Morgunblaðið - 17.07.1999, Síða 64
.64 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
r • 'i
HÁSKÓLABÍÓ
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 530 1919
Pomlidid
Celcbrity
plunkett & madeane
eir ræna þa riku...punktur!
www.haskolabio.is
iiju jjjjji /í;j.
jjj/jjj/ jjjjjjj jijijj;/ jar" .
1/jíij/jjuj jjjjj /J/JJ jf
Ij/;/j/ j/ Ljjjjjjj.. ,^r
' % •^I|L
★★★
MUMIAN
Frabær ævmtyramynd uppfull íif spcnnu
gríni og lygilegum tæknibrellum.
Sýnd kl. 9.20. B.i. i4ára. Verð kr. 500.
HI-LO COUNTRY
HÁSLfTTAN
Sýnd kl. 5, 7 og 9. b.í. 16.
Sýnd kl. 4.50 og 7. sis. sýn.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.30. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 11.10. B.i. 16.
Kl. 5. Slð.sýn. B.i.16.
FBRÐU t BÍÓ Alfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905
!jjidj/ijjj jjjjj /i;j;:7rf
u/jjj/ jjjjjj ;!dijj;j ju.
/jíjj/Ijjj jjjjj m'ij
S/iÍur j: MSmbm
kvikmyndir.
www.samfilm.is
Sandy Brechen er sérstakur gestur
Harmonikkuhátíðar Reykjavíkur
Skotinn Sandy Brechen og hljómsveit hans
spila tónlist sem er byggð á skoskri þjóð-
• lagahefð en er líka nútímaleg og dálítið
fönkuð. Birna Anna Björnsdóttir ræddi við
Sandy og félaga hans um þjóðlagatónlist,
sekkjapípur og Neró keisara.
Sandy Brechen og hljómsveit hans leika á dansleik á Broadway í kvöld Morgunbiaðið/Amaidur
Harmonikkufélag
Reykjavíkur heldur harm-
onikkuhátíð nú um helgina
og verða af því tilefni fjölmargar
og fjölbreyttar harmonikkuuppá-
komur víðsvegar um borgina. Sér-
stakur gestur hátíðarinnar er
skoski harmonikkuleikarinn Sandy
Brechin.
^ Með klassíska menntun
Sandy hóf nám í harmonikkuleik
átta ára gamall og nam klassískan
harmonikkuleik í fjöldamörg ár.
Síðustu árin hefur hann svo spilað í
ýmsum tegundum hljómsveita og
einnig gefíð út tvær breiðskífur hjá
skoska útgáfufyrirtækinu Green-
trax Recordings. Hljómsveitin sem
lék með honum á breiðskífunum er
sú hljómsveit sem er með honum
hér á landi núna og hafa þeir spilað
saman í um þrjú ár. í henni eru
.auk harmonikkunnar, trommur,
rafmagnsgítar og bassi og er sviðs-
framkoma þeirra fjörug og dálítið
rokkuð. Tónlistin sem þeir spila er
byggð á skoskri þjóðlagahefð en er
samt nútímaleg og jafnvel fönkuð.
Þeir leika á dansleik á Broadway í
kvöld og verður hann að sögn að-
^standenda hátíðarinnar, hápunktur
líennar.
Er þjóðlagatónlist vinsæl í
Skotlandi í dag?
„Já, hún er það,“ segir Sandy,
„bæði hefbundin þjóðlagatónlist og
svo einnig þjóðlagatónlist með nú-
tímalegra sniði svona eins og við
spilum. Það er mjög algengt bæði í
Skotlandi og einnig á Irlandi að
þjóðlagahefðin hafi áhrif á popp-
og rokktónlistina."
Sandy segir að þjóðlagatónlist
hafi löngum verið vinsæl í
Skotlandi. Þegar skoska þingið var
sett núna í sumar átti þjóðlagatón-
list stóran þátt í hátíðarhöldunum í
kringum það. Hann segir það oft
einkenna þjóðir sem hafa verið
kúgaðar eða undir annarra stjórn
að þær haldi mjög fast í allt sem
sérkenni þær. Eins verði þjóðleg
menning oft sérstaklega áberandi
þegar þjóðir standa í sjálfstæðis-
baráttu og stundum sé hún jafnvel
notuð sem tæki í baráttunni.
Á meðan Róm brann...
„Þegar minnst er á skoska þjóð-
lagatónlist sjá fiestir fyrir sér
stæðilegan skeggjaðan karl með
sekkjapípur. En er það eitthvað
fieira en sekkjapípurnar sem er
einkennandi fyrir tóniistina?
„Sekkjapípumar hafa auðvitað
haft mikil áhrif á þjóðlagatónlist í
Skotlandi og eru þær líka mjög
frægt skoskt fyrirbæri,“ segir
Sandy. „Þó leikur reyndar vafi á
því hvort þær eru upprunalega
frá Skotlandi og er í raun líklegra
að þær eigi rætur sínar að rekja
tii Rómverja. Því er kannski nær
að ímynda sér að Neró keisari
hafi leikið á sekkjapípur, frekar
en fiðlu eins og stundum er sagt,
á meðan Róm brann.“
Sandy segir að fleiri hljóðfæri
komi við sögu í skoskri þjóð-
lagatónlist og þeirra á meðal
séu fiðlan, önnur strengjahljóð-
færi, harmonikkan og ýmsar
flautur. Samspil þessara hljóð-
færa hafí, ásamt sekkjapípun-
um, átt mikinn þátt í að móta
þjóðlagahefðina í Skotlandi.
A harmonikkan sér langa sögu í
Skotlandi?
„Nei, í rauninni ekki, hún kom
ekki til Skotlands fyrr en í byrj-
un þessarar aldar en hún varð
strax mjög vinsælt og útbreitt
hljóðfæri. Fiðlan hafði verið til
síðan á sextándu öld en hún var
dýr og var því ekki á allra færi að
eignast fiðlu. En með tilkomu
harmonikkunnar gátu flestir sem
vildu, eignast hljóðfæri. Einnig
SANDY hefur gefið út
tvær breiðskífur hjá
skoska útgáfiifyrirtæk-
inu Greentrax Recor-
dings.
komu til sögunnar alls konar
flautur og einföld strengja-
hljóðfæri eins og banjó og lítil
mandólín sem almenningur
eignaðist og spilaði mikið á,
sérstaklega í sveitahéruðum."
Sandy og hljómsveitin hans
munu leika víðsvegar um bæinn
um helgina og ætla svo að
dvelja hér áfram í nokkra daga
og skoða landið. Þá langar til
að synda í hveravatni, fara
upp á jökul og gera allt þetta
skemmtilega sem þeir hafa
heyrt að sé hægt að gera á
Islandi.
„ÞJÓÐLAGATÓNLIST
er mjög vinsæl, bæði
Skotlandi og á Irlandi,"
segir Sandy.