Morgunblaðið - 29.07.1999, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 71
Útöalan
í fullum
gangi
Laugavegi 83 • Sími 562 3244
FYRSTI Fiatinn, árg. 1899.
Fiat 100 ára
Flug fyrir tvo með
hverjum seldum bíl
VEGNA 100 ára afmælis Fiat
núna í júlímánuði og um leið 74
ára afmælis Fiat á Islandi verð-
uð boðið upp á afmælistilboð
með öllum seldum og afhentum
Fiat-bílum í júlímánuði. Flug
fyrir tvo með Flugleiðum til
Mflanó á Ítalíu ásamt bflaleigubfl
í fjóra daga.
Þessi ferð er í boði Istraktors
og Fiat á íslandi. M.a. er boðic
upp á aðgang á Fiat-safnið :
Tórínó þar sem saga Fiat ei
kynnt frá upphafí aldai- til okkai
tíma. Einnig eru Fiat-verksmiðj-
umar staðsettar í Tórínó og þai
verður hægt að kynna sér fram-
leiðsluferli á nýjum bfl.
Um takmarkaðan fjölda er að
ræða.
Cinde^ella CtlOISf* B-YOIJNG'
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
VEÐRIÐ lék við dönsku kennarana sem lentu í garðveislu hjá Isólfi
Gylfa Pálmasyni þingmanni og konu hans Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur.
Danskir lýðháskóla-
kennarar í heimsókn
Hellu. Morgunblaðið.
UM MIÐJAN júlí voru hér á landi
49 danskir Iýðháskólakennarar en
þeir ferðast saman um Norður-
löndin annað hvert ár, fóru fyrir
tveim árum til Færeyja og þar áð-
ur til Finnlands. Hópurinn kom á
Hvolsvöll undir lok ferðalags síns,
en hafði þá dvalið á Varmalandi í
Borgarfírði og ferðast þaðan um
Vesturland, en síðan farið á
Kirkjubæjarklaustur og Skóga.
Ferðinni lauk í Reykjavík þar
sem fyrirhugað var að hitta for-
kólfa í skólamálum hér á landi á
ráðstefnu í Norræna húsinu, m.a.
frá Námsflokkum Reykjavíkur og
Menningar- og fræðslusambandi
alþýðu, en enginn lýðháskóli er til
í íslenska skólakerfinu.
Hópnum til aðstoðar hér á landi
var Torben Rasmussen sem
gegndi stöðu forstöðumanns Nor-
ræna hússins fyrir nokkrum ár-
um. Torben kom á fomar slóðir í
heimsókn hópsins tii Hvolsvallar
en hann var vinnumaður á bænum
Garðsauka sem er skammt frá
Hvolsvelli, á sínum yngri árum.
Yfírlýsing
frá Félagi
kjúklingabænda
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfírlýsing frá Félagi
kjúklingabænda:
„Stjóm Félags kjúklingabænda
fordæmir afar grófar árásir sem til-
tekinn framleiðandi í röðum félags-
ins, Reykjagai'ður hf., og atvinnu-
greinin öll hefur mátt þola í yfírlýs-
ingum og auglýsingum opinberra
embætta og embættismanna undan-
farið. Stjómin fjallaði um málið á
fundi sínum í dag og samþykkti eft-
irfarandi:
Lögmanni félagsins var falið að
kanna réttarstöðu kjúklingabænda
gagnvart fulltrúum Heilbrigðiseftir-
lits Suðurlands sem þverbrotið hafa
landslög með framgöngu sinni og
fádæma ruddalegum yfírlýsingum á
opinberum vettvangi.
Lögmanni félagsins var ennfrem-
ur falið að óska eftir áliti Sam-
keppnisstofnunar og siðanefndar
Sambands íslenskra auglýsinga-
stofa á auglýsingum Landlæknis-
embættisins og Hollustuvemdar
ríkisins þar sem vegið er að
kjúklingaframleiðslunni í heild með
ósæmilegum hætti. Félag
kjúklingabænda telur að í þessari
auglýsingu tveggja virtra opinberra
embætta sé brotið gegn jafnræðis-
reglu stjórnsýslulaga, gegn sam-
keppnislögum og gegn meðalhófs-
reglu í opinberri stjómsýslu.
Kjúklingarækt er meira undii-
smásjá heilbrigðiseftirlits en nokk-
Athugasemd
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
28. júlí sl. um úthlutun fjármuna úr
Menningarsjóði útvarpsstöðva vill
undirritaður taka fram að sá Jón
Asgeirsson sem þar er tilgreindur
sem styrkþegi er. frétta- og
þáttagerðarmaðurinn Jón
Asgeirsson en ekki tónskáldið Jón
Asgeirsson.
1 fullri vinsemd,
Jón Ásgeirsson, tónskáld.
ur önnur kjötframleiðsla á íslandi,
sem reyndar er að undirlagi at-
vinnugreinarinnar sjálfrar. Þai'
kemur bæði til opinbert eftirlit og
innra eftirlit á búunum, sem m.a.
hefur leitt til þess að sem betur fer
tókst fyrir fáeinum áram að útrýma
salmonellu í kjúklingaræktinni.
Staðreynd er að hvergi annars stað-
ar í búvöruframleiðslu á Islandi em
sýni tekin jafn ört og í kjúklinga-
ræktinni og eftMit er mun meira
þar en annars staðar. Erlendir sér-
fræðingar sem hingað koma hafa
oft haft orð á að leitun sé í veröld-
inni að stað þar sem jafn vel er búið
að kjúklingaframleiðslu og hér á
landi. Kampýlóbakter er fyrir hendi
í kjúklingarækt á Islandi og engir
hafa meiri hagsmuni af rannsóknum
á þessum bakteríum og smitleiðum
þeirra í umhverfinu en einmitt
kjúklingabændur. Hins vegar er
óþolandi og forkastanlegt að opin-
ber heflbrigðisyfírvöld taki kjúkling
sérstaklega fyrir í áróðursherferð
gagnvart neytendum þegar vitað er
að kampýlóbakter getur verið í ann-
ars konar kjötvöram líka, í dýram,
yfírborðsvatni og víðar.
Kjúklingur er í mikilli sókn á
markaðinum, sem birtist í hnot-
skurn í því að hlutur hans í heildar-
kjötneyslu landsmanna hefur nær
tvöfaldast frá því árið 1994. Stærst-
ur hluti neytenda hefur þrátt fyrir
allt látið fjaðrafok undangenginna
sólarhiinga lítil áhrif á sig hafa og
kaupir eftir sem áður kjúklingakjöt;
holla, góða og ódýra matvöru. Fjár-
hagstjón framleiðenda vegna upp-
hlaupsins nú er engu síður verulegt
og ímynd heillar atvinnugi-einar hef-
ur því miður skaðast. Kjúklinga-
bændur taka hollustu- og heilbrigð-
ismál í framleiðslu sinni alvarlega
hér eftir sem hingað til. Sérstök
ástæða er til þess að fara nú fram á
að þeir sem fjalla um heilbrigðismál
og matvælaeftirlit í opinberri þjón-
ustu taki jafn alvarlega lög og reglur
sem þeim er ætlað að starfa eftir.“
Hraðganga
um „Lauga-
veginn“ og
Þórsmörk
FERÐAFÉLAG íslands efnir um
verslunarmannahelgina í fyrsta
sinn til svonefndrar hraðgöngu um
„Laugaveginn" og er það eina ferð
sumarsins af slíku tagi. Þessi vin-
sælasta gönguleið óbyggðanna er
þá gengin á tveimur dögum í stað
fjögurra eins og algengast er.
Brottför er föstudagskvöldið 30.
júlí kl. 19 frá BSÍ, austanmegin, en
á sama tíma er farin öku- og skoð-
unarferð um Fjallabaksleiðir
nyrðri og syðri, en rúta þeirrar
ferðar flytur farangur hraðgöngu-
hópsins. í báðum þessum ferðum
er gist í Landmannalaugum, við
Alftavatn og í Þórsmörk.
Um verslunarmannahelgina er
einnig farin hefðbundin ferð í Þórs-
mörk með brottför föstudag kl. 19
og er hægt að koma heim á sunnu-
degi eða mánudegi. Á sunnudag og
mánudag er boðið upp á einsdags-
ferðir í Þórsmörk. í allar þessar
ferðir þarf að panta og taka far-
miða á skrifstofunni að Mörkinni 6.
Verslunarmannafrídaginn, 2.
ágúst, kl. 13 er farin stutt göngu-
ferð á Grænudyngju og Trölla-
dyngju.
---------------
Fjallræðan
í þriðja sinn
ÞRIÐJA helgigangan með fjall-
ræðuna í farteskinu verður laugar-
daginn 31. júlí.
Gengið verður frá Stöng í Þjórs-
árdal upp og inn í Gjána, en Gjáin
er spöl kom þar frá. Lagt verður af
stað kl. 13:30. Fjallræðan verður
lesin í nokkram lestrum og Guð
beðinn um að blessa land og lýð.
Áætlaður ferðatími er rúm
klukkustund og öllum heimil þátt-
taka. Vefslóð helgigangnanna er
www.kirkjan.is/storinupur/fjallra-
edan. Þar segir frekar frá..
Trygginga-
miðstöðin
ge fur
skyndihjálp-
artöskur
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
sendir viðskiptavinum í TM-
ÖRYGGI skyndihjálpartösku
að gjöf fyrir verslunarmanna-
helgina. Viðskiptavinir fá tfl-
kynningu senda heim þar sem
fram kemur að þeirra bíði gjöf
á næsta pósthúsi.
í fréttatilkynningu segir:
„Tilvalið er að taka töskuna
með í útileguna, veiðiferðina
og hjólreiðaferðina. Rétt er að
benda á að taskan hefur að-
eins að geyma helsta búnað
sem nota má til þess að búa
um minniháttar áverka.
Tryggingamiðstöðin vill því
hvetja fólk til þess að koma
sér upp stærri og fullkomnari
skyndihjálpartöskum heima, í
bílnum og í sumarbústaðnum.
Einnig mælist félagið til þess
að skyndihjálparnámskeið
Rauða kross íslands séu sótt.“
Tilgangurinn með sending-
unni er að verðlauna þá ein-
staklinga og þær fjölskyldur
sem eru bestu viðskiptavinir
félagsins og stuðla um leið að
auknu öryggi þeirra, segir
ennfremur.
X ■
Í.
€