Morgunblaðið - 30.06.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.06.1999, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Margra ára draumur verður að veruleika er sýningarsalir og kaffíhús verða opnuð LJÓN gæta Engla og fólks. Morgunblaðið/Ásdís FRESKUR eru á veggjum árstíðasalarins sem eru gylltir að hluta. Englar og fólk í vindmön á Vallá Hjónin á Vallá opna á föstudag sýningarsali og kaffíhús undir nafninu Englar og fólk. Þannig hefur vindmön sem þau reistu við bæ sinn fyrir tólf árum tekið _____á sig óvenjulega mynd._ Erla Skúladóttir hitti húsfreyjuna sem unnið hefur að verkinu eins og huldukona í hól. MÆÐGURNAR Hjördís Gissurardóttir og Friðrika Hjördís Geirsdóttir með sólarhringssalinn í baksýn. Kjalarnes HJÖRDÍS Gissurardóttir og Geir Gunnar Geirsson hafa rekið eggjabú á Vallá í um 30 ár. Þau réðust í að reisa mön við íbúðarhús sitt fyrir tólf árum er ætlað var að þjóna sem skjól fyr- ir veðri og vindum. Fljót- lega kviknaði hugmynd um að nýta rýmið inni í mön- inni undir einhveija starf- semi. A þessum tíma rak Hjör- dís verslun og hugðist hafa lager og skrifstofur í rým- inu auk bflskúrs. Hún hætti verslunarrekstrinum og hugmyndin þróaðist í þá átt að láta handverk og list njóta sín í húsnæðinu. Mörgum hafði leikið for- vitni á að vita hvað væri í þessu sérstaka húsi á Kjal- arnesi. „Eg var í launa- . lausu starfí við að svara ferðamönnum sem komu að húsinu,“ sagði Hjördís. Því var tekin ákvörðun um að opna það almenningi. Fjölskyldan á Vallá er samhent og svipar nokkuð til þeirrar ímyndar sem italskar fjölskyldur hafa í huga margra. Hjördís segir fjölskyldumeðlimi oft hafa hátt, tala og mala, en þeir reyni að standa hlið við hlið i verkum súmm. Engl- ar og fólk eru hugarfóstur Hjördísar og dætra hennar tveggja, Hallfríðar Kristín- ar og Friðriku Hjördísar. Geir Gunnar og sonur hans sem ber sama nafn sinna hins vegar bústörfunum í sameiningu. Það kemur ekki á óvart að ftalia á stóran sess í hjarta Hjördísar og ítalskra áhrifa gætir nvjög í rýminu inni í möninni. „ítalir eru einstakir í hönn- un og handverki, þeir hafa eitthvað í sér sem fellur að minum smekk,“ sagði Hjördís. Englamyndir sem tákna sólarhringinn Rýmið greinist í tvo sali sem eru listaverk í sjálfu sér. Minni salurinn er til- einkaður árstíðunum en sá stærri er skreyttur engla- myndum sem tákna sólar- hringinn og staðurinn dregur nafn sitt af. Hann státar af átta metra loft- hæð og er loft hans klætt gifsi. Mánaðatákn, máluð á skifú, tengja svo salina. Fyrirhugað er að selja upp- stillingar sem komið verð- ur fyrir í sölunum tveimur. Hjördís annaðist alla hönnun á staðnum en naut aðstoðar góðs fólks við framkvæmdina. Hún inn- réttaði árstíðasalinn ásamt dóttur sinni og ítalskri vin- konu, Elenoru að nafni. Salinn skreyttu þær að ítalskri fyrirmynd, en freskur prýða þar veggi, sem eru víða gylltir með blaðgyllingu. Kaffihúsinu er ætlaður staður í salnum. Þar verð- ur boðið upp á kaffi og létt- ar veitingar sem Friðrika Hjördís hefur umsjón með. Hún stundar nám við virt- an veitingaskóla á Bret- landi. Luigi Gheri, ítalskur listamaður búsettur í Flórens, átti stóran þátt í að gera sólarhringssalinn MÁNAÐARTÁKN tengja sali árstíða og sólarhrings, ÞESSI litli engill hringir daginn inn. að því listaverki sem raun ber vitni. Hann hefur kom- ið þrisvar til landsins með- an á verkinu hefur staðið og sýnir því mikla alúð, að sögn Hjördísar. Sólar- hringssalurinn er ætlaður undir listsýningar af ýms- um toga, þó ekki hefð- bundnar málverkasýning- ar. Hljómburður í salnum er eins og best gerist og tilvalið að halda þar tón- leika. Hjördís er gullsmiður að mennt og segir líklegt að skartgripasýningar verði í sýningarsalnum í framtíð- inni. Hallfríður Kristín dóttir hennar Iagði gull- smíðina líka fyrir sig og maður hennar, Pesquale Lino, er einnig gullsmiður. Hjördísi klæjar í fingurna að hefja skartgripasmíði að nýju þegar hún sér þau vinna. Nánast allt innanstokks handunnið Húsnæði Engla og fólks var hannað smátt og smátt af fingrum fram en löngum tíma hefur verið varið í að gera það sem best úr garði. Hjördís segist enda mjög ánægð með árangur- inn. „AHt hér inni er ná- kvæmlega eftir mínu hjarta,“ sagði hún. Hjördís vekur athygli á því að nær allt innanstokks er hand- gert. Jón Hansson smiður sá um tréverkið í húsinu að mestu leyti en Ber- tolottchi-fjölskyldan frá Italíu annaðist þó tréút- skurð. Önnur ítölsk fjöl- skylda, Mariotti, sá um lýs- ingu í húsnæðinu. ítalir hafa því átt stóran þátt í að móta umhverfið á Vallá. „Ef fegurð Ítalíu er ekki við túnfótinn þarf að draga hana nær,“ sagði Hjördís. Það er ljóst að kostnaður við að innrétta vindmönina hefur verið mikill. Hjördfs seldi húseign sem hún átti við Öldugötu til að fjár- magna framkvæmdirnar og andvirði verslunarinnar sem hún seldi rann í þær að auki. Eins og fyrr grein- ir tók verkið langan tíma en það segir Hjördís hafa átt þátt í að koma í veg fyrir að hún steypti sér í miklar skuldir. „Áhætta er tekin í öllum rekstri en galdurinn við að reka fyrirtæki er fólginn í að sinna því sjálfur,“ sagði Hjördís, og það hyggst hún gera með dyggri aðstoð dætra sinna. Máluð egg á fyrstu sýningunni Afgreiðslutími Engla og fólks verður fyrst um sinn frá föstudegi til sunnudags frá klukkan eitt til sex. Að- gangseyrir er 500 krónur. Hjördís segist eiga eftir að sjá hvernig reksturinn þró- ast en hún sér fyrir sér að salirnir verði leigðir undir veislur og fundi í framtíð- inni auk hins hefðbundna rekstrar. Jacques Robuchon, franskur listmálari, ríður á vaðið með listsýningu í sól- arhringssalnum. Það er vel við hæfi því sérsvið hans er að mála á egg en rekstur eggjabús er enn stór þátt- ur starfseminnar á Vallá.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.