Morgunblaðið - 29.07.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.07.1999, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti hús Stephans G. Stephanssonar skálds í fyrradag. Með honum í för var Dalla, dóttir hans. Heimsótti slóðir Stephans G. HEIMSÓKN forseta íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, til Kanada, stendur nú sem hæst. I fyrradag heimsótti hann m.a. slóðir Steph- ans G. Stephanssonar og annarra íslenskra landnema í Markerville. Forsetinn Iagði blómsveig frá ís- Iensku þjóðinni að Ieiði Stephans og skoðaði hús skáldsins í Spruce View. I húsi Stephans er nú starfrækt safn tileinkað minningu hans og kynnti forsetinn sér starfsemi þess. Þar tóku á móti honum þrjú barnabörn Stephans G. Stephans- sonar, ásamt öðrum afkomendum íslenskra landnema á svæðinu. Við húsið var fjölsóft menningarhátíð og fulltrúar þings Kanada og fylk- isþingsins í Alberta fluttu forset- anum kveðjur. I ræðu sinni hyllti forsetinn ininningu Stephans G. og þakkaði stjórnvöldum í Kanada fyrir þann sóma sem þau sýna lífi hans og skáldskap. Ólafur Ragnar heimsótti einnig ijómabú í Markerville, sem ís- lenskir bændur stofnuðu um síð- ustu aldamót. Það hefur verið end- urgert og hýsir nú safn sem Vest- ur-Islendingar sjá um. I fyrrakvöld buðu Vestur-Islend- ingar í Alberta-fylki forsetanum til hátíðarkvöldverðar í Calgary. I gærmorgun fúndaði forsetinn með forystumönnum í atvinnulífi Al- berta-fylkis í boði Davids Kilgours, ráðherra þróunarmála. Um miðjan dag í gær hélt Ólafur Ragnar svo til Saskatchewan-fylkis og átti þar fundi með fulltrúum sfjórnvalda og fylkisþings. Laun embættismanna hækka um 11-14% Laun skatt- stjóra hækka KJARANEFND hefúr ákveðið að hækka laun um það bil fimmtán emb- ættismanna skattkerfisins, þar á meðal níu skattstjóra, um 11 til 14%. Ákveðinn hluti launabreytinganna miðast við 1. janúar sl. en hinn hlut- inn miðast við 1. maí sl. Að sögn Guð- rúnar Zoéga, formanns kjaranefndar, má búast við að nefndin úrskurði á næstunni um launabreytingar ann- arra forstöðumanna stofnana og fyr- Stórlaxar í Vatnsdalsá ÓVENJULEGA margir stórlax- ar hafa veiðst í Vatnsdalsá í sumar. Hópur veiðimanna, sem í vikunni lauk sex daga veiðitúr, dró á land 60 laxa og reyndist heildarþyngd laxanna litlu minni en 100 laxa sem sami hópur veiddi á sama tíma í fyrra. Laxar í Vatnsdalsá eru þekkt> ir fyrir að vera sérstaklega stór- ir. A síðustu 14 dögum hafa 14 laxar veiðst sem voru á bilinu 99-107 sentimetrar að lengd, en það þýðir að þeir voru 20-26 pund. Um 260-270 laxar hafa veiðst í ánni í sumar en það er um 80 löxum minna en á sama tíma í fyrra. Astæðan fyrir minni veiði er fyrst og fremst sú að smálaxagöngur hafa verið minni í sumar en oft áður. irtækja ríkisins sem undir hana heyra. Tilefni endurskoðunar á launum þessara aðila er að sögn Guðrúnar þær hækkanir sem orðið hafa á laun- um ríkisstarfsmanna undanfarin tvö ár en þess má geta að kjaranefndin ákvað fyrr í sumar að hækka laun ráðuneytisstjóra um 2,5 til 4,5% m.a. með vísan til ákvörðunar Kjaradóms frá 8. maí sl. um hækkun launa emb- ættismanna sem undir hann heyra, um 13,5%. í rökstuðningi kjaranefndar fyrir áðurnefndum hækkunum á launum embættismanna skattkerfisins segir m.a. að frá því að launakjör þeirra hafi síðast verið ákveðin hafi ekki orðið breytingar á kjarasamningum ríkisins. „Hins vegar hafa á síðustu misserum verið gerðir aðlögunar- samningar innan stofnana og fyrir- tækja ríkisins á grundvelli kjara- samninga opinberra starfsmanna og ríkisins frá árinu 1997. Við ákvörð- un kjaranefndar nú er meðal annars tekið tillit til kjarabreytinga sem þessir aðlögunarsamningar hafa haft í för með sér.“ Þá segir í rök- stuðningi kjaranefndar að hún hafi stuðst við þær almennu launafor- sendur sem Kjaradómur lagði til grundvallar úrskurði sínum 8. maí sl., en í samræmi við álit umboðs- manns Alþingis er nefndin að meg- instefnu til bundin við þær almennu launaforsendur sem Kjaradómur hefur lagt til grundvallar í úrskurð- um sínum. Husavfkurbær kaupir hlut KÞ í Fiskiðjusamlaginu Andlát Ræður yfir 46,5% hlutafjár í félaginu BÆJARSTJÓRN Húsavíkur sam- þykkti á aukafundi í gær að kaupa tæplega 14% eignarhlut Kaupfélags Þingeyinga í Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur hf. Eftir kaupin ræður bærinn yfir tæplega 46,5% hlut í Fiskiðju- samlaginu. Kaupverð er liðlega 180 milljónir kr. sem samsvarar geng- inu 2,1 og er það töluvert hærra en síðasta skráða gengi. Minnihluti bæjarstjómar gagmýndi vinnu- brögð meirihlutans við kaupin. „Við töldum að fyrst hlutabréfin væm til sölu þá væri ástæða fyrir bæinn að taka þau í sínar hendur og sjá hvemig þau kæmu bænum að sem mestu gagni,“ segir Kristján Asgeirsson, formaður bæjarráðs, í samtali við Morgunblaðið. Hann og Reinhard Reynisson bæjarstjóri gerðu KÞ tilboð um kaup á bréfun- um 14. júlí. Bæjarráð samþykkti kaupin viku síðar. Meirihluta bæjarstjómar skipa fimm fulltúar af H-lista, lista jafn- réttis og félagshyggju. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks gagnrýndu harðlega vinnu- brögð meirihlutans við kaupin, með- al annars með því að halda þeim frá bæjaiTáðsfulltrúum. Lýstu þeir sig þó fylgjandi kaupum hlutabréfanna og á fundinum í gær lögðu þeir fram tillögu um kaupin með ítarlegum fyrirvörum, meðal annars um for- sendur kaupanna. Meirihlutinn felldi tillöguna og samþykkti bókun bæjarráðs þar sem bæjarstjóra var falið að ganga frá kaupum hluta- bréfanna. Þrír fulltrúar minnihlut- ans greiddu atkvæði á móti og einn sat hjá. Yfir gengi á VÞÍ Bærínn kaupir hlutabréfin á genginu 2,1 sem er talsvert hærra en síðasta skráða gengi í félaginu á Verðbréfaþingi Islands. Síðustu við- skipti fóm fram 7. júlí á genginu 1,20. Kristján Asgeirsson telur gengi bréfanna á Verðbréfaþingi ekki raunhæft vegna þess hversu lítil viðskipti hafa farið fram á þeim vettvangi. Kaupin verða fjármögn- uð með lántöku. Húsavíkurbær átti meirihluta í FH en fyrri meirihluti seldi hluta af bréfum bæjarins. Með kaupun- um nú eignast bærinn 46,44% hlutafjár. Kristján var andvígur ýmsum ráðstöfunum fyrri meiri- hluta í málefnum Fiskiðjusamlags- ins. „Hann ætlar sér að leita leiða til að fyrirtækið verði betra og hagur bæjarbúa þar með betri og öruggari," segir Kristján þegai- hann er spurður að því hvort meiri- hlutinn hyggist beita sér fyrir breytingum á rekstri Fiskiðjusam- lagsins með auknum ítökum. „Stað- an var sú að bréfin voru til sölu og einhver hlaut að kaupa. Okkur þótti ekki rétt að láta svona stóran hlut fara án þess að vita hvar hann lenti,“ segir Kristján. GUNNLAUGUR E. BRIEM GUNNLAUGUR E. Briem, fyrrverandi ráðuneytisstjóri er lát- inn, 96 ára að aldri. Gunnlaugur fæddist hinn 5. febrúar árið 1903 á Sauðárkróki, sonur Eggerts Ólafs Eggertssonar Briem, sýslumanns á Sauðár- króki og síðar hæsta- réttardómara, og konu hans, Guðrúnar Jóns- dóttur Briem. Gunn- laugur lauk stúdents- prófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1922 og lögmannsprófi frá Háskóla íslands árið 1927. Gunnlaugur hóf störf í atvinnu- og samgöngumálaráðuneytinu árið 1927, var skipaður fulltrúi þar árið 1930 og skrifstofustjóri árið 1944. Hann var skipaður ráðuneytisstjóri atvinnumálaráðuneytisins 1947 og gegndi stöðu ráðuneytisstjóra tii ársins 1973. Hann var jafnframt dómari í Félagsdómi frá 1938-1974. Gunnlaugur gegndi fjölda félags- og trúnaðarstarfa. Var hann m.a. skrifstofustjóri útflutningsnefndar 1939-1943, skipaður í viðskiptaráð 1943-1945 og fulltrúi landbúnaðar- ráðherra í norrænni samvinnunefnd um landbúnaðarmál á veg- um Norðurlandaráðs 1965-1973. Þá sat hann í stjóm Rannsókna- stöðvar Skógræktar ríkisins 1968-1978 og var hann kjörinn heið- ursfélagi Skógræktar- félags Islands árið 1965. Gunnlaugur hlaut riddarakross hinnar ís- lensku fálkaorðu 1946, stórriddarakross 1952 og stórridd- arakross með stjömu 1963. Einnig hlaut hann frelsisorðu Kristjáns tí- unda 1946, kommandörkross sænsku Vasaorðunnar 1946, ridd- arakross norsku st. Olavsorðunnar 1947, annars stigs kommandörkross Dannebrogsorðunnar 1948 og fyrsta stigs kommandörkross Dannebrogsorðunnar 1956. Eiginkona Gunnlaugs var Þóra Briem, sem lést hinn 18. janúar á þessu ári. Eignuðust þau þrjú böm og em tvö þeirra á lífi. Sérblöð í dag sKiptapia Morgunblaðsins Sérblad um vidskipti/atvinnulíf • íslandsmet hjá Láru Hrund á EM / C1 Rútur Snorrason með Keflavík / C4 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.