Morgunblaðið - 17.07.1999, Page 49

Morgunblaðið - 17.07.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ________________________________LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 49 MINNINGAR ' + Árni Sigurjóns- son fæddist í Reykjavík 22. febr- úar 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 2. júlí siðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju 9. júlí. „Fyrst vér erum um- kringdir slíkum fjölda votta, léttum þá af oss allri byrði og viðloðandi synd og þreytum þol- góðir skeið það, sem vér eigum framundan. Beinum sjón- um vorum til Jesú, höfundar og full- komnara trúarinnar." (Hebr.l2:l- 2a.). Þessi orð Páls postula passa vel við minningu vinar míns, Arna Sig- urjónssonar. Það eru liðin um það bil 15 ár síðan ég kynntist honum og ég á eftir að sakna hans mikið. Sem unglingur sótti ég samkomur Sam- bands íslenskra kristniboðsfélaga, S.I.K., á Háaleitisbraut. Það var þar sem ég hitti hann fyrst. Hann gaf sér oft tíma til að spjalla við mig eft- ir samkomumar, það hafði ótrúlega mikið að segja iýrir mig, á þeim tíma. Ég tók fljótlega eftir hversu rólegt lundarfar hann hafði og hve mikill friður fylgdi honum. Hann vitnaði um trú sína og samfélag við Jesú Krist með framkomu sinni. Þannig beindi hann sjónum mínum til Jesú. Hann var trúfastur og traustur vinur, sem gott var að tala við. Þegar ég var vígður til kristni- boðs fékk ég leyfi til að velja sjálfur einn vígsluvott. Það var ekki erfitt val fyrir mig, Jiað kom enginn annar til greina en Arni. Þetta var í janúar síðastliðinn, mér er ljóst núna að hann var þá þegar orðinn veikur, en hann kvartaði ekki. A svipuðum tíma og Árni hverfur sjónum okkar, er ég einmitt að hefja störf hér í Kenýa, eftir tungumálanám, nánar tiltekið á sunnudag. Það er eins og hann vildi fá að sjá mér farborða. Það verður undarlegt að koma heim og vita til þess að hann er ekki þar. En ég veit að ég hitti hann aft- ur hjá Guði. Ég er Guði þakklátur og glaður fyrir að hafa fengið að kynnast Árna. Blessuð sé minning hans. Skrifað í Limuru, Kenýa, 14. júlí 1999. Leifur Sigurðsson. Hann var heilshugar í að ávinna menn í ljóssins konungsher, í deildarstarfinu og í Skóginum, þar sem starfað var meðal drengja og unglinga og á samkomum og sam- verum meðal fullorð- inna. Hann vissi að það lá á að boðin bærust út, hvort heldur væri með- al yngri eða eldri. Allir urðu að fá að heyra fagnaðarboðskapinn um Jesúm Krist, sátt- arteiknið Guðs og manna, um friðþægingarverk hans á krossinum, vegna synda okkar mannanna. Vitnisburður Árna í orði var í senn skýr og áhrifaríkur. Hann vitn- aði einnig með söng sínum, sem snart marga, enda hafði hann góða og fagra söngrödd. Þú, sem himins gæða gnótt gjaman þráir dag og nótt, mundu það, að hún er einmitt ætluð þér. Jesús lifír, lausn hann er, líf sitt gaf til hjálpar þér. Barnarétt hann ávann þér og erfðahlut. Verði takmark þitt og þrá það, að dvelja Jesú hjá, Náðarstraumar opnast yfir þér. Eitt sem Drottinn ætlar þér er að bera vitni sér. Hann mun til þess veita bæði visku og náð. (Ámi Sigurjóns.) Hann vitnaði ekki aðeins í orði, heldur einnig í framkomu sinni og veru allri. Heiðríkja og birta ríkti ávallt yfir honum. Á sinn hógværa og kyrrláta hátt hafði Ámi áhrif á marga til góðs. Við aðaldeildarleik- menn KFUM vorum svo lánsamir að njóta starfskrafta hans um langt skeið, á margvíslegan hátt. Sakir yfirgripsmikillar þekkingar Árna á starfi og sögu félaganna var honum falið í aðaldeildinni að sjá um efnið „Fallnir stofnar", þar sem raktir voru afmarkaðir þættir í sögu og starfi félaganna. Þetta fundarefni var afar vinsælt og vel þegið, enda fundirnir ævin- lega fjölsóttm. Einnig lék hann undir söng í aðal- deildinni um áratuga skeið. Oft var leitað til Áma um leið- beiningu og ráð og fyrirbæn. Alltaf hafði hann tíma fyrir einstaklinginn, hann kunni að hlusta og réð hverj- um heilt. Þetta reyndum við í aðal- deildarstarfinu og endranær. Lærisveinar Drottins, merkisber- ar krossins, erindrekar Krists, á öll- um tímum hafa vitað, að líf okkar manna hér á jörð er vegferð og að sú vegferð tekur enda. Þeir hafa alla tíð haft maririð ljóst íyrir augum sér og sungið saman: Til himinsala mín liggur leið, þar ljúft er heima að búa. Síðar segir: Þar hitti eg vin minn, hinn hvíta Krist, og helgan útvaldra skara. (Fr.Fr.) Undir þann söng tók Árni. Þinn lýður, Kristur, lofar þig, þín leysta brúður gleður sig í fylgd með þér mót fegri jörð og sól. Heilagur, heilagur, heilagur ert þú hæst i hæð. (Sigurbj. Einarss.) Að leiðarlokum þakka aðaldeild- armenn samfylgdina, stuðninginn og samfélagið við kæran bróður, sem nú er kominn heim til himinsala, þar sem ljúft er að búa, og hefur heyrt orð frelsara síns og meistara. Gott, þú góði og trúi þjónn... Gakk inn til fagnaðar herra þíns. (Matt.25) Lof sé Föðumum lesið og tjáð, lof sé vors Herra Jesú náð, lof Helgum Anda allan tíð, amen, lof sé þér, Þrenning bh'ð! (Hallgr. Pét.) Aðaldeildarmenn þakka Guði fyr- ir líf og starf Árna Sigurjónssonar. Blessuð sé minning hans. Aðaldeild KFUM. Það er kyrrt og rótt í tjaldi, það er komin háttatíð og við kvöldbæn sína dvelja Skógarmenn. Uti rignir þétt og mikið, svo að renna vötn um hh'ð, það er rokkið nú og dimmir betur senn. (M.R.) Regnið bylur á stóra, hvíta matar- tjaldinu í Lindarrjóðri í Vatnaskógi. Ekki grunlaust um að sumum finn- ist orgelleikarinn spila heldur hægt. Lagið sjálft, efni kvæðisins, náttúru- fyrirbrigði regn með alkunnri músík sinni á tjaldstrigann, eðlisleg rósemi hljóðfæraleikarans ásamt ívafí trú- arlegrar tilbeiðslu og samkenndar við náttúruna veldur allt því, að þéttir fingur orgelleikarans fara sér hægt um tónborðið í þetta skiptið. Það er ágúst 1938. Fyrsta ferð níu ára drengs í „Skóginn“. Organist- inn: Árni Sigurjónsson. Þetta endur- tekur sig sumarið 1939. Tilgangur þeirra, er að dvöl pilt- ARNI SIGURJÓNSSON Til himinsala mín liggur leið, þar ljúft er heima að búa. (Fr.Fr.) Þessi orð koma í hugann, þegar aðaldeildarmenn KFUM kveðja góðan og traustan vin, Árna Sigur- jónsson. I sálmi eftir sr. Friðrik Friðriks- son segir: Fomrar tíðar frelsismál færir vakning ungri sál Einn þeirra er heyrðu hið forna frelsismál, á æskudögum, var Ái-ni Sigurjónsson. Hann heyrði kall hins krossfesta og upprisna frelsara, Jesú Krists, til eftirfylgdar og þjón- ustu í ríki hans. Þar hafði Drottinn valið honum hlutverk hátt, sem Árni rækti af trú- mennsku og alúð. Hann gekk til þeirra verka sem Drottinn hafði áð- ur fyrirbúið, til þess að hann skyldi leggja stund á þau. Gilti þar einu hvort KFUM ætti í hlut, Vatnaskógur, kristniboðið eða Gídeon, alls staðar var sóst eftir starfskröftum Árna. Árni var trúr hinum lútherska arfi hinnar íslensku þjóðkirkju, arfi í tali og tónum, sem hann mat mikils. Alla tíð var hann kirkjunnar maður, hinnar kristnu kirkju, sem hvetur, kallar og laðai- án afláts. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Fagragarði 8, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn 10. júlí. Útförin hefur farið fram f kyrrþey. Skjöldur Þorláksson, Sólveig Skjaldardóttir, Rúnar Ingibergsson, Arnar Skjaldarson, Sigríður Þormar Vigfúsdóttir, Guðbjörg Skjaldardóttir og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, BJÖRG GUNNARSDÓTTIR, Sæbólsbraut 47, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðju- daginn 20. júlí nk. kl. 13.30. Fyrir hönd annarra vandamanna, Komdu í ljóssins konungsher, Kristur sjálfur ljósið er. Tignamafnið æðsta berðu eftir það. Erindreki í Jesú stað. (Lilja S. Kristjánsd.) Ingvar Hólmgeirsson, Jóhanna Ingvarsdóttir, Grétar Friðriksson, Sigríður Ingvarsdóttir, Hermann Einarsson og barnabörn. anna í Skóginum stóðu, var ekki ein- göngu rómantík útiverunnar og tjaldbúðah'fsins, heldur annað og há- leitara: „Það er talað hljótt við Drottin, það er tignarmikil stund, þegar titra hjartastrengir æsku- manns,“ eins og síðar segir í kvæð- inu. Ama Sigurjónssyni var alla tíð Ijós hver tilgangurinn var með starf- inu í Skóginum: ,Áfram að mark- inu“, stendur í merki Skógarmanna. Markið var ofar og æðra öllu verald- arvafstri: Að stilla hjartastrengi æskumanna við fagnaðarerindi kristinnar trúar og siðfræði. Árni helgaði sig þessu starfi. Vinnuflokkaferðir með Árna í Skóginn með skipi upp á Akranes og í, bíl þaðan í Skóginn eru ótaldar. Ami með sínar frægu „Adda-pillur“. Lakkríspillur í blikkdós - gleðigjafi og geðbót óþreyjufullra ungra pilta á leiðinni upp á Skaga - vom bragð- góðar í munninn. Létt lund og per- sónuleiki Árna allur var einstakt fyrirbæri. Á malarvellinum í Skóginum eða í Fossvogi í Reykjavík var þessi gamli, knái knattspyrnumaður úr Val fremstur jafningja og sýndi svo ekld varð um villzt, að gamlir, góðir taktar með boltann gleymast seint. Að loknum þeim líkamlegu átökum, sem fótboltinn bauð upp á í Foss- voginum, var sezt niður og „talað hljótt við Drottin" eins og í Skógin- um. Árni samur við sig og trúr sinni köllun. Auk ýmissa starfa innan KFUM og Skógarmanna var Árni „sveitar- stjóri“ í yngri deild félaganna og hafði hluta Vesturbæjar Reykjavík- ur. Ég - úi’ Austurbænum - öfund- aði strákana af þessum vel verkifarna dugnaðarjaxli, sem skóp þeim ýmis föndurverk, sem margir þeirra - nú rígfullorðnir - minnast enn og þakka Árna fyrir. Margt var Árna vel gefið fyrir ut- an sjarmerandi og aðlaðandi per- sónuleika, músíkgáfu og söngrödd. Hann hafði fagra rithönd. Eitt sinn á stríðsárunum var ég sendur í veð- » deild Landsbankans í Austurstræti að greiða niður veðdeildarlán karls föður míns af húseign, 500. kr. Árni var þar. Ég fékk kvittun með rit- hönd hans. Hún er enn minnisstæð og ljóslifandi! Ég hugsaði: Svona eiga bankastjórar að skrifa! Læsi- legt fornafn og föðurnafn fléttað saman á einstaklega listrænan hátt! Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi pró- fessor og ráðherra, aldavinur sr. Friðriks Friðrikssonar, sagði hann (sr. Fr. Fr.) aldrei hafa minnzt á trúmál við sig. Þó hefði sr. Friðrik haft meiri áhrif á sig, sennilega bæði kristileg og siðfræðileg, en nokkur annar. Arni fór nokkuð svipað að og sr. Friðrik eða eins og segir: „Sýn mér trú þína af verkunum." Árni var enginn „hávaða predikari". Með allri framkomu sinni og verkum boðaði hann raunar Guðs orð „í tíma og ótíma“ eins og Páll postuli kvaðst hafa gert. Fyrir og upp úr miðri þessari öld þóttu orð Jakobs postula: „Sýn mér trú þína af verkunum“, ekki beinlín- is hreinn og klár lúterskur, kristinn rétttrúnaður - nema með vissum skýringum - eða tilvitnun í eitt norsku stórskáldanna: „Þar sem góðir menn fara eru guðsvegir“. Um Árna Sigurjónsson genginn verður þó sannarlega sagt með all- góðri vissu og samvizku, að þar fór góður maður á guðsvegi, sem sýndi heilsteypta trú sína í verki alla ævi. Mér er þakklæti í huga fyrir kynni mín af Árna Sigurjónssyni. Guð blessi minningu góðs drengs. Geir H. Þorsteinsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRANNA STEFÁNSDÓTTIR sjúkraliði, Klapparstíg 1, Reykjavík, andaðist á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykja- víkur að kvöldi fimmtudagsins 15. júlí. Rúnar Ármann Arthúrsson, Brynja Arthúrsdóttir, Rut Arthúrsdóttir, Pétur Friðrik Arthúrsson, Stefán Júlíus Arthúrsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, JENNÝ KRISTÓFERSON frá Viborg, Danmörku, síðast til heimilis í Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtuda- ginn 8. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Jón Hansson, Dóra F. Axelsdóttir, Erlendur Jónsson, Hákon Jónsson, Björg Jónsdóttir. + Ástkær dóttir mín og móðir, ESTHER ALEXANDERSDÓTTIR, Sólheimum 23, sem lést mánudaginn 12. júlí, verður jarð- sungin frá Háteigskirkju mánudaginn 19. júli kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á minningarsjóð Hjúkrunarþjónustunnar Karitas. Alexander Stefánsson, Margrét Alexandersdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.