem vilja létta
og góða skó.
Ui_______________
og Sport
Reykjavlkurvegi 60 - Slmi 555 2887
FÓLK í FRÉTTUM
Verðlaunaafhending stuttmyndadaga
REYNIR
Lyngdal tok
wið verðlaun-
um fyrir hönd
sina og konu
sinnjir
Katrinar
Óhifixlotlur,
sent loik-
styrði, lijo til
liamirilið og
síi um
kórcógr.ifiu
myndarinnar.
2 fyrir 1 á Vorvinda!
I HASKOLABIOI OG REGNBOGANUM
20. maí - 9. júní
Gegn framvísun þessarar auglýsingar
býóur Morgunblaöið lesendum sínum
tvo miða á verði elns á kvikmyndahá-
tíöina Vorvinda sem haldin er í Regn-
boganum og Háskólabíói.
Góða skemmtun!
Slurpinn & co. í fyrsta sæti
FJÖLMENNI var í Tjarnar-
bíói á miðvikudagskvöldið
þegar síðasti sýningardagur
Stuttmyndadaga fór fram. Heyra
mátti á áhorfendum að úrval
myndanna í ár vasri mjög gott og
greinileg uppsveifla í stuttmynda-
gerð á Islandi. Sextíu myndir voru
í keppninni í ár og var sýningu
þeirra dreift á þrjú kvöld og loka-
kvöldið voru úrslit kynnt.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri afhenti verðlaunin
fyrir sigurmyndirnar og fóru leik-
ar svo að Slurpinn & co. eftir þau
Katrínu Ólafsdóttur og Reyni
Lyngdal hlaut fyrstu verðlaun,
Kókó eftir þá Helga Má Erlings-
son og Gísla Darra Halldórsson
lenti í öðru sæti og í þriðja sæti
var myndin Maður undir áhrifum
eftir Robert Douglas og Höskuld
Kára Schram. Kókó hlaut einnig
áhorfendaverðlaunin og sérstök
verðlaun sem frumlegasta mynd
Stuttmyndadaga fengu þeir Einar
og Eiður Snorri fyrir myndina
Rover.
Tvöfaldur
sigur
Katrín Ólafsdóttir og Reynir
Lyngdal búa á Spáni en Reynir
tók við verðlaunum fyrir þeirra
hönd, enda framleiðandi og að-
stoðarleikstjóri myndarinnar.
Hann sagðist að vonum ánægður
með úrslit kvöldsins, en þetta er í
þriðja skipti sem mynd sem hann
á hluta í fer með sigur af hólmi á
Stuttmyndadögum. Slurpinn & co
hefur hlotið tvenn verðlaun er-
lendis, á Stuttmyndahátíðinni í
Toronto á síðasta ári auk þess að
vinna stuttmyndagullverðlaunin á
Chicago International Film Festi-
val. Reynir segir að hugmynd
myndarinnar sé alfarið Katrínar
og auk leikstjómar og handrits sé
hún dansahöfundur myndarinnar.
„Tími er eitt aðalþemað í mynd-
inni og Katrín ákvað að vinna út
frá hringnum, enda er öll myndin
tekin í sleitulausri hringtöku.
Sumir hafa sagt við mig að þeir
átti sig ekki á því hvort
myndin sé tíu mínútur
eða hálftími vegna
hringtökunnar og ekki
gera allir sér grein fyrir
að myndin er eitt
óklippt myndskeið,“
segir Reynir.
Reynir og Katrín
stofnuðu kvikmyndafyr-
irtækið Morefilms í
fyrra og til stendur að
gera nýja mynd í
Skotlandi. „Við fengum
styrk frá Menningar-
sjóði útvarpsstöðva og
erum með gott fólk í
Skotlandi með okkur.
Þetta verður aðeins
lengri mynd, eða rúm-
lega tuttugu mínútur og
heitir Kisa Kiss,“ segir
Reynir dularfullur á
svip og vill ekkert gefa
frekar upp um myndina.
Hvers vegna búið þið á Spáni?
„Það er bara svo ódýrt að lifa
þar,“ segir Reynir og bætir við að
ástæðan fyrir því að Katrín hafi
ekki komið með til Islands sé að
hún hafi farið á knattspyrnuleik-
inn um Evrópubikarinn með Ba-
yern Miinchen og Manchester
United. „Þetta er í fyrsta skipti
sem hún fer á svona fótboltaleik
og ég var að tala við hana áðan og
hún var ofboðslega ánægð með
hvort tveggja úrslit kvöldsins,
hérna á Stuttmyndadögum og á
fótboltavellinum. Þetta var eigin-
lega tvöfaldur sigur,“ segir Reynir
brosandi að lokum.
► VERÐLAUNAHAFARNIR
komnir upp á svið Tjamarbíós.
F.v. Helgi Erlingsson og Gísli
Halldórsson sem vom í öðm sæti
með mynd sma Kókó. Við hlið
þeirra eru Ilöskuldur Schram og
Robert Douglas, en þeir hlutu
þriðju verðlaun fyrir mynd sína
Maður undir áhrifum. I fyrsta
sætinu vom Reynir Lyngdal og
Katrín Ólafsdóttir með myndina
Slurpinn & co.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
INGVAR Sigurðsson og Bjöm Ingi Hilmarsson í Slurpinum & co.
pfCMöAniMKI