Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 21 Tyrkneskur dómstóll dæmir Öcalan til dauða fyrir landráð Nokkur ár gætu liðið þar til aftakan fer fram Reuters OCALAN hlýðir á úrskurð dómara í gær, en Öcalan var dæmdur til dauða fyrir landráð. Reuters ÆTTINGJAR tyrkneskra hermanna, sem látist hafa í átökum við skæruliðasveitir Kúrda, bíða úrskurðar yfir Öcalan í gær. Imrali-eyju, Ankara, London. Reuters. TYRKNESKUR dómstóll dæmdi í gær Abdullah Öcalan til dauða fyrir að stjórna 14 ára aðskilnaðarbar- áttu Kúrda sem hefur kostað 29.000 manns lífið. Dauðadómurinn kom ekki á óvart en fréttaskýrendur sögðu að margir mánuðir og jafnvel nokkur ár gætu liðið þar til dómn- um yrði fullnægt. Öcalan sýndi engin viðbrögð og stóð með krosslagðar hendur fyrir aftan bak í skotheldu glerbúri rétt- arsalar á tyrknesku fangelsiseyj- unni Imrali þegar dómarinn, Turgut Okyay, dæmdi hann til hengingar fyrir landráð. Fyrstu við- brögð tyrknesku þjóðarinnar ein- kenndust hins vegar af miklum til- finningahita og kröfum um dómnum yrði fullnægt en í Vestur-Evrópu óttuðust menn að stuðningsmenn Öcalans gripu til ofbeldisaðgerða í evrópskum borgum. „Hann hefur myrt þúsundir sak- lausra manna án tillits til þess hvort um var að ræða börn, konur eða aldrað fólk,“ sagði dómarinn, sem var klæddur svartri skikkju með skarlatsrauðum kraga. „Starfsemi hans stefndi landinu í alvarlega og bráða hættu.“ Eftir dómsuppkvaðninguna var Öcalan færður inn í klefa sinn og tyrkneski þjóðsöngurinn var leikinn í réttarsalnum. Mæður tyrkneskra hermanna, sem féllu í átökum við kúrdíska aðskilnaðarsinna, héldu á myndum af sonum sínum. „Ég tel mig hafa barist fyrir ein- ingu landsins og frelsi“ Réttarhöldin yfir Öcalan höfðu staðið í mánuð og hann hafði ýmist lýst yfir hollustu við lýðveldið sem hann barðist gegn eða hótað mann- skæðum hefndaraðgerðum af hálfu stuðningsmanna sinna ef hann yrði hengdur. Hann bauðst til að sldpa stuðningsmönnum sínum að hætta vopnaðri baráttu sinni í suðaustur- hluta Tyrklands ef hann yrði ekki dæmdur til dauða en sagði að 5.000 Kúrdar væru reiðubúnir að fóma lífi sínu í sprengjutilræðum ef hann yrði hengdur. „Ég fellst ekki á landráðsá- kæruna," sagði Öcalan í stuttu ávarpi áður en dómurinn var kveð- inn upp. „Ég tel mig hafa barist fyr- ir einingu landsins og frelsi...“ Öcalan sýndi engin merki geðs- hræringar meðan réttað var í máli hans. Hann kom jafnt bandamönn- um sínum sem óvinum á óvart með því að viðurkenna að hann bæri ábyrgð á mörgum dauðsfóllum vegna baráttu sinnar gegn Tyrkj- um. „Ég deili með ykkur þjáning- unni,“ sagði hann eitt sinn og hneigði sig fyrir grátandi konum sem héldu á myndum af látnum son- um sínum í réttarsalnum. Hann horfði samt sjaldan á þær og var yf- irleitt niðursokkinn í eigin hugsanir eða hlustaði með athygli á dómar- ana og lögfræðingana. Togstreita við Evrópusambandið Mál Öcalans hefur lengi valdið togstreitu milli Tyrklands og Evr- ópusambandsins, sem Tyrkir segja hafa hafnað aðildarumsókn þeirra með lítilsvirðingu. Þjóðverjar hafa sagt að verði Öcalan hengdur dragi það úr líkunum á.því að Tyrkir fái aðild að Evrópusambandinu og Ital- ir hafa tekið harða afstöðu gegn dauðarefsingum út um allan heim. ítalir og Þjóðverjar deildu við Tyrki seint á síðasta ári þegar Öcalan var handtekinn á flugvelli í Róm eftir að hafa neyðst til að fara frá Sýrlandi vegna þrýstings Tyrkja. ítalir neituðu að framselja hann til Tyrklands og Þjóðverjar vildu ekki fylgja eftir alþjóðlegri handtökutilskipun sem þeir höfðu áður gefið út á hendur Kúrdaleið- toganum. Öcalan flúði þá til Rúss- lands og Grikkir laumuðu honum þaðan í gríska sendiráðið í Nairobi en útsendarar tyrknesku leyni- þjónustunnar rændu honum og fluttu hann með flugvél til Tyrk- lands í febrúar. Þorri Tyrkja virðist nú hlynntur því að dauðadómnum verði fullnægt og líklegt er að aftakan fari fram á Imrali-eyju, þar sem Öcalan hefur verið haldið frá því hann var hand- tekinn. Talið er þó að ganga hans að gálkanum verði löng og hæg. Fáir Tyrkir efast um að Öcalan verði tekinn af lífi. „Ef hann verður ekki hengdur kasta ég mér í Marm- arahaf," sagði móðir tyrknesks her- manns sem féll í átökum við Kúrda. Máli hans verður þó fyrst skotið til áfrýjunardómstóls í Tyrklandi og staðfesti hann dóminn í sumar þarf þingið að samþykkja sérstök lög til að heimila aftökuna. Þjóðernissinn- ar styrktu stöðu sína í þingkosning- unum í apríl, meðal annars vegna handtöku Öcalans, og talið er nán- ast öruggt að þingið samþykki lögin og heimili fyrstu henginguna í Tyrklandi í fimmtán ár. „Evrópa er paradís hermdar- verkamanna" Líklegt er að Öcalan skjóti mál- inu til Mannréttindadómstóls Evr- ópu heimili þingið aftökuna. Sá dómstóll er ekki þekktur fyrir skjóta afgreiðslu mála og áfrýjunin gæti tekið sex til átján mánuði jafn- vel þótt hún fengi forgangsmeðferð. Mannréttindadómstóllinn gæti kveðið upp úrskurð um hvort hand- taka Öcalans hefði verið lögmæt og hvort mál hans hefði fengið sann- gjama meðferð í Tyrklandi. Tyrkir hafa skuldbundið sig til að virða úr- skurði dómstólsins. Úrskurði Mannréttindadómstóll- inn Öcalan í vil er viðbúið að við- brögð Tyrkja verði mjög harkaleg. Hurriyet, söluhæsta dagblað Tyrklands, birti í vikunni sem leið fréttaskýringu sem endurspeglar afstöðu Tyrkja til Evrópusam- bandsins. ,AHt Öcalan-málið hefur verið mjög gagnlegt fyrir okkur! Við höfum séð raunverulega ásjónu Evrópu,“ skrifaði fréttaskýrandi blaðsins, Emin Colasan. „Við höfum séð þann lævísa fjandskap sem álf- an hefur sýnt tyrknesku þjóð- inni... Hin siðmenntaða Evrópa er paradís hermdai-verkamanna.“ 'V.AN^ Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. júlí 1999 er 27. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 27 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.466,30 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1999 til 10. júlí 1999 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 12. júlí 1999. Reykjavík, 30. júní 1999 SEÐLABANKIÍSLANDS Yuksel Soylemez, tyrkneskur sérfræðingur í utanríkisstefnu Tyrkja, telur þó að almenningi í Tyrklandi sé ekki eins umhugað um að dauðadómnum verði fullnægt og fjölmiðlunum og háværustu þjóð- ernissinnunum. „Öcalan er glæpa- maður en það þjónar einfaldlega ekki hagsmunum Tyrklands að hengja hann. Ef til vill er það ósk- hyggja en ég hygg að því lengur sem málið dragist þeim mun meiri verði líkumar á því að almenningsá- litið breytist.“ TO eru einnig tyrkneskir kaup- sýslumenn sem óttast að aftaka verði tfi þess að Tyrkir bíði álits- hnekki erlendis, átökin í Kúrdahér- uðunum dragist á langinn og landið fjarlægist Evrópusambandið frek- ar. Aftökunni slegið á frest? Nokkrir fréttaskýrendur spáðu því að Evrópuríkin myndu mót- mæla dauðadómnum harðlega í fyrstu en draga síðan úr gagnrýn- inni. „Búast má við venjulegum formlegum mótmælum, en ríkis- stjómirnar vilja halda tengslum sín- um við Tyrkland, einkum í öryggis- málum, enda hafa átökin í Kosovo varpað skæra ljósi á þýðingu Tyrkja sem bandamanna,“ sagði Philip Robins, sérfræðingur í mál- efnum Tyrklands við St Anthony’s College í Oxford. „Líklegt er að öðra máli gegni um almenningsálit- ið í Evrópu. Dómurinn mun styrkja það viðhorf að Tyrkland sé í raun ekki Evrópuríki og ekki hæft til að ganga í Evrópusambandið. Óháð samtök, mannréttindahreyfingar og stofnanir eins og Evrópuþingið era líklegar tO að mótmæla af meiri krafti.“ Nokkrir fréttaskýrendur í Evr- ópu sögðust telja að Tyrkir myndu fresta því í að minnsta kosti tvö ár að fullnægja dauðadómnum í von um að kúrdískir aðskOnaðarsinnar dragi úr skærauhemaði sínum á meðan Öcalan eigi aftöku yfir höfði sér. ALOE VERA GEL hreint ALOE VERA húðgel Nærandi, styrkjandi og rakagefandi. Naturlægemiddel Útsölustaðir: Stella Bankastræti, Hygea Kringlunni, Kaupf. Skag- firðinga, Stjörnuapótek Akureyri, Hilma Húsavík, Vestmannaeyja- apótek, Laugarnesapótek, Snyrti- vöruverslunin Glæsibæ. Einnig fæst ALOE VERA sjampó fyrir hár og húð, lotion, krem, varasalvar 2 gerðir, sólkrem, fljótandi sápa með pumpu. *Creme Xtreme* dag og næturkrem. Lotion, 500 ml brúsi með pumpu. NYTT-NÝTT deodorant krem deodorant spray Bankastræti 3, sími 551 3635. Póstkröfusendum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.