Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 70
70 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
4
é
• i
ö
1
1
3
v í
7'
w
W
i
|
I
?!
i§
H
ti'
‘4
V/IOLIN LE550N5; 5PANI5H
LE550N5;DANCE LE550N5,
5U/IMMINO LE550N5 ANP
READ"D0N QUIKOTE77
60 BACK IN AND CL05E
THE DOOR,MAI?CIE..I/LL
JU5T 5TANP HEKE..
Hæ, Magga...nokkur áform varðandi
sumarið?
Fiðlutímar, spönskutímar, danstímar,
sundnámskeið og lesa “Don Quixote”
Farðu aftur inn, Magga, og lokaðu
dyrunum á eftir þér..ég ætla bara að
standa héma..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fæðingardagur
Kjarvals
Frá Braga Asgeirssyni:
MIÐVIKUDAGINN 21. júlí birtist
vinsamlegt og upplýsandi lesenda-
bréf frá Evu Ragnarsdóttur, þar
sem hún leiðréttir skrif í grein minni
er að meginhluta fjallaði um skottúr
á fæðingarslóðir Kjarvals í Meðal-
landssveit. Fram kom að Vilhjálmur
Eyjólfsson á Hnausum sýndi mér og
félögum gamla afmælisdagbók með
áritun málarans 7. nóvember, en
samkvæmt kirkjubókum á hann að
vera fæddur 15. október, kemur
sömuleiðis og athugasemdalaust
fram í ævisögu málarans eftir Ind-
riða G. Þorsteinsson. Höfðum við
sérstaklega gaman af þessu fyrir þá
sök hvaða vísu hann skrifaði undir
og hina vísuna sem hann að okkar
giskan vildi síður festa nafn sitt við,
var það tilefni saklausra hnippinga
og gamanmála. Kjarval gat verið
óútreiknanlegur, var með háttum
sínum umfram alla aðra málara lagið
að vekja á sér athygli. Þá var hann
flestum opinskárri á opinberum vett-
vangi um það sem honum fannst
miður fara í umhverfinu, var í þá
veru fagurkeri og náttúrufriðunar-
sinni út í fingurgóma. Margur rök-
þrota bregst iðulega við slíkri orð-
ræðu á þann veg að telja sig ofsótta
og vilja meina að viðkomandi sé eitt-
hvað brenglaður, slíkt þekkist enn
þrátt fyrir allar „framfarir“. En nú
vitum við að Kjarval var sjáandi á
framtíðina og hafði oftar en ekki rétt
fyrir sér í skrifum sínum. Eitt nær-
tækt dæmi; þá gamla Morgunblaðs-
húsið á Austurstræti var fjarlægt og
Kvennaskólinn, Austurvöllur, AI-
þingishúsið og Dómkirkjan blöstu
við sjónum manna. Hvílík opinberun!
Kjarval barðist hatrammt gegn
byggingu húsalengjunnar á sínum
tíma og taldi réttilega skammsýn
gróðaöfl vera að loka fyrir friðhelgt
opið svæði og fagra sýn. Segir okkur
hve ríka tilfinningu hann hafði fyrir
lífsrými í vaxandi þéttbýli.
En mál málanna er, að ég hafði
ekki hugmynd um söguna að baki
fæðingardeginum, sá ei heldur sjón-
varpsþáttinn um Eyjólf á Hnausum,
og hefði ekki komið til hugar að
Listsýning
Ljósmyndari Kaldal.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
leggja þetta fram á þann hátt sem ég
gerði ef ég hefði vitað betur, í öllu
falli formað skrifin öðruvísi. Sjálfur
átti ég fyrir margt löngu afmælis-
dagbók með málsháttum og á vafa-
laust einhvers staðar enn, og kom þá
fyrir að einstakir vildu alls ekki
skrifa undir suma þeirra, eins og t.d.
Hurðin snýst á hjörum en letinginn í
hvílu sinni (!), og er sú síða auð.
Nú veit ég eins og aðrir að kirkju-
bókum er ekki alltaf treystandi og
þekki nærtæk dæmi þess, stundum
fórst fyrir að skrifa nöfnin niður
strax og gleymdist svo, þannig að
ekki alltaf sallaklár getspekin réði er
til kom og gat munað allt að heilu
ári! Efast ekki eitt augnablik að Eva
Ragnarsdóttir hafi mikið til sína
máls og að 7. nóvember muni að öll-
um líkindum fæðingardagur Jóhann-
esar Sveinssonar Kjarvals, og hann
hafi ritað nafn sitt við réttan mánað-
ardag í öllu falli góðri meiningu. Ber
mér að biðjast velvirðingar á fáfræði
minni, þar fyrir utan deili ég satt að
segja skoðun Evu um nútíma sagn-
fræði, einkum hinnar póst-
módernísku sem nær ekki lengra
aftur óbrengluð en til 1970 ...
BRAGI ÁSGEIRSSON
Slunkaríki
Frá Steingrími St. Th. Sigurðssyni:
HANN kemur frá Austurríki og er
listamaður að atvinnu. Kemur til ís-
lands með fylgd-
arliði, eiginkonu
og dóttur, og vin-
konu norskri, sem
bæði málar og
tekur listrænar
ljósmyndir sem
minna á málverk
frekar en ljós-
myndir. Eigin-
konan gæti verið
ítölsk vegna útlits,
glæsileg en ómontin, og sigrar allt
með nærveru. Dóttirin ennþá í
menntaskóla og líkist föðumum.
Sjálfur er hann stríðsmannslegur,
enda voru bæði faðir hans og afi at-
vinnumenn fyrir þýzkara í hernaði
(sleppum swastikunni!). Nú er þessi
kvartett hér á Islandi og heldur list>
sýningu í þessu heimsþekkta galleríi
sem kallast Slunkaríki (fáir vita hvað
þetta þýðir, enda skiptir það kannski
ekki svo miklu máli).
Sýning þessa fjóreflda liðs frá
Ostereich er viðburður. Aukinheldur
er hún lituð tveim öðrum listamönn-
um, honum Pétri Guðmundssyni,
sem er ofboðslega flinkur teiknari og
vaxandi kúlöristi (þekkti persónulega
fóður hans sem var ágætismaður en
afar langt til hægri í pólitík - það er
önnur saga). Svo er það kvenmaður
frá ísafirði sem sýnir afar frumstæð
en yfirlætislaus verk, hvorki málverk
né skúlptúr, heldur eitthvað sem hún
sækir beint til náttúrunnar, til sjáv-
arins eins og allur lífskraftur þeirra
Vestfirðinga lýsir sér í orði og verki.
Hafið er eins og eilífð, deyr aldrei.
Svo er guði fyrir að þakka.
Þetta er bráðskemmtileg listsýn-
ing, sem er óvanalegt á Islandi í
seinni tíð.
STEINGRÍMUR ST. TH.
SIGURÐSSON,
listamaður.
Steingrímur ST.
TH. Sigurðsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að Iútandi.