Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ # 52 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 Dýraglens BREF TIL BLAÐSINS Cpy Jf-Æ. ow/ j? 1 ANP U)HEN THE PELICAN 5EE5 A FISH,HE 5WÖOP5 POWN ONTHE UJATER AMD 6RAB5 IT„ Og þcgar pelikaninn sér fisk Hrifsar.. steypir hann sér niður og hrifsar hann.. Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Pabbi pabbi Frá Ólafi H. Hannessyni: FURÐULEGUR áróður er rekinn á rás 1 í Ríkisútvarpinu í þættinum „I vikulokin" sem Þorfmnur Omars- son stjómar. Þar er stundaður endalaust óheftur áróður gegn virkjun vatnsfalla og uppbyggingu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni. I síðasta þætti, laugardaginn 26. júní, voru mætt umhverfisöfgasinn- inn Kristín Halldórsdóttir og ferða- mannaframleiðandinn Helgi Péturs- son. Það heyrðist reyndar ákaflega lítið eða ekld neitt í Helga þegar R- listinn ákvað að framleiða rafmagn á Nesjavöllum og eyðileggja það litla sem eftir var af ægifögrum hverum þar efst í fjallinu. Önnur spurning til Helga: Hvort er betra að virkja jökulár, án þess að skemma neitt, (sbr. Þjórsá ) til framleiðslu á hreinustu orku heims, rafmagni og eiga ísland fyrir ís- lendinga, eða fylla landið af milijón- um ferðamanna, líkt og sjá má á Spáni, Portúgal, Majorka og Kanarí? Verðum við Islendingar þá eins og innfæddir í þessum löndum, þjónar, skóburstarar, uppþvottarar eða sóparar á lágmarkslaunum? Helsta mál Þorfinns í þessum þáttum er verndun á eyðimörkinni norðan Vatnajökuls eftir uppskrift Ómars Ragnarssonar, hins frábæra fréttamanns, sem marga skemmti- legu delluna hefur fengið, en þessi er sú versta og er Ómar komið með þetta algjörlega á heiiann og nú hef- ur þetta smitast inn í þáttinn „I vikulokin11. I þáttinn koma nær eingöngu segir, segir vinstri sinnaðir fallistar, sem öfunda allt og alla og umhverfisöfgamenn af skoðanakyni Hjörleifs Guttorms- sonar, sem tafði álverið í Straums- vík í mörg ár með brögðum eins og „hækkun í hafi“ og fleiri slíkum með milljarðatapi fyrir þjóðarbúið en fyrirskipaði Fljótsdalsvirkjun í ráð- herratíð sinni í atkvæðaveiðum, en þykist nú ekki kannast við neitt. Hvers vegna er eingöngu fólk með háskólapróf úr gáfumanna-elít- unni nothæft í slíka þætti? Sjálf- stæðismenn eru sjaldan kallaðir til og eru því svo sem vanir, en hvers vegna eru framsóknarmenn aldrei kallaðir til. Þeir hafa þó orðið fyrir óvæginni ganrýni eins og í síðustu kosningum. Hvers vegna eru tals- menn Finns eða Sivjar, sem ausin eru dylgjum og rógi reglulega í þessum þáttum, aldrei kallaðir til? Finnur og Siv annast iðnaðar- og umhverfismál fyrir hönd þess meiri- hluta þjóðarinar sem vann sigur í síðustu kosningum. Skipta skoðanir þeirra engu máli? Og ein spuming til Ómars: Hvort er meira virði menn eða munir? Er menningin til fyrir mennina eða dauða hluti? Heldurðu að bóndinn sé að hugsa um fegurð landsins þegar hann er að bjarga sér og s£n- um? Heldurðu að íbúar í Babylon sem byggðu sjö borgir hverja ofan á aðra hafa verið að hugsa um fom- minjar? Nei, það er maðurinn sem skiptir máli, hitt er bara aska. ÓLAFUR H. HANNESSON, Snælandi 4, Reykjavík. VR greiðir dagpen- inga í 90 daga vegna veikinda barna Frá Magnúsi L. Sveinssyni: SÉRA Þórhallur Heimisson, prest- ur í Hafnarfjarðarldrkju, skrifar bréf í Morgunblaðið 25. júní sl., þar sem hann bendir réttilega á, að „á hinum íslenska vinnumarkaði hafa foreldrar aðeins rétt á sjö daga or- lofi vegna veikinda barna“. Séra Þórhallur bendir á, að hjá hinum Norðurlandaþjóðunum hafi foreldr- ar rétt á 90-120 daga veikindafríi. Af þessu tilefni vil ég upplýsa, að sjúkrasjóður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur greiðir félagsmönnum sínum dagpeninga til foreldra í allt að 90 daga á ári, eftir að 7 daga samningsbundinn veikindaréttur hjá atvinnurekanda lýkur, í þeim til- fellum er félagsmaður missir launa- tekjur vegna veikinda bams síns, yngri en 16 ára. Það er Ijóst, eins og séra Þórhall- ur bendir á, að greiðsla í sjö daga nær ekki langt, þegar um alvarleg veikindi er að ræða, eða þegar mörg börn em í heimili. Foreldrar og að- standendur bama, sem eiga við langvarandi veikindi að stríða, standa jafnan frammi fyrir miklum vanda. Oftast er það svo, að þetta unga fólk er að berjast við að eign- ast húsnæði til að tryggja fjölskyld- unni öryggi og er því verulega skuldsett og báðir foreldrar verða að vinna úti til að afla heimilinu tekna. Við það að annað foreldri verður að hætta að vinna úti til að sinna veiku bami og launatekjur falla niður, getur allur fjárhagur heimilisins farið úr skorðum og framtíðaráætlunum um ömggan samastað fyrir fjölskylduna er stefnt í hættu. Ekki þarf að lýsa þeirri örvæntingu sem þessu fylgir og bætist ofan á áhyggjur foreldra af veikindum bamsins. VR hefur markvisst verið að auka aðstoð við félagsmenn sína sem verða fyrir tekjumissi eða óvæntum útgjöldum vegna veikinda eða slysa. Greiðsla dagpeninga í 90 daga til foreldra vegna veiks barns, er einn liður félagsins í þeirri aðstoð. Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavikur. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.