Morgunblaðið - 17.07.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 17.07.1999, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ \ FRÉTTIR Leiguverð á fískveiðiheimildum fslendinga í Barentshafí á þessu ári Mun að miklu leyti ráðast af aflabrögðum LEIGUVERÐ á aflaheimildum sem íslendingum er heimilt að veiða í Barentshafi á þessu ári samkvæmt Smugusamningnum svokallaða er enn óljóst en það mun að mestu ráð- ast af aflabrögðum. Ekki er heldur ljóst hvernig viðskiptum með þann 1.669 tonna kvóta sem Islendingum stendur til boða að kaupa af Rússum á árinu verður háttað né hvaða verð þarf að greiða fyrir hann. Rússar hafa leigt Norðmönnum þorskkvóta í Barentshafí og hafa Norðmenn greitt að jafnaði 700-800 dollara eða um 50-60 þúsund krónur fyrir leigu á tonni á ári. Það eru einkum samtök útgerðarmanna í Murmansk, Inter-Barents, sem selja eða leigja heimildirnar í Barentshafi og þótti viðmælendum Morgunblaðsins líklegt að svipaður háttur verði hafður á viðskiptunum gagnvart íslendingum. Alls fá 94 íslensk skip úthlutað aflaheimildum í Barentshafi á þessu ári, allt frá 1 tonni upp í rúm 200 tonn. Sýnt þykir að heimildirnar verði sameinaðar á fá skip enda borgar sig ekki að bera sig eftir að sækja örfá tonn. Hilmar Kristjáns- son, framkvæmdastjóri kvótamiðl- unarinnar KM-Kvóta, segir verð á aflaheimildum í Barentshafi fyrst og fremst ráðast af aflabrögðum. Gangi veiðai'nar vel hækki verðið. Þangað til sé erfitt að verðleggja heimildirn- ar, þótt líklega verði verðið lægra en á aflaheimildum á Islandsmiðum. Hann segir ljóst að sameina þurfi heimildir á tiltölulega fá skip og bendir í því sambandi á þróunina sem orðið hefur í rækjuveiðum Is- lendinga á Flæmingjagrunni. „Þar eru fá skip sem veiða kvóta Islend- inga. Þar fer verðið á kvótanum eftir því hvernig veiðarnar ganga. Verð á leigukvóta á Flæmingjagrunni er nú um 32 krónur á meðan leiguverð á rækjukvóta á heimamiðum er aðeins um 1 króna,“ segir Hilmar. Kristján Þórarinsson hjá Lands- sambandi íslenskra útvegsmanna segir enn ekki ljóst hvernig verð- lagningu á Smugukvótanum verði háttað. Verðið muni ráðast af fram- boði og eftirspurn. „Línur skýrast væntanlega fljótlega þegar í ljós kemur hvort eftirspurn verður eftir kvótanum. Það er á þessu stigi ekk- ert hægt að segja til um hvaða verð verður á þeim kvóta sem íslending- um stendur til boða að kaupa af Rússum. Rússar hljóta sjálfir að þurfa að segja til um hver selur kvótann og þá á hvaða verði,“ segir Kristján. Ennþá of mikil óvissa Eiríkur Tómasson, framkvæmda- stjóri Þorbjamar hf. í Grindavík, segir enga verðmyndun koma á afla- heimildir í Barentshafi, hvorki á kvóta íslendinga né þann kvóta sem Rússar bjóði til kaups. „Það er of mikil óvissa í þessu ennþá og líklega ræðst verðið af veiðinni. Það þorir því enginn að leigja eða kaupa heim- ildir til sín ennþá. Menn hafa ekkert fengið að vita um það hvaða verð verður á heimildum Rússa né hver mun selja þær. Það hlýtur að verða tilkynnt um leið og samningurinn tekur gildi. Ágæt veiði hefur verið í Barents- hafi í sumar samkvæmt heimildum Morgunblaðsins en veiði hefur þó heldur dalað síðustu vikumar. Veiðin hefur aðallega verið á „gráa svæðinu" svokallaða, sem er smuga milli lög- sögu Noregs og Rússlands, nokkuð austur af Smugunni þar sem Islend- ingar hafa hingað til stundað veiðar. Eiríkur segir að eitt af skipum Þor- bjamar hf. fari að öllum liidnduin á veiðar í Barentshafinu en af því verði varla fyrr en eftir mánaðamót. Ókeypis tölvur með nettenffinsru Ekkiá dorinni ner á landi EKKI mun standa til hjá íslenskum tölvufyrirtækjum að bjóða viðskipta- vinum sínum ókeypis tölvur kaupi þeir áskrift að nettengingu fyrir- tækjanna. Fregnir af slíkum tilboð- um bárast nýverið af tölvumarkaðin- um í Bandai'íkjunum og Bretlandi. Síðastliðinn þriðjudag tilkynnti bandaríska tölvufyrirtækið Microsoft að það gæfi þeim við- skiptavinum sínum tölvu sem sam- þykkja að eiga netviðskipti við fyrir- tækið í þrjú ár. Þurfa viðskiptavin-; irnir að greiða 650 dollara fyrir þann samning. Á fimmtudaginn bárast síðan áþekk tíðindi frá Bretlandi er Tiny Computers tilkynnti að við- skiptavinir fyrirtækisins gætu nú fengið ókeypis tölvu keyptu þeir eins árs áskrift að nettengingu þess. Vegna þessara frétta hafði Morg- unblaðið samband við nokkur fyrir- tæki á íslenskum tölvumarkaði til að kanna hvort svipaðra tilboða væri að vænta hér á landi. Er skemmst frá því að segja að ekkert fyritækjanna sagði þetta vera á döfinni hjá sér. Morgunblaðið/Ingvar Þórðarson Staðbundin snjókoma á Skólavörðustíg VETRARLEGT var um að litast við Hegningarhúsið á Skólavörðu- stíg á dögunum, en þar lá snjdföl á gangstéttinni fyrir framan. Vegfarendur ráku eðlilega upp stór augu, enda jörð auð allt um- hverfis og júhmánuður vart hálfn- aður. Einkum litu erlendir ferða- menn stórum augum á þessa stað- bundnu snjókomu og freistuðu þess að koma við snjóinn. Þama var hins vegar ekki um sjaldgæft náttúrufyrirbæri að ræða, heldur umgjörð fyrir tökur á atriði í kvikmyndinni 101 Reykjavík. Þar sem sumarið stendur sem hæst gripu kvikmyndagerðarmennirnir til þess ráðs að setja snjólíki á Hegningarhúsið og nágrenni. Ekki er annað að sjá en um trú- verðuga blekkingu sé að ræða, að minnsta kosti virðast leikaramir Hilmir Snær Guðnason, Victoria Abril og Baltasar Kormákur, sem leikstýrir jafnframt 101 Reykja- vík, vera á rölti um Skólavörðu- stíg að vetrarlagi á þessari ljós- mynd. Meðalhækkun dagvinnulauna 5,8% á fyrsta ársfjórðungi Mest launahækkun hja sérfræðingum, 8,1% DAGVINNULAUN hækkuðu að meðaltali um 5,8% á fyrsta ársfjórð- ungi ársins miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt könnun Kjararann- sóknarnefndar. Vísitala neysluverðs hækkaði á sama tíma um 1,5% og kaupmáttur dagvinnulauna jókst um 4,3%. Laun samkvæmt almennum kjarasamningum hækkuðu á tímabil- inu um 3,65%, þ.e. 1. janúar 1999. Laun kvenna hækkuðu að meðal- tali um 4,8% og laun karla um 6,3%. Þá var launahækkun á tímabilinu heldur hærri á höfuðborgarsvæðinu eða 6,4% en á landsbyggðinni þar sem hún var 5,3%. Minnst hækkun er hjá skrifstofufólki, 4,4% en mest hjá sérfræðingum, 8,1%. Launakönnunin er samstarfsverk- efni Kjararannsóknamefndar og Hagstofu íslands. Fengnar era upp- lýsingar um laun 18 ára og eldri starfsmanna hjá fyrirtækjum þar sem vinna tíu manns eða fleiri og valin era af handahófi í úrtak könn- unarinnar. Fyrirtækin í úrtakinu era í eftirtöldum greinum: Matvæla- og drykkjarvöruiðnaði, textíl- og fata- iðnaði, efnaiðnaði, málmiðnaði, fram- leiðslu samgöngutækja, byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð, versl- un, samgöngum og flutningum. Nið- urstöður könnunar um fyrsta árs- fjórðung 1999 byggjast á upplýsing- um um laun rúmlega 14 þúsund starfsmanna. Lægst laun hefur almennt verka- fólk þar sem konur hafa að meðaltali 100.769 kr. og karlar 108.336 kr. Þetta er eina stéttin sem ber meira úr býtum á landsbyggðinni en höfuð- borgarsvæðinu ásamt véla- og vél- gæslumönnum í hópi karla. Era Laun karla og kvenna í dagvinnu skipt eftir starfsstéttum og svæði Höfuðborgar- Landið allt . arsfjorðungur 1999 Fjöldi Meðaltal Fjöldi Meðaltal Fjöldi Meðaltal Almennt verkafólk -karlar 672 106.176 562 110.899 1.233 108.336 -konur 328 94.566 324 104.812 652 100.769 Véla- oq vélqæslufolk -karlar 508 133.559 342 138.079 850 135.804 -konur 77 99.563 36 90.133 113 96.069 Sérhæft verkafolk -karlar 191 133.580 524 112.976 721 117.651 -konur 121 97.282 683 96.246 804 96.392 Iðnaðarmenn -karlar 390 167.784 343 159.572 733 164.513 -konur Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufyrirtæki -karlar 738 167.784 315 104.088 1.053 136.837 -konur 778 97.486 695 85.933 93.382 Skrifstofufolk -karlar 304 148.059 109 137.624 412 144.245 -konur 1.061 121.500 619 103.606 1.679 114.890 Tæknar og sermenntað starfsfólk -karlar 326 210.515 95 183.378 421 205.415 -konur 331 158.364 84 155.158 420 155.492 Serfræðingar -karlar 206 304.039 46 283.810 252 298.903 -konur 73 249.806 79 243.713 Meðaltal launa í dagvinnu er vegið meðaltal greidds tímakaups og fastra mánaðariauna. meðallaun almennra verkamanna á höfuðborgarsvæðinu rúm 106 þús- und en nærri 111 þúsund á lands- byggðinni og konur á höfuðborgar- svæðinu fá 94.500 en 104.800 á lands- byggðinni. Hæst laun bera sérfræð- ingar úr býtum eða 243 þúsund með- al kvenna en 298 þúsund hjá körlum. Laun eftir starfsstéttum Greitt tímakaup Föst mánaðarlaun á 1. ársfjórðungi 1999 Fjöldi Meðaltal Fjöldi Meðaltal Almennt verkafólk 1.339 613 545 103.718 Véla- og vélgæslufólk 575 776 389 122.046 Sérhæft verkafólk 1.337 616 294 117.424 Iðnaðarmenn 889 868 335 185.635 Þjónustu-, söiu- og afgreiðslufyrirtæki 1.206 520 1.321 126.959 Skrifstofufólk 420 619 1.671 125.061 Tæknar og sérmenntað starfsfólk 141 807 701 191.088 Sérfræðingar 331 284.771 Meðalbreyting launa paraðs úrtaks milli 1. ársfjórð. 1998 og 1999 Meðalbr. Almennt verkafólk 6,1% Véla- og vélgæslufólk 6,6% Sérhæft verkafólk 6,6% Iðnaðarmenn 6,4% Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufyrirtæki 5,7% Skrifstofufólk 4,4% Tæknar og sérmenntað starfsfólk 7,1% Sérfræðingar 8,1% Karlar 6,3% Konur 4.8% i Höfuðborgarsvæðið 6,4% : Landsbvqqðin 5.3% Allir 5,8% : J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.