Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 60
jpSO FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Víðátta norðursins í miðnætursól i Mannkynið þarfn- ast nýrra sjónarmiða í sátt við landið - „Víðáttu norðursins í miðnætursól“, þar sem náttúrugersemar eru tákn Islands. Norðan Vatnajökuls er enn „stærsta ósnortna víðemi“ í Evrópu með Amardal og Eyjabakka, Snæ- fell, Mývatn, Hafra- hvammagljúfur, sem era ómetanlegar perl- ur í sinni upphaflegu mynd í líkingu við Miklagljúfur í vestri. Til Austurlands mætti t.d. laða innlend og erlend kvikmyndaver því að sérkenni ís- lenskrar náttúm em fossamir, fjöll- in og hið einstæða víðsýni svo langt sem augað eygir því landið er lítt skógi vaxið. Þess vegna verða öll sár og mannvirki hvarvetna mjög áberandi í landslaginu eins og raf- línur og rafmagnsmöstur sem ber við himin. Á Suðurlandi allt í kring- um okkar fögra höfuðborg rísa nú tröllaukin járnmöstur í margfbldum röðum um valllendi og fjallaskörð. Helst má finna samsömun við Kína- múrinn mikla sem heyrir nú sög- unni til. Samkvæmt fréttum eru Svíar að loka kjamorkuverinu við Barsebáck og Danir fagna því hinum megin við sundið og þá ekki síst vegna sjónmengun- ar og úrelt álverksmiðja var flutt frá Evrópu og sett niður í Hvalfirði. Ramsarfriðun, Kyoto- bókun og Ríósáttmáli þjóðanna „Vonandi fáum við að hafa Gullfoss í friði,“ sagði útvarpskonan við upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar þegar sá lýsti fjálglega fyrir henni að Landsvirkjun væri einungis búin að virkja einn tíunda part af möguleg- um virkjunarkostum. Ráðamönnum þjóðarinnar er ekkert heilagt. Fagr- ir fossar horfnir í gruggug vatns- miðlunarlón. Virkjanir við Þjórsá era orðnar fimm og ekkert lát á. Lengsta á landsins er í fjötram allt inn undir Vatnajökul. Vöknum af þymirósarsvefninum áður en landið verður eitt allsherjar þymigerði þvers og krass yfir landið. Eg hvet íbúa Austurlands eindregið til að sjá umhverfi Þjórsár á hálendinu, Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir Framtíðarsýn Við verðum að fylgjast með þróuninni, segir Ólöf Stefanía Eyjólfs- ---------------7------ dóttir, því að Island gæti orðið gullnáma náttúruvísindamanna. slík náttúruspjöll bera þjóðinni sem landið byggir ekki fagurt vitni. Stjómvöld þráast við að uppfylla Ramsar- og Bemarsáttmálann um verndun votlendis og friðun fugla, Kyótó- og Ríósáttmálann um vernd- un lofthjúpsins í samþykkt þjóð- anna. Þess vegna verður þjóðin að gjalda dýra verði mengunarkvóta á nýrri öld. Heilsuver á Austfjörðum Við Adríahafið stutt frá landa- mæram Albaníu í stríðshrjáðri Jú- góslavíu er örsmá eyja sem heitir Steffano. Þar era mótel og lítil sum- arhús í kring. Eyjan er tengd með brú í land. Gæsla er allan sólar- hringinn við brúarsporðinn. En til Steffano sækir efnað og þekkt fólk kyrrð og endurhæfingu. Slíka heilsukjama mætti byggja víða úti á landi í lygnum fjörðunum þar sem sjórinn er eins og spegill á milli tignarlegra fjallsbrúna. Á Reyðarfirði hafa fundist heitar náttúralindir. Þama mætti reisa heilsuver. Einnig í friðsæld á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar við sérstæð náttúravætti hyggjast menn reisa risa-álver sem gleypa mun allt undirlendið. Heilsuver geta nýst til endurhæfingar sjúkra á vetuma. Lasburða og sjúkt fólk á ekki að þurfa að þola hreppaflutn- inga á suðvesturhomið. Hér er ekki um fénað að ræða heldur fólk. Þess í stað þarf að kappkosta að hafa minni og heimilislegar einingar sem næst heimabyggð. Fólk sækir í rík- ari mæli í svalara og heilnæmara loftslag, en slík heilsuver myndu skapa atvinnu í nálægum byggðum. Einnig ykist þörf fyrir ýmsar sér- menntaðar starfsstéttir. Úrelt álver verður dragbítur á aðra atvinnuuppbyggingu. Nátt- úruperlur, sem er sökkt, koma aldrei til baka. Eitt risaálver er tíma- skekkja. Það gleypir megnið af því rafinagni sem fæst með fómum á Eyjabökkum og Fljótsdal. Á Austur- landi er lítið um undirlendi og Aust- firðingar hafa ekki efni á að fóma sínum fáu gróðurvinjum á hálendinu undir gervilón í þágu mengandi stór- iðju. I Reyðarfirði er miki] veður- sæld og lygnt og því óttast menn að bláa móðan sem umlykur oft álverið í Straumsvík ijúki ekki burt með vindum heldur berist með þokunni inn í kauptúnið og staðni þar. Það væri umhverfisslys! Rafmagnið er síðan selt á tilboðsverði til stóriðju, sem heimilin í landinu greiða niður í allt of háu raforkuverði. Á uppvaxandi kynslóð Austfirð- inga á tækniöld þá heitustu ósk að vera bundin á klafa í steikjandi hita kerjaskálanna við álbræðslu? Að- eins þeir hraustustu þola það til lengdar. Eygja mæður þá framtíð- arsýn um vormexm Islands? Horft til framtíðar Austurlands Við lifum á upplýsinga- og tækniöld og verðum að fylgjast með þróuninni því að ísland gæti orðið gullnáma náttúravísindamanna. 1. Hver landsfjórðungur þarf að fá aukna svæðisstjórn um byggð og þróun svo að landsmenn þurfi ekki að sækja allt til Reykjavíkur og vera á eilífu hringsóli á hringvegin- um milli Landmælinga á Akranesi, Ibúðalánasjóðs á Sauðárkróki o.s.frv. 2. Við Egilsstaði, á Héraði og niðri á fjörðum þar sem enn finnst landrými væri mögulegt að koma á fót aðstöðu í rannsóknarstörfum í vísindum í tengslum við Háskóla Is- lands og Sameinuðu þjóðirnar og ýmis önnur alþjóðasamtök. 3. Sameinuð sveitarfélög á Aust- urlandi í samvinnu við Þróunarsjóð og Byggðastofnun geta komið á fót sérhæfðum iðnskólum og verk- menntaskólum. Fá þarf í Austfirð- ingafjórðung menntastofnanir í samvinnu við Háskóla íslands og Háskóla Akureyrar. Einnig bjóða vinnandi fólki upp á margvíslegt fjamám og tölvuver. 4. Það þarf að laða til fjórðungs- ins fjárfesta í líkingu við Islenska erfðagreiningu og ýmsan tækniiðn- að. Efla þannig fjölbreytni atvinnu- lífsins sem styrkir byggð í fjórð- ungnum og eykur þörfina fyrir sér- menntað fólk. 5. Fá alþjóðavaraflugvöll á Egils- stöðum sem mun auka flugöryggi kringum landið. Því að uppi á Hér- aði er allt annað veðurfar en á suð- urhorninu. 6. Skip veiða ekki án áhafnar, því verði látið reyna á atvinnuréttindi og frambýlisréttindi sjómanna og fiskverkafólks. Höfundur er húsmóðir. Grilltíminn. , er genginn i garð Þú velur stað og stund - við höfum grillið og áliöldin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.