Morgunblaðið - 29.07.1999, Side 78
78 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Tekinn inn í norska
Leiklistarskólann
UNGUR íslendingur, Þórir
Sæmundsson, var nýlega
tekinn inn í Leiklistarskól-
ann í Noregi sem kallast „Statens
Teaterhoyskole“. Það sem gerir
það sérstaklega í frásögur færandi
er að 549 manns sóttu um en að-
eins átta komust að. Meðfylgjandi
mynd birtist í norska dagblaðinu
Aftenposten og sýnir Þóri ásamt
öðrum tilvonandi leiklistarnema,
en þeir voru að vonum kátir í
bragði þegar þeir fengu þær frétt-
ir að þeir hefðu komist inn í skól-
ann.
Þetta er eini ríkisrekni leiklist-
arskólinn í Noregi og Þórir sagði í
samtali við blaðamann að leikarar
væru yfirleitt á grænni grein eftir
að hafa gengið í hann og þess
vegna væri aðsóknin svona mikil.
Þórir verður 19 ára gamall á árinu
en hann fluttist til Noregs ásamt
fjölskyldu sinni fyrir þremur ár-
um. Hann gekk í framhaldsskóla í
Ósló þar sem boðið var upp á sér-
staka leiklistarbraut.
Hvernig varð þér við þegar þú
fékkst þær fréttir að þú hefðir
komist inn ískólann?
„Eg hef aldrei fengið svona til-
fínningu áður,“ segir Þórir, ,^g
varð hreinlega að setjast niður,
eins og sagt er í bíómyndunum, og
mér fannst þetta allt hálfóraun-
verulegt. Eg hafði alls ekki búist
við þessu, það er nefnilega mjög
sjaldgæft að svona ungir nemend-
ur séu teknir inn. Þetta er líka í
fyrsta sinn sem útlendingur sem
er ekki uppalinn í Noregi kemst
inn í skólann.“
Hafðir þú leikið eitthvað heima á
Islandi áður en þú fluttir út til
Noregs?
„Já, ég lék aðalhlutverkið í
Bugsy Malone þegar það var sett
upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu, þá
var ég þrettán ára og þar má eig-
inlega segja að ég hafi fengið leik-
listarbakteríuna. Svo lék ég í kvik-
myndinni Benjamín dúfu, ég var
einn af vondu strákunum og það
var alveg ótrúlega gaman að prófa
að leika í bíómynd. Svo lék ég líka
götustrák í Evu Lunu í Borgar-
leikhúsinu og mér fannst það alveg
rosalega gaman. Ég hafði oft hugs-
Þórir Sæmundsson
ÞESSI ljósmynd af Jan Martin Johnsen og Þóri Sæmundssyni birtist í norska dagblaðinu Aftenposten þegar
nýkomið var í ljós að þeir hefðu komist inn í norska Leiklistarskólann. Þeir eru í átta manna hópi sem
var valinn en 549 manns sóttu um inngöngu.
1 1 Efl Helti ÍVlhOlM 3. vika á toppnum Tvtlðíöi
2 2 LastKiss PearfJam
3 3 Nookie limpBizkít
4 7 Race Fop The Price The Haming Ltps
5 10 Coffee&TV Btur
6 5 Why 1 m Here Oleander
7 11 Whatever Godsmack
8 8 Engel Rammstein
9 4 Rugufrelsarinn SigurRós
10 18 ArOUHtí TflÖ WOnttístandpína vikunnar RedtiotCltfliPeppers
11 8 American Woman Letmy Kravitz
12 8 Get Born Again Alce te Cfiains
13 16 Rendez-Vu Basement Jaxx
14 io Jlvfn About QuapasM
15 13 Rotkví Ensúni
What's My Age Agai n? BBnk 182
17 14 The Kids Aren t Alright
18 24 Hftten Worids Collide
19 17 Tsunami
20 _ í Die, Die My Oarfing Nýburi vikunnar
21 20 Center Of The Universe
_ Another Love Song
23 27 Bring It On
24 ... Mama Said Knock You Out
25 15 Qho c ln Pochinn Hrakfallabálkurinn - ðno s in rdbmun Niöur um 10 tröppur
OHspping
Poweraian 5000
ManicStpeetPreadrei’8
Metaflica
Buflt To Spill
tnsane Clown Posse
Gomez
Waking Hours
Suede
Ongy
Fpeestyiers
Pavement
Smashmoutti
Ellilffeyrisþegi vikunar .
-11 vikur iHlUtflO
að um það að mig langaði til að
verða leikari en eftir að hafa tekið
þátt í þeirri sýningu var ég alveg
staðráðinn í því að þetta væri það
sem mig langaði til að gera.“
Varstu aldrei að hugsa um að fara
íLeiklistarskóla íslands?
„Jú, ég velti því fyrir mér að
sækja um núna síðast en inntöku-
prófið þar var á sama tíma og inn-
tökuprófið héma í Noregi. Ég var
náttúrlega líka ennþá í skólanum
mínum hér og ég hefði í raun ekki
getað komið því við. En ef ég hefði
ekki komist inn í skólann hérna
núna hefði ég alveg örugglega
reynt að komast inn í Leiklistar-
skólann heima á Islandi seinna."
Þórir segist svo bara ætla sjá til
hvað hann gerir að námi loknu.
Hann geti vel hugsað sér að vinna í
Noregi en fyndist líka gaman ef
hann gæti komið heim til Islands
og unnið hér.
NIKEBUÐIN
Laugavegi 6
Stutt
Elsta panda
í heimi
dauð
HIN 37 ára gamla risapanda Dou
Dou sem vai- talin vera elsti panda-
bjöm í heimi drapst í dýragarði í
borginni Wuhan í Kína fyrir fáein-
um dögum. Dou Dou fékk hjartaá-
fall og eru starfsmenn dýragarðsins
miður sín því það vom 16 sérfræð-
ingar í vinnu við það að reyna að sjá
til þess að Dou Dou, sem var aðal-
stjama dýragarðsins, myndi lifa
fram yfir aldamótin. Dou Dou verð-
ur þó áfram aðdráttarafl fyrir dýra-
garðinn því til stendur að stoppa
hana upp og hafa til sýnis.
Risapandan er í útrýmingar-
hættu og er talið að það séu aðeins
1000 pöndur á lífi úti í náttúmnni en
auk þess um 100 í dýragörðum.
Þegar pöndur lifa í náttúmnni ná
þær yfirleitt ekki nema 15 ára aldri
en í dýragörðum verða þær heldur
eldri eða um 20 ára, þannig að hin
37 ára gamla Dou Dou var því alveg
eldgömul miðað við pöndur.
Mikil áhersla er lögð á það að
risapöndumar deyi ekki út og kín-
verskir vísindamenn segjast vonast
til að tilraunir með einræktun geti
hjálpað þeim til að koma í veg fyrir
að það gerist.
Stressaðir
í vinnunni
STREITA tekur sinn toll af
heilsu fdlks á breskum vinnu-
markaði. Þetta kemur fram í
niðurstöðum könnunar sem
tímaritið „Management Today
Magazine“ birti á mánudag.
Könnunin leiðir í ljós að ótrú-
lega stór hluti vinnandi fólks í
Bretlandi telur sig þjást af of
mikilli streitu, ennfremur finnst
mjög mörgum þeir ekki vera
metnir að verðleikum og að
þeir þurfi að færa verulegar
fórnir í einkah'fi si'nu til að vera
samkeppnishæfir á vinnumark-
aðnum. Af þeim sem svöruðu
sögðu þijátíu af hundraði að
þeir teldu heilsu sina biða
hnekki af álaginu í vinnunni og
28 af hundraði sögðu streituna
hafa siæm áhrif á kynlifið hjá
sér.
Ferðalög og líkamsrækt eru
algengustu leiðirnar sem fólk
notar til að losa um spennu og
streitu. 20 af hundraði viður-
kenndu þó að þeir neyttu áfeng-
is við of miklu vinnuálagi og
14,5 af hundraði leita til sál-
fræðinga eða annarra sérfræð-
inga til að læra að takast á við
streituna.
Tarzan of
dónalegur
STRANGTRÚAÐIR gyðingar í
Israel eru æfir yfir auglýsinga-
spjöldum íyrir nýjustu Walt Disney
teiknimyndina „Tarzan". Ástæðan
er sú að Tarzan klæðist engu nema
lendaskýlu og þykir það alltof lítill
klæðnaður til að sæmilegt geti
talist.
Þeir, sem hafa eftirlit með þeim
auglýsingum sem stendur til að
birta í ísrael, vilja að nekt Tarzans
verði hulin og segja að annars geti
teiknimyndin haft slæm áhrif á
böm. Talsmaður Walt Disney fyrir-
tækisins segir að þeir sem séu
viðriðnir kvikmynda- og auglýsinga-
iðnaðinn þurfi að hafa sig alla við til
að komast hjá því að særa blygðun-
arkennd strangtrúaðra gyðinga.
Hann segir að sama um hvaða efni
sé að ræða, það sé alltaf nær
ómögulegt komast hjá því að nokk-
ur þeirra móðgist.