Morgunblaðið - 30.06.1999, Síða 1
144. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Viðræð-
um miðar
áfram á
N-Irlandi
Belfast. AFP, Reuters.
DAVID Trimble, leiðtogi stærsta
flokks sambandssinna (UUP) á
Norður-írlandi, sagði í gærkvöldi
að enn væri mikið verk óunnið ætti
samkomulag að nást í dag í neyðar-
viðræðum um lausn deilna um
myndun n-írskrar heimastjórnar og
afvopnun öfgahópa í héraðinu. Fyrr
um daginn höfðu hins vegar tals-
menn forsætisráðherra Bretiands
og Irlands sagt að „áþreifanlegur
árangur" hefði náðst og var af þeim
sökum ákveðið að fresta þar tO í dag
birtingu skýrslu þriggja manna al-
þjóðlegrar nefndar sem falið hefur
verið að úrskurða um tilhögun af-
vopnunar öfgahópanna á N-Irlandi.
Brýnt að samkomulag
náist í dag
Stífir fundir stóðu í allan gærdag
í stjórnarbyggingum við Stormont-
kastala í Belfast en á miðnætti í
kvöld rennur út frestur sem Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
hafði sett deilendum til að ná sam-
komulagi. Ottast menn að friðar-
samkomulagið frá því í fyrra renni
út í sandinn finnist ekki lausn á „af-
vopnunardeilunni" svokölluðu á
fundum í dag og kvöld.
Sambandssinnar neita að setja á
laggimar heimastjóm með Sinn
Féin, stjórnmálaarmi IRA, innan-
borðs, nema IRA byrji afvopnun
fyrst. Sinn Féin segir hins vegar
ekkert í friðarsamkomulaginu sem
setji slík skilyrði fyrir þátttöku
flokksins.
■ Ögurstund/25
Tyrkneskur dómstóll dæmir leiðtoga Kúrda til dauða fyrir landráð
Hreyfing Ocalans hótar
nýrri hrinu ofbeldis
Imrali-eyju, Brussel, Strassborg, Washington. Reuters.
Reuters
MÓTMÆLENDUR halda á borða með mynd af Kúrdaleiðtoganum Abdullah Öcalan við tyrkneska sendiráðið
í Róm eftir að tyrkneskur dómstóll dæmdi hann til hengingar fyrir landráð.
VERKAMANNAFLOKKUR Kúrd-
istans (PKK) hótaði í gær að hefja
nýja hrinu ofbeldis í Tyrklandi eftir
að tyrkneskur dómstóll dæmdi
AbduÚah Öcalan, leiðtoga hreyfing-
arinnar, til dauða fyrir að stjóma
vopnaðri baráttu aðskilnaðarsinna
sem hefur kostað 29.000 manns lífið
á tæpum fimmtán ámm. Evrópu-
sambandið hvatti Tyrki tO að taka
ekki Öcalan af lífi og sagði að aftaka
myndi torvelda frekar tilraunir
þeirra til að fá aðild að sambandinu.
„Petta þýðir að við ráðumst á
efnahagsleg skotmörk. Stríðið mun
breiðast út innan Tyrklands," sagði
talsmaður Verkamannaflokks Kúrd-
istans í London.
Leiðtogi Útlagaþings Pakistans í
Brassel fordæmdi einnig úrskurð
dómstólsins og lýsti honum sem
„dauðadómi yfír öllum Kúrdum“.
Þjóðverjar, sem eru í forsæti í
ráðherraráði Evrópusambandsins,
hvöttu þing Tyrklands til að stað-
festa ekki dauðadóminn. Þá neituðu
stjómvöld í Bandaríkjunum, sem
aðstoðuðu Tyrki við að hafa hendur
í hári Öcalans, að svara spumingum
fréttamanna um dauðadóminn en
ítrekuðu þá afstöðu sína að Öcalan
væri hermdarverkamaður sem bæri
að sækja til saka.
Um 150 Kúrdar á Kýpur mót-
mæltu dauðadómnum með því að
grýta bandaríska sendiráðið í Nik-
ósíu. Um 100 Kúrdar og ítalir
reyndu einnig að ráðast á tyrkneska
sendiráðið í Róm en lögreglunni
tókst að stöðva þá.
Öryggiseftirlit var hert í evr-
ópskum borgum til að koma í veg
fyrir að óeirðir blossuðu upp meðal
Kúrda eins og þegar Öcalan var
handtekinn. Kúrdar söfnuðust
einnig saman í Moskvu, París,
Haag og Strassborg en ekki kom til
átaka.
Lamberto Dini, utanríkisráð-
herra Italíu, sagði að ítalir myndu
vísa máli Öcalans til Evrópuráðsins
til að reyna að hindra að hann yrði
hengdur. Evrópuráðið hvatti Tyrki
til að taka Öcalan ekki af lífi og
benti á að þeir hefðu lofað því á síð-
asta leiðtogafundi ráðsins 1997 að
afnema dauðarefsingu eða full-
nægja ekki dauðadómum. Talsmað-
ur utanríkisráðuneytisins í Ankara
sagði hins vegar að tyrknesk stjóm-
völd myndu ekki sinna ráðlegging-
um erlendra ríkja í máli Öcalans.
■ Nokkur ár gætu/21
AP
Eldur kviknar í veg-
göngum í Noregi
Osló. AP, Aftenposten.
Fjölmenn mótmæli
gegn Milosevic
Cacak, Pristina. Reuters, AP.
Þokast nær
stjórnar-
myndun
Jerúsalem, Matjayoun. AP, Reuters.
EHUD Barak, verðandi forsætis-
ráðherra Israels, hefur nú náð sam-
komulagi við fjóra stjórnmálaflokka
í stjómarmyndunarviðræðum, en á
miðnætti á morgun verður hann að
tilkynna opinberlega að hann sé fær
um að mynda samsteypustjóm fyrir
8. júlí. Enn á Barak þó eftir að
tryggja sér stuðning þriggja ann-
arra flokka til að stjómin hafi 77
þingsæti af 120.
í gær náði Barak samkomulagi
við flokk strangtrúaðra gyðinga
(UTJ), en síðustu daga hefur hann
einnig náð samkomulagi um stjórn-
armyndun við þrjá aðra flokka. Þeir
era vinstriflokkurinn Meretz, Israel
ba-Aliya, sem er flokkur innflytj-
enda frá Rússlandi, og Trúarlegi
þjóðarflokkurinn, sem hefur fimm
menn á þingi.
Likud-flokkurinn sleit á mánudag
stjómarmyndunarviðræðum við
Barak og hefur verðandi forsætis-
ráðherrann nú einbeitt sér að því að
fá bókstafstrúarflokkinn Shas til
samstarfs í samsteypustjóm. Þá
hefur Barak einnig leitað eftir sam-
starfi við Miðflokkinn og Þjóðarein-
ingarflokkinn.
TVEIR slökkviliðsmenn létu lífið í
sprengingu er þeir reyndu að ráða
niðurlögum elds er braust út í
veggöngum sem verið er að grafa í
Drammen, um 50 km frá Osló, höf-
uðborg Noregs, í gær. Að auki slös-
uðust fimmtán manns og eins er
saknað.
Granur leikur á að eldur frá
logsuðutækjum hafi borist í ein-
angranarefni sem notað er í göng-
unum. Þaðan er eldurinn talinn hafa
borist í dínamít sem notað var til að
sprengja fyrir göngunum. Dínamít-
ið sprakk og var sprengingin svo
öflug að rúður brotnuðu í nálægum
húsum. Að sögn vitna fylgdu minni
sprengingar í kjölfarið.
Flestir slökkviliðsmenn og
verkamenn er vinna að göngunum
vora við gangamunnann er spreng-
ingin varð, en nokkrir slökkviliðs-
menn voru inni í göngunum, sem
grafin hafa verið 200 metra inn í
klett við Brakeroya, norðan við
miðbæ Drammen. Að því er haft
var eftir starfsmönnum á bráða-
móttöku í Drammen slasaðist einn
alvarlega en fjórtán hlutu minni-
háttar meiðsl.
MIKILL mannfjöldi safnaðist í gær
saman í serbnesku borginni Cacak í
fyrstu mótmælaaðgerðunum í Júgó-
slavíu síðan átökunum I Kosovo-
héraði lauk. Yfir 10.000 manns
komu til mótmælafundarins og
krafðist fólkið lýðræðislegra um-
bóta í Júgóslavíu, að almennar
kosningar yrðu haldnar hið allra
fyrsta og að Slobodan Milosevic,
forseti landsins, segði af sér. For-
vígismenn mótmælanna, leiðtogar
stjómarandstöðuaflanna í Júgó-
slavíu, sögðu í gær að ráðgert væri
að halda fleiri slíka fundi um landið
allt á næstu misseram.
Mikil sprenging varð í Cacak um
það leyti sem stjórnarandstæðingar
fluttu ávörp sín og er hún rakin til
búnaðar sem júgóslavneski herinn
notar til æfinga. Aður en fundurinn
hófst höfðu stjómarandstæðingum
borist nafnlausar hótanir og höfðu
lögregluyfirvöld tjáð þeim að að-
gerðimar væru ólöglegar.
Þá vai- greint frá því í gær að
langferðabifreið með fjölda er-
lendra fréttamanna innanborðs
hefði verið stöðvuð af lögreglunni á
leiðinni til Cacak frá Belgrad.
Vuk Draskovic, sem gegndi stöðu
aðstoðarforsætisráðherra Júgó-
slavíu þai- til hann sagði af sér emb-
ætti um miðbik loftárása Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) á Júgó-
slavíu, sagði í gær að mótmælaað-
gerðirnar í Cacak væra tilgangs-
lausar. Þá sagði hann á blaða-
mannafundi í Belgrad að hann
myndi veita leiðtogum Júgóslavíu
færi á að bæta ráð sitt og stokka
upp í ríkisstjórn landsins.
-----------------
23 börn lát-
ast í eldsvoða
Seoul. Reuters.
AÐ minnsta kosti 23 börn létust í
eldsvoða sem upp kom í sumarbúð-
um í Hwasung, um 100 km frá
Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, í
gær.
Um 520 böm og leiðbeinendur
vora í húsinu er eldurinn braust út
laust eftii' miðnætti að staðartíma.
Óttast er að fleiri fómarlömb finnist
er líður á hjálparstarfið, að sögn
lögreglu. Auk hinna látnu slösuðust
tvö börn alvarlega.