Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 7
auglýsing
Fréttir
SÁÁ - Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann - Ármúla 18-108 Reykjavík - Sími 581 2399 - Fax 568 1552 - www.saa.is - 5. tbl. júlí 1999 - Ábm.: Theódór S. Halldórsson
Páll Óskar í léttu spjalli um verslunarmannahelgina:
Miklu skemmtilegra að vera ódrukkinn
„Endilega larið á útihátiðir um helgina - en prófið að upplifa helgina ódrukkin og tékkið á því
hvernig þið skemmtið ykkur í nærveru þeirro sem eru alveg á eyrunum.
„Ég fór ekki á mína fyrstu útihátíð
fyrr en 1994, en þá var ég að syngja
með Milljónamæringunum vítt og
breitt um landið," segir Páll Óskar
Hjálmtýsson, söngvari og listamaður.
„Mér leist bara ekkert á þessar útihá-
tíðir - eða réttara sagt, hugmyndina
á bak við þær. Þegar ég fór fyrsta
hringinn minn með Milljónamæring-
unum, þá sá ég að ég hafði ekki ver-
ið að missa af miklu. Mér fannst
mjög leiðinlegt að íslendingar gætu
ekki skemmt sér án þess að vera
haugdrukknir, því ég hef skemmt á
ýmsum stöðum t.d. í Evrópu þar sem
fylliríió er EKKI fókuspunkturinn,
heldur það sem verið er aó fagna
eða halda uppá!"
Hættuleg hópdrykkja
„Sko, þetta lítur bara út eins og ís-
lendingar séu að sameinast um að
spila út fyllibyttuna í íslensku þjóð-
arsálinni. Það er engu líkara en fólk
sé löngu búið að missa sjónar á upp-
runalegu hugmyndinni um frídag
verslunarmanna. Fólk ætlaói sér að
fara út í náttúruna til að slappa af og
efla fjölskyldu- og vináttutengslin en
þetta er ekki hægt ef maður er lif-
andi dauður af drykkju, eða dofin
vegna dópneyslu! Að ég tali nú ekki
um það hvað það er hættulegt að
vera á hópfylliríi sem þessu."
Heilinn sér sjálfur um gleði-
vímuna
„Maóur á auóvitað að skemmta sér,
dansa, hlæja og hafa gaman af líf-
inu. En málið er bara að maður get-
ur það auðveldlega án utanaðkom-
andi efna. Heilinn í manni er nefni-
lega fullfær um að framleiða helling
af adrenalíni og endorfíni sjálfur.
Maður getur alveg fríkað út yfir
heila helgi af sjálfsdáðum. Ef það er
það sem maður vill! Öll önnur utan-
aðkomandi efni sem maður notar
eru stórhættuleg! Það er engin
ástæða nógu góð - engin rök nógu
sterk, til að nota efni sem rústa heil-
anum í manni."
Helgin framundan:
Barnafyllerí á útihátíðum?
Göngudeildarþjónusta
SÁÁ býður upp á fræðs-
lu fyrir almerming
Upplýsingar um
meðferðarúrræði, fundi
og ráðgjöf er að finna á
vefsetri SÁÁ
www.saa.is
eða í síma 581 2399
Nú er mesta ferða- og útivistar-
helgi ársins að renna upp og stór
hluti íslenskra fjölskyldna mun
sækja samkomur viðsvegar um
land í þeim tilgangi að eiga
ánægjulega helgi. Einar Gylfi Jóns-
son, sálfræðingur hjá SÁÁ segir að
mikilvægt sé að mótshaldarar fylg-
ist með því að börn undir lögaldri
séu ekki ein á ferð um þessa mestu
ferðahelgi ársins. „Unglingar og
ungmenni á aldrinum 18 til 22 ára
verða stærsti hópurinn á útihátíð-
um vítt og breitt um landið. Eins og
undanfarin ár verður ölvun áber-
andi og eitthvað verður um ofbeldi,
slys, nauðganir og fíkniefnamál,"
segir Einar.
Ábyrgð mótshaldara
„Til skamms tíma firrtu mótshaldarar
sig allri ábyrgð á ásókn unglinga á
hátlðir á þeirra vegum og sögðu að
það væri mál foreldranna að setja
börnunum sínum mörk. Sem betur
fer hefur þetta breyst á undan-
förnum árum. Þeir aðilar sem standa
fyrir útihátíðum vita að þeir verða að
axla hluta af ábyrgðinni og sumir
þeirra að minnsta kosti lýsa þvi yfir
að börn undir lögaldri séu ekki vel-
komin nema í fylgd forráðamanna."
Treystið eigin dómgreind
Einar segir að I mörgum unglinga-
fjölskyldum hafi undanfarna daga og
vikur ríkt spenna og togstreita. „For-
eldrarnir hafa sveiflast á milli þess
að velja auðveldu leiðina og „treysta
barninu sínu" eða að láta brjóstvitið
ráða og treysta eigin dómgreind.
Það er mikilvægt að foreldrum sé
Ijóst að núoróið eru unglingar á
grunnskólaaldri í miklum minnihluta
á þessum útihátíðum sem haldnar
eru um verslunarmannahelgar. Ef
börnin okkar langar þessi býsn á úti-
hátíð, er okkur þá nokkur vorkunn að
fara með þeim?"
Eitranir vegna
Helsælu
Sifellt algengara er nú að ungt fólk
leiti sér hjálpar og meðferðar vegna
neyslu á helsælu. Óskar Einarsson,
sérfræðingur á Sjúkrahúsi Reykjavik-
ur, segir að á síðustu misserum hafi
nokkrir tugir slíkra tilfella komið
upp. „Þau einkenni sem fylgja
e-töflum geta verið mjög alvarleg.
Erlendis eru dæmi um lífshættuleg
sjúkdómseinkenni, bæði andleg og
líkamleg, sem fylgja þessum efnum
og þekkt er að fólk hafi fyrirfarið sér
í kjölfar neyslu þeirra. (rauninni er
það tímaspursmál hvenær slíkir
hlutir gerast hér á landi því áhrif
lyfjanna eru mjög persónubundin og
alls konar aukaefni er að finna í
þeim. Þannig mé segja aö neysla
e-taflna sé eins og að spila rúss-
neska rúllettu; það er engin leið að
vita hvað gerist," segir Óskar.
Nánari upplýsingar um helsælu er
að finna á vefsetri SÁÁ undir kaflan-
um „Meðferð/Lyfjafræði vímuefna."
Mjólkurgleði
að Staðarfelli
Bátsferðir, ratleikur, hestaferðir,
skemmtiatriði, fótboltamót og flug-
eldasýning verður meðal þess sem
boðið verður upp á til skemmtunar á
fjölbreyttri fjölskylduhátíð sem hald-
in verður verður að Staðarfelli í Döl-
um um helgina. SÁÁ skipuleggur há-
tfðina í samvinnu við Mjólkursam-
lagið í Búðardal og samtökin Dala-
menn.
Aðgangseyri að Mjólkurhátíðinni
er stillt í hóf; aðeins kr. 3000 fyrir
fullorðna. Frítt er inn fyrir 13 ára og
yngri og boðið verður upp á ókeypis
sætaferðir frá Síðumúla 3-5 (Reykja-
vík kl. 19.00 annað kvöld.
Nánari upplýsingar: www.saa.is
Ny unqlinqaálma sjúkrahússins á Voqi;
Mikilvægur áfangi í meðferöar- og forvarnarstarfi
- segir Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamólaróðherra
„Forystumenn SÁÁ voru búnir að
boða komu si'na til mín en ég ákvaó
að snúa dæminu við og heimsækja
þá á Vog því ég var forvitin að sjá
hvernig framkvæmdum við göngu-
deild og unglingadeild miðaði", seg-
ir Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra, en hún tók fyrstu skóflu-
stunguna að byggingunni á liðnum
vetri.
í heimsókn sinni í byrjun júlí skoð-
aði Ingibjörg nýju álmurnar og átti
auk þess fund með framkvæmdaráði
SÁÁ um starfsemi samtakanna.
„Nýja unglingadeildin mun stórauka
þá þjónustu sem SÁÁ býður og auk
þess er nýja göngudeildin sérstak-
lega mikilvæg fyrir þá sem þurfa
ekki að leggjast inn. Þess utan er
rekstur göngudeildar snar þáttur (
eftirmeðferð. Annars var þetta góður
vinnufundur, þar sem við fórum vítt
og breitt yfir málefni SÁÁ," segir
Ingibjörg.
Áframhaldandi sókn
Ingibjörg segir að á síðasta kjörti'ma-
bili hafi verið unnið mikið þróunar-
starf í forvarnarmálum en enn þurfi
aó gera betur, ekki síst gagnvart
yngra fólki. „Við höfum meðal ann-
ars átt mikió og gott samstarf við
SÁÁ í þessum efnum og vonum að
svo verði einnig í framtíðinni. SÁÁ
hefur verið í vfðtæku forvarnarstarfi
í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið
um hið svokallaða sveitarfélagaverk-
efni sem margir hafa komið að,"
segir Ingibjörg.
Markvissar fjárveitingar
Ríkisstjórnin mun á næstunni skipa
starfshóp sem hefur það hlutverk að
móta stefnu í forvarnar- og meðferðar-
málum. „Starfshópurinn mun taka út
á faglegan hátt það starf sem nú er
unnið og leggja síðan tillögur sínar
fyrir ríkisstjórnina. Markmiðió er að
þeim fjármunum sem við verjum til
málaflokksins sé varið með sem
bestum hætti," segir Ingibjörg.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisróðherra og Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofustjóri ásamt
Þórarni Tyrfingssyni formanni SÁÁ, Þráni Bertelssyni voroformonni og Arnþári Jónssyni gjaldkera.