Morgunblaðið - 17.07.1999, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/HelgaHafsteinsdóttir
KARL Jóh. Jóhannsson með glæsilega loftmynd af Kirkjufellinu og
Grundarfirði í baksýn.
A góðri stund
í Grundarfirði
Grundarfirði - Grundflrðingar
hafa eins og mörg önnur byggð-
arlög komið af stað árlegri hátið
fyrir heimafólk og gesti. Hug-
myndin kviknaði fyrir þremur ár-
um þegar ákveðið var að halda
upp á það með veglegum hætti að
100 ár voru liðin frá því að Krist-
ján IX veitti Grafarnesbúum fúll
verslunarréttindi. Eyrarsveit stóð
fyrir fyrstu dagskránni en í fyrra
og í ár standa Félagssamtökin
FAG (Félags atvinnulifsins
Grundarf.) fyrir henni.
Karl Jóh. Jóhannsson var ráð-
inn sem framkvæmdastjóri í ár
og aðspurður sagði hann að dag-
skráin væri fullmótuð og að hún
væri að mestu leyti byggð upp
eins og áður. Hátíðarhöldin hefj-
ast á hádegi föstudaginn 23. júlí
og lýkur með varðeldi og söng
frammi á Eyrarodda seinnipart
sunnudags. „Ákveðnir aðilar taka
að sér að sjá um einstaka dag-
skrárliði og það hefur verið mitt
hlutverk að ganga frá þeim og
púsla saman. Það hefur reynst
auðvelt því allir eru boðnir og
búnir að Ieggja sitt af mörkum,"
sagði Karl. Þeirri hugmynd Karls
að leita til góðra manna á Siglu-
firði til að koma og skemmta á
hátíðinni var vel tekið og munu
Siglfirðingar sjá um kvöld-
skemmtun í samkomuhúsinu.
Meðal dagskrárliða má nefna
að á föstudegi verður málverka-
sýning, reiðhjólakeppni,
sjóstangaveiðimót, grillveisla,
kraftakeppni í umsjón Hjalta
tírsuss og Andrésar Guðmunds-
sonar, strandblakkeppni og um
kvöldið skemmtidagskrá og dans-
Ieikur í' samkomuhúsinu. A laug-
ardeginum verður um nokkrar
gönguferðir að velja strax kl. 10
og á sama tíma hefst Brimborgar-
mótið í golfí inni á golfvelli og svo
verður kynning á haglabyssuskot-
fimi á skotveiði Skotfélagsins.
Eftir hádegi verður mikið um að
vera á hafnarsvæðinu fyrir alla
fjölskylduna m.a. leiktæki af ýms-
um toga, sjávardýrasýning, dorg-
veiðikeppni og sitthvað til
skemmtunar. Húsdýragarður
verður í miðbænum á laugardag-
inn. Seinnipart dagsins verður
hljómsveitin Sóldögg með fjöl-
skyldudansleik og seinna um
kvöldið sf órdansleik i samkomu-
húsinu. Á sunnudag verður helgi-
stund á Eyrbyggjuslóðum á rúst-
um landnámsbæjar á Ondverðar-
eyri. Þangað mættu í fyrra um 230
manns og eins og áður sagði endar
samkoman með söng og gleði.
Karl er bjartsýnn og segist
finna fyrir miklum áhuga og til-
hlökkun vegna þessarar hátíðar
heima fyrir og víðar. Flestir eiga
von á ættingjum og vinum. Hann
á von á metþátttöku og treystir
því að veðurguðirnir bregðist
ekki Grundfirðingum um þessa
helgi frekar en áður.
AMI í Borgarnesi
Keflavík
vann stiga-
keppnina
Keflavík - Aldursflokkameistara-
mót íslands í sundi fór fram í Borg-
arnesi 25.-27. júní. Keppendur voru
tæplega 220 frá 20 félögum, en
keppnisgreinar voru 50 talsins.
Stigahæstu keppendur í einstök-
um aldursflokkum urðu: Birkir
Már Jónsson Keflavík, í sveinafl.
1132 stig. Þóra Björg Sigurþórs-
dóttir Keflavík í meyjafl. 1351 stig.
Helgi Hreinn Óskarsson UMFN í
drengjafl. 1416 stig. Berglind Ósk
Böðvarsdóttir SH í telpnafl. 1872
stig. Jakob Jóhann Sveinsson Ægi í
piltafl. 2307 stig. Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir ÍA í stúlknafl. 2307 stig.
Stig voru gefin fyrir þrjár sund-
greinar, reiknuð eftir alþjóðatöflu.
Keflavík vann stigakeppnina
í stigakeppni mótsins varð Kefla-
vík efst með 1138 stig. Næstu lið
urðu: SH 931, Ægir 687, KR 458,
Í A 464, UMFN 453, Breiðablik 363,
Armann 194, Vestri 152, Selfoss f
100 stig.
Skjaldböku-
busl í Klepp-
járnsreykja-
lauginni
Borgarfírði - Aðsókn að sund-
lauginni á Kleppjárnsreykjum í
Reykholtsdal hefur verið góð
undanfarið, sérstaklega eftir að
hlýnaði seinni hlutann í júní.
Sú nýlunda, að annan hvern
föstudag er sunddiskó, hefur
gefíst vel og annan hvern
sunnudag er farið í leiki í
sundlauginni þar sem keppt er
m.a. í köfun og skjaldbökubusli
og veitt verðlaun fyrir þátttök-
una.
Sundlaugin er opin virka
daga frá kl. 13-22 og um helgar
kl. 10-22.
it
“t
Morgunblaðið/pþ
JÓNA E. Kristjánsdóttir sundlaugarvörður ásamt dóttur sinni Evu M.
Eiríksdóttur við tvo af þremur heitum pottum sem eru við Kleppjáms-
reykjasundlaugina.
Morgunblaðið/Ingimundur
STIGAHÆSTU einstaklingar á AMI. Frá vinstri: Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir, Jakob Jóhann Sveinsson, Þóra Björg Sigurþórsdóttir, Helgi
Hreinn Óskarsson, Birgir Már Jónsson og Berglind Ósk Böðvarsdóttir.
Morgunblaðið/pþ
TVEIR gullmerkjahafar, Ástráður Sigursteindórsson og Jónas
Guðmundsson, við athöfn í íþróttahúsinu í Vatnaskógi.
Gullmerki Skógarmanna KFUM
Ættarmót á Tálknafírði
Borgarfirði - Við vígsluathöfnina á
nýjum svefnskála í sumarbúðunum
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
f Vatnaskógi voru í samsæti í
íþróttahúsinu afhent gullmerki til
þriggja manna sem ötullega hafa
stutt uppbyggingu sumarbúðanna
áratugum saman.
Ólafúr Sverrisson, formaður
Skógarmanna, afhenti þeim
Ástráði Sigursteindórssyni,
fyrrverandi skólastjóra, Árna
Sigurjónssyni og Jónasi
Guðmundssyni, vélaverktaka á
Bjarteyjarsandi í Hvalfirði,
gullmerki Skógarmanna sem h'md
vom á steina. Gat Ámi
Siguijónsson ekki mætt við
afhendinguna en Gunnar J.
Gunnarsson, bróðursonur hans,
tók við merkinu í staðinn.
Tálknafírði - Tvö ættarmót voru
haldin á Tálknafirði um liðna helgi.
Annað fór fram á Suðureyri og hitt
á Sveinseyri.
Á Sveinseyri hittust niðjar Guð-
ríðar Guðmundsdóttur og Guð-
mundar Sigurðar Jónssonar og
þar mættu um 160 manns. Þetta er
í þriðja skipti sem niðjar hjónanna
frá Sveinseyri koma saman, en
íyrsta ættarmótið var haldið fyrir
20 árum. Það verður að segjast
eins og er að veðrið var ekki sem
best til samkomuhalds á Tálkna-
firði því það var úrkoma mest allan
tímann. En gestirnir létu það ekki
á sig fá og fylgdu áður boðaðri
dagskrá að mestu.
Samkoman hófst í kirkjunni í
Stóra-Laugardal, þar sem séra
Karl V. Matthíasson leiddi bæna-
stund og Pétur Bjamason lék á
orgel kirkjunnar. Þegar komið var
úr kirkjunni var gengið að minnis-
varða, sem reistur var á 100 ára
árstíð Guðmundar B. Sveinssonar.
Minnisvarðinn stendur í trjálundi,
sem Guðmundur hafði forgöngu
um að gróðursetja í hlíðinni, innan
og ofan við Sveinseyrarbæinn.
Því næst var gengið að gamla
bænum á Sveinseyri, sem á sér
merka sögu. Elsti hluti hans er frá
því um 1875 og yngsti hlutinn
sennilega byggður um 1920 af
Guðfinni Einarssyni frá Patreks-
firði. Húsafriðunarsjóður hefur
veitt styrk til þess að mæla og
teikna upp húsið og meta ástand
þess með tilliti til endurbyggingar.
Eru uppi hugmyndir um að endur-
byggja bæinn og koma þar fyrir
munum og öðru sem varpar ljósi á
sögu liðinna daga.
Vegna veðurs fór mest af dag-
skránni fram í íþróttahúsinu á
Tálknafirði þar sem m.a. var leikið
á harmoniku, sungið og dansað.
Óhagstætt veður
Afkomendur Jóns Johnsens og
Gróu Indriðadóttur komu saman
á Suðureyri. Þar mættu 177
manns og skemmtu sér hið besta.
Vegna þess að veðrið var ekki
hagstætt tjöldum, var gist víða
um fjörðinn. Á Suðureyri var gist
í Suðureyrarhúsinu, Pölluhúsi og
Sjóarhúsinu, sem er gömul ver-
búð og salthús. Þar voru einnig
nokkur tjöld. Aðrir gistu norðan
fjarðar ýmist í heimahúsum eða
húsum sem ekki er búið í að stað-
aldri. Á ættarmótið á Suðureyri
kom fólkj m.a. frá Noregi, Bret-
landi og Ástralíu.
Séra Einar Eyjólfsson, frí-
kirkjuprestur í Hafnarfirði, skírði
tvö systkinabörn, annað frá
Ástralíu og hitt frá Bretlandi, en
amma þeirra, Ásdís Samúelsdóttir,
er fædd og uppalin á Suðureyri.
Síðast var skírt á Suðureyri fyrir
35 árum, þegar yngsta syni hjón-
anna Svanborgar Guðmundsdóttur
og Þórðar Jónssonar var gefið
nafnið Eiríkur. Þórður og Svan-
borg, sem voru síðustu ábúendur á
Suðureyri, fluttu þaðan haustið
1968 til Bfldudals.
Afi Jóns Johnsens var Þorleifur
ríki Jónsson á Bfldudal, en hann
gaf Jóni syni sínum Suðureyri í
brúðargjöf. Þorleifur þessi var
fyrstur Islendinga til þess að nema
skipstjórn, en þá menntun sína
sótti hann til Danmerkur.
Ættarmótsgestir gróðursettu
trjáplöntur á Suðureyri, það var
sameiginleg grillveisla o.m.fl. til
afþreyingar og skemmtunar.
Þetta var sjötta ættarmótið þar
sem niðjar Jóns og Gróu hittast,
en það fyrsta var haldið 1972. Þá
var ákveðið að hittast aftur að
fimm árum liðnum. Það lætur
nærri að íbúatala Tálknafjarðar
hafí tvöfaldast þann tíma sem
þessi tvö ættarmót stóðu yfir og
er ekki hægt að segja annað en
gestirnir hafi sett skemmtilegan
svip á bæinn.