Morgunblaðið - 17.07.1999, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Handrit eru menningar-
verðmæti framtíðar innar
Hallgrímur Helgason skrifar kvikmynda-
handrit jafnt sem skáldsögur og leikrit.
Hann sagði Hildi Loftsddttur frá nýjasta
hugarfóstrinu.
Morgunblaðið/Golli
HALLGRIMUR Helgason er að skrifa handrit um mann í konuleit.
v „ÉG Á EFTIR að kyssa 37 stelpur
'áður en ég finn þá einu réttu,“ er
heiti kvikmyndahandrits sem Hall-
grímur er að skrifa. Nýlega fékk
hann framhaldsstyrk úr Kvik-
myndasjóði Islands, en í janúar
hlutu tíu handrit styrk, núna fimm
þeirra, og einungis tvö handrit
hljóta lokastyrkinn í september.
„Þetta er svona útsláttarfyrirkomu-
lag ekki ósvipað og í heimsmeistar-
keppninni í fótbolta,“ út skýrir
skáldið.
Orðinn spenntur
, „Handritið fjallar um mann sem er
orðinn örvæntingarfullur í leit sinni
að konu. Hugmyndin kom frá
Bjarna Hauki Þórssyni, Hellisbú-
anum góðkunna, og ég skrifaði
hana fyrst sem leikrit sem fer von-
andi á fjalir innan skamms. Náung-
inn fer tii spákonu sem segir hon-
um að hann þekki konuna nú þegar,
það eina sem hann þurfi að gera sé
að kyssa hana. Svo hann verður að
fara og kyssa allar konur sem hann
þekkir. Annars er sagan að vissu
leyti sjálfsævisöguleg. Ég er sjálfur
kominn upp í 36 stelpur, þannig að
maður er orðinn verulega spennt-
ur.“
- Þetta er ansi langur titill.
„Já, en það verður kannski hægt
að stytta hann í klippiherberginu.
Hann datt í mig í flugvél á leið til
Gautaborgar og eins og alltaf vai-ð
ég bara að skrifa hann niður. Ég
tók servíettu og skrifaði þar þenn-
an titil stórum stöfum. Þá fattaði ég
að maðurinn við hliðina á mér var
að fylgjast með mér og fannst þetta
sjálfsagt heldur einkennileg
yfirlýsing."
- Og er þessi gæi svona
andhetja eins og flestar af
þínum persónum eru?
„Já, hann er svona létt-
ur lúser í ætt við Hlyn
Bjöm í 101, en venjulegri
og geðþekkari, voða góður
strákur sem vinnur á aug-
lýsingastofu og hlustar á
George Michael.“
Verður aldrei
að bíómynd
„Það er voða gaman að
skrifa kvikmyndahandrit;
búa til sína eigin bíó-
mynd, lifa og hrærast í
eigin heimi í tvær vikur.
En svo er hins vegar lítil
hætta á að handritið
verði gert að bíómynd,
ekki frekar en næstum
100% allra handrita sem
skrifuð eru. Bíómyndir
eru frekar afskrifaðar en
skrifaðar. Handritin sem
allir eru að skrifa eru
bara látin ganga á milli
manna í bransanum. Svip-
að og með handritin á
söguöld. Það hafa kannski
verið gerðar einhverjar
myndir eftir þeim á sínum
tíma, en þær eru glataðar
nú, og handritin gengu
bara svona manna á milli, í
nokkrum eintökum, þar til
þau voru loks gefin út sem
bókmenntir."
- Varst þú með í skrifa
handritið að kvikmyndinni
101 Reykjavík?
„Nei, en ég las það yfir og
líst mjög vel á það. Ég hef trú á því
að 101 verði frábær bíómynd. Guð
blessi Ingvar og Balta. Þetta verður
fyrsta íslenska talmyndin. Menn
hafa svona meira verið í augnaráðs-
myndum hér hingað til. Svona-mað-
ur-í-fjöru-að-horfa-á-sjóinn-og-hesL
ar-að-horfa-á-hann-stemmning.“
- Er handritið ólíkt bókinni?
„Já, það er alveg gjörólíkt, að und-
anskildum persónunum, samtölunum
og plottinu að sjálfsögðu."
- Hefurðu farið á tökustað?
Já, ég er viðstaddur allar tökur og
er alltaf með bókina með mér, tékka
á öllu áður taka hefst. Ég er sérstak-
lega harður við strákana á snjóvél-
unum en þeim hefur samt sem áður
enn ekki tekist að búa til þessa létt
frostkenndu febrúar-slyddu sem er
að finna á blaðsíðu 356.“
-Þannig að þú ert kannski ekki
beint vinsæll á settinu?
„Höfundur á tökustað er eins og
amma skrattans í heimsókn í helvíti.
Það eina sem hún getur sagt er
„Jæja gói minn, hvernig gengur?“„
- En er þá kossamyndin fyrsta
kvikmyndahandritið þitt?
„Nei, ég fékk styrk 1993 til að
skrifa handritið „Mestur hiti á land-
inu“, æsispennandi ástartrylli með
Valdimar Erni Flygenring og Beat-
rice Dalle sem gerist hringinn í
kringum landið. Það handrit er enn
til sölu. Ég get boðið upp á „tvö fyrir
eitt“ í pakka ef menn hafa áhuga.“
Spennitreyja
formsins
- Væri ekki auðveldara að halda
sig bara við skáldsðguna?
„Ja, ég held að handritin verði
seinna meir tekin sem bókmennta-
grein. Þó það séu ekki margir sem
lesa handrit í dag, þá verða þau
menningarverðmæti með tímanum
sem fólk geymir í rúmbotnum næstu
þúsund árin. Svo þegar Reykjavík
fer undir hraun, upp úr 2.500, verða
þau flutt til Los Ángeles en koma
svo heim um síðir og verða geymd í
Árnastofnun, þ.e.a.s. stofnun Árna
Samúelssonar."
- Já, já, einmitt. En er þetta grín-
handrit?
„Já, þetta er gamanmynd með
rómantísku ívafi. Mig langaði til að
vera svolítið góður núna.“
Er ekki léttara að skrifa handrit
en skáldsögu?
„Nei. Maður hefur bara 90 síður
til umráða og getur ekki leyft sér
neitt málæði, ekki frekar en gömlu
handritaskrifararnir, þar sem skinn-
ið var svo dýrt og framleiðandinn
stóð brjálaður úti á hlaði og bölvaði
hverjum kálfi sem hann þurfti að
slátra. Ég trúi á spennutreyju
formsins."
-Hefurðu alltaf haft áhuga á að
skrifa kvikmyndahandrit?
„Já, ég er myndlistarmaður og rit-
höfundur, og í kvikmynd kemur það
tvennt saman. Spámaður sagði eitt
sinn við mig hér niðri á Kaffibarnum
að ég myndi fara út í kvikmyndir og
ég hef alltaf reynt að hlýða spádóm-
um samviskusamlega.“
-En hvers mega aðdáendur þín-
ir vænta frá þér að auki? Skáldsögu?
„Já, ég ráðgeri að byrja á skáld-
sögu hinn 6. október nk. En ég hef
helst fengið það í eyrað varðandi
skáldsögurnar að það séu of mörg
orð í þeim þannig að ég ákvað að ef
ég byrjaði bara nógu seint á bókinni
yrði hún styttri fyrir vikið. Ég byrj-
aði á „101 Reykjavík" hinn 4. sept-
ember á sínum tíma þannig að nú hef
ég helmingi minni tíma til að klára
þessa fyrir jólavertíðina. Hún ætti
þá að standa í um það bil 200 síðum.“
- Um hvað fjallar bókin?
„Hún verður soldið svona eins og
ef Laxness hefði farið á Matrix og
fílað hana og haft samband við Paul
Auster og beðið hann að skrifa sig
inn í söguþráðinn."
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins
í Borgarnesi
aBMaBi Isiaiids er það lag
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið
efndu til samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum
1997 og 1998.
í Sparisjóði Mýrasýslu í Borgarnesi hefur verið komið upp sýningu
á þeim myndum sem dómnefnd taldi bestar.
Myndefnið er fjölbreytt og gefst því kostur á að sjá brot af viðfangsefnum
fréttaritara Morgunblaðsins sem eru um 100 talsins og gegna mikilvægu
hlutverki í fréttaöflun blaðsins á landsbyggðinni.
Sýningin stendur til fimmtudagsins 29. júlí og eru myndirnar
á sýningunni til sölu.
I
1
I |Wíir0itinMa^i&
fi 7 ' ___________________ _________________________
-^:***-w
nefiidnskáldsöguHallgn'ml '
gríms „Þúsund eyja sosa
& í Iðno.