Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
40. Olympíuleikarnir í stærðfræði
Islenskur kepp-
andi hlaut
bronsverðlaun
1 FERTUGUSTU Al-
þjóða-Ólympíuleikarn-
ir í stærðfræði, voru
haldnir í Búkarest í
Rúmeníu dagana 16.
og 17. júlí síðastliðna
og tóku þátt í henni
sex íslenskir keppend-
ur. Stefáni Inga Valdi-
marssyni, nemanda í 5.
bekk X í Menntaskól-
anum í Reykjavík,
gekk best íslensku
keppendanna og hlaut
hann bronsverðlaun.
Þrír keppendur eru úr
' sama bekknum, 5-X í
MR, þeir Pawel Bar-
, toszek, Bjami Kristinn
Torfason og Stefán Ingi. Aðrir
keppendur í íslenska liðinu eru Al-
, freð Kjeld, Guðni Ólafsson og Ingv-
ar Sigurjónsson. Liðsstjóri þeirra
var Askell Harðarson, stærðfræði-
kennari við Menntaskólann i
Reykjavík.
Langt fyrir ofan meðaltal
Sex keppendur frá hverju landi
taka þátt í Ólympíuleikunum. Að
þessu sinni voru þátttakendur alls
450 að tölu. Oftast hafa Rússar,
Kínverjar, Bandaríkjamenn og
ýmsar þjóðir frá Austur-Evrópu
verið meðal stigahæstu keppend-
anna og varð það raunin nú enda er
hefð fyrir keppni sem þessari rík
meðal þessara þjóða.
Þrjú dæmi eru lögð fyrir kepp-
endur hvorn dag og fá
þeir IV2 klukkustund tO
að leysa hvert þeirra.
Segir Geir Agnarsson,
dómnefndarfulltrúi í
keppninni, en hann
tekur þátt í að semja
keppnisdæmin, að
dæmin séu afar erfið.
Hæst geta keppendur
fengið 42 stig og eins
og gefur að skilja geta
margir keppendur
hlotið jafnmörg stig.
Þeir sem vinna til gull-
verðlauna eru meðal
þeirra átta af hundraði
keppenda sem bestan
árangur hljóta, silfur-
verðlaunahafar eru í hópi þess
fjórðungs sem nær næstbestum ár-
angri og árangur bronsverðlauna-
hafa er fyrir ofan meðaltal. Árang-
ur Stefáns Inga var langt fyrir ofan
meðallag, segir Geir.
Alþjóða-Ólympíuleikarnir eru
haldnir á hverju ári og hafa nem-
endur innan 20 ára aldurs rétt til að
taka þátt í þeim. Forkeppni er
haldin á vetuma þar sem nemendur
í eldri árgöngunum tveimur í fram-
haldsskólum landsins keppa sér og
hinir yngri sér. Bestu nemendunum
er boðið til úrslitakeppni og vega
útslit í henni og í Norðurlanda-
keppni, sem einnig er haldin ár
hvert, þyngst á metunum um hverj-
um er boðið að taka þátt í Ólympíu-
leikunum.
Stefán Ingi
Valdimarsson
SKÓGARGANGA í Sdlbrekkum 1995.
V
JL
Níunda og síðasta
skógarganga sumarsins
NÍUNDA og síðasta skógarganga
sumarsins, í röð gangna á vegum
skógræktarfélaganna, í fræðslu-
samstarfi þeirra við Búnaðarbanka
íslands, verður í kvöld, fímmtudag-
inn 29. júlí, kl. 20.30.
í þessari síðustu skógargöngu
sumarsins verður Skógræktarfélag
Suðurnesja sótt heim. Gengið verð-
MUNUM!
Barn má aldrei vera í framsæti
bíls með öryggispúða, hvorki í
barnabílstól né í sætinu.
ur um Sólbrekkur við Seltjöm en
þar hefur félagið staðið að umfangs-
mikilli skógrækt. Gangan hefst kl.
20.30. Fyrir þá sem ekki eru stað-
kunnugir er afleggjarinn að Sel-
tjöm og Sólskógum á leiðinni til Gr-
indavíkur, u.þ.b. 500 m innan við
gatnamót, og blasir svæðið þar við í
vesturátt. Gengið verður um Sól-
brekkur í fylgd staðkunnugra
manna. Boðið verður upp á veiting-
ar í göngunni og Stefán Óm Amar-
son sellóleikari (FÍH) mun annast
tónlistarflutning og stjóma fjölda-
söng ef stemmning verður góð.
Gefinn er kostur á rútuferð (sem
kostar 800 kr.) að upphafsstað
göngunnar og heim að göngu lok-
inni. Farið verður af stað kl. 19.30
frá húsi Ferðafélags Islands í
Mörkinni 6. Frekari upplýsingar
um gönguna er að fá á skrifstofu
Skógræktarfélags íslands.
í DAG
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Skattmann í
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar
HINN 17. júlí sl. lagði ég
af stað í ferð til Suður-
Evrópu. í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar var gerð at-
hugasemd við vegabréfið
mitt vegna þess að það
hafði hellst á það kaffisopi
og plastið losnað frá
myndinni. Vegabréfaskoð-
unin taldi að þetta kynni
að valda mér erfiðleikum í
útlandinu. Eg mátti í
miklu stressi taka leigubíl
til Keflavíkur hendast þar
á ljósmyndastofu og láta
mynda mig, síðan með
mjmdirnar á lögreglustöð-
ina þar í bæ og sækja svo-
kallað neyðarvegabréf og
þar næst til baka upp á
völl. Allt tók þetta innan
við hálftíma, enda afar
flinkt og elskulegt fólk
sem að þessu kom - og
þaulvant því að mér var
sagt að þetta væri ekki
einasta daglegt brauð
heldur kæmi stundum fyr-
ir margoft á sólarhring. Ef
eitthvað væri að vegabréf-
um fólks lenti það inn í
þessa stressuðu, og dýru
hringekju. Eg mátti sem
sagt borga tæplega tólf
þúsund krónur og þar að
auki var mér sagt að það
fyrsta sem ég þyrfti að
gera þegar ég kæmi heim
væri að panta mér nýtt
vegabréf því ekki var það
svo að þessi rándýri papp-
ír hefði eitthvert varanlegt
gildi.
„Stóri bróðir“ í Keflavík
Þarna er verið að skatt-
leggja fólk þungt sem,
áreiðanlega oftast vegna
vanþekkingar, er ekki með
passann sinn í fullkomnu
lagi. Fyrst að þetta er
svona algengt getur varla
verið stórmál að hafa í toll-
inum í Leifsstöð einhvem í
vinnu sem má gefa stimpil
á neyðarvegabréf þegar á
þarf að halda. Og hvers
vegna er ekki ljósmynda-
sjálfsali þarna fyrst að
þörfin er svona mikil? Þeir
eru út um allt - en ekki
þarna. Það er óhugsandi
að þetta þurfi að vera
svona dýrt - hver græðir
eiginlega á því að halda
þessu svona? Það rétt
svona hvarflar að manni
eitt og annað sem sagt var
um Sovétið í gamla daga.
Hver skyldi hann eiginlega
vera sá „stóri bróðir“ sem
heldur verndarhendi yfir
þessu fyrirkomulagi?
Sá gamli
í fullu gildi
Þegar að mér kom við
vegabréfaskoðunina í Zur-
ich, sem var minn fyrsti
áfangastaður, rétti ég
náttúrlega að manninum
þetta nýfengna blað, sem
var áberandi öðruvísi en
önnur vegabréf. Hann
velti lengi vöngum yfir því
og horfði á mig með spurn
í svip. Eg tók þá upp minn
gamla passa, rétti honum
og sagði upp alla söguna.
Hann taldi neyðarvega-
bréfið mun tortryggilegra
en kaffivegabréfið og lét
mig fara áfram eftir að
hafa látið í ljós samúð
vegna íslenskrar „bírókra-
tíu“. Skemmst er frá því
að segja að eftir þetta not-
aði ég mitt gamla vegabréf
þar sem á þurfti að halda
og enginn gerði athuga-
semd við það.
Nú hvarflar ekki að mér
að þetta elskulega fólk
sem greiddi götu mína í
Keflavík eigi hér nokkra
sök. Og alveg er ég viss
um að konunni í vega-
bréfaskoðuninni fannst
einlæglega að ég gæti lent
í vandræðum með gamla
passann minn. Hins vegar
er mönnum töluverður
vandi á höndum við mat af
þessu tagi, þar sem dóm-
urinn kann að kosta fólk
fjárhagslegt og andlegt
áfall e.t.v. í byrjun erfiðrar
ferðar. Ekki ber að van-
meta stressið sem þvi fylg-
ir að eiga á hættu að missa
af flugvél til útlanda. Og
þessi upphæð er töluverð-
ur biti fyrir meðaljóninn.
Hálfpartinn finnst mér að
Dýrahald
Hrói er týndur
HRÓI hefur verið týndur
frá 5. júlí. Hann er gul-
bröndóttur með hvíta
bringu og hvíta fætur og
hvítt nef með blesu á enn-
inu. Hann var með gráa
sjálflýsandi ól, rauða að
innan, þegar hann hvarf.
Ef einhver getur gefið
einhver skuldi mér afsök-
unarbeiðni, jafnvel pen-
inga - ég veit bara ekki al-
mennilega hver.
280952-4869.
Tapað/fundið
Grár jakki tekinn í
misgripum
GRÁR jakki var tekinn í
misgripum í Þórshöll laug-
ardaginn 17. júlí. Þeir sem
kannast við jakkann hafi
samband í síma 567 2601.
Barnadýna týndist
BARNADÝNA, þunn
svampdýna, gráleit, fauk
af svölum á Laugaveginum
sl. sunnudag. Þeir sem
hafa orðið dýnunnar varir
hafi samband í síma
561 8414 eða 561 8418.
upplýsingar um afdrif
Hróa, vinsamlegast hafið
samband í síma 551 2164
eða 698 5435.
Gulur kettlingur
í óskilum
GULUR kettlingur, loð-
inn, er í óskilum í Kópa-
vogi. Fannst í Kópavogs-
dal. Þeir sem kannast við
kisa hafi samband í síma
695 1732 eða 697 8586.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
opnu móti í Ljubljana í
Slóveníu í sumar.
Stórmeistarinn Bojan
Kurajica (2.535),
Bosníu, hafði hvítt og
átti leik gegn
heimamanninum
Zorman Vojko (2.315)
20. Bh6! og svartur
gafst upp, því eftir 20. -
gxh6 21. Hxf8+ - Kxf8
22. Df6+ - Kg8 23. Hel
verður hann mát í
nokkrum leikjum. Sex
stórmeistarar urðu
jafnir og efstir á mótinu,
þeir Kurajica, Kogan,
Israel, Svesnjikov og
Volsjin, Rússlandi og
Ki-óatarnir Kozul og
Zelcic. Þeir hlutu allir 7
vinninga af 9
mögulegum.
HVÍTUR leikur og
vinnur.
Víkverji skrifar...
SKÝRSLA Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands um umhverfí
kjúklingabús Reykjagarðs á Ás-
mundarstöðum vakti mikla athygli
í síðustu viku. Skýrslan var harð-
orð og forsvarsmenn heilbrigðiseft-
irlitsins fylgdu henni eftir með
óvenjulega stóryrtum yfirlýsing-
um. Umfjöllun um svona mál í fjöl-
miðlum er sérlega viðkvæm. Fjöl-
miðlar hafa upplýsingaskyldu
gagnvart almenningi ef verið er að
framleiða og selja gallaða vöru í
slæmu umhverfi, en þeir verða
jafnframt að gæta þess að hægt sé
að færa sönnur á ásakanirnar og að
menn séu ekki að fara af stað með
mál sem að ósekju rústar fyrirtæki
og heila atvinnugrein.
Forsvarsmenn Heilbrigðiseftir-
lists Suðurlands hafa kosið að nota
mjög stór orð í þessu máli. Víkverji
staldraði t.d. við viðtal við fram-
kvæmdastjóra þess í DV þar sem
hann lét svo ummælt að neytendur
væru í lífshættu vegna þessa máls.
Víkverji sér ekki hvernig fram-
kvæmdastjórinn getur staðið við
þessa fullyrðingu í ljósi þess að
upplýst hefur verið að ekkert dæmi
er til um að einstaklingur hafi látist
hér á landi vegna sýkingar af völd-
um kampýlóbakteríu. I sumum
fjölmiðlum var fullyrt að landlækn-
ir og Hollustuvemd ríkisins hefðu í
síðustu viku birt auglýsingar um
hættu af kampýlóbakteríum bein-
línis vegna skýrslu Heilbrigðiseft-
irlits Suðurlands. Þessu hefur
landlæknir vísað á bug. Hann hef-
ur lagt áherslu á að sýkingum af
völdum þessarar bakteríu hafi
fjölgað mjög mikið upp á síðkastið
og bregðast verði við með því að
upplýsa almenning. Horfur eru á
að í þessum mánuði verði um 100
sjúklingar greindir veikir af völd-
um hennar. Aukningin í þessum
sýkingum hefur verið gríðarleg að
undanfömu.
xxx
AÐALATRIÐI þessa máls hlýt-
ur að vera hvort þessi baktería
finnst í kjúklingum sem Reykja-
garður framleiðir. Héraðsdýra-
læknirinn á Hellu og aðrir sem
málið varðar eiga að svara þeirri
spumingu skýrt og afdráttarlaust.
Það vakti athygli Víkverja að hér-
aðsdýralæknirinn neitaði að svara
þessari spurningu þegar hann var
spurður í fjölmiðlum í síðustu viku.
Þetta hlýtur að teljast ámælisvert
því þetta em upplýsingar sem
neytendur eiga rétt á að vita um.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra fullyrðir að neytendur
geti treyst gæðum íslenskrar land-
búnaðarframleiðslu. Til að viðhalda
slíku trausti þurfa neytendur að fá
aðgang að öllum upplýsingum um
gæði vörunnar þegar eftir þeim er
kallað.
Stjómvöld þurfa að veita aukið
fjármagn til rannsókna á kampýló-
bakteríu og jafnframt að gera ráð-
stafanir til að halda henni niðri og
helst að útrýma henni ef unnt er.
Fyrir nokkrum árum var gengið í
það að útrýma salmonellubakteríu
úr kjúklingabúum, en þar hafði
hún veríð lengi og gosið upp með
reglulegu millibili. Kjúklingabúinu
að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði
var m.a. lokað, en því hafði ekki
tekist að útrýma salmonellubakter-
íunni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Kampýlóbakterían þarf að fá sömu
meðhöndiun. Það hlýtur hins vegar
að vera hægt að vinna að málinu án
viðlíka stóryrða og fallið hafa síð-
ustu dagana.