Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Hombach verður Balk-
anskagaerindreki ESB
Hatrömm deila í Frakklandi um
val fegurðardrottningar
Hattar og bikiní sögð
til marks um svindl
HATRAMMRI deilu um val feg-
urðardrottningar Frakklands
lauk í gær, þegar dómari í París
úrskurðaði að ungfrú Frakkland,
Mareva Galenter, héldi titlinum,
þrátt fyrir háværar ásakanir um
að maðkur hefði verið í mysunni
við kjör hennar.
Hópur sem nefnir sig Þjóðar-
samtök um gagnsæi við kjör ung-
frúr Frakklands (ANTEN) hefur
farið fyrir herferð um allt landið
gegn Galenter, sem var kjörin
fegurðardrottning Frakklands í
desember á síðasta ári sem full-
trúi Tahiti. Um tólf milljónir
manna fylgdust með beinni sjón-
varpsútsendingu frá keppninni,
og í símakjöri áhorfenda var fúll-
trúi Berry-héraðs í mið-Frakk-
landi, Amelie Rudler, hlut-
skörpust. Tíu manna dómnefnd
keppninnar, sem hafði tvöfalt
meira vægi en áhorfendur, valdi
hins vegar Galenter.
Síðar kom í ljós að amma feg-
urðardrottningarinnar hefur búið
til hatta fyrir einn af skipuleggj-
endum keppninnar, Genevieve de
Fontenay, og ein af keppendunum
setti í kjölfarið fram ásakanir um
að úrslit hefðu verið ákveðin fyrir-
fram.
Um þetta skapaðist hatrömm
deila í Frakklandi, einkum eftir
að æsifréttablöð höfðu komist á
snoðir um að formaður dóm-
nefndarinnar, söngvarinn kunni
Sacha Distel, væri tengdur Ga-
lenter í gegnum Qarskyldan ætt-
ingja á Tahiti. ANTEN-hópurinn
fór fremstur í flokki gagnrýnenda
Reuters
UNGFRÚ Frakkland, Mareva
Galenter, veifar til áhorfenda
eftir að hún var krýnd í des-
ember á siðasta ári.
og fullyrti að ungfrú Tahiti hefði
náð óeðlilegu forskoti á hina
keppendurna með því að sitja fyr-
ir í bikiníi á mynd sem birtist í
víðlesnum sjónvarpsvísi. I keppn-
inni sjálfri máttu keppendur að-
eins koma fram í sundbol.
Skipuleggjendur keppninnar
vísuðu öllum ásökunum um svindl
á bug, og fullyrtu að gagnrýnend-
ur væru drifnir áfram af öfund.
Genevieve de Fontenay þvertók
fyrir að hattar ömmunnar hefðu
gert útslagið um sigur Galenter,
og ýjaði að því að faðir stúlku sem
hafnað var um þátttöku í keppn-
inni hefði komið mótmælunum af
stað.
Rio de Janciro, Bonn. Reuters.
LEIÐTOGAR
Evrópusam-
bandsins (ESB),
staddir á fundi
með leiðtogum
Rómönsku Amer-
íku í Rio de Jan-
eiro í Brasilíu,
komust undir
miðnætti í fyrra-
kvöld að sam-
komulagi um að
útnefna Þjóðverjann Bodo Hombach
sérlegan erindreka sambandsins í
málefnum Balkanskaga, en verkefni
hans mun fyrst og fremst verða að
stýra gerð stöðugleikasáttmála fyrir
þennan stríðshrjáða hluta álfunnar.
Slíkur stöðugleikasáttmáli er
STJÓRNMÁLAMAÐUR sem held-
ur framhjá eiginkonu sinni, hljóðrit-
uð símtöl, málshöfðun konu að nafni
Jones og óháður saksóknari sem
sést ekki fyrir. Þetta hljómar svo
sannarlega kunnuglega, en hér er þó
ekki átt við Lewinsky-málið og Bill
Clinton, ’neldur er um að ræða
Henry Cisneros, fyrrverandi hús-
næðisráðherra Bandaríkjanna.
Cisneros þarf ekki að óttast ákæru
til embættismissis, en hann á hins
vegar yfir höfði sér allt að 90 ára
fangelsi fyrir að bera ljúgvitni í yfir-
heyrslum um hjákonu sína.
Henry Cisneros gegndi embætti
borgarstjóra í San Antonio í Texas
árið 1988, þegar hann viðurkenndi
að orðrómur um að hann hefði hald-
ið framhjá eiginkonu sinni væri
sannur. Ástkona hans var Linda Jo-
nes, sem hafði stjórnað fjáröflun
fyrir kosningabaráttu hans. „Ég er
ekki gerður úr plasti og vírum, held-
ur blóði, holdi og tilfinningum,“
sagði Cisneros við fréttamenn. Öld-
umar lægði eftir að borgarstjórinn
hafði gert hreint fyrir sínum dyrum,
og svo virtist sem Cisneros hefði
sloppið vel. En til allrar óhamingju
fyrir hann reyndist svo ekki vera.
I september næstkomandi, rúm-
um ellefu árum síðar, mun Cisneros
koma fyrir rétt, sakaður um sam-
særi, ljúgvitni, yfirhylmingu og
hindrun réttvísinnar. Snýst málið
um peningagreiðslur til fyrrverandi
ástkonu hans, sem hann sagði ósatt
til um í reglubundnum yfirheyrslum
bandarísku alríkislögreglunnar
(FBI) þegar hann var skipaður í
ráðherraembætti. Cisneros viður-
kenndi reyndar að hafa gefið Jones
peninga, en laug til um upphæðina
og hvatti hana til að segja einnig
ósatt.
„Verst geymda leyndarmálið
í San Antonio"
Margir íbúa San Antonio áttu von
á að ferill borgarstjórans væri á
enda þegar orðrómur tók að kvisast
út um framhjáhald hans árið 1988.
Um eins árs skeið var sambandið
nefnt „verst geymda leyndarmálið í
San Antonio", og Cisnero var heldur
ekkert að leyna tilfinningum sínum.
Hann hélt jafnvel lokaða fundi með
ritstjórum tveggja stærstu dagblað-
anna í borginni, þar sem hann sagði
þeim frá angist sinni og samvisku-
biti vegna framhjáhaldsins. Hann
trúði þeim fyrir því að erfiðleikar
hefðu verið í hjónabandi hans, en
Jones hefði fært honum hamingju
og gleði á ný.
hugmynd Þjóðverja og hefur að
markmiði að styrkja lýðræði og ör-
yggi í löndum Balkanskagans, að
vissu marki með Marshall-áætlun-
ina að fyrirmynd, sem hjálpaði
Þýzkalandi og fleiri löndum Évrópu
úr rústum síðari heimsstyrjaldar.
Ennfremur ákváðu leiðtogarnir að
útnefna Austurríkismanninn Wolf-
gang Petritsch sérlegan erindreka
alþjóðasamfélagsins í Bosníu.
Schröder skiptir
um „hægpá hönd“
Hombach hefur frá því Gerhard
Schröder tók við kanzlaraembættinu í
Þýzkalandi sl. haust gegnt stöðu yfir-
manns kanzlaraskrifstofunnar, en sá
sem gegnir þeirri stöðu er jafnan
Henry Cisneros
Samband Cisneros við ljóshærðu
samkvæmisgyðjuna Lindu Jones olli
nokkru írafári, einkum meðal kaþ-
ólskra stuðningsmanna hans af
mexíkönskum ættum, sem voru
hneykslaðir á því að hann sviki eig-
inkonu sína, Mary Alice, sem er af
suður-amerísku bergi brotin og afar
trúrækin. En Cisneros hlýddi hjarta
sínu, hætti afskiptum af stjórnmál-
um í San Antonio og hóf sambúð
með Jones. Sambandi þeirra lauk
ári síðar, þegar Cisnero ákvað að
snúa aftur til eiginkonu sinnar.
Hjónin eiga son, nefndan í höfuðið á
páfanum, John Paul, sem fæddist
með hjartagalla og þurfti á mikilli
umönnun að halda. Samviskan nag-
aði Cisnero svo mjög að hann áttaði
sig á því að hann gæti ekki snúið
baki við fjölskyldu sinni.
Yfirgefín ástkona í hefndarhug
Jones stóð eftir atvinnulaus, slypp
og snauð, og fullyrti að enginn vildi
ráða hana í vinnu eftir að samband
hennar við borgarstjórann varð op-
inbert. Cisneros samþykkti að veita
henni lífeyri þangað til dóttir hennar
útskrifaðist úr menntaskóla. Jones
heldur því fram að hann hafí heitið
henni 4.000 dollurum (um 300.000
ísl. kr.) á mánuði. Henni bárust
greiðslur í hverjum mánuði fyrsta
árið sem Cisnero gegndi embætti
húsnæðisráðherra, en haustið 1993
hætti hann að leggja fé inn á reikn-
ing hennar. Ráðherrann, sem þurfti
að sjá fyrir tveimur dætrum í
menntaskóla og syni sem þurfti á
mikilli læknishjálp að halda, hafði
ekki efni á að halda Jones uppi líka.
En Linda Jones hafði notað pen-
ingana til að kaupa sér hús í
Lubbock í Texas, og þegar greiðsl-
nánasti samstarfsmaður kanzlarans.
Hombach, sem er lýst sem SPD-
manni af gamla skólanum, hafði m.a.
verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki
sinnt sem skyldi því hlutverki sínu að
miðla málum milli stjórnarflokkanna,
jafnaðarmannaflokksins SPD og
Græningja, né heldur samskiptum
kanzlaraembættisins og þingsins. Að
Schröder skyldi tilnefna hann í
Balkanskagaembættið þótti til marks
um að kanzlaranum hafi þótt tíma-
bært að „skipta um hægri hönd“, m.a.
vegna þessarar gagnrýni.
Búizt er við að Frank-Walter
Steinmeier, staðgengill Hombachs
sem yfirmanns kanzlaraski’ifstof-
unnar, verði skipaður eftirmaður
hans.
urnar frá Cisneros hættu að berast
gat hún ekki lengur staðið skil á af-
borgunum. Hún greip til þess ráðs í
júh' 1994 að kæra fyrrverandi ást-
mann sinn fyrir samningsrof, og
seldi slúðurþætti í sjónvarpi frásögn
sína fyrir 15 þúsund dollara. Hún
gerði einnig opinberar upptökur af
símtölum þeirra skötuhjúa, þar sem
fram kom að Cisneros hafði hvatt
hana til að segja FBI-mönnum að
greiðslumar hefðu verið lægri en
þær raunverulega voru. Jones
spurði hverju þetta sætti, og hann
svaraði því að í FBI væri allt mor-
andi af teprulegum mormónum og
sögusmettum, sem væru uppteknir
af því að þefa uppi kynlífshneyksli.
Cisneros fyrir rétt
og Jones í fangelsi
Cisneros fullyrti við hinar reglu-
bundnu yfirheyrslur FBI að greiðsl-
urnar til Jones hefðu aldrei farið yf-
ir 10 þúsund dollara á ári (740.000
ísl. kr.), en raunin var sú að greiðsl-
urnar voru allt að 30 þúsund dollur-
um hærri. Hann gaf síðar þá skýr-
ingu á lygunum að hann hefði ekki
viljað valda eiginkonu sinni frekari
sálarkvölum, og að hann hefði óttast
að þessi háa upphæð vekti óþægileg-
ar spurningar.
Með þessu kom Cisneros sér í
veruleg vandræði sem hann hefði
getað komist hjá. Það var ekkert
ólöglegt við greiðslurnar sjálfar, en
þegar hann laug til um þær í yfir-
heyrslum FBI gerði hann sig sekan
um glæp.
Þegar málið komst í hámæli vegna
frásagnar Jones var skipaður óháður
saksóknari, eins og Kenneth Starr í
Lewinsky-málinu, til að rannsaka
Cisneros, sem ákvað í kjölfarið að
sækjast ekki eftir ráðherraembætti
næsta kjörtímabil. Þrjátíu manns
unnu í fullu starfi við rannsóknina,
sem tók þijú ár og kostaði 9 milljónir
dollara (um 650 milljónir ísl. kr.), og
leiddi loks til ákæru á hendur Cisner-
os. Verði hann fundinn sekur í réttar-
höldunum sem hefjast í september,
gæti hann átt yfir höfði sér allt að 90
ára fangelsi.
En sagan endaði líka illa fyrir
Lindu Jones. Hún var sjálf ákærð
fyrir að bera ljúgvitni í yfirheyrslum
FBI, meðal annars fyrir að hafa
ekki viðurkennt að upptökurnar sem
hún afhenti þeim væru klipptar til, í
þeim tilgangi að láta hana sjálfa
koma betur út. Hún játaði sig seka
um svik, samsæri, peningaþvætti og
hindrun réttvísinnar, og afplánar nú
þriggja og hálfs árs fangelsisdóm.
Þingeyri við Dýrafjörð
er einstaklega fallegt sjávarkauptún á Vestfjörðum, með ríka menningarlega
hefð og langa sögu. Þar bjuggu alþýðlegir höfðingjar, aristókratar og þótti
höföingsbragur þar meira áberandi en víða annars staðar. Enn er þessi andi
lifandi á staðnum. Frá upphafi hafa íbúarnir lifað á því sem sjórinn hefur gefið
af sér. Nú er aðal viðfangsefni dagsins hvort þeir fá að veiða sinn eigin fisk,
sem syndir upp í landsteina og inn á Dýrafjörð, til vinnslu á Þingeyri eða ekki.
Um það snýst framtíð Þingeyrar í augnablikinu, hvað sem öðru líður. í
fjölmiöladansinum síðustu vikur hefur lítið veriö talað um hinn sögulega
bakgrunn og það góða mannlíf sem enn er til staðar á Þingeyri í Dýrafirði.
Vissir þú
° að Þingeyri i Dýrafirði er einn veðursælasti staður landsins og garðarnir í
þorpinu einhverjir þeir fallegustu á Vestfjörðum og þó víðar væri leitað?
° að nútíma íþróttaæfingar hér á landi hófust einna fyrst á Þingeyri?
° að amerískir lúðuveiðimenn, allt að 200 manns á ári, frá Gloucester í
Massachusetts, höfðu aðalbækistöö á Þingeyri frá 1885-1897?
0 að þá kynntust Þingeyringar, líklega fyrstir íslendinga, gúmmístígvélum
og hnefaleikum?
° að afi núverandi forseta lék á sleðabásúnu um aldamótin á Þingeyri, í
hornaflokki eða „Big band“ þeirra tíma, einn sá allra fyrsti hér á landi?
° aö elsta starfandi bridgefélag Vestfjarða er staðsett á Þingeyri?
° að Þingeyringar eru miklir húmoristar?
Um þetta og ótal margt fleira úr sögu Þingeyrar, sjávarþorpsins sem er nú á
hvers manns vörum, getur þú lesið í ritröðinni Mannlíf og saga fyrir vestan.
Hún fæst i bókabúðum um land allt og einnig beint frá forlaginu.
i-----------------------------------------------------------------1
j Pöntunarlisti
{ Undirritaður óskar eftir að fá send eftirtalin hefti í ritröðinni Mannlíf og j
j saga fyrir vestan:
j □ 1. hefti □ 2. hefti \^\3. hefti Q4. hefti □ 5. hefti □ 6. hefti. j
j □ Ég óska eftir áskrift
j Nafn____________________________________________________________j
j Heimilisfang____________________________________________________j
j Verö hvers heftis er kr. 1.000, burðargjaldsfrítt. Áætlað er að tvö hefti j
j komi út á ári.
I_________________________________________________________________I
Vestfirska foriagið, Hrafnseyri,
471 Þingeyri.
Sími og fax 456 8260.
Netfang: jons@snerpa.is.
Fyrrverandi húsnæðisráðherra Bandaríkjanna sagði
ósatt um hjákonu sína í yfírheyrslum
Á yfír höfði sér allt
að 90 ára fangelsi