Morgunblaðið - 30.06.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 9
FRÉTTIR
Steingrímur Hermannsson afhenti forsætisráðherra
áskorun vegna Fljótsdalsvirkjunar
Meiri deilur fyrirsj áanlegar
fari ekki fram umhverfismat
Morgunblaðið/Þorkell
STEINGRIMUR Hermannsson, formaður Umhverfisverndarsamtaka
Islands, afhenti Davíð Oddssyni forsætisráðherra áskorunina að við-
stöddum Hilmari Malmquist, stjórnarmanni í Náttúruverndarsamtök-
um Islands, Kára Kristjánssyni, fulltrúa Félags um verndun hálendis
Austurlands, og Gunnari H. Hjálmarssyni, formanni Samtaka úti-
vistarfélaga.
STEINGRÍMUR Hermannsson,
formaður Umhverfisverndarsam-
taka Islands, sagði, um leið og hann
afhenti Davíð Oddssyni forsætisráð-
heiTa áskorun um að ríkisstjórnin
léti meta umhverfisáhrif fyrirhug-
aðra framkvæmda við Fljótsdals-
virkjun, að fulltrúar þeirra 32 um-
hverfis-, útivistar- og hagsmunasam-
taka og ferðaþjónustufyrh’tækja sem
að áskoruninni standa óttist að ef
Eyjabakkar verði virkjaðir án þess
að fram fari lögformlegt umhverfis-
mat þá verði um það meiri deilur en
áður hafa verið um slíkar fram-
kvæmdir hér á landi. Fulltrúar
þriggja annarra samtaka voru við-
staddir afhendinguna.
I yfirlýsingunni eru Eyjabakkar
sérstaklega nefndir og segir að þeir
séu „dýrmætt gróðurlendi og ein-
stakt griðland fugla. Það yrði óbæt-
anlegt tjón fyrir komandi kynslóðir
ef þeim yrði sökkt, auk þeirrar nei-
kvæðu ímyndar, sem það myndi
skapa íslandi á alþjóðavettvangi.
Slík gjörð væri í andstöðu við sam-
þykktir Ríóráðstefnunnar og sátt-
málann um verndun votlendis
(Ramsar), sem Island er aðili að.“
Mál ríkisstjórnarinnar allrar
Davíð Oddsson sagðist myndu
kynna áskorunina á næsta ríkis-
stjórnarfundi. Hann sagði jafnframt
að þó að málið heyrði að mestu undir
tvö eða þrjú fagráðuneyti þá væri
það af þeirri stærðargráðu að það
snerti ríkisstjórnina alla.
Steingrímur Hermannsson sagði
að fulltrúar samtakanna teldu afar
mikilvægt að lögformlegt umhverfis-
mat fari fram. Ennfremur sagðist
hann vilja leggja á það ríka áherslu
að á þeim fundum sem samtökin
hafa haldið um málið hafi komið
fram mikill stuðningur við það að
eitthvað sé gert á Austfjörðum og að
samtökin leggist síður en svo gegn
því. Ennfremur sagði hann að full-
trúar þeirra óttist að ef Eyjabakkar
verði virkjaðir án þess að fram fari
lögformlegt umhverfismat þá verði
um það meiri deilur en áður hafa
verið um slíkar framkvæmdir hér á
landi.
Steingrímur sagðist vona að ríkis-
stjórnin skoðaði málið nánar og að
sérstaklega yrði athugað til hvers
það muni leiða ef ekki fer fram lög-
formlegt umhverfismat. Hann sagð-
ist ekki í minnsta vafa um að ef ekki
yrði af mati þá muni íslensk stjórn-
völd fá miklar ádeilur frá erlendum
aðilum. Hann vildi taka það skýrt
fram að þessi áskorun væri alls ekki
lögð fram gegn atvinnumálum á
Austfjörðum né gegn ríkisstjórninni.
Hann sagðist jafnframt vonast til að
Landsvirkjun kannaði aðra kosti og
benti á orkulindir í formi jarðhita.
Kári Kristjánsson, fulltrúi Félags
um verndun hálendis Austurlands,
benti á að lítill tími væri til stefnu.
Hann sagði ennfremur að félagið
myndi verja Eyjabakka „frá þuml-
ungi til þumlungs“. Hann sagði að
félagið myndi fylgja áskoruninni fast
eftir og í bígerð væru fleiri aðgerðir
ef þessi skilaði ekki tilætluðum ár-
angri.
Hilmar Malmquist, stjórnarmaður
í Náttúruverndarsamtökum íslands,
sagði að talsmenn Norsk Hydro
hefðu sagt að þeir tækju ekki lokaá-
kvörðun um álver í Reyðarfirði fyrr
en í fyrsta lagi eftir ár. Ennfremur
sagði hann að lögformlegt mat á um-
hverfisáhrifum tæki að minnsta kosti
7-8 mánuði og því væri enn tími til að
láta málið fara hina lögformlegu leið.
Skoðunarferð um
stjórnarráðið
Afhendingin fór fram í stjórnar-
ráðshúsinu og að henni lokinni bauð
forsætisráðherra Steingrími Her-
mannssyni í skoðunarferð um húsið.
Aðspurður sagði Davíð að hann teldi
ekkert hafa orðið eftir af eigum for-
vera síns í húsinu nema þá helst
mottan sem hann stæði á og spurði
svo á móti hvort það hefði ekki verið
faðir Steingríms sem hefði fundið
upp máltækið „haltu þig á mott-
unni“. Eftir skoðunarferðina sagði
Steingrímur að hann hefði ekki kom-
ið í stjórnarráðshúsið eftir að endur-
bætur voru gerðar á því. Hann taldi
umbætur í öryggismálum hússins
hafa verið sérstaklega þarfar því að í
forsætisráðherratíð sinni hefði hver
sem er getað gengið inn af götunni
og inn á skrifstofu til sín.
Borgarráð
Hróker-
ingar hjá
Reykjavík-
urlista
VEGNA tímabundins brottflutn-
ings hefur Guðrún Agústsdóttir,
borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans,
óskað eftii- að víkja úr borgarstjórn
frá og með 1. ágúst nk. Að sögn
Gunnars Eydal, skrifstofustjóra
borgarstjómar, er ekki ljóst hver
tekur sæti Guðrúnar í borgar-
stjóm. Þá hefur borgarráð sam-
þykkt að Helgi Hjörvar taki við
formennsku í stjómkerfisnefnd af
borgarstjóra.
I samþykkt borgarráðs er gert
ráð fyrir að Árni Þór Sigurðsson
taki við formennsku af Guðrúnu í
skipulags- og umferðamefnd,
hverfisnefnd Grafarvogs og fram-
kvæmdanefnd um reynslusveitarfé-
lög. Sigrún Elsa Smáradóttir tekur
við í samstarfsráði Kjalarness, Örn-
ólfur Thorsson í menningarmála-
nefnd og Helgi Hjörvar verður
varamaður í stjóm Hásselby.
Varamaður taki sæti
Tekið er fram að varamaður
muni taka sæti Guðrúnar í borgar-
stjóm samkvæmt ákvæðum 24. gr.
sveitarstjórnarlaga eða næsti mað-
ur á lista. Að sögn Gunnars Eydal
er ekki ljóst hver tekur sæti Guð-
rúnar í borgarstjórn en fyrsti vara-
maður var Anna Geirsdóttir sem
tók við af Pétri Jónssyni, annar
varamaður er Arni Þór, þriðji vara-
maður er Kristín Blöndal sem tók
tímabundið sæti Steinunnar V.
Óskarsdóttur' eftir að Árni Þór
hafði beðist undan að taka það sæti
og fjórði varamaður er Guðrún
Jónsdóttir.
Islensk uppgötvun í alþjóðlegu timariti um kynsjúkdóma
Ný aðferð drepur
ky nsj úkdómavalda
Harður árekstur á Höfn
VÍSINDAMENN við Líffræðistofn-
un og Lyfjafræði lyfsala við Háskóla
íslands hafa fundið aðferð til að
drepa vfrusa og bakteríur sem valda
kynsjúkdómum, til dæmis alnæmi,
herpes og klamidíu, með hjálp fitu-
efnis sem sett er í sérstakt hlaup.
Fituefnið og hlaupið er einkum hægt
að nota til að koma í veg fyrir sýk-
ingu, en einnig er líklega hægt að
nota það til að vinna á húð- og slím-
himnusýkingum. Vísindamennirnir
eru í viðræðum við íslenskt fyrirtæki
um áframhaldandi þróun lyfsins, og
stefnt er að því að reyna að ná sam-
starfi við stór erlend lyfjafyrirtæki.
Sagt er frá uppgötvun íslensku
vísindamannanna í alþjóðlegu tíma-
riti um kynsjúkdóma og í frétta-
skeyti Reuters-fréttastofunnar. Þeir
sem unnið hafa að þróun hlaupsins
og fituefnisins eru dr. Halldór Þorm-
ar og Guðmundur Bergsson við Líf-
fræðistofnun Háskólans og dr. Þór-
dís Kristmundsdóttir, prófessor í
Lyfjafræði lyfsala við Háskólann.
Þróun lyfjahlaups hafln
í byijun þessa áratugar
Halldór segir að veiru- og bakter-
íudrepandi áhrif fituefnanna hafi
uppgötvast þegar hann var við rann-
sóknir í Bandaríkjunum upp úr 1980
á veirudrepandi áhrifum móður-
mjólkur. I byrjun þessa áratugar,
eftir að hann var kominn heim, tók
hann upp samstarf við Þórdísi um að
þróa lyfjahlaup til að nota með slík-
um fituefnum. Halldór og Guðmund-
ur leituðu að besta fituefninu til að
nota í þessu sambandi og komust að
þeirri niðurstöðu að monocaprín,
sem einkum er unnið úr kókoshnetu-
mjólk, væri hraðvirkast og dræpi
hvað mest af bakteríum og veirum.
Halldór var um skeið við rannsóknir
í Belgíu á áhrifum efnisins á HIV-
veirur, en aðstaða til slíkra rann-
sókna er ekki til hér á landi.
Halldór segir að til þess að hægt
verði að halda rannsóknum áfram og
nýta uppgötvunina þurfi að ná sam-
bandi við eitthvert stórt erlent fyrir-
tæki. „Frekari prófanir kosta mikið
fé. Það sem við þyrftum að gera í
framhaldinu er að athuga virknina á
dýralíkönum, fram að þessu hafa
prófanirnar að mestu leyti farið fram
í tilraunaglösum. Við höfum sérstak-
lega áhuga á að athuga hvort hægt
sé að hindra klamidíusmit í dýrum.“
Eiturvirkni athuguð
í leggöngum kanína
Halldór segir að þegar sé búið að
athuga eiturvirkni efnisins í slím-
himnum í leggöngum kanína. „Eftir
nokkuð langa meðferð var engin
merkjanleg eiturvirkni. Það bendir
til þess að það sé öruggt að prófa
þetta í takmörkuðum fjölda sjálf-
boðaliða í stuttan tíma, til að kanna
eiturvirkni."
„Þessi hlaup eru fyrst og fremst
hugsuð í fyrirbyggjandi skyni, en
það er ekkert sem útilokar að það
geti ekki líka verið notað til meðferð-
ar. Augljóslega ekki gegn HIV, en til
dæmis gegn húð- og slímhimnusýk-
ingum, bæði af völdum veira eins og
herpes, og líka baktería. Bakteríulyf-
in og herpeslyfin valda því miður oft
myndun ónæmra stofna sem ekki
svara lyfjunum, og þá væri gott að
hafa eitthvað annað sem hjálpar til.“
Halldór segir hægt að nota hlaupið
í fyrfrbyggjandi skyni fyrir samfarir.
„Það eru reyndar til slík hlaup á
markaðinum, en þau hafa reynst vera
eitruð við langvarandi notkun, og því
er alltaf verið að reyna að finna ein-
hver efni sem eru minna eitruð, eða
ekki eitruð. Við byggjum á því að
þetta er náttúrlegt efni; þó að það sé
ekki beint til staðar í mjólk, þá er
þetta efni sem finnst í líkamanum við
niðurbrot á fítuefnum.“
HARÐUR árekstur varð á Höfn í
Homafirði í gærmorgun er fólksbíll
og jeppi skullu saman við gatnamót
Víkurbrautar og Kirkjubrautar. Að
sögn lögreglu urðu engin veruleg
meiðsl á fólki, en ökumaður fólksbif-
reiðarinnar rifbeinsbrotnaði, en fékk
að fara heim eftir frekari rannsókn.
Áreksturinn vildi þannig til að
ökumaður fólksbifreiðarinnar, sem
er Mitsubishi Space Wagon, sinnti
ekki stöðvunarskyldu heldur ók yfir
gatnamótin og á jeppann, Mitsubis-
hi Pajero.
Jeppinn endaði úti í garði við ná-
lægt hús, en talið er að bremsur
bflsins hafi gefið sig við árekstur-
inn. Fólksbfllinn er ónýtur, en jepp-
inn er töluvert skemmdur, þó ekki
ónýtur, að sögn lögreglu.
jgíB Gleraugnaverslanir piiy
SJÓNARHÓLS “
HafnarQörður
S. 565-5970
Glæsibær
S. 588-5970
Líklega hlýlegustu
og ódýrustu gleraugnaverslanir
norðan Alpaijalla
SJÓNARHÓLL er frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi
Ss
Spurðu um tilboðin
Tölvur og tækni á Netinu
^mbl.is
Víðtækar rannsóknir hafa sýnt fram á mjög áhugaverðar niðurstöður fyrir notendur hins einstaka
fæðubótarefnis PROLOGIC
mm
i
^VQD vi
LÍKT
fæst í flestum apótekum og lyfjaverslunum um land allt.
F S O R K U