Morgunblaðið - 30.06.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 27
Eitthvað óvenjulegt
Fyrr á árínu kom út
*
Ljósmynd/Þorvarður Árnason
SVERRIR Guðjónsson sem dauðinn í Óperuleiknum Maður lifandi.
um heim allan plata
Sverris Guðjónssonar
Epitaph, og fyrir
skemmstu kom Sverrir
fram á tónleikum í
Barcelona þar sem
hann meðal annars
kynnti plötuna. Árni
Matthíasson tók Sverri
tali og innti eftir tón-
leikunum.
FYRR Á þessu ári kom út um heim
allan platan Epitaph á vegum
franska fyrirtæksins Opus 111. Á
plötunni var flutningur Sverris
Guðjónssonar á ýmislegri þjóðlegri
íslenskri tónlist í búningi hans.
Fyrir skemmstu var Sverrir síðan
á ferð í Barcelona og flutti þar dag-
skrá að hluta byggða á plötunni, en
tónleikamir voru tO komnir meðal
annars vegna útgáfunnar.
Árlega heldur sparisjóðsbankinn
la Caixa ýmsar tónlistarhátíðir í
Barcelona og þar á meðal er hátíð
helguð gamalli tónlist, Festival de
música antiga, sem haldin var í 22.
sinn út maí sl. Sverrir segir að
framkvæmdastjóri þeirrar hátíðar
hafi haft fregnir af Epitaph-plöt-
unni og þar sem hún hafi sérstakan
áhuga á kontratenórröddum hafi
hún leitað til hans. „Hún sagðist
hafa hlustað á plötuna og vildi
endilega fá mig til að koma fram á
hátíðinni og þá helst með dagskrá
sem byggð væri á plötunni," segir
Sverrir og bætir við að hann hafi
ákveðið að flytja á tónleikunum
dagskrá sem fæli eitthvað í meira
sér en bara hreinan tónlistarflutn-
ing.
Með Sverri út fóru þau Camilla
Söderberg blokkflautuleikari og
Snorri Orn Snorrason lútuleikari.
Sverrir segir að tónleikarnir hafi
verið haldnir í gamalli kirkju í got-
neska hverfi Barcelona, Sant Felip
Neri, „einkar skemmtilegri kirkju
sem hentaði vel tO tónlistarflutn-
ings. Við notuðum kerti sem nán-
ast einu lýsinguna í kirkjunni,
bjuggum tO með þeim rými í miðri
kirkjunni og hófum tónleikana með
því að ég byrjaði að syngja úti í
kirkjunni og gekk inn hana í
myrkri í átt að ljósinu. Síðan kom
CamOla úr annarri átt og Snorri úr
enn annarri átt. Við sungum og
lékum í svæðinu sem kertin af-
mörkuðu og lukum síðan tónleik-
unum með því að hverfa aftur út í
myrkrið; komum út úr miðalda-
þokunni, mættumst á þessum
punkti í ljósarammanum og hurf-
um síðan út í þokuna, framtíðina
vonandi."
Skipulag hátíðarinnar var mjög
gott að sögn Sverris og vel staðið
að kynningu. Meðal annars var
mikil mæting á blaðamannafund
sem haldinn var tO að kynna tón-
leikana og góð umfjöllun í fjöðmiðl-
um í Barcelona tónleikadaginn.
Það hafi síðan eflaust haft sitt að
segja með hversu aðsóknin var góð
á tónleikana, en kirkjan var troð-
fuO. „Það var nú búið að vara mig
við aðsókninni," segir Sverrir og
kímir, „og ég átti eins von á að það
kæmu fáir því okkar nöfn þekkja
fáir í Bareclona og íslendingar er-
lendis eru ekki duglegir að sækja
tónleika íslenskra listamanna. En
það var rífandi aðsókn og fólk virt-
ist komið tO að sjá og heyra eitt-
hvað óvenjulegt.“
Byggt á íslenskum tónlistar-
heimi
Eins og getið er höfðu tónleika-
haldarar áhuga á að heyra dag-
skrá sem tengdist Epitaph og
Sverrir setti saman tónleikadag-
skrá eftir því. „Ég byggði á ís-
lenskum tónlistarheimi og reyndi
að vinna inn í miðaldastemmn-
ingu. Island var svo einangrað að
hér var engin endurreisn eða bar-
rokk. Því langaði mig til að láta
hið miðaldalega Island og Evrópu
mætast, tók til að mynda fyrir
breska tónlist frá endurreisnar-
tímanum og tengdi við íslenska
miðaldatónlist, reyndi að ímynda
mér hvernig endurreisnin hefði
orðið á Islandi og einnig hvernig
evrópsk tónlist hefði brugðist við
íslenskri miðaldadulhyggju.“
Sverrir segir að fyrir áheyrend-
um erlendis hljómi íslenskur tón-
listararfur sérkennOega og ekki
síður íyrir mörgum íslendingum,
enda hafi þeir ekki sinnt þessum
arfi vel, þó nokkrir aðilar hafi lagt
mikið af mörkum í slíkum rann-
sóknum.
„Við styðjumst mikið við þjóð-
lagasafn Bjarna Þorsteinssonar
en mér var tjáð að það næði ekki
yfir nema fjórðung af því sem til
er af íslenskum þjóðlögum, mikið
til órannsökuðum og óskráðum,“
segir Sverrir en hluti rannsókna-
starfsins er í höndum hans og fé-
laga í Voces Thules sem eru að
undirbúa upptökur og útgáfu á
Þorlákstíðum, miklu verki og
flóknu. „Við stefnum á að hefja
upptökur í haust, höfum reyndar
gert tilraunaupptökur til að finna
réttan hljómbotn. I framhaldi af
því ákváðum við síðan að hefja
upptökur í haust, og reyna að
klára sem mest þá. Þetta er svo
mikið verk að það verður ekki allt
tekið upp í einu, þarf fjóra geisla-
diska tO þegar það verður gefið út,
og við vOjum því gefa verkinu góð-
an tíma, meðal annars til að hver
kafli fái sína áferð, það verði ekki
bara einn hljómur í gegnum allt,“
segir Sverrir og er rokinn við svo
búið, en hann hefur í ýmsu öðru að
snúast, syngur meðal annars
dauðann í Operuleiknum Maður
lifandi eftir Árna Ibsen, Karólínu
Eiríksdóttur og Messíönu Tómas-
dóttur.
Raftón-
list í Vín-
arborg
CAMILLA Söderberg flautuleik-
ari hélt nýlega tónleika í Vínar-
borg fyrir fullu húsi. Tónleik-
arnir voru haldnir í listasmiðju í
Vín sem sérhæfir sig í nútíma-
ritlist, -ljóðlist, -myndlist og
-tónlist.
Að sögn Camillu voru tónleik-
arnir í Vín vel sóttir. Hún segir
salinn ekki hafa verið stóran en
þéttsetinn. Dagskráin samanstóð
af nútímatónverkum sem voru
öll íslensk utan eitt, sem Dieter
Kaufmann, skipuleggjandi tón-
leikanna og fyi-rverandi kennari
Camillu, samdi sérstaklega fyrir
hana.
Islensku tónverkin voru eftir
Hilmar Þórðarson, Hjálmar H.
Ragnarson, Þorstein Hauksson
og Kjartan Ólafsson, en Camilla
frumflutti verk hans hér heima í
janúar. I Vín frumflutti Camilla
hins vegar verk eftir Hilmar
Þórðarson sem var sérstaklega
samið fyrir tónleikana. Camilla
segir frumflutningnum hafa ver-
ið vel tekið og verður verkið
flutt í breyttri mynd hér heima í
október.
CAMILLA Söderberg
flautuleikari.
Áhersla var lögð á raftónlist á
tónleikunum sem var samleikur
blokkfiautu og raftónlistar. Ca-
milla segir það ekki síður gera
tónleikana sérstaka að tónlistin
var að megninu til íslensk.
„Þetta var allt svolítið sér á báti,
þannig að maður vissi ekki
hvernig aðsóknin yrði,“ bætir
Camilla við og segir sér hafa
verið vel tekið og hún beðin að
halda aðra tónleika síðar. „Ég
er eiginlega bara að bíða eftir
að fleiri tónskáld semji verk.“
Camilla er um þessar mundir
að ljúka upptökum á barokktríó-
sónötum fyrir blokkflautu og
önnur hljóðfæri, sem koma út
fyrir jólin.
Serstakt og stor-
fenglegt Island
NYLOKIÐ er sýningu á verkum
Jóhönnu Bogadóttur í Helsingfors
og hlaut hún lofsamlega dóma. Dan
Sundell, myndlistargagnrýnandi
Hufvudstadsbladet, skrifar:
„íslensk myndlist hefur verið vel
kynnt undanfarið í galleríum okkar,
kannski fyrir tilviljun, en þar hefur
gætt töluverðrar fjölbreytni.
Listmálarinn Jóhanna Boga fer
greinilega aðrar leiðir en landar
hennar þar sem hún notar hefð-
bundið efni og form. Island er vissu-
lega þekkt fyrir að fóstra framúr-
stefnu hér á norðurslóðum.
Jóhanna Boga málar ísland eins
sérstakt og stórfenglegt og vænta
má. Sterkir litir, stór og mjúk form
í ólgandi myndbyggingu. Um er að
ræða eld, hraun og vatn en einnig
svolitla gróandi sem mætir and-
stæðunni í litameðferð hennar og
útkoman verður litræn sinfónía."
TILVERA með hafi. Málverk
eftir Jóhönnu Bogadóttur.
Finnskir þjoðar-
dýrgripir sýndir í
Frakklandi
Gullöld finnskrar málaralistar fær
nú rækilega kynningu á tveimur lista-
söfnum í Frakklandi.
Sýningin L’horizon inconnu, þ.e.
Óþekkti sjóndeildarhringurinn, hefur
verið skipulögð af Ateneum og lista-
söfmmum í Strassborg og Lille í sam-
einingu að frumkvæði Frakka. Verkin
á sýningunni, sem eru 170, sýna
finnska málaralist ffá árunum
1870-1920.
Kalevala-málverk Galléns-Kallela
vekja athygli í Frakklandi. Þegar í
byrjun þessarar aldai- vorú Kalevala-
málverkin sýnd þar og eru meðal
þekktustu finnskra listaverka.
Móðir Lemminkáinens er eftirsótt
listaverk til sýninga víða um heim.
Nýlega var það sýnt á Mir Iskusstva-
sýningunni í Sankti-Pétursborg og nú
er röðin komin að Frakklandi.
Aðrir fulltrúar finnskrar málaralist-
ar á sýningunni eru Pekka Halonen,
Eero Jámefelt, Magnus Enckell og
Hugo Simberg. Sumum verkanna var
þegar á þeim tíma sem þau urðu til
ætlað alþjóðlegt gildi, eins og t.d.
Brúðarvísunni eftir Gunnar Bemdt-
son og Jarðarför barns eftir Albert
Edelfelt. Myndin af Louis Pasteur,
eitt þekktasta málverk Edelfelts af
þeim sem fela í sér svipaða umhverfis-
lýsingu, er líka meðal þeirra málverka
sem hengd hafa verið upp.
Helene Schjerfbeck og Amalie
Lundal sóttu myndefni til BreUigne,
til landslagsins og fólksins þar. Á sýn-
ingunni em mörg verk sem bera því
vitni að finnskir listamenn hafa unnið
að list sinni í Frakklandi.
Finnsk nútfmalist á frumskeiði er
ekki ýkja þekkt erlendis. Fulltrúar
þeirrar sístefnu sem verk eiga á sýn-
ingunni em Eero Nelimarkka, Tyko
Sallinen, Sulho Sipilá og Ellen
Thesleff.
Nýkomin sending af sófasettum
Vandað Mantelassi
leðursófasett, alklætt leðri
3+1+1. - Litir Vínrautt,
grænt, dökkkoníaksbrúnt
og Ijóskoníaksbrúnt
I ); V
jfflSflllÍPM
Vönduð
á góðu veröi!
A ð e i n
• T •
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávísuná staðgreiðslu
___________l
usgoqn
Ármúla 8 - 108 Reykjavlk
Síml 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275