Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 39
LISTIR
Lína langsokkur
á Suðureyri
Suðureyri - Heimsfræg persóna
sótti Súgfírðinga heim nú um
miðjan mánuðinn í tengslum við
„sæluhelgina". Það var engin
önnur er grallarinn Lína
langsokkur. Sú stutta hafði kom-
ið sér fyrir í Félagsheimili Súg-
firðinga ásamt apanum hr. Níels
og hestinum góða. Einnig voru á
sveimi í húsinu ýmsar aðrar per-
sónur svo sem frú Prússulín,
Anna, Tommi, Klængur, Hængur
og Adolf sterki svo einhverjar
séu nefndar.
Það var leikfélagið Hallvarður
Súgandi sem sá um að gæða allar
þessar persónur lífí með uppsetn-
ingu á barnaleikritinu sígilda eft-
ir Astrid Lindgren. Fjöldi leikara
kom við sögu við uppsetningu
verksins en Auður Birna Guðna-
dóttir fór með aðalhlutverkið,
þ.e. Línu sjálfa. Auður, sem er 16
ára, er að reyna sig á þriðja hlut-
verkinu í leiklistinni á aðeins
tveimur árum. Nú síðast lék hún
Nansy í uppfærslu Litla
leikklúbbsins á Oliver.
Leikstjóri verksins er Reynir
Ingason en hann hóf leikferil
sinn hjá Leikfélagi ísafjarðar
ungur að árum og hefur verið
viðloðandi leiklistina að mestu
siðan. Hann var hvatamaður að
stofnun Litla leikklúbbsins á ísa-
fírði á sínum tíma og hefur í
gegnum tíðina bæði leikstýrt og
leikið í íjölda verka í uppfærslu
Litla leikklúbbsins.
Sýningar á Línu voru fímm og
var nánast húsfyllir á allar sýn-
ingarnar.
Hátíð Dakóta-íslendinga í Mountain
ÍSLENSKI strengjakvarettinn sem mun leika á íslendingadeginum í Mountain. Frá vinstri: Margrét Þor-
steinsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Dóra Björgvinsdóttir og Hildigunnur Halldórsdóttir.
Nýtt íslenskt tón-
verk frumflutt
Morgunblaðið/Sturla Páll
LEIKARAR og starfsmenn að lokinni vel heppnaðri sýningu á Línu langsokk.
TONLIST
Jazzhátffi f Garðabæ
TRÍÓ HAUKS GRÖNDALS.
HAUKUR GRÖNDAL,
ALTÓSAXÓFÓN, MORTEN
LUNDSBY, BASSA, OG STEFAN
PASBORG, TROMMUR.
Kirkjuhvoil í Garðabæ, sunnudags-
kvöldið 25.7. 1999.
ÞRIÐJU tónleikar Jazzhátíðar-
innar í Garðabæ voru haldnir í safn-
aðarheimilinu við Vídalínskirkju,
Kirkjuhvoli, sl. sunnudagskvöld.
Þar blés Haukur Gröndal í altósaxó-
fón, en hann er alinn upp í Garða-
bæ. Eftir að hafa lokið burtfarar-
prófi frá Tónlistarskóla FÍH 1997
fluttist hann til Kaupmannahafnar
þarsem hann hefur verið að leika
djassmúsík með ýmsum og sótt
tíma hjá saxófónleikurunum Fred;
rik Lundin og Thomasi Frank. I
haust mun hann svo hefja nám við
Rýþmíska konservatoríið í Kaup-
mannahöfn. Með Hauki léku tveir
Danir, sem hann hefur leikið mikið
með þetta árið, bassaleikarinn Mor-
ten Lundsby og trommarinn Stefan
Pasborg. Þó fór ekki mikið fyrir
norrænum áhrifum í tónlist þeirra -
hún var amerísk í húð og hár.
Tríóið hóf tónleikana á Geðklofa
kettinum blúsaða eftir Hauk og tvö question. Það er dálítið merkilegt
Gröndal
með danska
hrynsveit
önnur verk Hauks prýddu efnis-
skrána - best þeirra fannst mér
Prayer sem hófst á löngum bassa-
sóló, svo blés Haukur og Stefan sló
trommumar með pákukjuðum og
magnaði upp stemmninguna. Andi
Coltranes sveif yfir verkinu og var
það sosum ekkert verra. Trommu-
sóló Stefans var mjög lýrískur og í
beinu framhaldi blés Haukur ópus
eftir Joe Lovano, en djasshöfundar
kvöldsins voru allir saxófónleikarar;
Lovano, John Coltrane, Sam Ri-
vers, Omette Coleman og Kenny
Garrett. Svo vora standardar eftir
Cole Porter, Victor Young og Geor-
ge Gershwin og einn ópus eftir
trommarann, Stefan Pasborg, Miss
D.C. nefndist hann, dulúðug ball-
aða, vel samin og glæsilega flutt af
þeim félögum.
I Beatrice eftir Sam Rivers brá
fyrir örlitlum gömlum Omette
Coleman í blæstri Hauks, en hann
var allur á bak og burt er hann blés
lag Omettes: Tomorrow is the
að þá sjaldan ég hef heyrt íslenska
djassleikara leika verk eftir Omette
hefur vantað allan Omette í þau.
Kannski er ástæðan að Omette fór
framhjá skerinu á sínum tíma.
Nokkrir djassáhugamenn hlustuðu
á hann baki brotnu en varla nokkur
hljóðfæraleikari.
Ég heyrði Hauk Gröndal síðast á
tónleikum á Sóloni Islandusi í júlí í
fyrra. Þá var hann með tríó sem
þetta. Hann var að blása Coltrane
og Garrett og ballöður, en hann
gerir það miklu betur núna. What is
the thing called love var skemmti-
lega útfærð og svalinn í tóninum
átti vel heima í tilfinningaríkri túlk-
un á Ghost of a chance. But not for
me var vel lesið og samspuninn hjá
þremenningunum í fínasta vestur-
strandarstíl. Það eina sem mátti
finna að var að sveiflukaflinn var
ekki nógu snarpur.
Pasborg er einstaklega mús-
íkalskur trommari og sólóar hans
vel uppbyggðir. Það sama má segja
um Lundsby, sem er á stundum dá-
lítið Haden-legur. Það verður gam-
an að heyra í Hauki að ári því engin
ástæða er að ætla annað en hann
dafni og þroskist í hinni gömlu höf-
uðborg okkar íslendinga.
Vernharður Linnet
STRE NGJAKVARTETT skipaður
hljóðfæraleikuram úr Sinfóníu-
hljómsveit Islands er á föram til
Bandaríkjanna til tónleikahalds á
þriggja daga hátíð Bandaríkja-
manna af íslenskum upprana í bæn-
um Mountain í Norður-Dakóta dag-
ana 30. júlí til 2. ágúst nk.
Dakóta-íslendingar halda þá upp
á Islendingadaginn 2. ágúst í 100.
sinn og verður mjög til hátíðarinnar
vandað af því tilefni. Von er á fjölda
manns sem eiga ættir að rekja til
frambyggjanna þar en heiðursgest-
ur hátíðarinnar verður forseti Is-
lands, hr. Olafur Ragnar Grímsson.
Kvarettinn skipa þær Margrét
Þorsteinsdóttir, Dóra Björgvins-
dóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir
og Bryndís Björgvinsdóttir. Mun
kvarettinn halda tónleika í Víkur-
kirkju í Mountain sunnudaginn 1.
ágúst en sú kirkja er elsta íslenska
kirkjan í Vesturheimi.
A tónleikunum verður eingöngu
leikin íslensk tónverk sem gefa
góða mynd af sögu og þróun ís-
lenskra tónlistar frá upphafi til nú-
tíma. Auk þess að leika með kvar-
tettnum munu Hildigunnur Hall-
dórsdóttir einnig syngja einsöng.
Á tónleikunum verður framflutt
nýtt verk eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur, tónskáld, sem hún hefur
samið við kvæði Káins, „Sólskinið í
Dakóta". Káinn bjó eins og kunnugt
er í byggðum Islendinga í Pembína-
sýslu í Norður-Dakóta og verður
minnisvarði hans við Þingvalla-
kirkju endurvígður eftir lagfæring-
ar mánudaginn 2. ágúst. Mun kvar-
ettinn einnig leika við þá athöfn. Á
þá vel við erindið úr kvæpði Káins
„Sólskinið í Dakóta“:
Pcgar ég er fallinn frá
og fúna íjörðu beinin,
verður fjögur sjón að sjá
sólina skína á steininn.
Eftirfarandi aðilar hafa styrkt
hljómleikaförina: Olíufélagið hf., Is-
lenskir aðalverktakar hf., Menning-
arsjóður Landsbankands, Landa-
fundanefnd, menntamálaráðherra
og utanríkisráðherra.
Búnaður ekinn 5S þús. km.
33** breyting, nýleg dekk
Upphækkaður toppur
□úkur á gólfi Einn eigandi
Gasmiöstöð frá upphafi.
Svefnbekkur Upplýsíngar í sfmum
Hraðastillir / ABS 58B BOOB og B3B 4E64.
^ -JJ
Á nýlagðri klæðingu þarf að
draga verulega úr ferð og
sýna mikla tillitssemi.
IUMFERÐAR \
RÁÐ
NÝL.ÖGÐ KLÆÐING
UTSALA - UTSALA - UTSALA
20-50% afsláttur
Skartgripir - gjafavara - stell - glös - hnífapör
SILFURBÚÐIN
Kringlan 8-12, sími 568 9066