Morgunblaðið - 30.06.1999, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 30.06.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 29 ÓLÖF Pétursdóttir með eina blómamynd sína. Vatnslita- sýniner í Eden Nti STENDUR yfír einkasýning Ólafar Pétursdóttur í Eden í Hveragerði. A sýningunni eru 55 vatnslitamyndir. Ólöf lagði stund á listnám við Dundas Valley School of Art í Dundas í Ontario í Kanada 1989-1991. Hún hefúr einnig stundað nám í Myndlistarskólan- um í Reykjavík og sótt fjölmörg námskeið í Myndlistarskólanum í Hafnarfirði, Kópavogi og í Reykjavík. Meginviðfangsefni Ólafar eru blóm, landslagsmyndir og upp- stillingar. Sýningunni lýkur sunnudag- inn 5. júlí kl. 21. LISTIR Samnorræn blás- arasveit í Islensku * Operunni 60 MANNA blásarasveit þeytir lúðra í ís- lensku Óperunni á morgun. NÚ STENDUR yfir í Varmárskóla í Mosfellsbæ blásarasveitarnámskeið á vegum Nordisk Amator Union (NAMU), sem eru landssamtök blásarasveita bæði bama og fullorðinna á Norðurlöndunum. SIL (Samband íslenskra lúðra- sveita) heldur þetta nám- skeið að þessu sinni. í tengslum við námskeiðið verða haldnir tónleikar í ís- lensku Operunni annað kvöld, fimmtudag, kl. 20. Á efnisskrá námskeiðsins má nefna nýlegt verk eftir Tryggva M. Baldvinsson, Cold Shower, Underlige Aftenlufte efitr Carl Niel- sen, Folk Festival eftir Sjostakovitsj, Requiem for an old Railway Station eftir John Brakstand og Spa- in/La Fiesta eftir Chick Correa. Blásarasveitina skipa um 60 hljóðfæraleikarar frá öllum Norðurlöndunum, þar af um 30 ís- lendingar. Stjómandi og leiðbeinandi fyrir málmblásara er Helge Haukás frá Noregi. Auk hans leiðbeina Kjartan Oskarsson klarinettuleikari og sænski slagverksleikarinn Urban Grip. Helge Haukás mun að þessu námskeiði loknu halda námskeið í hljómsveitarstjórnun sem hefst 2. júh' í sal Tónlistarskóla FÍH í Rauðagerði. Helge Haukás er trompetleikari og virtur stjómandi sem hefur m.a. stjómað Fflharmoníuhljómsveit í Bergen og lúðrasveit norska hers- ins. MUSICA Colorata: Auður Hafsteinsdóttir, Guðríður St. Sigurðardóttir og Peter Tonipkins. Musica Col- orata í Sel- fosskirkju TÓNLISTARHÓPURINN Musica Colorata heldur tón- leika í Selfosskirkju í kvöld, miðvikudag, kl. 20. Hópinn skipa þau Auður Hafsteinsdótt- ir, fiðluleikari, Peter Tompkins, óbóleikari, og Guðríður St. Sig- urðardóttir, pianóleikari. Á efnisskránni eru tríósöntur eftir Hándel og C.P.E. Bach, fimm smálög eftir rússneska tónskáldið César Cui og tríó eftir Oliver Kentish. Einnig flytja þau Peter og Guðríður verk eftir Kallivvoda, en hann var mjög vinsælt og þekkt tón- skáld á síðustu öld, segir í fréttatilkynningu. Auður og Guðríður flytja þrjú stutt verk eftir Sibelius. Stuttmyndahá- tíð í Hafnarfírði STUTTMYNDAHÁTÍÐ Hafnar- fjarðar verður haldin hátíðleg föstu- daginn 9. júlí n.k. klukkan 19 í Bæj- arbíói. Islandsbanki veitir 100.000 króna verðlaun fyrir bestu myndina, en 15 myndir verða valdar til sýningar á hátíðinni. Umsóknarfrestur er til mánudags- ins 5. júlí og eru umsóknareyðublöð í Firðinum, verslunarmiðstöð. -------------- Sýningum lýkur Gallerí Sölva Helgasonar, Skagafirði MYNDLISTARSÝNINGU Gunnars Friðrikssonar, í Lónkoti í Skagafirði, lýkur í dag, miðvikudag. Til sýnis eru pastel- og olíumálverk af eyjum á Skagafirði og skagfirsku lands- lagi. Unga kynslóðin syngur sig inn í næstu öld Morgunblaðið/Jón Svavarsson KÓRSTJÓRAR menningarborganna níu kynntu sér aðstæður í Perlunni þegar þeir heimsóttu ísland. KÓRSTJÓRAR Radda Evrópu hittust nýlega í Reykjavík til skrafs og ráðagerða um undirbún- ing kórverkefnis menningarborg- anna níu. Verkefnið er skipulagt af Reykjavík 2000 og er eitt stærsta sameiginlega verkefni borganna en það er annað tveggja verkefna sem allar þjóðirnar taka þátt í. Raddir Evrópu samanstanda af tíu ungmennum frá hverri menn- ingarborg. Saman mynda þau kór sem flytja mun lög frá hverju landi. Fyrstu tónleikar kórsins verða haldnir í Perlunni á gamlárskvöld en síðar á árinu fer kórinn í tónleikaferð til menning- arborganna ásamt Björk sem einnig kemur fram með kómum í Perlunni. Tónlistin krefst ekki tungu- málakunnáttu Almenn ánægja virðist ríkja með framvindu verkefnisins meðal kórstjóranna og forráðamanna Reykjavíkur 2000. Michel Capp- erton, kórstjóri Avignon, segir það góða hugmynd að láta ungu kyn- slóðina syngja sig inn í nýja öld og taka þar með við henni á táknræn- an hátt. Að sögn Stanislavs Krawczyinskis, kórstjóra Krakóv, er þó ekki síður mikilvægt framlag verkefnisins að fólk kynnist í gegn- um tónlistina og færist þannig nær hvert öðru. „Tónlistin mun færa okkur nær hvert öðru,“ segir Stan- islav. „Þegar taiað er um tónlist þurfum við ekki að veha kunnug tungumáli til að geta skilið hvert annað. Tónlistin er alþjóðlegt tungumál." Stanislav viðurkennir að vinnan með framandi tungumál sé erfið- asti hluti framkvæmdarinnar en segir lausn á þessu í sjónmáli. „Við erum búin að koma með þá tillögu að textamir verði lesnir inn á band og sendir á milli landa til að að- stoða við framburð." Þessi fjöl- breytni tungumálanna er þó, að mati Stanislavs, eitt mikflvægasta framlag Radda Evrópu. „Það að kynnast menningu annarra þjóða og hvemig hugsað er á öðram tungumálum," bætir hann við. Hörð samkeppni um inngöngu í kórinn Inngöngupróf eru haldin í hverri borg fyrir sig og mikið er lagt í val ungmennanna sem era á aldrinum 16-23 ára. Á íslandi verður prófað í haust en víða er- lendis hafa söngvararnir þegar verið valdir. Maria Gamborg Hel- bekkemo, kórstjóri Bergen, segir valið hafa verið erfitt. Rödd söngv- ara sé að sjálfsögðu mikilvægasti þáttur valsins en persónuleiki við- komandi skipti þó ekki síður máli. Að sögn Maximinos Zumalave, kórstjóra Santiago de Compostela á Spáni, er tæpur mánuður síðan vali spönsku söngvaranna lauk. Raddir Evrópu hafa vakið mikla athygli hjá tónlistarmenntuðu fólki í Santiago de Compostela og segir Maximino töluverða sam- keppni hafa myndast um inngöngu í kórinn. Á efnisskrá kórsins eru tónverk frá þjóðunum níu, auk nýrra út- setninga á lögum Bjarkar sem Atli Heimir Sveinsson á heiðurinn af. Enn hefur þó ekki verið gengið endanlega frá efnisskrá kórsins þótt ýmsar tillögur hafi verið lagð- ar fram. Tónlist Griegs er þó ör- ugglega á dagskrá, sem og Agnus Dei pólska tónskáldsins Pen- herskis. Vali Frakka er ekki lokið og segir Capperton Avignon standa frammi fyrir töluverðum vanda við að velja úr þeim fjölda tónskálda sem tfl greina koma. „Verið er að vinna úr öllum þess- um tónskáldum til að finna tóninn sem viðeigandi er fyrir þessa tón- leika,“ segir hann til útskýringar. Fyrirhugað er að efnisskrá kórsins verði fjölbreytt og að hún innihaldi bæði nútíma- og klass- íska tónlist. Svanhildur Konráðs- dóttir, kynningarstjóri Reykjavík- ur 2000, segir þegar bera á tölu- verðum áhuga á tónleikunum í Perlunni. Mikið hefur borist af fyrirspurnum að utan og margir eru nú þegar búnir að skrá sig á biðlista eftir miðum sem Ferða- skrifstofa Guðmundar Jónassonar hefur sölu á 1. september. Perlan í beinni á gamlárskvöld? Að sögn Þórannar Sigurðardótt- ur, stjórnanda Reykjavíkur 2000, fer skrifstofa menningarborgar- innar ekki varhluta af þessum áhuga. „Við finnum að það er mjög mikil athygli á þessu,“ segir Þór- unn og bendir á að þetta sé eina verkefnið sem byggist svona mikið á ungu fólki. Það er margt sem að mati Þórannar gerir Raddir Evr- ópu þýðingarmiklar fyrir ísland og því er mikið lagt upp úr því að gera verkefnið sem sýnilegast. Það er til dæmis verið að kanna möguleika á sjónvarpsútsendingum frá Perlunni á gamlárskvöld, jafnvel beinni útsendingu um allan heim. „Þetta kóraverkefni er okkur mjög mikils virði,“ segir Þórunn. Vilyrði Bjarkar fyrir að koma fram með Röddum Evrópu skiptir að mati Þórannar sköpum fyrir verkefnið. „Eins skiptir máli að eitt fremsta tónskáld nútímans, eistneska tónskáldið Arvo Párt skuli taka að sér að semja fyrir kórinn," segir Þórann. Verk Arvo Párt verður æft í Reykholti næsta sumar, áður en haldið verður í tón- leikaferðalagið. „Það að vera með aðalstjómandann, Björk og nýjar íslenskar útsetningar á tónlist hennar setur íslenskan svip á verk- efnið,“ bætir Þórann við. Capperton og Zumalave virðist lít- ast vel á að kórinn flytji lög eftir Björk þó að ekki þekki þeir sjálfir vel til verka söngkonunnar. „Það er ekki til slæm tónlist, það era að- eins til góðir og slæmir tónlistar- menn,“ segir Capperton þegar hann er spurður hvað honum finn- ist um að kórinn flytji tónlist Bjarkar. Hann segir að sjálfur þekki hann ekki tónlist hennar en dóttir hans þekki hana þeim mun betur. Zumalave tekur í sama streng og segir það hafa komið sér á óvart fyrir ári hversu margir á Spáni þekktu verk hennar. „Ég sjálfur trúi ekki á landamæri innan tón- listar,“ bætir hann við og segir að sér finnist gott að hugsa þau í burtu. „Það er mjög gott að hugsa um Evrópu sem eitt heildarsvæði og það getum við gert með þessari tónlist.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.