Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 25
Tony Blair undir-
býr uppstokkun
London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, er nú sagður undirbúa
árlega uppstokkun á stjórn sinni og
búist er við að hún verði tiikynnt í
næstu viku.
Talið er líklegt að Alan Milburn
aðstoðarfjármálaráðherra verði
skipaður heilbrigðisráðherra takist
Blair að telja Frank Dobson heil-
brigðisráðherra á að verða fram-
bjóðandi Verkamannaflokksins í
borgarstjórakosningunum í London
á næsta ári.
Ennfremur er nánast öruggt Mo
Mowlam láti af embætti Norður-ír-
landsmálaráðherra og líklegast er
talið að aðstoðarmaður hennar,
Paul Murphy, taki við embættinu.
Þá hefur því verið spáð að Peter
Mandelson fái aftur sæti í stjórninni
eftir að hafa sagt af sér sem við-
skiptaráðherra í desember vegna
umdeilds húsnæðisláns sem hann
tók.
Liður í undirbúningi kosninga
Talið er að Gordon Brown fjár-
málaráðherra, Robin Cook utanrík-
isráðherra og George Robertson
varnarmálaráðherra haldi aUir
embættum sínum. Hins vegar er
meiri óvissa um stöðu Johns
Prescotts aðstoðarforsætisráð-
herra, sem deildi við Blair í vikunni
sem leið um umbætur á opinberri
þjónustu.
Talið er að með uppstokkuninni
vilji Blair búa flokkinn undir næstu
kosningar, sem gætu orðið áður en
kjörtímabilinu lýkur um mitt árið
2002. Heimildarmenn í Verka-
mannaflokknum segja að flokkur-
inn búi sig undir kosningar árið
2001.
Kínverjar halda áfram að beita Taívana þrýstingi
TAIVANSKIR hermenn standa við varðstöð á eyju skammt frá kínverska meginlandinu.
Reuters
Prescott-feðgar
deila um stétt-
arskilgreiningu
London. The Daily Telegfraph.
Hóta að aflýsa
för sáttafulltnia
JOHN Prescott,
aðstoðarforsætis-
ráðherra Bret-
lands, þarf nú að
verjast persón-
legri atlögu að sér
úr óvæntri átt.
Hinn 89 ára gamli
faðir hans, Bert,
sakaði soninn í
æsifréttablaðinu
The Sun um að
hafa svikið verka-
lýðsstéttarupp-
runa sinn fyrir
nýja millistéttar-
ímynd.
Bert Prescott,
sem missti hálfan
fót í síðari heimsstyrjöldinni
og starfaði við járnbrautir
lengst af starfsævi sinnar,
lýsti því fyrir blaðamönnum
Sun hve djúpt það særði sig
að horfa upp á soninn John
sverja af sér stéttaruppruna
sinn með því að tileinka sér í
einu og öllu siði millistéttar-
innar.
Samkvæmt frásögn föður-
ins hófst deila þeirra feðga
fyrir um þremur árum, með
því að hann hélt því „í sak-
leysi sínu“ fram, að þrátt fyr-
ir frama sonarins til æðstu
metorða innan Verkamanna-
flokksins tilheyrði hann eftir
sem áður verkamannastétt-
inni. Þetta mun John ekki
hafa líkað.
Faðirinn fjáði Sun: „Hann
hefúr breytzt. Ég sagði að
John tilheyrði verkamanna-
stétt, það var allt og sumt.
Hann er sonarsonur náma-
verkamanns og sonur járn-
brautarmanns. En hann held-
ur að hann sé millistéttar-
maður og móðgaðist.“
„Þetta er persónulegt mál
og er aðeins ein
hliðin á mjög
sorglegri sögu,“
hefur blaðið eftir
John Prescott.
„Allir Bretar
bráðum í milli-
stétt“
í janúar sl. lýsti
Tony Blair, leið-
togi Verkamanna-
flokksins og for-
sætisráðherra, því
yfir að þess væri
skammt að bíða
að hægt væri að
skilgreina svo til
alla brezku þjóð-
ina sem millistéttarfólk.
Deila þeirra Prescott-feðga
hefur nú varpað sviðsljósinu
á kynslóðadeilu innan Verka-
mannaflokksins um stéttar-
vitund og hlutverk hennar í
stjórnmálum.
13% þingmanna flokksins
úr stétt verkamanna
Samkvæmt félagsvísinda-
legri rannsókn sem gerð var í
Bretlandi árið 1979 töldust
þá 35% Breta til millistéttar.
Nú er þetta hlutfall komið í
um 50%, og hlutfall þeirra
sem stunda sígilda verka-
mannaatvinnu er komið niður
í um 17%.
í hinum 418 manna þing-
flokki Verkamannaflokksins í
neðri deild brezka þingsins
teljast aðeins 13% vera af
verkamannastétt. Þetta hlut-
fall fannst leiðtogum flokks-
ins of lágt, og því hefur verið
gripið til ríkisstyrktra að-
gerða til að gera fólki úr
verkamannastétt auðveldara
að bjóða sig fram í kosning-
um.
John
Prescott
Peking, Hong Kong. AP.
HELSTI fulltrúi Kínverja í sam-
skiptum þeirra við Taívana kann að
fresta væntanlegri för sinni til Taí-
van ef taívanskir embættismenn
geta ekki gefið viðunandi útskýr-
ingar á afstöðu taívanskra ráða-
manna til stjórnarinnar í Peking,
að því er fram kom í opinberu mál-
gagni Kínastjómar í gær.
Kínverska dagblaðið sagði heim-
sókn Wangs Daohans til Taívans
„óhugsandi“ nema Taívanar út-
skýrðu nýlega yfirlýsingu Lees
Teng-huis, forseta Taivans, um að
Kína og Taívan væru aðskilin, jafn-
rétthá ríki. Lee lét þessi orð falla í
útvarpsviðtali fyrir viku, og ollu
þau miklum úlfaþyt í Peking. Kín-
versk stjómvöld líta á Taívan sem
uppreisnarlendu sem sameina beri
Kína.
Zhang Kehui, yfirmaður kín-
verskrar stofnunar sem fer með
taívönsk málefni, sagði í Kínverska
dagblaðinu að enginn möguleiki
væri á að Wang færi til Taívan fyrr
en starfsbróðir sinn í Taívan, Koo
Chen-fu útskýrði hvað forsetinn
hefði átt við með því að tala um við-
ræður „tveggja ríkja“ er hann tal-
aði um Kína og Taívan.
Stjómvöld beggja vegna Taí-
vanssunds hafa jafnan sagt bæði
löndin tilheyra „einu Kína“, og hef-
ur þetta hugtak komið í veg fyrir
að Kínverjar lýsi yfir stríði og her-
taki Taívan. Lee kveðst enn
hlynntur sameiningu, en stjóm
hans lýsti því yfir í vikunni að hug-
myndin um „eitt Kína“ væri Taívan
fjötur um fót.
Hóta að hertaka
tvær smáeyjar
Taívanar höfðu vænst þess að
Wang kæmi í heimsókn í haust og
myndi það verða til þess að koma
aftur á viðræðum sem Kínverjar
aflýstu 1995 vegna tilrauna Taí-
vana til að láta meir að sér kveða á
alþjóðavettvangi. Kínverska dag-
blaðið greindi frá því að kínversk
samtök, sem vinna að sameiningu
Kína og Taívans, hefðu lýst því yf-
ir að með yfirlýsingu sinni hefði
Lee gert hugmyndina um eitt
Kína að engu, og að fyrir honum
vekti fullur aðskilnaður Taívans
frá Kína.
Blaðið Hong Kong Economic
Times hafði í gær eftir kínversk-
um embættismanni, að ef deilan
harðnaði kynni svo að fara að Kín-
verjar myndu hertaka eina eða
tvær taívanskar smáeyjar sem
liggja næst meginlandinu. Allt
velti á því hvað Taívanar geri á
næstu dögum.
þrautreyndur
- íslensk
hönnun
T Wilderness
% Jokki 14.900 kr.
§ Anorakkur 11.900 kr.
i Buxur 7.900 kr.
=** Split buxur 9.900 kr.
tWtWMMWjú
.£r VV •Sí.':*,
SKATABUÐIN
.. .lu:U\ur þcr gcuigmnU