Morgunblaðið - 30.06.1999, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Ráðstefna Samtaka verslunarinnar - FÍS um vörudreifingu og samkeppnismál
„ÞAÐ væri útilokað að einni mat-
vörukeðju væri leyft að hafa yfír
40% markaðshlutdeild í Bretlandi
án þess að samkeppnisyfirvöld
gripu í taumana. Og að eitt fyrir-
tæki hafi nálægt 60% markaðshlut-
deild á matvörumarkaði eins og mér
skilst að sé hér á landi er beinlínis
ótrúlegt í mínum huga,“ sagði Bob
Lawrie sem starfar hjá bresku sam-
keppnisstofnuninni, Office of Fair
Trading, á ráðstefnu um vörudreif-
ingu og samkeppnismál sem Sam-
tök verslunarinnar - FÍS stóðu fyr-
ir í gær. Á ráðstefnunni talaði
einnig Espen Gjerde, markaðsstjóri
hjá Joh. Johansen í Ósló, sem er
stærsta heildverslun og birgðadreif-
ingarmiðstöð í Noregi, en hann
ræddi um uppbyggingu vörudreif-
ingar í Noregi með sérstakri
áherslu á hlutverk innflytjenda.
Bob Lawrie sagði að samkeppnis-
yfirvöld hefðu hafið sérstaka rann-
sókn vegna þess að fjórar matvöru-
keðjur hefðu samanlagt náð 50%
markaðshlutdeild. „Þetta er viða-
mesta rannsókn sem breska sam-
keppnisstofnunin hefur tekist á
hendur," sagði Bob Lawrie.
I máli sínu kom Lawrie m.a.
einnig inn á hvenær samkeppnisyf-
irvöld í Bretlandi teldu að einokun-
arstaða matvöruverslunarfyrirtæk-
is væri fyrir hendi vegna samruna.
„Ef til dæmis fyrirtæki með 30%
markaðshlutdeild myndi kaupa 20%
eignarhlut í öðru matvörufyrirtæki
sem hefði 20% markaðshlutdeild, þá
myndu samkeppnisyfirvöld líta svo
á að samruni hefði átt sér stað og
rétt væri að hlutast til um málið. Þó
að 20% eignarhluti væri ekki meiri-
Stífari viðmið
í Bretlandi
og
hluti væri þetta þó
nægilegur hluti til þess
að fyrirtækið sem
keypti gæti haft áhrif á
stefnu hins fyrirtækis-
ins,“ sagði Bob Lawrie.
Hann sagðist oft fá
símtöl frá framleiðend-
um sem selja til stór-
markaða, þar sem stór-
markaðir væru sakaðir
um slælegt við-
skiptasiðferði. „Vand-
inn er hins vegar sá að
enginn þessara aðila
hefur haft hugrekki til
að standa upp og gefa
út staðfesta yfirlýsingu
undir nafni um það til-
vik sem kvartað er yfir.
Meðan svo er ekki get-
um við ekkert gert.“
Samþjöppun í Noregi
Espen Gjerde hjá
Joh. Johansen sagði að á seinustu hvað varðar samþjöppun á markaðn-
árum hefði orðið bylting fremur en um. „Fyrir um það bil tíu árum voru
þróun á matvörumarkaði í Noregi 25-30 matvöruverslanafyrirtæki að
Noregi
Morgunblaðið/Þorkell
Bob Lawrie: Bresk samkeppnisyfirvöld
myndu ekki leyfa einu matvöruverslanafyrir-
tæki að hafa meira en 40% markaðshlutdeild.
keppa á markaðnum, en nú eru þau
fjögur sem ráða samanlagt nánast
öllum markaðnum. Það eru sam-
vinnuverslanir (,,Co-op“), Hakon-
gruppen, Reitan-gruppen og Nor-
disk-gruppen. Hann sagði einnig að
samvinna milli norrænna matvöru-
verslanafyrirtækja ykist nú mjög.
I máli Espen Gjerde kom m.a.
fram að hann teldi að til að heil-
brigð samkeppni ríkti á matvöru-
markaði í Noregi þyrftu helst að
vera sex en ekki fjórar tiltölulega
stórar matvöruverslanakeðjur að
keppa á markaðnum.
Hann sagði aðspurður að sam-
keppnisyfirvöld hefðu ekki hlutast
til um matvörumarkaðinn þrátt fyr-
ir þá samþjöppun sem þar hefði átt
sér stað. „En samkeppnisyfirvöld í
Noregi hafa sagt að ef markaðshlut-
deild eins fyrirtækis fer yfir 40% þá
verði því ekki leyft að gerast,“ sagði
Espen Gjerde.
Hann sagði að heildsalar hefðu
haft 34% hluta markaðarins árið
1991, en það hlutfall hefði aukist í
51% árið 1998, en 49% vara væri nú
dreift af framleiðendum.
I fyrirspumum á eftir sagði
Espen Gjerde að álagning heildsala
í Noregi hefði farið lækkandi á und-
anförnum ámm, en þó hefði enginn,
honum vitandi, lagt upp laupana.
Hann sagðist telja að gróft áætlað
væri kostnaður heildsölustigsins,
þ.e. lagerhalds og dreifingar, væri
um 6% í Noregi. „En það er aðeins
mín ágiskun, ég veit það ekki ná-
kvæmlega," sagði Espen Gjerde.
Aðspurður sagðist hann heldur ekki
vita til þess að neinar heildsölur
hefðu verið sameinaðar.
Norsk Hydro
til Bandaríkj-
anna
STJÓRN Norsk Hydro hefur
ákveðið að leggja 250 milljónir
norskra króna í byggingu álverk-
smiðju í Kentucky í Bandaríkjun-
um, að því er segir á fréttavef
Aftenposten. Upphæðin samsvarar
um 2,3 milljörðum i'slenskra króna.
Nýja verksmiðjan mun sérhæfa
sig í álbræðslu og mun álfram-
lciðsla Norsk Hydro aukast um
90.000 tonn á ári, en hún er í heild
950.000 tonn á ári.
Akvörðun Norsk Hydro um að
heíja starfsemi í Bandaríkjunum
er liður í áætlun fyrirtækisins um
að auka framleiðslu sína utan Evr-
ópu. Norsk Hydro er sjötti stærsti
álframleiðandi í Evrópu en hefur
til þessa átt litla hlutdeild á Banda-
rfkjamarkaði. Bandaríkjamenn
nota um 6 milljónir tonna af áli á
ári og þar af selur Norsk Hydro
þeim 300.000 tonn.
Norsk Hydro hafði áður tilkynnt
um byggingu verksmiðju á Trini-
dad þar sem fjárfestingin hljóðaði
upp á 1,5 milljarða dollara eða
rúmlega 100 milljarða islenskra
króna. Verksmiðjan í Trinidad
mun framleiða fyrir Bandaríkja-
markað.
Að sögn Lars Th. Narvestad, að-
stoðarforsljóra Norsk Hydro,
verður álbræðsla stöðugt mikil-
vægari þáttur í álframleiðslu
vegna lítillar orkunotkunar. End-
urvinnslumöguleikar á áli eru
miklir og Narvestad segir að í
framtíðinni verði endurunnið ál
allt að helmingur þess áls sem not-
að er í heiminum.
Búnaðarbankinn fær lánshæfismat frá MoodyTs
Með 20% markaðshlutdeild
BANDARÍSKA matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service hefur
skilað lánshæfismati Búnaðar-
banka Islands hf. og gefið bankan-
um einkunnir fyrir langtímaskuld-
bindingar, skammtímaskuldbind-
ingar og fyrir fjárhagslegan styrk.
Fyrir langtímaskuldbindingar
fékk Búnaðarbankinn einkunnina
A3 sem er, samkvæmt upplýsing-
um á heimasíðu Moody’s, í efra
meðallagi en í þessum flokki eru
gefnar einkunnir frá Aaa niður í
C.
Einkunnin Prime-2 fyrir skamm-
tímaskuldbindingar er í meðallagi
en gefið er frá Prime-1 til Prime-3 í
þessum flokki.
Loks er einkunnin D gefin fyrir
fjárhagslegan styrk bankans. Það
þýðir að styrkur bankans sé nægi-
legur en að hann búi við nokkra
óvissu. í þessum flokki eru gefnar
einkunnir frá A niður í E.
[]
ÍSLENSKI HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF.
Aðalfundur
Fimmtudaginn í. júlí 1999 kl. 15:30, Ársalur, Hótel Sögu
Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar.
2. Staðfesting ársreiknings.
3- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
4- Tillaga um breytingar á 7. grein samþykkta félagsins.
5- Ákvörðun um hvernig fara skuli með afkomu félagsins á liðnu reikningsári.
6. Tillaga um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum félagsins.
7- Kosning stjórnar félagsins skv. 19. grein samþykkta.
8. Kosning endurskoðenda félagsins skv. 26. grein samþykkta.
9- Eru Internetfyrirtæki ódýr? Helgi Þór Logason, sérfræðingur á eignastýringarsviði Landsbréfa.
10. Önnur mál.
í§
LANDSBRÉF HF.
www.landsbref.is
Sími 535 2000
Svipað mat og aðrir innlendir
bankar hafa fengið
í fréttatilkynningu frá Búnaðar-
bankanum segir að þetta mat sé í
takt við það mat sem aðrir innlendir
bankar hafa fengið. Það tekur mið
af markaðsstöðu Búnaðarbankans á
íslenskum fjármálamarkaði, fjár-
hagsstyrks hans og stöðu hans sem
eins þriggja viðskiptabanka á ís-
landi. Þá tekur matið tillit til ýmissa
þátta sem tengjast hinum öru
breytingum sem eiga sér nú stað á
íslenskum fjármagnsmarkaði, þar á
meðal væntanlegrar einkavæðingar
bankans. Fram kemur í matinu að
markaðshlutdeild Búnaðarbankans
er um 20% á bankamarkaði.
Innlán Búnaðarbankans hafa
minnkað á undanförnum árum en
nema enn um 60% af heildarfjár-
mögnun hans, að því er fram kemur
í fréttatilkynningunni. Útlán Bún-
aðarbankans hafa hins vegar stór-
aukist allt fram á þetta ár, eins og
hjá öðrum bönkum á íslandi.
ÞORSTEINN Gunnarsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Opinna
kerfa, og Matthías E. Matthíasson, forstöðumaður tölvudeildar Baugs,
handsala samkomulagið. Aftari röð: Gylfi Árnason, framkvæmdastjóri
Opinna kerfa, Unnar Reynisson, þjónustustjóri tölvudeildar Baugs, og
Benedikt Gröndal, tæknifræðingur hjá Opnum kerfum.
Opin kerfí og Baugur
gera með sér samning
OPIN KERFI hf. og Baugur hf. hafa
samið um að Opin kerfi taki þátt í
rekstri tölvukerfís Baugs, bæði stað-
ar- og víðneti. Að auki felur samning-
ur fyrirtækjanna í sér að fylgst verður
1969
30 ára
-1999
reynsla
Einangrunargler
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
« 487 5888 • Fax 487 5907
með kerfinu allan sólarhringinn með
sjálfvirkum hætti frá þjónustumiðstöð
Opinna kerfa, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Þjónustumiðstöðin hefur nýlega
tekið til starfa en þaðan er unnt að
fylgjast með tölvu- og netkerfum fjöl-
margra fyrirtækja allan sólarhring-
inn. Fari eitthvað úr skorðum er við-
skiptavini samstundis gert viðvart og
tilheyrandi ráðstafanir gerðar til að
fyrirbyggja vandamál. Fram kemur í
tilkynningunni að þjónustumiðstöðin
sé mönnuð sérfræðingum Opinna
kerfa á hverju sviði og að miðstöðin
starfi í samræmi við þá áherslu fyrir-
tækisins að tryggja rekstraröryggi
þeirra tölvu- og netkerfa sem fyrir-
tækið selur.
&
GOLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
^jyæða flísar
^jyæða parket
^jyóð verð
þjónusta